Vísir - 03.10.1913, Side 3
V í S 1 R
nvra
unni yrði komið í sem æskileg-
ast horf, bæði hvað meðferð
snerli og verð á fiskinum. En
ætti fiskurinn að lækka í verði,
gætu fisksölumenn ekki tekið á
leigu dýrar sölubúðir, álitu heppi-
legt að hafa 2 fisksölustaði í
bænum, annan um miðbæinn
og hinn inn við Völund. Skylda
ætti menn til að slægja fiskinn
eftir kl. 3 dag hvern, til þess
að vernda hann frá skemmd af
innvolsinu; hámark söiuverðs
skyldi ákveðið fyrirfram, svo sæ-
ist, hve hátt mætti kaupa af botn-
vörpuskipunum. Uppboðin, er
haldin væru um borð, sköpuðu
ekki eins verðið og nú gerðist.
Borðvogir ætti að vera skylt að
nota á fisksölustöðunum, en úti
við þær vogir er tíðkuðust
(gormvogir), þó með löggæslu-
eftirliti. Hitt brjefið, sem nefnd-
inni hafði borist, var frá þrem
kaupmönnum, er hafa verslanir
við Hafnarstræti. Fara þeir þess
á leit, að fisksölustaðurinn sje
t'ærður þaðan, sem hann nú er,
því óþverri sá og ólykt, er af
honum stafi, spilli fyrir að fólk
sæki þær verslanir er þeir hafi
þar í grennd. Stað fyrir fisksölu
bentu þeir á við »Batteríið«.
Auk þessara brjefa hafa komið
fram álit og tillögur frá Tr.
Gunnarssyni um fisksöluna, þar
sem hann Ieggur til, að bæar-
stjórnin láti byggja tvo steinpalla
fyrir sölustaði og að bærinn taki
að sjer fisksöluna, eða veiti
3—4 mönnum leyfi til að hafa
hana á hendi með vissum skil-
yrðum. Hvað þessar tillögur
snerti, áleit hann (Sv. B.) stein-
palla vera ónóga fyrir fisksöluna.
Fisksöluhús eitt væri tryggilegt,
og ef bæarstjórnin á annað borð
færi að skifta sjer af þessu máli,
ætti það ekkert kák að vera, líkt
mætti segja um brjef fisksölu-
manna, það virtist svo, sem þeir
vilji láta sjer nægja eitthvert ó-
fullkomið skýli fyrir söluna. Að
bærinn taki að sjer fisksöluna
væri óldeift, til þess þyrfti laga-
heimild, og yrði einnig að áiítast
fyrir margra hluta sakir mjög
óheppilegt. Pað fyrsta sem gera
ætti, væri að semja fisksölureglu-
gerð fyrir bæinn, hún gæti kom-
ið að miklu gagni, einnig gæti
bæarstjórnin þá eftir henni hag-
að sjer við framkvæmdir sínar,
viðvíkjandi fisksölunni framvegis.
— Brjef kaupmanna er ekki ann-
að en raddir nokkurra af mörgum,
sem vilja, að fisksalan fari ekki
þarna fram, svo sem hún nú er.
Staðurinn sem þeir benda á, er
ekki heppilegur; áður verið bent
á hentugrí stað, svo sem Gróf-
ina.
Kr. Porgrímsson sagði, að nefnd
sú, er kosin hefði verið til að
íhuga þetta mál, hafi ekki hrundið
því áfram og áhrif frá henni
hefðu ekki sjest að neinu leyti
enn þá, fisksalan væri nú ekki
betri en áður, nefndarmennirnir
væru að pukra með brjef til
bæarstjórnarinnar í stað þess að
afhenda þau borgarstjóra. Þeir
hefðu ekkert eftirlit haft með fisk-
sölunni, hvernig hún gengi.
Þ»egar jeg seinast dvaldi erlendis, keypíi jeg af verslun, sem varð gjald»
þrota, mjög vandaða
\6ö
í&sen^a^ati&ali.
IÞessar vörur eru til sýnis útaf fyrir sig — og seijast þessa viku með 10
til 20 kr. afslætti frá hinu upphaflega verði.
Komið og sjáið! — Þetta er betra en nokkur undanfarin
Útsala,
3*
»© ö • %
OVUYVUSVO.
Alþýðulestrar fj elag* 1
Reykjavíkur
— lestrarstofa í Templararsundi —,
er opin fyrir fjelagsmenn hvert
kvöld frá kl. 6 til 872 frá l.októ-
ber þ. á.
Borðið aðeins Suchards
súkkulaði. Án efa besta át-
súkkulaðið. Fæst alstaðar.
\$a*
og notið ekki cement, nema þetta
skrásetta vörumerki
sje á umoúðunum.
Yindlar
hestir,
vindlar
ódýrastir,
H. Guðmundsson.
Austurstræti 10.
Auglýsingum
{ Vísi sje skilað sem tímanlegast, að
hægt er. Stórum auglýsingum ekki
síðar en kl. 6 daginn fyrir birtingu,
neina öðruvísi sje umsamið.
gjjl Auglýsingum í laugardags-
blaöið sé skilað á föstudag fyrir
kl. 3 e. h.
Hlaðnai
-P;
Púður 08 Högl
ódýrast og best í verzl.
H|f P J Thorsteinssoii & Co
(Godthaab).
tia*-^a^il,
Blessað kaffið lífgar lund,
Ijettir hverja raunastund!
Komdu okkar fyrst á fund,
fá þjer brennt og tnalað pund.
LAMPAR
Emaleruð
búsáhöld
ódýrast í Vesturgötu 39.
Jón Árnason
fi o ttFVti fi tixv±i t
IViálverkasýningu
heldur Magnús Á. Árnason
í Iðnskólanum kl. 11—4
daglega.
Nokkur nýtísku reiðhjól
fyrir konur og karla, til sölu með
verksmiðjuverði hiá
G, Eiríkss,
Hafnarstræti 20.
Húsaleigusamninga-
1 eyðublöð á 5 au. selurD.Östlund.
Síðast í dag hefði verið seldur
fiskur, sem alls ekki hafi verið
boðleg vara, heldur hefði átt að
kastast í sjóinn. Nefndin því
með öllu óhæfileg til þess, sem
henni var ætlað að gera. Kvaðst
koma á hverjum morgni niður
á fisksölustaðinn, þá svæfi Sv.
B. og nefndarmennirnir. Því væri
best að vísa málinu frá umræð-
um til nýrrar nefndar, er kjósa
ætti til að athuga það og undir-
búa fyrir bæarstjórnina.
Tr. Gunnarsson kvaðst sam-
mála Kr. Þ., kvað álit nefndar-
innar snerti, það væri óhyggi-
legt að byggja dýr hús fyrir fisk-
söluna og væri eigi líklegt að
þau yrðu til þess að lækka verð-
ið á fiskinum hjer í bænum, sem
væri óhæfilega dýrt, t. d. smá-
seiði það er nú væri selt lijer
með slori og hausum á 8 aura
pd.,mundialls ekki ganga á erlend-
um mörkuðum meira en 2 til 3
aura hvert pd. Nú væri eftirsókn
fisksölumanna svo gráðug, að
þeir reru á móti trollurunum er
til þeirra sæist og mættu þeim í
Engeyarsundi, og lægi stundum
við slysi af aðgangi þeirra við
skipin, þetta þyrfti að afnema, og
það yrði helst gert með því, að
ekki fleiri en 3—4 mönnum væri
leyfð fisksalan. Einnig ætti að
verða hægt að ákveða hámark á
verði fisksins, svo þeir vissu
kvað þeir mættu bjóða í hann
um borð, með því mætti tryggja
fólki, að það þyrfti ekki að
kaupa fisk dýrari en 4 aura
pd. — Það væri grýla ein að
bærinn gæti ekki tekið að sjer
fisksöluna, hann gæti falið ein-
um manni söluna á hendur, sem
sæi um hana og rjeði sjer mann
til aðstoðar eins og nú væri gert
með salernahreinsunina. — Vildi
láta kjósa nýa nefnd. **