Vísir - 10.10.1913, Síða 1

Vísir - 10.10.1913, Síða 1
762 Ostar bestir og ódýrastir 15 í verslun lEinars Árnasonar. ■QS \s\r Stimpla og: Innsiglismerki Otvegar afgr. Visis. Sýnishorn liggja framml. 1 Kemur út alla daga. — Sími 400. Afgr.i Hafnarstræti 20. kl. 11-3 og 4-6. Föstud, lO. okt. 1913. Háflóö kl. 2,14‘ árd. ogkl.2,36’ síðd. Afmœli. Húsfrú Anna Sigríður Björnsd. Frú Anna Björnsdóttir. Frú Jófríður Guðmundsdóttir. Frú Ragnheiður Guðjohnsen. Frú Sesseija Þorsteinsdóttir. Björn Gunnlögsson, verslunarm Gísli Halldórsson, trjesmiður. 9 A morgun: Póstáætlun. Ceres fer til Stykkishólms. Ingólfur kemur frá Borgarnesi. Varanger keinur frá Breiðafirði. HafnarfjarðarjDÓstur kemur og fer 25 blöð(frá 10. okt.) kosta á afgr, 50 aura. Send út um Iand 60 au.—Einst blöð 3 au. Skrifstofa í Hafnarstræti 20. (uppi), opin kl. 12-3. Sími 400. OáA Biografteater Jd' ' OIO Reykjavíkur JDSO 10., 11. og 12. okt. Sjónleikur í 2 þáttum. Aðalhlutverkið Ieikur hin heimsfræga danskona Miss Saharet. Lifandi frjettalblað. . Aukamynd. K. F. U. K. Kl. 8V2 Fttndur í eldri deild. Upptaka nýrra meðlima. Allar ungar sfúlkur velkomnar, K. F. U. M. KI. 8Va Lúðraæfing í Sumargjöf. (Áríðandi uð allir mœti.) U R BÆNUM Gefin saman: 2. okt. Helgi Hallgrímsson kennari frá Grímsstöð- urn á Mýrum og ym. Ólöf Sigur- jónsdóttir Skólavörðustíg 14. 3. okt. Gríuiur Kristinn Árnason trjesmiður Austurbakka og ym. Dýr- leif Jónsdóttir Vesturgötu 41. 4. okt. Magnús Jónsson frá Hlíð- arenda í Öifusi og ym. Guðrún Jónsdóttir Hömrum í Reykholtsdal. 5. d. Ólafur Árnason Bræðra- borgarslíg 35 og yni. Guðrún Þór- arinsdóttir Lindarg. 10, S. d. Jónas Bernharðsson verk- maður og ym. Þorvaldína Jónsdótt- ir Grettisgötu 51. 5. oki. Einar Hróbjartsson póst- afgreiðslumaður Unnarstíg 1 og ym Stefanía Ágústa Sveinbjörnsdóttir Spííalastíg 2. Málverkasýning Magnúsar Á. Árnasonar í Iðnskólanum endar á sunnudaginn kemur. Ættu menn nú ekki að sitja sig úr færi og sjá myndirnar. Þær eru um hálfur fjórði tugur litmynda og um 20 blýants- teikninga. Sjerlega vel gerðar af byrjanda í listinni. Nú þarf að flýta sjjer! því 9 Utsalan ágæta hjá ÁRNA ESRÍKSSYNI í Austurssræti 6 er bráðuin á enda. Nýkomnar vöruhirgðir með skipunum »Baron Stjernblad* og »Ceres«, svo nú er úr mörgu að velja. Kvenhanskar úr skinni og vetrarhanskar. Kvenireflar og Dörnuklæði (Peisuklæðið góða). Kvensvuntur og handa börnum. Kvenlífstykki og kynstrin öil af bróderingum, milliverkum og fjölda margt fleira. Hafið þið nú hraðann á! Gyðingaofsóknir geysi miklar hafnar á Rúss iandi: Tilefnið að gyðingur er sakaður um að hafa fórnfært kristnum dreng. ísafirði. Kosning í niðnrjöfnunarnefnd ísa- fjarðarkaupstaðar á einum manni í stað Guðm. Gnðmundssonar skálds fór nýlega fram. Kosinn var Magn- ús Thorberg símstjóri með 112 atkv. — J. B. Eyólfsson gullsmið- ur fjekk 54 atkv. — Wlagdeborgar-Brunabótafjelag. j.., Aðalumboðsmenn á fslandi: O. Johnson & Kaaber. er aftur komin til Arna rakara Þingholtsstræti I. Hjartanlega þakka jeg öllum þeim Reykjavíkurbúum, er hlynntu að manninum mínnm sál. Kristjáni H. Jónssyni frá ísafirði í banalegu hans og heiðruðu útför hans. Sömuleiðis bið jeg góðan guð að launa þeim alla hjálpsemi þeirra við mig og hluttekningu í raunum mínum. pt. Reykjavík 9. okt. 1913. Guðbjörg Bjarnadóttir frá ísafirði. H! FRÁHTLÖNDtliH Bók Tolstoy’s um ríkisvaldið hefur verið dæmd ' til að brennast, ásamt 2 öðr- ; um rússneskum bókum. Er það samkvæmt dómi yfirrjettarins í Pjetursborg. Áður í sumar voru 2 bækur Tolstoy’s gerðar upp- tækar, trúarlegs efnis. Alþjóða-bindindisþing hið 24. var háð í Mílanó á Ítalíu í sumar; mættu þar fulltrúar frá 23 löndum. Fyrir hönd Norð- manna mætti þar dr. Jóhann Scharffenberg, bindindisfrömuður- inn mikli og var kosinn í for- stjórn alþjóðabindindis skrifstof- unnar. Hneykslisprestur í Parfs. Prestur í París, sjera Toiton, er sakaður um rofin hjúskaparlof- orð allmörg og hefur verið tek- inn fastur fyrir það. Presturinn trúlofaði sig giftingarærum yngis- meyum, er komnar voru á örvænt- ingarárin, hópum saman og hafði út úr þeim fje. Hann hafði karl nokkurn sjer til aðstoðar að ná í kvenfólk í þessu skyni, er hann ljet segja að væri faðir sinn. Dvergfíllinn. Belgiskur herforingi, Franssen að nafni, dó nýlega í Kongo, en vann sjer nokkuð til frægðar áður. Hann fann litlu fyrir and- lát sitt nýa fílategund — dverg- fílinn, — er vísindamenn þekktu ekki áður. Dýr þessi kalla blökku- mer.n þar syðra »wakawaka« og Langbesti augl.staöur i bænum. Augl. sje skilað fyrirkl. 6 daginn fyrir birtingu. lifa þau helst í vatni inn í þjett- ustu skógunum, sem flæðir yfir meiri hluta árs. Dvergfíllin er 1,66 stika á hæð um herðakamb- inn. Keriingarnar eru kræfar. Konur hefjast handa gegn áfengissölu. í Sadolje-hjeraði í Pskowfylki á Rússlandi ætluðu bændur sjer að banna brennvínsölu. En drykkjumenn ogýmsir aðrir voru því öndverðir og urðu bændur að láta undan. Er. þær sem ekki Ijetu undan, voru konurnar þeirra. Þær tóku sig saman um, að koma skyldi í veg fyrir brennivínssöluna með valdi, því þær sáu að menn þeirra og bræður eyddu síðasta eyri sínum í drykkjukránum. Einn góðan veðurdag komu þa:r saman og gerðu aðsúg að aðal brennivínsbúðinni, og mölvuðu allar rúðurnar í henni. Vínsalinn ljeT setja nýar rúður í gluggana, en þær fóru jafnharðan sömu leiðina. Sá hann þá sitt óvænna, gafst upp fyrir kerlingunum og hætti brennivínssölunni. Nú tók annar kaupmaður að selja brennivín í sama þorpi, en þá fóru kerlur þangað og mol- brutu hvern glugga, hvað eftir annað. Sá kaupmaðurinn þar heldur ekki annað vænna en hætta söiunni, og er nú brenni- vínssölu með öllu hætt í Sa- dolje, því enginn vill eiga kerl- ingarnar yfir höfði sjer í þessum vígamóði. Prinsessa fremur sjálfsmorð. Soffía prinsessaaf Saxen- Weimar- Eisenach skaut sig til bana í Heidelberg 18. f. m., í svefnher- bergi sínu í höll föður síns, Vil- hjálms prins af Saxen-Weimar. Or- sökin var sú, þótt ekki sje því á lofti haldið, að henni var ineinað að ganga að eiga mann, er hún unni hugástum, Dr. Hans v. Bleich- röder, son nafnfrægs milljónamær- ings og bankamanns í Berlín, er forðum daga lagðí fje fram til að j styðjaótriðaráformBismarcks. Bleich- röder kynntist henni, er hann var stúdent í Heidelberg, en hertoginn af Saxen-Weimar, aðaimaður ætíar- innar, krafðist þess að húu yrði arf- laus og afsalaði sjer tign og met- orðum ef hún ætti hann. Þess má geta að eldri bróðir hennar, Her- mann, afsalaði sjer ekki alls fyrir löngu tign og metorðum til þess að mega eiga leikkonuna Wanda Paola Lottero, er ljek aðalhlutverkið í »Kátuekkjunni«,nafnkunnum gam- anleik. Flug yfir Miðjarðarhafið. Frakkneski fiugmaðurinn Qarros, flaug þvert yfir um Miðjarðarhaf | milli St. Rafael og Tunis 22. f. m. | á átta stundum, þar sem það er 500 enskar mílur á breidd.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.