Vísir - 20.11.1913, Qupperneq 2
V I S 1 R
« clag.
Háflóð kl. 9.44‘árd.og 10.18« síðd.
A morgun:
Afmœli.
Frú Anna Halldórsdóttir.
Fru J. M. Havsteen, 60 ára.
Frú Guðríður Guðmundsdótiir, 60
ár ?.
Kristín Jónasdóttir, Ijósmóðir.
Einar Kr. Þorsteinsson, verslunarm.
Ólafur Th. Guðrnundsson, trjesm.,
40 ára
Pálmi Pálmason, kennari.
y
Frá Irlandi.
Fimm þúsund eigna- og kaup-
sýslumenn í Ulsíer, er ráða yfir
145000 000 sterl ingspunda fjármagni,
hafa lýst því yfir á fundi í Belfast,
að þeir neiti að gjalda skatta, ef
heimastjórnarlögin írsku verði látin
ganga í gildi. Balfour ráðherra lýsti
yfir því í ræðu í Aberdeen 3. f. m.,
að krefja bæri nýrra kosninga um
allar Bretlandseyjar eða þá, ef hætta
þætti á að hlutrirægni og flokksæs
ingum yrði of mjög beitt við kosn-
ingar, að reyna að láta alþjóðar
atkvæðagreiðslu (referendum) fara
fram um lögin. Taldi hann það
heppilegra eftir því sem nú væri
komið málinu, en að stjórnin hleypti
því í óefni' með því að láta lögin
umsvifalaust ganga í gildi. —
— Bernhard Shaw rithöfundur
og fjöldi mikill irskra verkmanna í
Dýflinni hefur heimtað Larkin verk-
mannaforingja látinn lausan. Verk-
föllin í Dýflinni síðustu 8 vikurnar
hafa kostað borgarbúa 750 000
sterlingspund.
Tjón af eldsvoða
í London í síðastl. mánuði eru met-
in 258 200 sterlingsp. — Af því
tjóni eiga atkvæðakonur sök á 10 500
Sterl.pd., er þær hafa bakað með
kveikjum.
»Aspirin«.
Fjelagsforstjóri nokkur frá Lon-
don, E. C. Sladen, tók 4 grömm
af »aspirini« við óþolandi höfuð-
verk, er hann fjekk á ferð í Birrn-
ingham, og beið hann bana af með-
alinu litlu á eftir.
Fórnardýr dáleiðslunnar.
Sjötugur dávaldur í Vesturheimi,
Farroll að nafni, i Arkansas er
dæmdur til dauða fyrir morð og
morðtilraunir. Farroll tókst að ná
á vald sitt auðugum bónda með
íírekaðri dáleiðslu svo mjög, að
hann gat látið hann gera hvað sem
hann vildi. Farroll Ijet hann gera
sig að einkaerfingja hans, Ijet hann
drepa konu sína og stjúpdóttur á
eitri og ætlaði svo að láta hann
fremja sjálfsmorð. En á síðasta
augnabliki tókst að koma í veg
fyrir það. Eftir nokkra mánaða dvöl
í sjúkrahúsinu gat hann skýrt frá,
hve voðaleg áhrif Farroll hafði á
hann. Var hann þá tekinn fastur
og játaði á sig glæpina. Þegar
dauðadómurinn var iesinn upp, var
rjettarsalurinn troðfullur af fólki, er
Ijet ókvæðisorð og bölbænir dynja
á þessum dávaldi, hvítum fyrir hær-
um, en hann Ijet sjer hvergi bregða
og hlýddi á dóminn með brosi á
vörum.
fá ekki betri gjafir, en hinar ágætu mynda-
!. bEekur og sögubsekwr með myndum frá
Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar.
■ í Atovr-' rr v
«» ©
gosdY^fifiw
í 3ft$6Qsfwof\.
Appelsínur
Yínber
Epli ameríkönsk
Lanknr og kálhöfnð
Kartöflar m. m.
Jt$fiom\3 \ h|f ’J&te\$af>f\fu
Nykomið með,Sterling‘:
Hvítt ljereft
frá 25 til 38 au. al.
Tvíbreitt lakaljereft
frá 82 au.
Tvisstan
af mörgum gerðum.
Rúmteppi
hvít, frá 2 kr.
Enskar
húfur
með 40% afslætti fást á
Laugaveg 20 A.
Með niðursettu verði
Stumpasirs
og
Flúnelsstumpar
aðeins á kr. 1,40 pd. fæst á
Laugaveg 20 A.
J(í\6%uvsatatv
á Laugaveg 76. er flutt aftur á
£att$a\)e§ 19.
Hrossliár
(tagl- og faxhár) ér keypt afar-
háu verði i Þingholtsstræti 25
kl. 9—10 árd.
^Uc^ttsamu* tttvguY
maðttv
óskar eftir atvinnu við skriftir 2-3
tíma á dag, lágt kaup. Afgr. v. á.
Hryllilegur glæpur.
ítalskur prestur, Rubens aö nafni,
32 ára, hefur verið tekinn fastur
ásamt eldabusku sinni, 22 ára gam-
alli. Hann er sakaður um að hafa
með vitorði stúlkunnar hellt stein-
olíu yfir nýfætt barn hennsr og
brennt það lifandi. Fangel=ið hefur
varia orðið varið fyrir lýðnnm, er
vili fyrir hvern mun drepa prestinn
undir eins.
Merkis-fundur.
í Danmörku hafa fundist nálægt
Drottningarlundi bein úr Mammúth-
dýri. Hefur það örsjaldan borið
við áður, að leifar slíkra dýra hafi
fundist á Norðurlöndum. En dýr
þetta hefur á ísöldinni fluíst ti!
Danmerkur með skriðjöklabrotum.
Bankaþjófur.
Ungur bankaþjónn við banka-
útbú í Kaupmannahöfn hefur ný-
lega stolið 24 000 kr. og slrokið
til Vesturheims, meðan útbússtjórinn
var að heiman. Hann fjekk »fríc
er hinn kom heirn og slapp með
þýfið vestur heill á húfi.
Vesturheimsferilr
Ausfurríkismanna.
Lögreglan í Vínarborg hefur lok-
að skrifstofum Canadian Pacific
járnbrautarfjelagsins fyrir það, að
fjelagið hafi hjálpað til að komast
burt til Vesturheims U2 000 vainar-
skyldum rnönnum síðustu 10 mán-
uðina, Þetta hefur vakið mikla eft-
irtekt-.viðsvegar og stjórn fjelagsins
hefur mótmælt slíku gerræði lög-
reglunnar við stjórn Austurríkis og
kveðst höfða skaðabótamál. Sá orð-
rómur gengur í Vínarborg, að Rúss-
ar standi bak við þetta og vilji
þannig veikja landher Austurríkis-
manna, — hafi útflytjendur þessir
fengið allháan styrk lil farariunar
af rússnesku fje. Sannað er talið, að
ferðabrjef og skilríki þeirra hafi ver-
ið ósvikin rússnesk og flestir þeir,
er fóru, voru frá Oalixin og Buko-
vinu, — höfðu umboösmenn fje-
I^gsins komið þeim til að fara og
selt fyrir þá eignir þeirra rússnesk-
um ríkisborgurum. Mælt er að
Franz Jósef keisara hafi fallið þetta
mjög þungt og er þetta ekki ■ vel
fallið til að styrkja vináttu Rússa og
Austurríkismanna.
Heimsfrægur vfsinda-
maður látinn.
Dr. Alfred Russel Wallace, nátt-
úrufræðingurinn mikli, »samverka-
maður« Darwins og annar höfuðs-
niaður náttúruvalds-kenningarinnar,
er dáinn 7. þ. m. að heimili sínu
í Dorset á Englandi, 90 ára. Hann
var fæddur 8. jan. 1823, ferðaðist
í fyrri daga víða um suðurlönd og
suðurhöf, settist síðar að heima á
Bretlandf og hlaut frægð mikla og
sæmd fyrir rit sín og rannsóknir.
Náttúruvals-kenninguna fundu þeir
Darwin fyrstir, hvor í sinu lagi og
var lengi deilt um, hvorum þeirra
bæri heiðurinn af því, en nú eru
þeir í heimi vísindanna af fle.;tum
jafnrjettir taldir.
Jónas Gruðmnndsson-
löggiltur gaslagninganiaður,
Laugaveg 33, sími 342.