Vísir - 18.12.1913, Page 1
Bgsæææa íKHSMB»«a«8WH»Í®SS8KK»^SSKa^
VícjV erelsta— besta og út-
V loll breiddasta dagblaðið á
íslandi.* j
saffirat.*
&
| Vísir er blaðið þitt.
jS Hann áttu að kaupa fyrst og fremst.
í»
Kemur út alla daga. — Sími 400.
Agr i Hafnarstr. 20. kl. 11 árd.til 8síðd.
30blöð(frá 16. des,) kosta á afgr. 50 au.
Send út um land 60 au.—Einsl.blöð 3 au.
Skrifstofa í Hafnarstræti 20. (uppi),
opin kl. 12—3; Sími 4Ó0.
Langbestí augl.staður í bænum. Aug.
sje skilað fyrir kl. 6 daging fyrirbirtiugu.
Flmmtud. 18. des. 1913.
Veðrátta í dag:
Loftvog £ 1 Vindhraði Veðnrlag
Vm.e. 752,0 3,8 A 6;Skýað
R.vík 749,9 1,5 A 2 A -k.l
ísaf. 753,3 1,4 A 5'Skýað
Akure. 754,1 0,8 SSV 1 Ljettsk.
Gr.st. 718,0 2,5 SA 4 Skýað
Seyðisf. 755,7 2,5 A 3 kegn
þórsh. 768,0 8,1 SV 7 Alsk.
N—norð- eða norðan,A —aust-eða
austan.S—suð- eða sunnan, V— ves-t
eða vestan
Vindhæð er talin ístigumþann-
ig: 0—logn, 1 —andvari, 2—-kul, 3—
goia, 4—kaldi, 5—stinningsgola, 6—
stinningskaldi,7—snarpur vindur,8—
hvas5viðri,9 stormur, 10—rok.ll —
ofsaveður, 12—-fárviöri.
Skáleturstölur í hita merkja frost.
jUvabwf (á morgun).
Innihald; Fáninti.
Orðsending til pðstmeistara.
Stjónarskráin í ríkisráðinu.
Kosningadagurínn.
Þingmannatfni o. fl. o. fl.
Jeg tek að mjer að smíða ails-
konar húsgögn, einnig að inn-
ramma myndir. Allt fijótt og vel
af hendi ieyst. Komið fljótt, því
nú er stutt til jóla.
Reykjavík n/12 1913
Sig. Skagfjörð, I
Grjótagötu 14.
Ú R BÆN UH
Jólablað Æskunnar hefur Vísi
verið sent, snyrtilegt með mörgum
myndum. Jólakvæöi eru þar eftir
Guðm. Guðmundsson, Guðm.
Magnússon, Ben. Þ. Gröndal og
jólasögur eftir Jón Trausta, Þor-
stein Finnbogason og Jóhannes
Friðlaugsson.
Blaðið kostar að eins 10 aura.
Almanök — tvö sendi Brauns
verslun Hamborg Visi í gær, bæði
til að hanga á vegg. Var annað
með skrautlegri mynd yfir. Vísir
þakkar gjöfina.
Gefin saman: 13. þ m. Þor-
steinn Bjarnason, Hverfisgötu 3 A, og
ym. Anna Friðfinnsdóttir s. st.
Jón Gunnarsson, samábyrgðar-
stjóri, er tekinn við gœslustjóra-
starfinu í Landsbankannm af Jóni
Ólafssyni, sem sagði því lausu áð-
ur tími hans var útrunnin (31. jiíní).
Matth. Óíáfssyni alþm. og
kaupm. í Haukadal er veitt erind-
rekastarfið fyrir Fiskifjelag íslands
frá 1. næsta mán,
Ólafi T. Sveinssyni, vjelfræðing
frá Flateyri, er vcitt vjelaleiðbeininga-
starfið fyrir Fiskifjelag Islands frá
1. n. m.
gRADDIR ALMENNINGS
Mjólkur sölureglugerðin
Og
bæarstjórnin.
Bæarstjórnin samþykkti á fundi 4.
þ. m. að færa lágmark mjólkurfit-
unnar úr 3,259/0 niður í 3°/o- Urðu
nokkrar umræður um þetta í bæar-
stjórninni og þó furðu litlar, því
þetta er sama og ekki lítil verð-
hækkun á mjólk, sem áður var mjög
dýr. Var þetta samþykkt á þeim
grundvelli, aö af 95 sýnishornum,
sem heilbrigðisnefnd Ijet rannsaka,
reyndust 59 undir 3,25%, en ein-
ungis 36 yfir því marki. Þessi rann-
sókn þykir bæarstjórn og heilbrigðis-
nefnd nægilegur grundvöllur til að
lækka fitumarkið.
En hvernig eru þessi sýnishorn
fengin? Er nokkur trygging fyrir
því aö þessi sýnishorn sjeu tekin af
óblandaðri kúamjólk? Jeg geri ekki
ráð fyrir því. Sýnishornin eru senni-
lega tekin hjer á mjólkúrsölustöðun-
um af handahófi. Tryggingin fyrir
því, að mjólkin sje óblönduð eða
óþynnt, því alls engin, rannsóknin
þar af leiðandi einskis virði, Til
þess að slíkar rannsóknir sjeu nokk-
urs virði og hægt sje að nota þær
sem undirstöðu til að ákveða lág-
mark mjólkurfitunnar, þá verða þær
að vera gerðar á mjólk, sem óyggj-
andi vissa er fyrir að sje óblönduð,
en sú vissa er ekki fengin með pví
að taka mjólkina, sem rannsaka skal,
á útsölustöðunum. Þessi vissa fæst
ekki með öðru móti en því, að heil-
brigðisfulltrúinn mjótki sjálfureða láti
mjólka að sjer áhorfandi þá mjólk,
sem ætluð ertil rannsóknanna. Önnur
aöferð er ekki óyggjandi og hafi
þessi aðferð ekki verið viðhöfð, þá
er ekkert mark takandi á þessum
rannsóknum.
Nú er kúamjölk í vísindabókum
talin að eiga að innihalda 3.7%
fitu. Gamla lágmarkið (3.25°/0) er
því 72% fyrir neðan það og V2°/o
er mikið af ekki hærri tölu, það er
tæpur % af fitumagninu. Hvort
íslensk mjólk sje yfirleitt svo kosta-
rýr eða hvað þær rannsóknir hafa
verið nákvæmlega og samviskusam
Iega gerðar, sem gjörðar voru áður
en gamla lágmarkið var sett, veit
jeg ekki. En hitt veit jeg, að ef
þetta lágmark er of hátt, þá er íslensk
mjólk mjög rýr. Frh.
jHrRÁ ÚTLðNDOH^
Forsetakosningin ónýt
í Mexíkó
Þing Mexíkómanna hefur' 9. þ. m.
ónýtt kosningu Huerta forseta og
er ákveðíð að ný kosning fari fram
í júlímán, — Þingið býst við að
Huerta haldi |ró völdum þangað
til í septemberlok.
Mynd af
Vilhjálmi Stefánssyni
og skipi hans »Kar!uk« flytvrr
enska blaðið »DaiIy Mirror* 10.
þ. m. Er þar skýrt frá því
eftir síniskeyti frá honum, að skip
hans hafi rekið til hafs í stormi
24. sept. og voru á því 25 menn,
og hafi hvorki hann nje aðrir fund-
ið það síðan.
Eldsvoði f námum.
Þrettán manns biðu bana og
marga vantar í námum í Rybuik
í Schlesíu, er eldur kom upp í 8.
þ. m. og kviknaði í gasi.
Krýning Japanskeisara
er ákveðið að fari fram 3. nóvem-
ber að ári,
Frá Kaukasus.
í Jekaterinodar í Kaukasus rjeð-
ust 20 vopnaðir ræningjar 6. þ. m.
á landstjórann þar og rændu hús
hans. Bardagi var harður og biðu
11 menn bana, en 6 særðust.
Landstjórinn komst Iífs af.
TIL JÓLA
verður gefinn 6% afsláttur af öllum
vörum frá hinu lága verði r
verslun
Ingvars Pálssonar
Hverfisgötu 11.
Rfkiskanslarinn þýski
fer ekki.
Bethmann-Hollweg er ekki á því
að láta af völdum. Hann hjelt ræðu
í ríkisþinginu þýska 9. þ. m. og
fórust meðal annars svo orð:
»Hin svonefnda vantrausts-yfir-
lýsing yðar á mjer hefur ekki haft
óg mun ekki hafa nokkur áhrif á
mig. Jeg hef hvorki beiðst nje
mun beiðast lausnar hennar vegna.
Sjerhver tilraun til þess að reyna
að hafa áhrif á ákvörðunarvilja
keisarans í því efni er gagnstæð
ríkisgrundvallarlögunum. Keisarinn
einn og enginn annar er að rjett-
um ríkisgrundvallarlögum sá, er
rjeltinn á, að skipa og víkja frá
kanslara ríkisins, og jeg ætla mjer
af alefli að beita mjer gegn sjer-
hverri tilraun hverju nafni sem nefn-
ist, er'þingið kann að gera til þess,
að ganga á stjórnlögmæt einkarjett-
indi keisarans! Já, herrar inínir!
Sjerhverri slíkri tilr)un (hvert sem
tiún kemur fram í synjun á að
afgreiða fjárlög e/a á annan lrátt)
af þingsins hálfu, skal verða mætt
með ósveigjanlegri andspyrnu. Vjer
höfum ekki þingræðisstjórn hjer, eins
og á Frakklandi og á Bretlandi, og
jeg skal róa að því öllum árum
af ýtrasta megni, að slík skipun
komist aldrei hjer á, þótt hreyfing-
ar yrði vart í þá átt.«
Kanslarinn hefur þannig steytt
hnefann framan í ríkisþingið, haft
vantraust þess að engu, sýnt þeim
franr á máttleysi og fullkomið alræði
keisarans. Nærri má geta, að jafn-
aðartnenn í þinginu urðu reiðir, og
er viðbrugðið ræðu þeirri er Scheide-
mann, eftirmaður Bebels, hjelt þá,
— þótti hún hin skörulegasta og
sýndi Ijóst að lítið gæfi hann eftir
fyrirrennara sínum. Kvað hann
meðal annars örðugt mundu verða
fyrir kanslarann að koma málum
ríkisins fram við erlendar stjórn-
ir, er allir vissu að náiega allt þing
ríkisins væri hætt að bera traust til
hans, og þarmeð þjóðin mest öll.
1. sögu-kvikmynd.
Til þess aö verða við óskum margra
manna, ætlar Nýa Bíó að sýna flokk
sögu-kvikmynda og hefjast þær í kveld
með kvikmynd eftir hinni heimsfrægu
sögu
Vlctor Hugo’s:
Notre-Dame-
kirkjan
í Parísarborg.
Kynnið yður fiokkinn frá upphafi.