Vísir - 13.01.1914, Síða 1
t/ícSr er e'sta— besta og út-
" * ® ® breiddasta dagblaöiö á
íslandi.
\s\r
aa
* Vísir er blaðið þitt.
Hann áttu að kaupa fyrst og fremsi
Kemur út alla daga. Sími 400.
Agr. í Hafnarstr. 20. kl. 11 árd.til 8 síðd.
25 blöð.(frá 8. jan.) kosta á afgr. 50 au.
Send út um lánd 60 au.—Einst. blöð 3 au.
Skrifstofa í Hafnarstraeti 20. (uppi),
opin kl. 12—3. Sími 400.
Langbestí augl.staður i bænum. Augl.
sje skilað fyrír kl. 6 daging fyrir birtlugu.
Þriðjud. 13. jan. 1914.
Geisladagur.
Hifióð kl. 6,15’ árd. og kl. 6,37’síðd.
>
A morgun
Aftnœli:
Frú Kristín Vigfúsdóttir.
Frú Soffía Thorsteinsson.
Jónas Guðbrandsson. steinsm.
Ólafur Bjömsson, ritstjóri, 30 ára.
Póstáœtlun:
Álftaness-póstur kemur og fer.
Hafnarfjarðar póstur kemur og fer.
Veðrátta í da tg:
Loftvog Hiti I - —. o CTl t- -C T3 C > Veðnrlag
Vm.e. R.vík Isaf. Akure. Gr.st. Seyðisf. þórsh. 767,117,0 765,517,7 765,34,5 768.6 6,0 735,72,0 771.7 1,8 778,6|5,0 SA ASA S SSV SV 6 4 0 i Regn Regn Skýað Hálfsk. Ljettsk. Ljettsk. Móða
N—norð- eða norðan.A—aust-eða
austan.S—suð- eðasunnan, V— vest-
eða vestan
Vindhæð er talin ístigum þann-
ig: 0—logn,l —andvari, 2—kul, 3—
goía, 4—kaldi, 5—stinningsgola, 6—
stinningskaldi,7—snarpur vindur,8—
hvassviðri,9 stormur, 10—rok,ll —
ofsaveður, 12—fárviðri.
Skáleturstölur í hita merkja fröst.
Bíó
Biografteaterj r> ' '
Reykjavíkur |OlO
Glæpamannaforinginn
tígeren.
Leynilögregluleikur í 4 þáttum;
hin áhrifamesta kvikmynd, sem
enn hefur sýnd verið. — Sýningin
stendur yfir miklu lengur en 1
kl.st.
Betri sæti 50 aura, almenn sæti
35 aura, börn 15 aura.
| fkklstur fást venjulega tilbúnar
I á Hverfisg. 6. Fegurð, verð og
* gæði undir dómi almeunings. —
B— Sími 93. — Helgi Helgason.
Fallegustu likkisturnar fást |$
hjá mjer—alltaf nægar birgð- p
ir fyrirliggjándi — ennfr. lik- 1
klæði (einn g úr silki) og lík- |
kistuskraut. s
Eyvindur Árnason. p
Ú R BÆNUM
Michelangelo, enskt botnvörpu-
skip, kom í gær frá Vestfjörð-
um. Með honum komu 5 far-
þegar, meðal þeirra Kristján kaup-
maður Torfason og Pjetur ræð-
ismaður Ólafsson. Hefur skipið
verið að veiðum þar úti fyrir mán-
aðartíma og aflað 2000 körfur.
Fór til Englands í gærkveldi.
Snorri Goði kom í gær frá Eng-
landi.
Mars kom af fiski í gærkveldi.
Skúli Fógeti kom á sunnudag-
inn af fiski, hafði 500 körfur. Sagði
nægan fisk í Garðsjó.
Wellington, sem hjer hefur leg-
ið til aðgerðar, fór út í gærkveldi,
Fóru tveir af þýsku strandmönn-
unum (frá Bolungarvík) með hon-
um sem hásetar. Þeir höfðu komið
allir hingað á sunnudaginn að vest-
an nieð botnvörpuskipinu Sime-
reain frá^Grimsby. S. fór út í
gærkveldi, hafði veitt 1200 körfur
á 7 vikum.
Dáin er 9. þ. m. Margrjet
Þorsteinsdóttir á geðveikrahæl-
inu á Kleppi.
S. d. Margrjet Jónsdóttir
kona Sigurðar Þórðarsonar í Stein-
húsinu, 73 ára að aldri.
Gefin saman 10. þ. m„ Þórð-
ur Jóhannsson, á Laugav. 84
og ekkja Jóhanna Sigr. Eiríks-
dóttir s. st.
Syrpa, 1. hefti 2. árg. er ný-
komið hingað. Er hún með mörg-
um sögum og öðrum greinum til
skemmtunar og fróðleiks, alls 64
blaðsíður, eru 4 hefti slík gefin út
á hverju ári. Útgefandinn ÓI. S.
Thorgeirsson f Winnipeg, en hjer
fæst hún hjá Árna Jóhannssyni
bankarifara. Ein af sögurium verð-
ur birt hjer í blaðinu sem sýnis-
horn.
Hlutakaup Vestur-íslendinga
í Eimskipafjeiaginu var rangt höfð
eftir Lögbergi í gær. Talan sem í
Lögbergi stóð 111 375,00 var ein-
mitt krónur, en var lesið sem dalir
og breytt í krónur, því kom hin
háa upphæð.
Samverjinn úthlutaði í gær 200
máltíðum. Komu 146 börn, 18
karlmenn og 14 kvennmenn, en 22
var sent heim til sín. Ymsir komu
í gær að athuga hvernig veitingin
færi fram, að boði nefndarinnar,
voru þar á meðal biskup, borgar-
stjóri og nokkrir blaðstjórar. Sjö
konur gengu um beina. Gjafirber-
ast allt af að, einkum matargjafir —
en engir hafa enn gefið kol eða
steinolíu og væri það þó ekki síð-
ur þegið með þökkum — er nú
til efni í málfíðir handa 200 manns
heilan mánuð. Eldavjelin er of lítil.
Vissi nefndin að einhver hefði af-
lögu stóra eldavje! myndi hún reyna
að komast að kaupum á henni.
G.-T.-reglan hjelt 30 ára af-
mæli sitt hjer á sunnudaginn. Gengu
Templarar þá í skrúðgöngu um
500 saman allvíða um bæinn undir
11 stórum fánum og með fjölda
íslenskra smáfána. Gengu fremst
börnin, þau voru álíka mörg og
hinir fullorðnu, þá lúðrasveit og
síðast fullorðið fólk.
Skrúðgangan fór upp í kirkju-
garð og lagði fagran blómsveig
á leiði Björns Jónssonar ráðh. og
þar talaöi stórtemplar Indriði Einars-
son nokkur vel valin orö.
Strandferðir Tullniusar. Ráð-
herra hefur samið við Thor. E.
Tulinius stórkaupmann um 7
strandferðir í sumar.
Eru sama skipi ætlaðar ferðir
þessar og á það að fara frá
Reykjavík:
1. ) 15. apríl vestur um land og
koma aftur 6. maí.
2. ) 13. maí austur um og koma
5. júní.
3. ) 10. júní vestur um og koma
4. júlí.
4. ) 8. júlí austur um ogkoma31.
júlí.
5. ) 22. águst vestur um og koma
14. sept.
6. ) 18. sept. austur um og koma
16. okt. og
7. ) 22. okt. vestur um og koma
18. nóv.
Aðalfundur var haldinn í gær
í verkmannafjel. »Dagsbrún«. Reikn-
ingar voru framlagðir og ullu þeir
miklum og hvössum umræðum. —
Formaður var kosinn Árni Jóns-
son.
Nýtt frumvarp til Eimskipa-
fjelagslaganna hefur bráðabirgðar-
stjórnin gefið út og er sent hlut-
höfum í dag. Eru þar gerðar þær
breytingar á hinu uppkastinu er
máli skifta í þá átt, sem Vestur-
íslendingar fóru fram á. Hefur hið
besta samkomulag verið milli nefnd-
arinnar og Jóns Bíldfells, sem fór
hjer með umboð Vestmanna.
Œ
S\w
Vestmannaeyum í gær.
Aflalítið yfirleitt, en nokkrir
hafa þó fengið allgóðan afla.
Stormar miklir síðustu daga.
Raddir almennings.
Tii bráðabirgðarstjórnar
Eimskipafjelagsins.
Væri ekki vel viðeigandi< að
hún gengist fyrir því, að "vinnu-
veitendur leyfðu verkamönnum
sínum að vera á stofnfundi fje-
lagsins og fara sjálfir með atkvæði
sitt, þar sem fundurinn er á
virkum degi.
Stefnir.
Stjórn
Eimskipafjelagsins.
Mjög nálgast nú aöalfund Eim-
skipafjelagsins íslenska. Þar á meða!
annars að kjósa stjórn, og er mjög
undir því komið að sú Ikosning
takast vel, er því furða að ekki heyr-
ist að nienn sjeu neitt farnir að
hugsa fyrir því. Vísi hafa verið
sendar uppástungur, sem hann vill
birta og væntir að fleiri uppástung-
ur komi á eftir, en hann tekur hvorki
meðmæli með eða andmæli gegn
einstökum mönnum að vera í stjorn.
Nöfnin eru aðeins til að minna
menn á og gefa tækifæri til að at-
huga hæfilegleika manna sem upp
á er stungið. Gæti þetta orðið til
nokkurs gagns.
I. uppástunga: Jðn Gunnarsson
samábyrgðarstjóri, Páll HcJldðrsson
skólastjóri, Halldðr Daníetsson yfir-
dómari, Garðar Gíslason stórkauj -
maöur.
ÍÍFRÁ ÚTLðNDUMjg
Bandaríkin svívirf
í leikriii.
Um jólaleytið var leikið nýtt leik-
rit í Mexíkó-borg, þar sem gífur-
lega er ráðist á Bandaríkjastjórn.
Leikritið er að efni til saga stór-
þjóðanna síðastliðna 12 mánuði í
skrípadráttum og afkáragerfi. Þar
er Bretland hið mikta sýnt sem
dar.sstelpa, sem snoppungar Sám
frænda (Bandaríkin) og bregður
honurn um úrræðaleysi og bleyði-
skap. — John Lind, einkafulltrúi
Wilsons Bandaríkjaforseta í Mexíkó
fór þegar og átti símtal við for-
setann alliangt, — er grunur manna
að það verði undanfari þeirra tíð-
inda, er geri enda á þjóf-pólitík
Bandamannagagnvart Mexíkó. Leik-
ritið hefur vakið afskapa gremju í
Batidaríkjunum.
Guðsþjónustu á nýársnótt
síðastliðna fyrirskipaði kirkjumála-
ráðuneytið norska að halda og rit-
aði um það opið brjef öllum prest
um ríkisins 9. f. m. — Skyldi hún
haldin verða til þess að þakka guði
fyrir velgerðir hans við Norðmenn
árið 1814 og handleiðslu hans á
þeim síðastl. hundrað ár. Ljet það
búa til sjerstaka helgisiði til að hafa
um hönd við það tækifæri, svo
guösþjónustan færi allstaðar fram á
sama hátt í öllum kirkjum, og von-
ast til að þetta verði til að auka
eindrægni og samhug með þjóð-
inni.
Eva. í gamalli orðabók danskri
frá 1739 stendur þetta um frum-
nióður mannkynsins:
Heva eða Eva var fyrsta konan
hjer á jörðu. Skaparinn gerði hana
af rifbeini úr Adam og gaf honum
hana að konu. Hún kallast móðir
hins lifandi og lærðir menn brjóta
heilann um, hvers vegna hún var
einmitt sköpuð úr rifi úr mannin-
um.
Nú er þó talið, að niðurstaða sje
fengin í því rnáli.
Hún var ekki sköpuð úr höfðinu,
af því henni var ekki ætlað að ráða
yfir manninum, ekki úr auganu, því
henni var ekki ætlað að sjá allt,
ekki úr tungunni, þar eð henni var
aldrei ætlaður kjaftháttur, ekki úr
hendinni, þar eð hún átti ekki að
stela, ekki úr fætinum, þar eð hún
átti ekki að hlaupa á burtu, — en
úr rifbeininu, sem liggur rjett yfir
hjarta mannsins, því hún á að elska
hann meira en nokkuð annað.