Vísir - 05.03.1914, Blaðsíða 2

Vísir - 05.03.1914, Blaðsíða 2
V I S 1 B Sundlaug fjelagsins er opin á hverjum degi, og svo koma allir meðlimir þess saman einu sinni á viku og er þá aðallega æfð björg- un og dýfingar. Svo æfa þar 2 önnur fjelög og hafa þau boðið mjer að taka þátt í æf- ingum með sjer, og hefi jeg þegið það. Englendingar leggja mik- inn tíma og mikla peninga í sund- listina. í þessum fjelögum, sem jeg hefi talað um, hafa þeir fengið fyrirkennara og umsjónarmenn alla þá bestu, sem þeir hafa getað fengið. Til dæmis hefur Hjálmar Johansson sænski, sund- og dýfinga-garpurinn, sem vann konungs-bikarinn 1908, umsjón bæði með sundi og dýfingum. Hann tók mjer ágætlega vel, og sjerstaklega fannst mjer það eftir- tektavert, að í fyrsta sinni og við sáumst, fór hann að spyrja mig um ísland, og tala um hvað það væri gaman fyrir okkur að tala þá tungu, sem hefði verið töluð um öll Noröurlönd í fornöld. Af öllum íþróttum held jeg að Englendingar iðki mest sund og knattspyrnu (fótbolta), og virðist almenningur fylgjast vel með íþrótta- mönnum. Jeg sá nýlega knattspyrnumót milli besta knattspyrnufjelagsins á Norður-Englandi og hins besta í London. Norður-Englendingar skor- uðu á hina. Og áhorfendurnir voru hugfangnir og fylgdust t. d. vel með hverri hreyfingu íþróttamann- anna, svo unun var að. Til dæmis einu sinni voru Norð- ur-Englendingar komnir fast að markinu hjá hinum, og knötturinn var margsinnis gripinn af mannin- um, er varði markið, þá vareins og ailir ætluðu að sleppa sjer: sumir hjeldu niðri í sjer andanum, en aðrir stóðu upp, grenjuðu, blístr- uðu og ljetu öllum íllum látum. Hjer er allt af nóg að sjá og heyra, og ætti að lýsa London vel og nákvæmlega, öllum hennar hátt- um og auöæfum, væri það efni í margar bækur. Mjer líður vel, hef gott tækifæri til æfinga og hef ekki orðið fyrir slysum eða öðru þvílíku, og enda jeg þar með þessar línur og bið menn að taka viljann fyrir verkið. Erlingur Pálsson. Verslunin Hlíf, Grettisgöíu 26. (á horninu á Frakkastíg og Grettisgötu). FRÁ ÚTLðHDÐlM Sjálfsafneitun. Sjera J. Shepherd, breskur frí- kirkjuprestur, dæmdi sjálfan sig til þess, að lifa einvörðungu á vatni og brauði í heila viku í síðastl. mánuði. Fæðispeninga þá, er hann sparaði með þessu, lagði hann til heiðingja-trúboðs. Sunnud. næst- an eftir föstuna prjedikaði hann tvisvar og sá ekkert á honum. Hann er ókvæntur maður og hraust- ur mjðg. Söngvarnir úr Ljenharði fógeta eftir ÁRNA THORSTEINSSON eru komnir út og fást hjá öllum bóksölum bæarins. Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar. Aðeins í örfáa daga verða seldar góðar Kartöflur á kr. 7,50 tunnan (200 pundin). Gulrófurnar góðu eru komnar aftur. Klapparstíg 1 B. Sími 422. Fyrir sjómenn allskonar rúmteppi með stórum afslætti. Einnig sjómannadýnur, vandaðar og ódýrar hjá Jónatan Þorsteinssyni, Laugaveg 31. Brúkaðar byssukúlur. í Balkanófriðinum var auðvit- að eytt miljónum kúlna. Nú er verið að tína þær upp á vígvöll- unum og selja bær skransölum, en þeir selja þær aftur kúlnaverk- smiðjum. Hlaðið skip af þeim kom nýlega til Marseille frá Miklagarði. Kúlurnar eru notaðar í hylki um flöskustúta og í blýpípur. Er þetta fyrsta sinni, er menn vita að þessi verslunarvara komi á markaðinn. Pílagrímar ráða á skip. í Beyrout rjeðu nýlega um 1000 pílagrímar frá Marokkó á breskt skip. Þeir óðu út í skipið og voru svo áfjáðir að margir fjellu í sjóinn og drukknuðu. Svo fóru þeir niður í skipið og kveiktu eld á glóðarkerum; við það kviknaði í skipinu, sem há- setum tókst þó að slökkva. Þeir höfðu nóg matvæli meðferðis, tóku beinlínis vald yfir skipinu og kúg- uðu skipstjóra til að sigla til næsta Iands. Fór hann þá með þá til Möltu og þar fóru þeir í amerískt skip. En er skipstjóri kom heim, var rannsókn hafin gegn honum fyrir að hafa siglt með fleiri farþega, en björgunarfæri voru til að bjarga, ef illa færi. Skipið var alls ekki far- þegaskip og í björgunarbáta þess komust aðeins 68 menn. Skip- stjóri kvaöst ekkert undanfæri hafa haft, því pílagrímamir hefðu haft fararleyfi kaupmanna þeirra, er skipið höfðu leigt, og þegar hann heföi neitað að flytja lýð þennan, hefði sjer verið hótað, að kasta sjer út- Verslunin Hlff er ódýrasta verslunin á Grettisgötu. Vitið, hvort ekki^er satt. Vel verkuð sauðskinn Brennt og malað Kaffl, fást í gott og ódýrt, í Versluninni Hlíf. Versluninni Hlíf. byrðis, og þessir helgu menn hefðu hátíðlega lofað að drepa alla skips- höfnina og setjast sjálfir við stjórn. Dauð á krystallsgægjum. Auðug bresk ekkja, 69 ára, frú Sherrin, fannst nýlega dauð af bruna í herbergi sínu. Hún var mjög áfjáð í dulfræði. Á borðinu Jfyrir framan hana var krystall. Læknar álitu að hún hefði verið á krystalls- gægjum og rýnt í glerið, þangað til hún hafði dáleitt sig sjálfa og í dáinu dottið aftur á bak í eldstóna. Hafði hún verið þrjá daga liðið lík, er hún fannst. Fáförult var hjá henni og hún var einbúi. Mágur sonar síns. Sá atburður hefur orðið meðal hins göfugasta tignarfólks Þjóðverja, að B/ncher furtsi er orðinn mágur sonar síns. Árið 1814 geröi Prússakonungur Blúcher hershöfðingja, kappan mikla frá Waterloo, að fursta, og nefndist hann þá Biúcher fursti von Wahl- statt og afkomendur hans hafa í mörg ár borið tignarnafn þetta. Gerhard Blúcher fursti, sá er nú er á lífi, 78 ára, er sjervitringur mikill. Árið 1895 kvæntist hann í 3. sinn Radziwill prinsessu, fallegr ungri stúlku, að eins 18 ára gam- alli. Með fyrstu konu sinni átti furst- inn 5 börn, með annari 2 og loks með Wöndu Radziwill 3 börn; var hið elsta hinna 10 barna 24 árum eldra en hið yngsta. Furstinn á jarðeignir miklar og hallir í Schlesíu, en flutti sig þó fyrir nokkrum árum til Lundúna og býr þar ásamt Lothar syni sínum, sem er 23 ára og hefur gengið að eiga Lovfsu Radziwill prinsessu, eldri systur stjúpmóður sinnar, sem þegar er 38 ára gömul. Þetta eru einkennilegar tengdir og óvenjulegar yfirleitt, einkum meðal heldra fólks, En ættarsaga þeirra furstafrúnna beggja er líka nokkuð einkennileg. Þær eru dætun furstafrúarinnar Katrínar. Radziwi er var fædd greifainna Rzevuska; hún skildi við mann sinn til þess að fylgja vini sínum Cecil Rhodes, •Napoleoni Suður-Afríku« hinum fræga, og styðja áform hans þar suður frá. Vargar í vjeum. Kirkjuþjófarbrutustaðfaranótt hins 2. f. m. inn í norska kirkju. Höföu þeir ætlað að brjóta hurðina en ekki tekist. Skriðu þeir þá inn um skrúðhússgluggann. Silfurgrípirkirkj- unnar voru ekki geymdir í henni, svo bófar gripu í tómt, en þar voru 5 flöskur áf messuvíni og þeim stálu þeir. Svo er að sjá, sem 3 hafi þjófarnir verið og einn þeirra kvenn- maður. Góðar og ódýrar matvörur í Verslunlnni Hlíf.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.