Vísir - 06.03.1914, Blaðsíða 2

Vísir - 06.03.1914, Blaðsíða 2
V 1 S 1 R Raunaleg dagbók. Frank Harrison, trjesmiður, 25 ára, var tekinn fastur fyrir tilraun til að stela peningum úr söluvjel á götu úti 21. f. m. Þegar hann var tekinn fastur, fannst póstkort í vasa hans, er hann hafði notað til að rita á dagbók. Maðurinn var at- vmnulaus og átti hvergi höfði sínu að að halla. Dagbókin hans sýnir kjör »götunnar barna« í stórborg- unum. Hún er þannig: Mánudags nótt: Reikaði um göt- una alla nóttina. Kuldi. Matar’aus, fjevana, Þriðjudags nótt: Ekki bragðað mat í 2 daga, fæ ekki vinnu vegna vönt- unar meðmæla. Miðvikudags nótt: Vann fyrir 90 aurum. Keypti mat og borðaði loks- ins kl. 10 árdegis. Veikur og mjög máttvana í fótum. Þungt í höfði af svefnleysi. Finnst jeg vera að gefast upp. Fimmludagur. Fjekk vinnu ísvipog svaf í rúmi. Fór í bað og rakaði mig, — mjer veitti ekki af því! Föstudag, laugard,, sunnud., mánud., og þriðjud.: At- vinnu ómögulegt að fá. Tókst að næla í nóg til að kaupa mjer rúm fyrir. Banhungrað- aður og ráðþrota. Miðvikud., fimmtud.: Úti á götuuni. Hvergi höfði mínu að að halla. Það er voðalegt! Föstudag, laugardag: Jeg er að missa vitið. Ekkert að jeta eða drekka. Til hvers að halda þessu eymdarlífi áfram! Gömul brúðhjén. Nýlega giftu sig kari og kerling í gamalmenna-hæli í London. Brúðguminn hjet Fielding og var 81 árs, — hafði aldrei kvænst áð- ur, — en brúðurin hjet Lucy King og var 72 ára, ekkja. Stjórn hælis- ins gat ekki verið að meina þeim að ná saman, því lítil líkindi væru til að þau færu að hlaða niður ómegð úr þessu. Myrkfælni veldur elds- voða. Stúlka nokkur, 17 ára gömul, var ein heima að kveldi hins 18. f. m. í húsi nokkru, er var rjett við kirkjugarð einn í Staffordskíri á Englandi. Hún var afskaplega myrk- fælin. Heystakkur mikill var í garði, áföstum við húsið, milli þess og kirkjugarðsins. Nágrannarnir sáu von bráðar að heyið stóð í Ijósum loga og kviknað var í húsinu. Tókst þeim þó með hörkubrögöum að bjarga húsinu að miklu leyti og ná stúlkunni lifandi. í rjettarhaldi um brunann bar stúlkan fyrir sig, sjer til málsbóta, að hún hefði kveikt í heyinu til þess að verja draugun- um að komast inn til sín úr kirkju- garðinum, — hafði hún allt af heyrt, að draugar fældust eld. 7 Oráðvandur klerkur. í Palermo á Sikiley kastaði gömul, þýsk kennslukona sjer fram af kletti Söngvarnir úr Ljenharði fógeta eftir ÁRNA THORSTEINSSON eru komnir út og fást hjá öllum bóksölum bæarims. Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar. í d a g nýlega ogdrekkti sjer. Hún hafðitrúað presti nokkrum, Fautana að nafni, fyrir aleigu sinni, um 50000 kr., f trausti til ráðvendni hans. En klerkur eyddi öllu fje hennar í slæmum solli og strauk síðan. Lög- reglan er á þönum að leita hans, en hann er enn ófundinn. 10 40°|o afsláttur á öllum vörum í versluninni á Stórþjófnaðir f Vesturheimi. Þeir keyra svo úr hófi upp á síðkastið, að öllum stendur stuggur af. Nýlega hefur verið stolið á New- York-, Newhaven- og Hartford-járn- brautunum fje, er nemur fullum 27 milj. króna alls. Messuspjöll. Meðan á hámessu stóð í Maríu- kirkju í BritonFerryi Wales á Eng- landi, stóð allt í einu maður nokk- ur upp í kirkjunni, steytti hnefana og hrópaði hárri röddu, að hann skyldi steindrepa hverteinasta manns- barn í söfnuðinum. Lögreglan tók manninn þegar og fór út með hann. Hann hafði áður verið hermaður á Indlandi. Þar er, meðal annars, tilbúinn fatnaður og álnavara. Kristín Sigurðardóttir. Stór litsala Allir þekkja hinar góðu og fallegu vörur í verslun tlóns Þórðarsonar. Þrátt fyrir það, þó verðið sje lágt og vörurnar nýar og góöar, verður frá 1. marts allt selt með miklurn afslætti. Þetta boð stendur aðeins örfáa daga, notið því tækifærið Verslun Jóns Þórðarsonar. Fiskiveiðahlutafjelagið ,ÍSLAND‘. | Framhald aðalfundar fjelagsins, er frestað var hinn 31. janúar síðastliðinn, verður nú laugardag 7. þ. m. kl. 5 síðdegis á „Hótel Reykjavfk". D A G S K R A hin sama og auglýst hafði m verið fyrir fyr-ákveðinn fundardag, 31. XíR janúar (jjyl Reykjavík, 5. mars 1914. M Stjórnin. Allir 1 sem þurfaað fá sjergóð ogódýrhúsgögn ívor, ættusem fyrst að panta þau hjá H.J. Schram. Þar er einnigeikar- j trjes- Buffet, mjög vandað, og fleiri húsgögn til sölu. Vlnnustofa Hjartar Fredriksen. Hverfisgötu 10. Sími 408. Palladómar. ---- Frh. 27. Stefán Stefánsson, 4. konungkjörinn þingmaður. (Fæddur 1. ágúst 1863). Hjer er sá maðurinn, er vera mun lýðkunnastur allra þingnianna. Veldur því ekki þingmennskan ein, þó góð hafi hún verið í marga staði. Hitt mun langmestu þar um orka, að hann hefur nú rúman aldarfjórðung staðið alira manna fremstur um það, að mennta og mannbæta þá, er leitað hafa sjer meiri fræðslu en almenns ferm- 'ngarundirbúnings eða barnaskóla- lærdóms. Hann hefur allan þennan tíma verið kennari við annan gagn- fræðaskóla landsins, þann gagn- fræðaskólann, er haldið hefur uppi þeirri fræðslu, gagnfræðakennslunni, með fullum skilum og baugabrota- laust, þangað til lögtekin var gagn- fræðadeild Menntaskólans, og síðan henni jafnfætis og með jöfnum rjettindum. Við þennan skóla, gagn- fræðaskólann á Akureyri, áður á Möðruvöllum í Hörgárdal, hefur hann verið kennari allan þann tíma, og um Iangt skeið af þeim tíma for- stöðumaður skólans, skólameistari. Og sá hróður fer ekki huldu höföi eða felulega hjá þjóðinni, að hann sje ágætis kennari og albrigðagóð- ur skólameistari. Þetta mikla og þjóðnýta starf orkar því, að St. St. er lýðkur.n- astur allra þingmanna. Mundu Iíka ekki færri meðal fullorðinna manna á landi voru, þeirra er heilum hams halda á viti sínu, sem ekki áttuðu sig eitthvað á því við hvern átt sje, ef minnst er á skólameistarann á Akureyri? Og þó mundu flestir átta sig mun skjótar á því, að ein- ungis væri nefndur Stefán skóla- meistari. Með þvf nafni er hann lýökunnastur. En ekki var nú til þess stofnað, að segja sögu hans sem skólameist- ara. Verður því vikið að öðru efni. St. St. hefur setið níu þing, fimm f umboði Skagfirðinga (1901—•

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.