Vísir - 15.03.1914, Blaðsíða 1
°iZ\
ÍVÍStr erblaðið þjtt. |
Hann áttu að kaupa fyrst og fremst. *
Kemur út alla daga. Sími 400.
Atgr. i Austurstr. 14. kl. 1 lárd.til 8 síðd.
Kostar 60 au. um mánuðinn. Kr.|l,80 Skrifstofa í Áusturstræti
ársfj. Kr. 7,00 árið (380—400 tbl.). opin kl. 12—3,
14, (uppi), Langbesti augl.staður i bænum. Augl.
Sími 400. sje skilað fyrir kl. 6 daginn fyrir birtingu.
Sunnud. 15. mars 1914.
Háfl. kl. 7,32’ árd.og kl. 7,56’ síðd.
Á morgun
Afmœli:
Einar Jochumsson, truboði.
Ólafur Ólafsson, skósmiður.
Póstáœtlun:
Hafnarfjarðarpóstur kemur og fer.
í Betel
sunnudag 15. mars kl. ó1/^ síðd
Efni: í dánarheiminum.
Er afturhvarf eftir dauðann? Kenn-
ing heilagrar ritningar um hegningu
óguðlegra og afdrif þeirra; eiga
þeir að pínast í endalausum kvöl-
um?
Hvernig og hvenær predik-
aði Jesús fyrir öndunum í varð-
haldi?
Allir velkomnir.
O. J. Olsen.
eflnnin Engin samkoma
UllUulll* í kveld. Lasleiki veldur.
1 íkklstur fást vénjulega tilbúnar
I á Hverfisg. 6. Fegurð, verð og
I gæði undir dómi almennings. —
Lmbw Sími 93. — Helgi Helgason.
Ð;A I Blografteaterl O ' '
DlOf ReykjavíkurfO 10
Armur laganna.
Leynilögreglu-sjónleikur í 3 þátt-
um, fjarskalega áhrifamikill.
»Járnhöndin« og foringi glæpa-
mannafjelagsins »Hvíti glófinn«,
de Croze, berjast í hinnsta sinni,
Trúlofunar-
hringa smíðar
BjörnSímonarson.
V allarstr.4. Sími 153
}tot\3 scwd\s\)e\\v
frá
Sendisveinaskrifstofunnt.
Sími 444.
GÓÐ HJÓN, sem kynnu að
vilja þiggja að gjöf mjög efni-
legt piltbarn á fyrsta ári, ósk-
ast til viðtals á Lindarg. 43.
(kjallaranum).
S\mJv\e\V\v.
Eyrarbakka í gær.
Fiskurinn kominn. Fiskast hef-
ur hjer fyrst í dag að nokkru ráði.
Rjeru 3 opnir bátar og 2 vjela-
bátar. Var ióið með lóðir. Frá
Stokkseyri var einnig róið og höfðtt
þeir net og veiddu nokkru meir,
v»B\s^cv\nt\ i
Stór sjerstök samkoma í kveld
kl. 81/2. — Komið í tíma.
10—20 í hlut af vænum þorski.
í gær var róið úr Þorlákshöfn með
net og var allgóður afli.
Drukknun. í gær drukknaði
á Stokkseyri fón Böðvarsson, áður
lengi bóndi í Dagverðarnesi á Rang-
árvðllutn, um sextugt. Þetta var um
hádegisbilið. Ætla menn að hann
hafi verið að baða sig í sjónum,
því föt hans fundust á klöpp hjá
litlu Ióni þar, en líkið nakið rekið
á sandinn.
Besta tið er komin. Hefurtek-
ið vel snjó af jörðu í uppsýslunni,
en neðar var svo mikill snjór á,
að ekki hefur komið upp jörð. Þó
glatt sólskin sje í dag, er nokkuð
frost og tekur því ekki upp.
Vestm. eyum í gær.
Afli hefur verið hjer nokkur und-
anfarið, en farið minnkandi og í
dagvarsamasemekkert, sem fiskaðist.
Skemmtanir eru hjer miklar
um hverja helgi. Nýlega komst
það í móð að yrkja hjer gaman-
vísur og urðu margir til þess. Þá
var og saminn gamanleikur um
þingmennskuframboð og ljeku hann
Bjarni Björnsson og Ólafur Ottesen.
Sherloc Holmes á að fara að
leika hjer í næstu viku, leikur Ólaf-
ur Ottesen Holmes.
Bjarni Björnsson er að mála Ieik-
tjöldin.
Hettusótt er allt af að stinga
sjer hjer niður. Hún er væg og
hefur engin eftirköst haft.
Akureyri í gær.
Maður rotast. í gær fjell snjó-
dyngja ofan af húsþaki á Siglufirði
og varð maður undir henni og
rotaðist. Hann hjet Ingitnar fónsson,
miðaldra maður, og dó hann í nótt.
Kong Helge hafði ekki komist
vestur yfir Húnaflóa sökum ísbreiðu
sem þar var, og fór því suður fyrir
Iand.
Hettusótt er nú mikil á Sauðár-
króki, og flestir sveinar á Hólaskóla
liggja í henni, misjafnlegu þungt
haldnir.
Snjór er hjer mjög mikill og
stórhríð í dag.
Aflalaust með öllu.
Ljenharður er leikinn hjer um
hverja helgi. Heldur farin að minnka
aðsóknin.
Samsöng höfðu þeir hjer í gær
læknarnir, Steingrímur Matthías6on,
Valdemar Stephensen og Sigurður
Einarsson og Kristján Möller agent
til ágóða fyrir sjúkrasamlagið. FuIIt
hús, en ekki tókst söngurinn eins
vel og vænta mátti.
í gærkveldi var enn óafráðið,
hvort Steingrímur sýslumaður byði
sig fram í Norðurþingeyarsýslu móti
Bened. Sveinssyni.
Ú R BÆNUM
Botnía kemur frá útlöndum í
dag. Meðal farþega eru Garðar
Gíslason kaupmaður, HalIdórDaníels-
son yfirdómari, Sveinn Björns-
son lögmaður, Frú Forberg sím-
stjóra, og frá Vestmanneyum:
Valdemar Ottesen kaupmaður, Frið-
rik Gunnarsson túlkur, Gísli Lárus-
son kaupmaður, Jón Sigurðsson um-
boðssali.
Stúdentafjelagsfundurinn í gær-
kveldi var óvenjulega vel sóktur og
vel setinn, því fám mínútum áður
fundi var slitið — kl. 1V2 um
nóttina — voru enn á fundi um 70
manns. Ræðurnar ráku hver aðra,
ýmist alvarlegar eða gamansamar
eða hvorttveggja í senn, en fund-
urinn fór allur hið besta fratn.
Fjórum sinnum talaði prófessor
Jón Helgascn, tvisvar Gísli Sveins-
son, Einar Árnórsson, Ástvaldur
Gíslason, Þórður Sveinsson og
Knútur Zimsen, en einu sinni
Guðm. Finnbogason, sjera Bjarni
Jónsson, Ágúst Bjarnason og út-
gönguræðuna hjelt Einar trúboði
Jochumsson.
Til minnisvarða yfir Geir Ein-
arsson stud. mag. safna stúdentar.
Gjaldkeri er Kr. Linnet.
r~n—rm~-iTH—Tfí irwrmiiwr—t——————■—1
Horðmenn bjóða qss til
íþróttamóts.
Nýlega barst formanni {. S. í.
(íþróttasambands íslands) Axel sýslu-
manni Tuliniusi boðsbrjef frá nefnd
þeirri í Noregi, er stendur fyrir
íþróttamóti móti miklu í Kristjaníu
dagana 31. maí til 3. júní í sum-
ar, og er í sambandi við 100 ára
hátíð Norðmanna. Því miður voru
frændur vorir svo ókunnugir hjer
á landi, að þeir sendu brjefið manni
á Norðurlandi, en hann sendi það
svo kunningja sínum í Reykjavík,
og sá kom því loks á rjettan stað.
Þetta hefur gert svo stórkostlegan
drátt á brjefinu, að nú er, þegar
það loksins kemur fram, engin
tiltök að senda mann á mótið.
Tíminn allt of stuttur að æfa og
undirbúa sig til fararinnar.
Á íþróttamótinu verða um 900
Norðmenn, en 100 mönnum er
boðið frá öðrum löndum, þó ekki
fleiri en 16 frá hverju landi. Hjeð-
an var boðið 6 mönnum.
Það er leiðinlegt að ekki skuli
geta orðið úr þátttöku hjeðan
(vegna þessara krókavega, sem boðs-
brjefið hefur farið). Þetta er mjög
virðulegt boð og hefði orðið þátt-
takendum til mikils gagns og á-
nægju. Eru Norðmenn alkunnir að
gestrisni og er einkar hlýtt til okk-
ar frænda sinna, og hefðu gert
ferðina hina bestu.
Leikfjelag Reykjavikur.
Ekki leikið í kveld
sökum veikinda eins leikandans.
Augu
ástarinnar
eftir JOHAN BOJER
fimmtud. 19. þ. m. kl. 8 síðd.
Tekið á móti pöntunum í bóka-
verslun ísafoldar.
Sunnuclagspantanir gilda fyrir
fimmtud., og sjeu aðgöngumið-
anna vitjað fyrir kl. 4 síðd. í
Iðnó leikdaginn.
Verslunin
HERMES'
(Njálsgötu 26)
selur fyrst um sinn
Kaffi ágætt kr. 0,78 pd.
og flestar nauðsynjar eftir þessu,
t. d. allur sykur ódýr mjög.
Fingraför sendiherrans.
Frakkneski stjórnmálamaðurinn
Simon (1814—1896) var um tíma
sendiherra í Kaupmannahöfn og
var þá auðvitað oft í boði heldra
fólksins, er hafði hann í háveg-
um, enda þótt hann þætti stund-
um ekki hegða sér sem samkvæm-
ast ströngustu boðsreglumoghátt-
um „fína fólksins“. Einu sinni
var hann boðinn í teclrykkju hjá
L. greifafrú, sem var mjög siða-
vönd og tískuþræll mesti. Sam-
ræður voru fjörugar og Simon
gætti sín ekki, tók sykur úr ker-
inu með fingrunum, en notaði
ekki tengurnar, er til þess voru
ætlaðar. Greifafrúin skipaði þjón-
inum þóttalega að bera sykurkerið
burt og sækja annan sykur í það,
svo sendiherrann sá. Simon brá
við í svipinn, en hjelt áfram sam-
ræðunum eins og ekkert hefði í
skorist. En er hann hafði lokið
máli sínu, drakk hann í botn úr
bollanum, gekk út að glugganum
sem stóð opinn, og kastaði þess-
um dýrmæta postulínsbolla út um
gluggann. Að því búnu snjeri hann
sjer að greifafrúnni og mælti
brosandi:
„Jeg ætlaði að spara yður það
ómak, frú, að láta þjóninn fleygja
bollanum út. því ef fingurnir á
mjer hafa óhreinkað sykurinn í
kerinu, hve mjög hljóta þá var-
irnar á mjer að hafa sett bletti á
bollann!“ Að svo mæltu hneigði
sendiherrann sig djúpt og fór út.