Vísir - 22.03.1914, Síða 3

Vísir - 22.03.1914, Síða 3
Palladómar. ---- Frh. Þingið 1893, fyrsta þingið, er G. G. sat, samþykkti stjórnarskrár- frumvarp það, sem Sfghvatur Árna- son flutti, Landstjórafrumvarpið (Alþ. tíð. 1S93. C, þgsk. 31 og 145), og var G. G. einn þeirra manna, er því var jákvæða. Þarf varla að greina hjer afdrif þessa stjórnar- skrárfrumvarpi, nje þaö, að Bened. Sveinsson tók þaö upp á auka- þinginu 1894 og að það var þá enn á ný samþykkt (Alþ. tíð. 1894. C, þgsk. 11 og 82). Og vart þarf að geta þcss, að pað náði þá ekki hcldur staðfesíingu konungs. Senni- lega þarf varla heldur að geta þess, að enn var frumvarpið borið upp í neðri deild 1895 af Sk. Th. og G. G. og þretn þingmönnum öðr- um, *) en varð þá ekki útrætt í efri deild. (Sjá Alþ. tí$. 1895. C, þgsk. 23, 215 og 282.) * 2) Þa er hjer var komið, fór að geiga nokkuð meir en áðúr stjórn- arbótarstarf þingsins, og hefur marg- sinnis veriö á það minnst. Enda kvað nú innan skamms mjög við annan tón um þau efni. Valtýskan rak fyrst upp höíuðið 1897, og eftir það sýndist sem þau tækju að breytast stjórnmálatökin og þing- glímubrögðin. Þótti sumum sem þá færðist meira í venju sniðglím- an, sú er nasst gengi skessubrögð- um, og meinvísir mjaðmahnykkir. Og þessu jaínframmi þóttust menn sjá, að nú vseri upp tekinn sá hátt- ur, aö dekra, kjassandi og kjáandi, fordild sumra manna og frama- hyggju með gyllingum á framtíð- arfrægð þeirra. En ekkert af þessu Ijet G. G. á sjer festa, svo orð verði á gert. Glímubrögðin stóðst hann flest öll, og ekki gekkst hann heldur upp við kjassið og kjáið, svo telja mætti. Hanri stóð við sína póli- tísku trúarjátningu óhvikull/ eins og klettur i hafinu. Og þá er hann ioks, með öðrum Heimastjórnar- mönnum, varð að ganga að verki með Framsóknarmönnum (Valtýing- um) um breytingar á stjórnarskránni á þingi 1901 og 1902, þá var það ekki af því, að með honum og Valtýskunni væri að takast til- hugalíf, — ekki einu sinni sam- dráttur — heldur bar það til, að þar kenndi aflsmunar. Framsóknar- menn voru í meiri hluta á þingi 1901 og 1902 haslaði Alberti þinginu völl innan vjebanda Valtýskunnar. G. G. hefur skipað flokk Heima- stfórnarmanna, síðan er sá flokkur þófst, og mun af þeim talinn mætis- maður til orða og athafna. Með þeim tók hann í faðm sjer Upp- kastið 1908, og hefur ekki frá því hopað á ánnan veg en þann, að hann skipaði með þeim Sambands- ^Þessir þrír þingmenn voru þeir Sighv. Árnason, Sig. Gunnarsson og Pjetur Jónsson. 2) Þess hefur ekki verið áður sjerstaklega getið, hverja þingdeild- ina menn hafi skipað á fyrri þing- um, þeir er langa eiga þingæfina. Nú skal það þó gert. um G. G. Hann hefur skipað Nd. 1894— 1899, en Ed. 1893, 1901 — 1907 og svo tvö síöustu þingin. V 1 S I R Nýu vörurnar eru komnar og teknar upp. Síórt úrval fyrir Allir velkomnir að skoða, & H. S. HANSON, Laugavegi 2S;. eru komin aftur í Glasgow-kjallarann, Sfmi 415. Það má telja víst að Pappírs-og ritfangaversSun Y. B. £ hafa langmest úrval af allskonar ritföngum. Miklar birgðir nýkomnar meó Botníu, þar á með&l ma ir hlutir óþekktir hjer áður. Verð og gæði alkunn. Verslunin Björn Kristjánsson. flokkinn á þingi 1902 utan um »Bræðinginn« svo nefnda. Á síðasta þingi hvarf G. G. í Bændaflokkinn, og mun þá hafa sagst úr Sambandsflokknum. En allir, þeir er kunna skapferii hans, telja hann jafngóðan Sambandsmann eftir sem áður. Frh. Nýjar vöruMrgðir jkomu með „Botníu“ til Jóns Björnssonar & Co. Bankastræti 8. SVlÉkEð úr að veEja, EVSikið af vörum eiru væntanlegar með „Ceres“ og „SterSing“. Gerið Páskainnkaupin hjá Jóni Bömssyni & Có„ y Góðar vörur. Odýrar vörur. Vandaðar vörur. Ódýrar vörisr. Lítið á nýju birgðirnar, sem komjnar eru til V. B. K., áðúr en þjer festið kaup annarsstaðar, Jdví þar fáið.þjer að vanda mest fyrir krénuna. Feiknin öll væntanleg með Ceres og Steriíng. Kaupið Páskavðrurnar hjá V. B. K. Versíunin Björn Kristjánsson. Framhald af Cymbelinu. ----- Frh. Violanta blístraði hátt rjett við eyra henni. Stúlkan bærði hverg á sier við þetta hljóð, en hristi aftur höfuðið og svipurinn varð barnslega sorgbitinn. Violanta þ.óttist nú vita, að hún myndi líka vera heyrnailaus, — en skiija mál af varahræringum að nokkru leyti. Hún hugsaði sem svo, að úr því hún væri hjer í gu!I- skreytíri gröf, — í dýrlegu fangelsi, gerði henni’ hvorki til nje frá, þótt hún færi að bendingu stúlkunnar og sæi hverju fram færi. Hún stóð því upp og fylgdi henni. Inn af stofunni kom hún inn í « . frábærlega skrautlegt svefnherbergi, — var þar sæng með ársal miklum og dýrum, af gulli dregnu silki, og önnur svefnherbergisgögn að því skapi. Þessi síúlka benti á fortjald í öðrum enda þess og sló því lil hliðar. Violanta fór á eftir henni. Þar var búniugsherbergi með öllum fegurðar-meðölum tískudrós- anna, skínandi borð úr málmslegn- um alabastri með silfurkerum og gullnum smákrukkum. Þar hjengu kvennbúningar hinir fegurstu úr siiki og j uipura f úrvali miklu og allt vai þar fegurra, en nokkur hertoga- dótíir hefði best getað ákosið. Stúlkan benti henni á dýrlega marmarakeriaug, er tjald var dregið fyrir, og bjóst til að hjálpa Violöntu úr nunnubúningnum. Violanta benti henni frá sjer,

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.