Vísir - 28.03.1914, Blaðsíða 2
VI8IR
Fiökkuprinstnn.
Lögreglan í Nizza tók 6. þ, m.
flakkara höndum, herfilega búinn,
rifinn og tættan og sýnilega fjelausan.
Flakkarinn var fluttur aF alfaravegi á
lögre dusíöövarnar. Hann brást þar
reiður við og kvaðst vera príns og
væri dulbúinn að ferðast að gamni
sínu. En lögreglan hló að bonuni
og gerði lítið úr tign þessa ræfils.
Hann var fiuttur með pústrum og
hrindingum í svarthohð, eins og
venja er þar að fara með flakkara. |
Hann mótinælti þessari meðferð og •
krafðist rannsóknar, — var það gert
á lögreglustöðvunum svona til mála-
mynda. En þág kom upp úr dúrn ■
urn, að þetta var hágöfugur prins
Ferdinand de Ligori, príns af Ref-
ficci. Þá kom annað hljóð í strokk-
inn. Lögreglan skamrnaðist sín
niður fyrir allar hellur, prinsinn var
laus lálinn með ótal fyrirgefningar-
bænum, bukti og beygingum lög-
reglumanna. Og lian hjelt brosandi •
áfram flakki sínu.
Ferdinand prins er af afar auðugri
furstaætt, en ætlar sjer að ferðast |
um allan heim sem flakkari af æfin-
týralöngun og ef til vill — leti og i
sjervisku* ineðfram.
Palladómar.
--- Fih.
Öllum bar saman unr það, að
H. K. vildi vinna kjósendum sín-
um og kjördæmi alit til frægöar
og frama, menningar og nriklunar,
gleði og góðheita. Þótt neína mætti
nokkur dæmi um það, þá verður
hjer látið nægja eitt.
Sumir voru að segja, að Hákon ,
tryði varia öðru en þar að hlyti \
að reka, að Patreksfjörður (Geirs-
eyri og Valneyri) yrði taiinn rneð |
höfuðborgum veraldarinnar. Á þessu
verða kann ske ekki fu.’lar sönnur j
sagðar, fremur en svo mörgum !
greinum trúarinnar, og þess er nú ;
OLSENS NAUTICAL ALMANAC 1914
(kostar 1 'kr.),
sem er alveg ómissandi eign fyrir útgerðarmenri og sjómenn, fæst alltaf í
Bókaversítsn Sigfúsar Eyntundssonar.
sennilega varla að vænta, ef trúin
sjálf er efíirvænting þeirra hluta,
sem maðurinn vonar, og sannfær-
ing um það, sem bann ekki sjer,
svo sem kvað skrifað standa.
Á 25 ÁURA
fásí faiieg posíulíns-bollapór f
VERSLUN JÓNS ÞÖRÐARSONAR |
Hinir heimsfrægu
indversku vindlar, •
Fior de Díndigui,
fást aðeins í versl.
og í versl.
Vegamót
Laugav. 19.
P Leifsson,
Laugaveg 24.,
tekur myndir og brjefspjöld frá
kl. 11 árrl. til 2 stðd.
| F jót afgreiðsla.— Lágt verð.
| Tennur
eru tilbúnar og settar inn, bæði
p heilir tanngarðar og einstakar
\ tentiur,
á Laugavegi 31, uppi.
I Tennur dregnar út af lækni
f daglega kl. 11 —12 með eða án
j deyfingar.
I Viðtalstími kl. 10—5 síðdegis.
Sophie Bjarnarson.
Litíð fyrst inn,
þegar á fatnaðí eða vefnaðarvöru þurfið
að halda,
Ásg. G. Gunníaugsson & Co
Austurstræti 1.
En engu síður virðist sjálfsagt
að tjá það, er þeir sömu menn
sögðu, að Hákon ef til vill byggði
á þessa trú sfna, væri annars rjett
með farið. Það væri þetta: Pat-
reksfjörður væri miðstöð Barða-
strandarsýslu um menntun og menn-
ing, prýði og punt, frama og fjöl-
visku. Þar væri símstöð og póst-
afgreiðsla, kauphöndlan mikil og
konsúlar, sýslumaður, læknir og
Ijósmóðir, hreppstjóri, stefnuvottar
og úttektarmenn, hundahreinsunar-
maður og hafnsögumaður, skar-
bítar og hringjarar. Hvers væri
eiginlega vant? Ja — »skarprjett-
ari« væri reyndar enginn til þar á
staðnum, til þess að »forbetra« út-
lenda uppivöðsluseggi og halda viö
makt einu ordentlegu stórborgar-
regimenti. En — úr þessu mætti
eitthvað ráða. Þangað bærust fyrst
í sýsluna allar erlendar konstir og
kljenódí, því þangað kæmu allra
þjóða duggarar, ekki síst Flandur-
menn og flyðruveiðarar, færandi
fögnuð og fríðindi, gleðskap og
góða siði. Skilyrðin væru mikil og
mörg, en — eitthvað yrði að haf-
ast að, svo fylling tímans drægist
ekki vonurn framar um þetta íhug-
unarverða trúaratriði.
H. K. sá líka fljótt, hvað hjer
þurfti að gera, svona til að byrja
með. Hann kom fram með tillögu
um að lögskipa, að símalínan milli
ísafjarðar og Patreksfjarðar teldist
til fyrsta flokks í símakerfi lands-
ins. Og þessu kom hann með
góðum skilum gegnum efri deild.
En neðri deild eirði því ekki,
og 1— það var þó ekki honum að
kenna.
H. K. tók 47 sinnum til máls á
þingi. En ekki þykir hann veru-
legur niælskumaður enn sem kom-