Vísir - 07.06.1914, Side 2
V ) S. h
V í S I R.
Stœrsta blað á íslenska tungu.
Argangurinn (400—5C0 blöð) kostar
erlendis kr. 9,00 eða 2‘/2 dollars, innan-
lands kr. 7,00. Ársfj. kr. 1,75, mán kr- 0,60.
Skrifstofa og afgreiðslustofa r Austur-
stræti 14 opin kl, 8 árd. tíl kl. 9 síðd.
Sími 400. Pósthólf A. 26.
Bitstióri Einar Gunnarsson
venjulega til viðtals kl. 5—7.
'Ssndisvelnastöðin (Sími 444) annast út-
öurð um austurbæinn nema Laugaveg.
ATareiðsla UI utanbæjarkaupenda er á
Skóiavörðustíg 16 (Simi 144, Póst-
hólf A.35)].
°9 KexttmgSv
----- Frh.
liörundsbóluriFWape.mar) eru mjög
algengar, sjerstaklega á ungu fólk'.
Þær koma af sjúkdómi í fitukirtlum
húðarinnar, einkum andlitshúðarinn-
ar, og draga mjög úr fegurð hennar.
Það er flestra vani að sprengja
bólur þessar með firgrunum, ti!
þess að losast við þær. Það er
mjög óhyggilegt ráð, því að það
hefur ekki einungir sársauka í för
með sjer, heldur koma og oftast
bólguhnútar þar, sem bólan var.
Gott ráð, til þess að verða laus
við þær, er þetta: Blandið saman
glycerini, einni teskeið, hálfum potti
af rósalög (vatn blandað með rósa-
kjarna) og ögn af brennisteini. En
reynist þetta ekki einhlítt, þá mun
eftirfarandi ráð reynast óbrygðult:
eitt staup af ether, 20 dropar af
liquid ammonia (er fæst í Apotekinu)
og tvö lóð af Pears sápu.
Andlitið á að baða úr heitu vatni
og nudda svo blöndu þessari á þá
staði, sem bólurnar eru. Síðan á
að þvo andlitið aftur úr heitu vatni.
Þeir, sem mjög oft fá þessar bólur,
ættu að forðast að drekka te og
kaffi, í staö þess ætti þeir að drekka
kókó eða mjólk. Undir nóttina á
svo að þvo andlitið úr heitu vatni,
nota góða sápu (Pears) og nudda
síðan Iítið eitt af Eau de Cologne
inn í húðina.
Flestir eru þess óvitandi, hversu
nytsamlegt þaö er, að guíubaða and-
litið, ef rjeít er að því farið. En auð-
vitað'getur það líka verið mjög skað-
Iegt, ef menn vita ekki, hvernig rjetta
aðferöin er, eða kasta til þess hönd-
unum.
Rjetta aðferðin er, að fylla háan
brúsa með sjóðandi vatni, halda
svo andlitinu yfir stútnum og breiða
handklæði yfir höfuð sjer og láta það
falla þannig að sem minnst af guf-
uhni fari til ónýtis.
Gufan má ekki blandast saman
við loftið áður en hún kemur á
andlitið.
Andlitinu á að halda yfir gufunni
í svo sem tíu mínútur. Á því
tímabili á að þerra það tvisvar með
rnjúku handklæði. Þegar andlitið
er allt vel baðað, á að skola það
úr köldu vatni og þurka síðan. Þar
á eftir á að nudda dálitlu af köld-
um rjóma inn í það og þurka það
aftur. Það má aldrei gleymast, þegar
hjer er komið, að bera áburð á
andiitið, er dregið getur saman svita-
holurnar, sem opnast hafa af guf-
unni (er gott að hafa^til þess Eau
de Cologné). Ef það er vanrækt,
verður afleiðingin sú, að svitahol-
urnar verða stærri og er fátt Ijótara
og verra að losast við. — Þegar
V'ABABIBLIAK
er nú kornin og fæst hjá bóksölunum í Reykjavík.
BékaversEun Sigfúsar Eymundssonai,
Með „Hólumí£ hefur undirritaður fengið mikið úrval af
£e\s\\xxw
meðal annars alveg nýjustu gerð.
R.VÍlí 4/e ’14.
Br, Miclsen
wr GLERVARAN
í Edinborgarverslun
segja allir að sje ágæt, úr miklu að velja, en samt ódýr.
Bollapör margar tegundir — Kaffikönnur — Mjólkur
könnur — Tepottar — þvottastell — Matarstell —
Diskar — Skálar — Vatnsglös — Vatnsflöskur —
Glerskálar — o. fl. o. fl.
EMALERAÐAR VÖRUR
fyrirtaks góðar, margar tégundir með lægsta verði.
þVOTTAPOTTAR — EMAL. JÁRNPOTTAR
STEINOLÍUVJELAR — TAUVINDUR og RULLUR
BOLLAPARABAKKAR — FERÐAKISTUR og TÖSKUR
ALBUM — MYNDARAMMAR — LEIKFÖNG.
Hvergi meira úrval af allskonar smá búshlutum en í
GLER- og JÁRNVÖRUDEILD Edinborgarverslunar.
Ennfremur fæst í þessari deild
MARGARÍNIÐ góðkunna
FRYS COCOA
MELROSE TE-IÐ (sem öllum þykir gott)
ELDSPÍTURNAR þægilegu
O. fl. 0. fl. o. fl.
Versl. EDINBORG.
Hafnarstrseti 12.
Stórt erfðafestuland
hjer í bænum er til sölu. Liggur mjög vel til fískverkunar og físk.
reita. þetta ættu útgerðarfjelög bæiarins að athuga.
Upplýsingar gefur
Sig. Björnsson
Grettisgötu 38.
Brennt oe: malað kaffl
er ódýrast og best í verslun
9
Austurstræti 18.
þetta er allt gjört, á að strá möluðu
haframjöli yfir allt andlitið. Út mega
menn ekki fara fyrr en eftir eina
klukkustund.
Þessi aðferð einu sinni í viku
mun stuöla mjög að mjúkleik og
æsku útliti húðarinnar.
Það verður að varast að endur-
íaka þetta of oft, vegna þess aö þá
verður húðin brátt ljót og skorp'n.
Frh.
daossetv,
Yfirrjettarmálaflutningsmaður,
Pósthússtræti 17.
Venjulegaheimakl. 10-11 og4-6.
Talsími 16.
I^addxr a(met\x\\was
9
A annan í
hvítasunnu.
Þá reyndi »Tjaldbúðin« að sýna
sig eins og aðrar systur hennar,
en þegar hámessan kom, þá var
henni sagt að þegja. Sannleikurinn
er nú auðvitað sá, að það var ekki
alltsaman andleg fæða, er hún seldi,
heldur líka næring fyrir líkamann.
En hvernig fór svo? Hámessan
lcorn og »TjaldbúðinnU var Iokað
— líklega það sem kallað er í hálfa
gátt, en þá drýgði postulinn þá
synd, að hann afhenti tvær appel-
sínur dreng, sem búinn var að borga
þær áður en að klukkan sló tólf.
En postulinn syndgaði meira; hann
seldi telpu-anga tvær »karame!Iur«.
Hún bað hann svo vel, sagðist vera
glorhungruð, en ekki hafa til nema
þessa tvo aura. — Jeg sagði henni
að það væri ekki leyfiiegt að selja
um hámessuna. Hún sagði aftur:
»Góði besti Páll minn, gerðu það
fyrir mig, jeg er svo|svöng.« Mjer
datt þá í hug það sem Kristur sagði
einu sinni: »Hungraður var jeg
og þjer gáfuð mjer að eta, þyrstur
var jeg, og þjer gáfuð mjer að
drekka*. Mjer var sagt ungum, áð
jeg ætti að hafa frelsarann til fyrir-
myndar, Ijet því afvegaleiðast gagn-
vart »Ordinanzíunni« ogseldihenni
2 karamellur. En á meðan á þessu
þjarki stóð höfðu tveir Iögreglu-
þjónar safnast að mjer og sögðu
hátíðlega, að jeg mætti ekki aðhaf-
ast þessa óhæfu, ef jeg brygði út
af, þá biði «steinninn« mín. Jeg
reyndi að bera í bætifláka fyrir mig.
— Kvað jeg mjólkursölubúðir,
brauðsölubúðir og kaffisöluhús gera
hið sama, og þótt »Tjaldbúðin væri
stór og tignarleg, þá væri hún
samt sem hverfandi skuggi í sam-
anburði við hinar söluhallirnar.
Annars gat jeg naumast heyrt
samtal okkar, því þá básúnaði um
allar götur borgarinnar svo berg-
málaði í sjálfri dómkirkjunni —:
Vísir! — VísirI Vísir þrefaldur!
Jeg held aö það eina sem jeg
get bætt við sje það, að segja eins
og drenghnokkinn:
»Jeg skal reyna að vera góður á
morgun, mamma mín«.
Páll Bergsson.