Vísir - 16.06.1914, Side 2

Vísir - 16.06.1914, Side 2
v í S I R VISI R Síœrsta blað á íslen 'ka tungu. Árgangurinn (400—500 blöð) kostar erlendis t i),00 eöa 2’/a dollars, innan- landslr.'í 00. Ársfj.kr. 1,75,mán kr.0,60. Skrifstofa og afgreiöslustofa í Austur- • iraeti 14 opin kl, 8 árd til ki. 9 síðd. Sími 400. Pósthólf A. 16. Bitstióri Einar Gunnarsson senjulega til viötals kl. 5—7. :?<endisvelnast50in (Sími 444) annast út- curð um austurbælnn nenia Laugaveg. Miuicíösla til utanbæjarkaupenda er á : kólavörðustig 16 (Simi 144, Póst- bólf A. 35)]. » Opíumreykingar varda lífláti. Kínastjórn berst meö oddi og egg gegn ópíumreykingum og hefur sett strangt bann viö þeim með þung- um refsingum. Frá 1. júní þ. á, veröur hver sá maöur skotinn, yngri en fertugur, sem hittist við ópíum- reykingar í hjeraðinu Changtu. Eldri menn en fertugir sæta hörðu fang- eisi. Mestu skipskaðar, er orðið hafa í heiminum síöustu fjörutíu árin, hafa nú verið rifjaðir upp í sambandi við hið mikla slys er zEmpress of lreland« sökk og 1024 menn fórust, eins og skýrt hefur verið frá í Vísi fyrir nokkru. Hjer kemur skrá yfir mestu slysin: Áriö Manntjón 1913 okt. —Volturno, af eldi, 126 1912 apr.—Titanic,rakstájjaka, 1543 1910 febr.— General Chanzi, strandaði, 200 1909 júlí — Waratah, hvarf, 211 1908 nóv. — Sardinía, af eldi, 123 1907 febr. — Berlín, strandaði, 128 1906 ág. — Sirio, strandaði, 300 1905 nóv. —Hilda, strandaði, 128 1902 júní — General Slocum, af eldi, 1000 1899 mars —Stella, strandaði, 105 1898 júlí — La Burgogne, við árekstur, 545 1896 júní—DrummondCastle, strandaði, 247 1896 apr. — Elbe, við árekstur, 334 1893 júní — H. M. S. Victoría, við árekstur, 359 1891 mars — Utopia, viðárekst- ur, 564 1890 des. —Shanghai, af eldi, 300 1883 jan. — Cimbria, sökk, 455 1876 júlí — Gt. Queensland, hvarf, 569 1874 nóv. — Cospatrick, af eldi, 470 1873 sept. — Princess Alice, sökk, 600 Harðstjórn Rússa á Póllandi. Nýlega voru ákærðir 82 menn í Varsjá á Póllandi fyrir þær sakir, að þeir væri í fjelagi, er hefði það mark og mið að brjóta landið und- an Rússum og endurreisa hið forna ríki. Af þessum mönnum voru 24 dæmdir til hegningarvinnu frá fjór- um árum upp í 15 ár. Þrjátíu voru gerðir útlagir, en 14 sýknaðir. Tíu höfðu getað strokið úr varð- haldi. Kelsara-lelkhúsið f Moskva brann, eöa nokkur hluti þess, 16. f. m. og er skaðinn metinn hátt á aðra miljón króna. Sprenging mikil átti sjer stað við Seizanne í Frakklandi 7. þ. m. Var verið að undirbúa að senda loftskip af stað, en vindur feykti belgnum á trje nokkur svo hann rifnaöi. í sama bili kviknaði í gasinu af einhverjum ókunnum ástæðum og varð voða- leg sprenging. Sextíu menn meidd- ust, þar af 25 svo mjög, að flytja þurfti til sjúkrahúss og talið tví- sýnt um líf sumra þeirra. H Eimskipafjelag íslands. Að gefnu tilefni skal það tekið fram, að þeir, sem skrifa sig fyrir hlutum í fjelaginu fyrlr 1. júlí næstk. verða aðnjótandi sömu rjettinda sem stofrthluthafarnlr. Umboðsmenn fjelagsins taka enn við áskriftum fyrst um sinn Forboðin jarðepli frá Danmörku. Rjett fyrir mánaðamótin fundust sveppir (tpowdery scab«) í tveim sekkjum af jarðeplum, sem flust höfðu frá Danm. til Bandaríkjanna. Petta varð nóg til þess,að Bandaríkjastjórn- in bannaði þegar allan aðflutning á jarðeplum frá Danmörku. Olli þetta rekistefnu og rannsókn í Danmörku og sannaðist þá, að jarðepli þessi höfðu verið frá Borgundarhólmi. Fengu Danir Bandaríkjastjórn þá til þess að afnema aðflutningsbann- ið á dönskum jaiðeplum — nema frá Borgundarhólmi. Pau eru enn forboðin. til þess tíma. Hlutabrjefin munu verða tilbúin í júlímánuði þ. á. Reykjavík 28. maí 1914. Pjelagsstjórniii. Tækifæriskaup á morgun 17. júní. Minningarspjald Jóns Sigurðssonar verða selda á 50 aura í stað krónu áður. þessu kjarakaupi ættu sem flestir að sæta til minningar um Jón Sigurðsson forseta. Spjaldið fæst í öllum bókaverslun- um bæjarins og svo i Safnhúsinu. Góður plægingamaður með góðum hestum og verkfærum fæst leigður í nokkra daga í vor. Sfml 422. Á Njálsgötu 22 fæst ágætt Amerískt hveiti og haframjöl, á óvanalegu lágu verði í 10 pd. og þar yfir. Reynið þaðl dularfullra fyrirbrigða. Bók Schrenck- Notzings. ----- Frh. IV. það sem sagt er frá hjer að fram- an er aðeins dæmi upp á hið helsta sem kom fyrir á þessu fjögra ára tilraunaskeiði Dr. v. Schrenck. Hefði auðvitað mátt segja frá því miklu ítarlegra, því að nóg er efnið í bókinni, hún er yfir 500 síður í stóru broti (4 to) En með því að tilraunirnar eru mjög svo hver annari líkar og þetta er ekki ætlað sem neinn vísindalega nákvæmur útdráttur, þá verður þetta að nægja til þess að gefa mönnum hugmynd um aðalefnið. það sem einkum grípur mann við það að kynna sjer tilraunir af þessu tagi er það, hvað þær eru ákaflega erfiðar viðureignar og auðvitað því erfíðari, því sam- viskusamlegar sem maður vill gjöra þær. það er allskonar til- lit sem taka þarf. Miðillinn eða sjálft rannsóknarefnið er vera í mannsmynd, sem ómögulegt er að fara með eins og skynlausa skepnu eða dauðan hlut, jafnyel þótt tekið væri það óyndis úr- ræði að ganga næst lífi hans, þá er hætt við, að það færi líkt og fyrlr manninum í þjóðsögunni, sem átti hænu, er varp gulleggi við og við. Hann varð óþolin- móður og vildi strax fá öll þau egg, er hann gæti búist við, drap því hænuna og krufði hana. En hann greip í tómt. Líkt fer með miðilsgáfuna. Hún virðist vera mjög næmur eiginleiki og mjög svo bundin við það skilyrði, að miðlinumlíði vel og að hann finni sig óhultan innan um menn, sem hann veit að vilja honum vel. Að það verkar ekki vel á miðla frekar en aðra menn, að finna að þeir sje almennt grun-

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.