Vísir - 14.07.1914, Side 2
V í S í R
V I S I R.
Stœrsta blað á íslenska tungu.
Argangurinn (400—500 blöð) kostar
erlendis kr. 9,00 eða 25/, dollars, innan*
lands Lr.7 00. ÁrsfJ.kr. 1,75, mán kr. 0,60.
Skrifstofa og afgreiðslustofa í Austur-
s'ræti 14 opin kl, 8 árd. til kl. 9 síðd.
Sími 400. Pósthólf A. 26.
Ritstjóri Einar Gunnarsson
venjulega til viðtals kl. 5—7.
GrEELA-
EAOTSÖOA-
STOFA
Gísla Guðmundssonar
Lækjargötu 14B (uppi) lofti, er
venjulega opin 11-3 vjrka daga.
2>oWex\x\Vw
Tilgangur lifsins. Fyrirl.
eftir Rich. Eriksen. þýtt
hefur Sig. Kristófer Pjeturs-
son. Rv. 1914.
þetta er rit guðspekilegs efnis
og lýsir tilgangi lífsins í stuttu
máli eins og guðspekingar líta á.
— Hin svo kallaða guðspeki
(Theosófí) er nokkurskonar trú-
arheimsspeki, en ekki nein sjer-
stök trú (Religion). Hún tekur
sjer fyrir hendur að skýra kjarn-
ann í öllum trúarbrögðum frá
þekkingarlegu sjónarmiði, að
fræða menn um hina æðri til-
veru mannssálarinnar og draga út
af því nytsamlega lærdóma fyrir
lífið. — þessi stefna hefur þróast
frá alda öðli meðal dulspekinga í
Austurlöndum, en er nú óðum
að breiðast út um Norðurálfu og
Vesturálfu og er nú fyrir skömmu
komin hingað til íslands. Er hjer
í Rvík ein fjelagsdeild og á Akur-
eyri önntir. — þessi litli bækl-
ingur gefur að sönnu litla hug-
mynd um hið geysistóra kerfi
guðspekinnar, heldur er hann
frekar nokkurskonar inngangur
siðfræðislegs efnis. Eru kenning-
arnar í ritinu mjög líkar kenn-
ingum kristindómsins, en guð-
spekin gengur það lengra en
biblían, að hún fræðlr menn um
tilveruna á sinn hátt, þannig að
maður eigi sjálfur að geta sjeð
nauðsyn rjettrar breytni. — Marg-
ir spekingar á ýmsum tímum
hafa haldið fram líkum kenning-
um og í guðspekinni felast, til
þess að ná samræmi í margt í
lífiriu sem annars væri óviðfeld-
ið og óskiljanlegt. Eftir hugsana-
lífi hjer á landi er mjög líklegt
að þessi stefna eigi fyrir sjer
talsverða útbreiðslu, og líklegt
er að þetta kver fái góðar við-
tökur.
, Strengleikar. 3 lög eftir
Jónas Tómasson.
þessi lög eru samin við Streng-
leika Guðm. Guðm., tvö fyrir
einsöng með undirspili, en eitt
fyrir harmoníum. Sýna þau gott
skynbragð á söngfræði og radd-
setningu, eru viðkunnanleg og
tilgerðarlaus, máske nokkuð
einhljóma, og sýna því ekki vel
skýrt, hvers frumleiks mætti von-
ast af höfundinum, ef hann Iegði
fyrir sig tónsmíðar. Er oft ervitt
*
a
VASABIBLIAK
er nú komin og fæst hjá bóksölunum í Reykjavík.
Bókaversiun Sigfúsar Eymundssonar.
^ats\m\ YLZ
Frá 20. þ. m. sel Jeg Valdiviu Nr. I.
á 3,20 pr. Kfló (1,60 pr. pd.).
Ávalt nægar birgðir af allskonar leðri.
‘Jv. JtUtsetv.
og líkklæði.
)
1 Eyvindur Arnason
Undirritaður hefur fengið með síðustu
skipum mikið af öllu tilheyrandi
skósmlði
sem allt selst með innkaupsverði.
Komið og athugið verðið.
Reykjavík 10. júlí 1914.
Fr. Nielseti.
Llkkistur
að segja um það fyrst í stað,
hvort beinn framleiðsluhæfileiki
er fyrir hendi í söngmennt og
skáldskap, og venjul. rjettast að
ráða mönnum fráþvi strax í byrjun
að ganga skáldabrautina. Við
þurfum ekki mörg skáld heldur
fá og góð og þau leyna sjer ekki
til lengdar, ef þau eru framúrskar-
andi. — Jónas kvað vera áhuga-
maður mikill um söngmennt og
hinn duglegasti söngkennari.
H. J.
Ferðapistlar
Eftir S. Á. Gíslason.
---- Frh.
Meðal danskra Templara.
Fyrsta daginn sem jeg var í Höfn,
fór jeg að leita mjer upplýsinga um
hvar templarar hjeldu fundi sína,
og sá jeg eftir nokkra leit í blöð-
unum að nokkrar I. O. O. T. stúk-
ur höfðu fundi sína í Nörregade 26
uppi á 3. lofti. — Jeglabbaði þang-
að og sá þá á auglýsingu í and-
dyrinu að »spiritista mission* hjelt
fundi sína á sama stað einu sinni
í viku. —
»Þarna sjer maður það að spiri-
tistar eru þá líka orðnir »missjónsk-
ir«, hugsaði jeg með sjálfum mjer.
— Sumum löndum mínum þætti
það líklega hálfskrítið, ef einhver
segði að »spiritista missiónin* í
Höfn ætti útibú eða bræðrafjelag í
Reykjavík og þar væru ýmsir áhuga-
miklir spiritista »missiónerar«, en
eftir danskri málvenju væri það ekki
svo mjög fjarri lagi. — Og þar eð
dönsk málvenja er alltöm sumum
löndum, verður vissast að geta þess,
þegar einhvern langar til að hnýta
í »missiónina«, — hvaða missión
það er sem um er að ræða.
— Jæja, jeg húgsaði mjer að
forvitnast um hvort meira væri
sameiginlegt með templurum og
spiritistum en fundarsalurinn og
stikaði upp stigana. Á 3. lofti hitti
jeg kaffisölukonu, sem tók mjer
með mestu virtum, þegar hún
heyröi jeg væri templar úr fram-
andi landi. Hún sýndi mjer fund-
arsalinn, sem naumast rúmar 100
manns í sætum, og hún tjáði mjer
að þar eð stúkan, sem hjeldi fund
þarna þá um kveldið, væri mjög
fámenn, þá væri ráðlegast fyrir mig
að heimsækja aðra stúku, sem hjeldi
fund þá um kveldið í sömu götu
nr. 7. Sú stúka heitir »Rednings-
ankeret* og er nr. 16. Hún telur