Vísir - 04.10.1914, Síða 3

Vísir - 04.10.1914, Síða 3
* -f V í S IR eru $0&&ttt\tUX um ttttva seld meö 15°|o afslætti. Eins og kunnugt er, er hvergi betri né ódýrari Vefnaðarvara n* V. B K Mikið úrval. “SSí *\3exstut\\t\ ^VÓttt yv\st\it\ssou. en Haustull kaupir háu verði Jes Zimsen GÆRUR kaupir Slggew TSovJasotu Vindlar, Sígarettur, og Sælgæti fæst í úrvali í versl. Yegamót Laugaveg 19. og kaffibrauð er altaf eiiis gott og ódýrt í versl. Vegamót Laugaveg 10. Dívan sérlega góöur (sem nýr) til sölu. Uppl. á Skólayörðustíg 33 B uppi. Hinir ágætu vindlar E1 Arté og Cobden fást ruí hjá Hs\msou. Vefnaðarvörur, Prjónavörur, Smávörur, & best og ódýrast hjá m Jóni Björnssyni & Co. Bankastræti 8. Um tíma er gefinn 15 prc. afsláttur af Sjölum — (öðrum en cachemirsjölum) — Notið nú tækifærið! 800 til 1000 FJAR varður slálrað í þessari viku hjá Siggeir Torfasyni (Laugaveg 13). Matvöruverslunin Yegamót Laugaveg 19 býður öllum að líta inn og reyna vörurnar, verð er sann- gjarnt og varan er góð. Peningabuddur og veski rtýkomin i járnvörudeild Jes Zimsen. Athugið! Húsnæði og ágætt fæði fæst á Bjargarstíg 15, með tækifærisverði nú í dýrtíðinni. Hentugt fyrir Mentaskóla- Kvenna- skóla- og Kennaraskólanemendur. Skrlfstofa Elmsklpafjelags íslands, í Landsbankanum, uppi Opin kl. 5—7. Talsími 409. M Massage-læknir Gruðm, Pétursson Heima kl. 6—7 e. h. — Sími 394. Auglýsendur eru vinsamlega beðnir um aö koma auglýsingum sínum tímanlega á afgr. Vísis. Höilin í Karpatafjöllutium, Eftir Jules Verne. Frh. Þessir hvellir ætluðu að gera út af við læknirinn. Þegar hann heyröi þa, hljóp hann hræddur til hliðar, skimaði í allar áttir, og þá gat það komiö fyrir að trjákvistur festist í eyra honum, og fanst honum þá að klær læslu sig í hann til að halda honuni föstum. Veslingsmað- urinn vissi að líf hans var hér í stórhæltu, og nú var svo komið fyrir honum, að hann þorði ekki að snúa einn við, og neytti hann því allrar orku til þess að verða ekki aftur úr félaga síniun. Stundum urðu á vegi þeirra stór- ar sléttur, þar sem dagsljósið gat alveg notið sín; stórir flokkar af svörtum storkum, fældust er þeir komu og flýðu úr hreiðrum sfnum í háu greinunum, og flögruðu garg- andi fram og aftur. En það þreytti þá ennþá meira, að fara um þessa staði í skóginum, en að brjótast gegnum þétta runnana. Stærðar tré, sem stormurinn hafð' brotið, eða ellin hafði lagt að velli, lágu hér í stórum hraukum, alveg eins og að öxi skógarhöggsmannsins hefði felt þau. Það var sorgleg sjón, að _sjá þessi stóru tré, rotna hér sundur. Það var hörmulegt tii þess að vita, að þau yrðu aldrei nein- um að gagni, að þeim yrði aldrei ekið niður í Sílfljótið, þaðan sem mætti flytja þau í sögunarmyllur, og þannig afla landinu mikiis fjár. Það var ekki öiðugt að sjá, að hér lá óhreyföur auöur, og ekki þurfti nema dálítinn dugnað til þess að afla hans. En eins og lesarinn hefit fyrir löngu komist að raun um, þá var framtakssemin ekki aöaleinkenni íbúanna í þessum héruðunt. Nick Deck og félagi hans áttu fult í fangi með, að klöngrast yfir þessar torfærur; en stundum voru þeir neyddir til þess, þegar ómögu- legt var, að komast fram hjá þeirt, þó að skógarverðinum, sem bæöi var liðugur og sterkur, tækist það nokkurn veginn, þá kom það oft fyrit að Patak lækni, sem bæði var kiofstuttur og með ístru lá við falli, og þá varð Nick Deck aö koma honum tíl hjáipar. »Þér sjáið, Nick, að við höfum ekkert upp úr þessu, anr.að en að eg fótbrýt mig,« stundi Patak læknir, hvað eftir annað. »Jæja, þá læknið þér yður sjálfur.t »Gerið þér það fyrir mig, ungi maður, að gá nú vel að yður. Það er ekki til neins, að keppa að því, sem ómögulegt er.« En áður en hann hafði lokið máli sínu, var Nick Deck kominn langt á undan og læknirinn sem sé, að engu tauti var við hann komandi, flýtti sér á eftir honum. Þeir urðu að gæta allrar varúðar, aö verða ekki áttaviltir og að halda stefnunni á kastalann. Þeir vonuðu aö skógurinn tæki brátt enda, því þ ;ir höfðu stöðugt gengið upp í móti, en það varð ekki fyr en um ndn. En fyrir ofan eiginlega skóg- arsLtðið upp að Orgalhásléttunni, tók samt við belti grænna trjáa, þótt þau stæöu ekki þétt saman, heldur á strjáli, eins og útverðir, og urðu þau því færri, því ofar se.n dró. Hér kom einnig Nyadsáin í ljós milli hamranna og var það eins og Nick Deck hafði búist við. Hann sá því, að hann hafði valið stystu leiðina, því áin virtist kotna upp í klettasprungum á hásléttunni. Nick Deck gat ekki neitað lækn- inum um, að hvíla sig svo sem klukkutíma. En það voru ekki ein- göngu fæturnir sem hvíldar þurftu með, heldur fór nú sulturinn líka að gera vart við sig. Þeir hötðu nógan mat í pokanum sínum og ferðapelar þeirra voru fullir af rakian. Auk þess höfðu þeir ágætt lindar- vatn rétt hjá sér, og hvers var þá hægt að óska frekar? Mennirnir tóku báðir ósleitilega til matar síns, því þeir voru orðnir mjög að- þrengdir eftir ferðalagið. Frá því þeir lögðu af stað hafði lækniritin rarla getað talað neitt við Nick Deck, því hann hafði alt af gengið svo hratt á undan honum. En þar sem þeir sátu nú á bakka Nyadsárinnar, hugsaði hann sér nú, að bæta sér upp þessa löngu þögn. Ef hægt var að segja um Nick Deck að hann væri lítill málskrafs- maður, þá mátti með engu minni sanni segja, að læknirinn væri gef- inn fyrir, að nota tungu sína.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.