Vísir - 24.10.1914, Side 2
V í S I R
<Jtá mgueUuuxm.
Stórorusta við Arras.
• Daily Mail» frá 12. þ. m. segir
frá mikilli orustu fyrir norðan boig
ina Arras á Norður Frakklandi, í
vesturarmi vígstöðvanna miklu.
Fréttaritari blaðsins segtr að hún
hafi staðið marga daga og endað
loks á sigri bandahersins. Þjóð-
verjar hafi verið reknir aftur 10—13
enskar mílur og hafi þeir mist um
12 þús. manns fallinna og særðra.
Albert konungur.
Hann tekur þátt í orustunum og
berst stundum sem óbreyttur liðs-
maður að sögn. Við Dixmuiden
hafði kóngur komið í víggrafirnar
til hermanna sinna lánað, þar byssu
af einum þeirra og látið skotin
dynja óspart á Þjóðverjum. Síðar
hafði hann sést ganga með fetil og
þar af ráðið að hann mundi hafa
særst eitthvað í hendi. Sagt er að
Belgadrottning sé komin til Eng-
lands í annað sinn síðan stríðið
byrjaði.
Lát Karls Rúmena-
konungs.
Það er álit margra að sá atburð-
ur muni breyta afstöðu Rúmena til
ófriðarins að Karl konungur skyldi
deyja. — Hann var Þjóðverja-vinur
og í sérstaklega miklu vinfengi við
Austurríkiskeisara. Öðru máli er að
gegna með Rúmena þjóð. Þar kvað
mikil löngun ríkjandi til þess að ná
Transsylvaníu undan Austurríki, því
að þar búa 3 miljónir Rúmena.
Manntjón Þjóðverja.
»Daily Mail* hefir þá fregn eft-
ir Central News, að Þjóðverjar hafi
mist 45 þúsund manns við
umsátur og hertöku virkjanna Wall-
hem og Wavre- St. Catherine ná-
lægt Antverpen. Höfðu þeirsestum
þessi vígi 2. þ. m. og féllu þau í
hendur þeim þann 9.
360 miljóna kr. herskatt
er sagt að hinn nýi þýski stjórn-
andi Antwerpen, v. Schultze hers-
höfðingi, hafi lagt á borgina.
Kensia í þýsku
ensku og dönsku.
Halldór Jónasson
Vonarstræti 12 (upp 2 stiga).
Hlttistkl. 3l/2—4 og Iaustfyrlr8.
B
IO-KAFÉ EE BEST
SÍMI 349
ffartvig jpielsen.
Skrlfstofa
Elmsklpafjelags fslands, J
i Landsbankanum, uppi
Opin kl. 5—7. Talsími 409.
Olgeir Friðgeirsson
Afgreiðslan á skrifstofunni í
Miðstræti 10
verður fyrst um sinn opin frá
kl. 111/2—3.
jVetrarvisur
Lag eftir W. A. Mozart.
Þótt geislar röðuls missi mátt,
er mundar vetur hramm, —
þá berum allir höfuð hátt
og höldum glaðir fram.
Ei ber að syrgja sumar-skraut,
því suðrænt Frón er ei, —
en standa fast og þola þraUt
skal þéttur sveinn og mey.
Hún er nú svona sett á jörð
vor sæla móður-grund,
að ýmist grænkar alt um svörð
og ýmist klakar sund.
Ég vildi að eg fengi fest
hjá frónskri drótt það orð,
að altaf þrífast börnin best
þar býður misjafnt storð.
Það þykir sælt að sitj’ á grund,
um sumar-fagurt-kvöld,
og hjala blítt við hugljúft sprund
er himins-roðna-tjöld.
En er ei líka yndi dátt,
með ungri blómarós,
að svífa yfir svellið blátt
við svalkalt mánaljós?
Við lofum grænu grundina
og gljúfra-foss og lyng
og berja-Iitlu-lautina
og Ijósan fjallahring.
En lítt’ um valið vetrarkvöld
á veraldanna fans!
Og horfð’ um nóft á niða-tjöld
og norðurljósa dans!
Og sjáð’ á hálu svellunum,
þar situr rós við rós,
og greinótt tré á gluggunum,
er glitr’ á stjörnu-ljós.
Það eru sem sé alheimslög,
að altaf birtir snilld
sú náttúrunnar höndin hög,
sem hörð er bæð’ og mild.
Þau lög fá ætíð unað veitt,
þótt æði Norðr’ um sjá.
Og ekkert getur »Alþing« breytt
þeirr’ alheim5-»stjórnarskrá«.
Þótt verði kalt í veðrinu
og vanti sól og þey —
ef hjarn býr ekk’ í hjartanu,
þá hlýjan bregst oss ei.
Mín kæra þjóð — sem eld og ís
af öllum þekkir best,
þú ert svo reynd, svo vösk og vís,
þú víli slærð á frest.
Þú gengur móti gaddinum
með Grettis þor og afl.
Með orku, von og vitsmunum
þú vinna munt hvert tafl.
Ég óska þess, mín unga þjóð!
að ávalt kuld’ og snjár
þín herði bein, þitt hiti blóð,
en hræðslu-frjósi-tár.
Svo bind eg end’ á braginn minn,
og bið þess þjóðin mín!
að farsæll verði veturinn
og vænkist ráðin þín.
B. þ. Gröndal.
Kálmeti!
Svo sem
Hvítkál.
Selleri.
Gulrætur.
Purrer. Asier.
Laukur ágtætur, 30 aura kgr.
Kartöflur þær bestu í borginni.
Rauðkál.
Rauðbeður.
Blómkál.
Piparrót.
Jílatavoev^L ^Sómasav 3ót\s*owav.
Sími 212.
Eldsvoðaábyrgð
hvergi ódýrari en hjá
»NYE DANSKE
BRANDFORSIKRlNGSSELSKABc
Aðalumboðsmaður er:
SIGHV. BJARNASON, bankastjóri.
Det kgl. octr.
Brandassurance Comp.
Vátryggir: Hús, húsgögn, vörur
alskonar o. fl.
Skrifstofutími 12-1 og4-5, Austurslr.l
pr. H. J. Bryde
N B. Nielsen.
Alklæðið
góða Og
ma geftirspurða
komið aftur.
Sturla Jónsson
ÞEIR SEM
enn þá eiga eftir að byrgja sig upp
með kartöflur ættu að gera það nú
þegar meðan hið lága haustverð er
á þeim.
Klapparst. IB. Sími 422.
PIÐUR
gott og ódýrt,
fæst ;í verslun
Stuvlu ^ó^ssouar.
EPLI,
V í N B E R ,
S í T R Ó N U R,
BANANAS,
LAUKUR,
í
— Verslun —
» í
Einars Arnasonar.
Hin ir margeftirspurðu
nýkomir til
Jes Zimsen.
DRUE AGURKUR
SÍTRÓNUR
EPLI (Baldvins)
VÍNBER
og LAUKUR
nýkomið í versl.
Breiðablík
Massage-læknir
Ghiðm. Pétursson
Garðas/rætl 4.
! Heima kl. 6—7e. h. Sími 394.
í