Vísir - 06.11.1914, Side 1
1222
V í S 1 R Stærsta, besta og ódýrasta blað á íslenska tungu. Um 500 tölublöð um árið. Verð innanlands: Einstök blöð 3 au. Mánuður 6C au Ársfj.kr.1,75. Arg.kr.7.oo. Erl. kr. 9,oo eða 2V2 doll. m V 1 S 1 R
VISIHi kemur út kl. 12 á hádegi hvern virkan dag.~ Skrit- stofa og afgreiðsla Austur- str.14. Opin kl. 7 árd. til 8 síðd. Sími 400.—Ritstjóri : GunnarSigurðsson(fráSela- læk). Til vlðt.venjul. kl.2-3siðd.
Föstud. 6. nóv. 1914;
Háflóö árd. kl. 6,50, síðd. kl. 7,15.
A f m æ 1 i í d a g :
Björn Oddsson, bifrdöarstjóri.
Afmæli á morgun:
Ci. Sylvia Siggeirsdóttir, ungfrú.
Ásgeir Ounnlaugsson, kaupm.
Abelfna Gunnarsdóttir, versl.mær.
Árni Sighvatsson, kaupm.
Gísli Björnsson, verslunarmaður.
Anna Kolbeinsdóttir, húsfrú.
Áslaug Lárusdóttir, mjgfrú,
Þorleifur H. Bjarnason, adjunkt.
Gamla Bió
Hin afbragösfallega mynd
Skipsbruninn
á
Atiandshafinu
Afar gagntakandi sjónleikur í
4 þáttum, leikinn af heimsfræg-
um ítölskum leikendum.
Sýningin stendur yfir fulla kl.sf.
Aðgöngumiðar kosta (talsettir) I
50 og 30 aura.
Biöjið um aðgöngumiða í síma
nr. 475.
Aðgöngumiðar seldir við leik-
húsiö. Opið kl. 8.
Án eta er þetta merkasta mynd-
in, sem þér getið séö um þetta I
leyti.
Erlendis hefir þessi kvikmyndll
farið sanna siguiför.
Myndir reynist að vera
bestar í Gamla Bíó.
Peningafölsun.
Þegar farþegarnir af »Flóru«
komu hér á land í gærdag, gaus
upp sá kvittur, að tveir af farþeg-
unum hefðu verið teknir fastir í
Stykkishólmi, áður en Flóra fór
þaöan, fyrir að hafa með höndum
falsaða peninga.
Vér hringdum þegar á Stykkis-
hólm og áttum tal við mann þann,
verslunarþjón hjá Sæm. Halldórs-
syni, er hafði kært þá, og sagðist
honum svo frá:
Menn þessir höfðu verið inni í
Tangsbúð og ætlað að borga þar
með seöli, sem verslunarþjónninn
sá þegar, að var falsaður og neit-
aöi aö taka. Komu þeir síöan til
okkar, keyptu þar eitthvað smávegis
og ætluðu að borga mér með 100
króna Nationalbanka-seðli. Fgsáað
seðillir.n var falsaður, kvaðst ekki
hafa næga peninga við hendina og
þurfa að sækja þá. Fór eg beina
leið til sýslumanns og skýrði hon-
um frá málavöxtum og brá hann
þegar við og setti mennina fasta;
en er rannsakaðar voru föggur
þeirra fundust á þeim um 1500
krónur í seðlum, þar af 900
krónur í eftirgerðum 10 og 100
króna Nationalbanka-seðlum, sem
þeir neituðu að gefa nokkra skýr-
ingu á, hvernig þeir hefðu komist
yfir. Seðlar þessir eru Ijósmyndir
og báru þeir þá óbrotna í veskjum
sínum og höfðu með þeim rakt
blað til að halda þeim mjúkum.
Menn þessir eru: Gunnar Sig-
urðsson veitingamaður frá Sauðár-
króki og Þórður nokkur Kol-
beinsson.
í gær komu svo skeyti til Stykk-
j ishólms bæði frá fsafirði og Patreks-
firði nm, að hafa hendur í hári
þessara manna, því á þeim stöðum
báðum hafði þeim tekist að koma
út þessum eftirgerðu seölum. Enn-
fremur hafði bryti skipsins með
höndum 40 krónur í þessum seðl-
um, sem hann hafði tekiö við sem
borgnn frá þeim,
Símskeyti fengum vér frá Stykk-
ishólmi í gærkvöldi um það, að
próf hefðu verið haldin yfir þeitn
til kl. 1 í fyrrinótt og síðan allan
i daginn í gær, en þeir gefa ekkert
j upp um seðlana.
j Talið er víst, aö fleiri séu með-
sekir.
St'mað var frá Hólmavík t' gær,
að Guðjón Guðlaugsson fyrrum
alþm. hefði í höndum einn af þess-
um fölsuðu 100 kr, seðlum, sem
hann fékk, er Flóra var þar. Sendir
hann seðilinn hingað með næsta
pósti.
Sagt var oss í morgun í síma
frá Stykk:shó)mi, að Gunnar hafi
nú loks játað, aö hann hafi fengið
seölana hjá Jóni Pálma Jónssyni
Ijósmyndara á Sauðárkrók. Var þeg-
ar símað til Sauðárkróks og sýslu-
maður, Magnús Guðmundsson, beð-
inn að taka Jón Pálma fastan. Við
ranttsókn hjá honnm fundust ljós-
myndapiötur af seðlunum.
Nýja Bíó
sýnir í
kvöld og næstu kvöld s
1 V A N H O E
(ívar Hlújárn).
Mikilfenglegur og undrafagur sjónleikur í 3þáttum, sniðinn eftir
samnefndri skáldsögu, sem allir unna og aldrei fyrnist, frægustu
skáldsögu höfuðskáldsins breska WALTHER SCOTT-
Sjónleikur þessi er leikinn af frægum enskum leikurum og allur
útbúnaður gerður af hinni mestu vandvirkni og ræktarsemi við hið
fræga skáldrit og minningu skáldsins.
Sjálfstæðisfélagið
templaiía-húsinu" Laugardaginn 7. þ.m.
Sveinrt Björnsson alþm. flytur erindi um Ameríkuförina.
Sjálfstæðismönnum einum
er leyfður aðgangur
SÍMSKEYTI
London 5. nóv. kl. 10,i5 e. h.
Opinber fregn frá Berlín segir að þýska beiti-
skipið Yorck hafi rekist á tundurdufl við innsiglingu
í Jahdeflóann og sokkið. Helming skipshafnarinn-
ar varð bjargað.
Breska sjómálaráðaneytið segir, að samkv.
þýskum skýrslum hafi 5 þýsk beitiskip barist við
breska flotadeild hjá Valparaiso, að staðhæft sé, að
breska beitiskip'ð Monmouth hafi sokkið og Good-
hope iaskast mikið. Breska sjómálaráðaneytið
hefir enn þá enga tilkynning fengið.
París: Bandamenn vinna stöðugt lítið eitt áán
fullnaðarúrslita.
Bæjarstjórnarfuiadur
var haldinn í gærkvöldi. Þar var
fjárhagsáætlun bæjarins fyrir næsta
ár til 1. umræöu og vísað til 2.
umræðu.
Auk annara venjulegra mála var
það rætt um kvikmyndahúsin, hvort
ekki væri vegur til að þau hetðu
færri sýningar vikulega, en nú ætti
sér stað. Til að leita sér upplýs-
inga um það mál var kosin 3
manna nefnd. Nánara verður frá
fundinum skýrt í Vísi á morgun.
»F!óra«
kom í gærdag norðan og vestan
um land. Meðaí farþega: Skm-
stjórarnir Hialti lónsson og Koi-
beinn Þorsteinsson, Bergm. Rósin-
Jahdeflói er í Oldenburg.
Monmouth bygður 1903 9300 smál. vopnaður með 14 x 6 þuml.
fallb. og hefir mílu hraða.
Goodhope bygður 1902 14100 smál. vopnaður meö 2 x 9.2 þuml.
og 16 x 6 þuml. og hefir 24 mílna hraða.
kranzson kaupm. frá Flateyri með
tvær dætur stnar, Kolbeinn Árna-
son kaupm. á Akureyri, Eggert
Jónsson frá Nautabúi með konu og
systur o. fl. o. fl.
»Ceres«
fer frá Leith á morgun (7. þ. m.).
Gifting.
í gær voru þau Böðvar Kiistjáns-
I ?on og Guðrún Thorsteinsson gefin
saman í borgaralegt hjónaband.
Skautafélagið
heldur dansíeik annan laugard.
Hjartaniega þökkum við öllum
þeim er sýndu okkur hluttekningu
við fráfall okkar hjartkæra sonar.
Bakkast. 3, þ. 6. nóvember 1914.
Sigríður Rögnvaldsdóttir
Jóhannes Sveinsson.
"Mtau aj tar .
Trúlofun: Nýlega ertt trúlofuð
Skúli Tnorarensen í Kirkjubæ og
Vigdís Jónsdóttir á Geldingalæk,