Vísir - 08.11.1914, Qupperneq 1
1224
V I S I R
Stærsta, besta og ódýrasta
blað á islenska tungu.
Um 500 tölublöð um árið.
Verð innanlands: Einstök
blöð3au. MánuðuröCau
Ársfj.kr.>,75. Arg.krJ.oo.
Erl. kr. 9,oo eða 2x/2 doll.
17VCSV19
m* Jm wSSfr mm raiw
V I S I R
kemur út kl. 12 á hádegi
hvern virkan dag. Skrit-
stofa og afgreiðsla Austur-
str.14. Opin kl. 7 árd. til 8
síðd. Sími 400.— Ritstjóri:
GunnarSigurðsson(fráSela-
læk). Til viðt.venjul. kl.2-3siðd.
Sunnud. 8. nóv. 1914;
Háflóð árd. kl. 8,25, síöd. ki. 8,47.
A f m æ 1 i í d a g :
Runólfur Einarsson, steinsmiður.
Afmæli á morgun:
Guðrún Pétursdóttir, húsfrií,
Þóra G. Möller, húsfrú.
Theódór Vilhjálmsson, skrifari.
Njósnarasaga í 2 þáttum.
Óhemju-hrífand og nákvæm
mynd frá frelsisbaráttunni í
Norður-Ameríku.
Amerískúr gamanleikur.
Góðar og áhrifamiklar myndir,
sem fullorðnir jafnt og börn
geta haft gaman af að sjá.
tí m BÆJAKFRETTIR 1
Ivar hljújárn.
Það er stöðugt svo mikil aðsókn
að myndinni þeirri, að menn verða
að tryggja sér aðgöngumiða fyrir-
fram. Fjöldi manna varð frá að
hverfa í gærkveldi, og hefir því
Nýja-Bíó ákveðið, að sýna mynd
þessa við allar sýningar í kvöld.
Þetta mun því síðasta tækifærið að
sjá þessa stórfrægu mynd.
Messur.
KI. 12 í Fríkirkjunni séra Jóh.
Þorkelsson (altarisganga). Kl. 5 séra
Bjarni Jónsson.
Nýtt kampavín.
Gísli Guðmundsson gerlafræð-
ingur og eigandi hinnar góðkunnu
gosdrykkjavei ksmiðju »Sanitas« hefir
fundið upp á því að búa til eftir-
líkingu af kampavíni, sem er ótrú-
lega líkt algengu kampavíni, en er
þó því sem næst óáfengt.
Sanitas-kampavínið er búið til á
líkan hátf og aðrir gosdrykkir, að
öðru leyti en því, að frumefnin eru
látin »gera« líkt og öl.
Innbrotsþjófurinn.
Það komst upp við réttarhald í
gær, að innbrotsþjófurinn, sem
brautst inn hjá Zimsen og Godt-
haab, hafði sagt rangt til nafns síns.
Hann heitir Júlíus Jónsson og er
úr Hafnarfirði. Ekki meðgekk hann
meira en þessi tvö innbrot.
Gestir í bænum.
Sr. Ásgeir Ásgeirsson frá Hvammi
í Dalasýslu kom hingað til bæjar-
ins með >lngólfi« í gær; Jdvelur
hann hér um tíma.
Eýja Bíó
sýnir í kvöld í
síðasta sinn :
J\)axv^\o
Mikilfenglegur og undrafagur sjónleikur í 3 þáttum,
sniðinn eftir samnefndri skáldsögu, sem allir unna
og aldrei fyrnist, frægustu skáldsögu höfuðskáldsins breska W ALTHER SCOTT.
Sýningar byrja kl. 6—71/,, 71/*—9 og 9—10V2. Peir er ekki hafa haft ástæðu til að sjá þessa
fyrirtaksmynd. noti nú síðasta tækifæriði því »lvanhoe« þurfa allir að sjá. Komið því í Nýja Bíó.
Fundur í dag kl. 2. Þorbergur Þórðarson flytur fyrir-
lestur. Breyting fundartíma o. fl. til umræðu. Nauðsynlegt að
fjölmenna og koma á réttum tíma.
SlMSKETTI
'
London 7. nóv. kl. 11 f. h.
Sjómálaráðaneytið staðfestir fregnina um að
beitlskipið Goodhope hafi sokkið, beitiskipið Mon-
mouth iaskast mikið haldið það hafa hleypt á land
eftir sjóorustuna við Chile.
Opinber Tokiofregn: Tsingtau hefir gefist upp.
Fótgöngulið hafði náð aðalborgarhliðinu eftir hræði-
lega sprengikúlnahríð.
Fetrograd: Unnið þýðingarmikinn sigur á ný á
Austurríkismönnum, tekið aftur Jaroslav.
>
París: A norðurherstöðvunum þröngva banda-
menn Þjóðverjum aftur á bak, en aðallega vinna þeir
á fyrir sunnan Dixmuúe.
Central News.
Draugagangur mikill hefir verið
undanfarinn mánuð á Helli í Rang-
árvallasýslu. Jörðin er útibú Sig-
urðar á Selalæk og býr þar hús-
maður með konu og 5 stálpuðum
börnum. Þau hjónin flýðu bæinn
ásamt börnunum, og ýmsir karl-
menn úr nágrenninu hafa vakað
þar á nóttum og orðið varir við
högg, óskiljanleg hljóð, sýnir og
annan ófögnuð. Nú hefir bærinn
verið rifinn til grunna og fluttur
úr stað. Vísir hefir gert ráðstafanir
til að fá nákvæmar skýrslur frá skil-
ríkum mönnum, sem gleggst kunna
deili á Fróðárundrum þessum.
Nýtt dagblað,
Nýfarið er að koma út á Akur-
eyri blaðkríli, sem kallað er »Dag-
blaöið«. Ritstjóri þess er Sigurður
Einarsson dýralæknir
Sigurður Eggerz
í dönskum blöðum.
Samtal hafa blöðin »Politikenc
og »Berl. Tidende« átt við ráð-
herrann.
Báðum blöðunum ber saman um
það, að Sigurður vilji ekkert gefa
upp um íslensk stjórnmál. Frétta-
ritarar blaðanna fara því að tala við
hann um, hvernig ástandið og horf-
ur séu hér heima meðan stríðið
stendur yfir. Hann lætur vel yfir
ástatidinu og segir, að íslendingar
geti horft rólegir fram á veturinn
Hann skýrir því næst frá Ameríku
förinni og telur hana til þjóðþrifa.
Blöðin róma kurteisi og lipurð
ráðherra.
»BerI. Tid.« skýrir frá því, að
hann æíli ekki að verða lengur en
hálfan mánuð, ef afgreiðsla mál-
anna gangi vel.
Af tíma þeim, setn hann er bú-
p LEIKFÉLAG
REYKJAVIKUR:
$ J m\t\x\
áfg§S0* Sunnud. 8. nóv.
H % kl. 8 síðd.
Aðgöngumiðar seldir í Iðn-
Hf aðarm.húsinu í dag kl. 10—12
H og 2—7. Pantaðra aðgöngu-
S miða sé vitjað fyrir kl. 4.
ÍÞað tilkynnist hér með vinum og
vandamönnum, að okkar elsku litla
£ dóttir, Anna, andaðist þ. 1. þ. m.
á heimili okkar, og er jarðarför
hennar ákveðin mánudaginn 10. þ.
m, og hefst með húskveðju kl.
Rvík 6, nóv. 1914.
Haildóra Halldórsdóttir.
Ágúst Benediktsson
Hverfisgötu 18.
inn að vera í Höfn, virðist því
mega draga það, að afgreiðslan
gangi ekki að óskum.
Breskt beitiskip
við Hornafjörð.
Símað var til Vísis í gærfráAk-
ureyri, að farþegar á strandferða-
skipinu »Columbus« hafi síðast-
liðinn fimtudag, er það fór um
Hornafjörð, séð breskt beitiskip
koma af hafi og stefndi það þang-
að. Bjuggust menn á »Columbus«
við, að það myndi telja sig eiga
eitthvert erindi við hann, er það
sigldi alveg upp að grynningum við
fjörðinn. En svo var þó ekki. En
þar var fjöldi botnvörpunga að veið-
um. Var báti skotið frá beiíiskip-
inu og stigu á hann nokkrir menn.
»Húsvitjaði« svo báturinn hjá öll-
um botnvörpuskipunum. En er því
var lokið hélt beitiskipið aftur til
hafs, og stefndi til suðvesturs.
Þetta þóttu nú stórtíðindi austur
þar. _________