Vísir - 15.11.1914, Blaðsíða 2
V í S 1 R
Ræða
flutt af ræðismanni Frakka, A.
Blanche, á fundi í »Aliiance
fran^aise* 12. nóv. 1914.
Eg kann stjóm »Alliance fran-
^•aisec bestu þakkir fyrir, að hafa
stofnað til þessa fundar núna, þeg-
?x oss er vinsemdarvotturinn sér-
staklpga dýrmætur.
Ungfrú. Þóra Friðriksson hefir
með hlýleik og samúð, sem eg er
henni mjög þakklátur fyrir, skýrt
frá þeini huga, er vorir hraustu
hermenn bera í brjósti á þessari
hræðilegu heljarslóð, sem að víð-
áitu og voða yfirgengur alt það,
srm sögur kunna frá að segja til
þessa dags. Allur æskul/3ur vor,
eða öllu heldur Frakklaid alt, á
þar í blóðugum bardaga við óvin,
scm líka er hraustur og fullur föð-
m landsástar. Hann fær einnig að
sjá blómann af landslýð sínum
hverfa smátt og smátt, Þrátt fyrir
ai'ar tilraunir til að bæta kjör mann-
kynsins, þrátt fyrir alt, sem ritað
hefír verið og rætt til að vekja
vínahug og samábyrgð alþjóða á
milli, þá er þetta, nú á sjálfri 20.
öldinni, orðin niðurstaðan af þeirri
stefnu, er Bismarck hóf tyrir 50 ár-
um, en síðan hefir verið framfylgt
trúlega og harðfengilega af prúss-
neskum herskap.
Hér vil eg taka það fram, er eg
tala um svo nýtt og nærgengt efni,
að virðist eitjhver orð mín æst, þá
er þeim auðvitað ekki beint að öðru
en sérstakri stjórnarstefnu og sér-
stakri sameiginlegri framkomu, og
sner>a því engan Þjóðverja sem
einstakling. Sérstaklega þætti mér
mjög fyrir því, ef menn eins og
sé'a Meulenberg eða hin æruverða
yfirhjúkrunarkona Landakotsspital-
ans og viróulegar starfssystur henn-
ar, sem vér höfum öll lært að virða
og elska, gætu særst af orðum
mínum.
Með þessum formála, sem mér
var kært að gera, og með fullri
viðurkenningu á öllum góðum eig-
inleikum Þjóðverja, persónulegum
og þjóðlegum, þá held eg ekki, að
neinn óhlutdrægur athugandi hik-
aði við að fullyrða, að herskapur-
inn prússneski, runninn undan rifj-
um stéttar, sem ekki hefir annað
markmið en völdiu og stríðið, hann
befir um mörg ár verið sannarleg
plága fyrir Evrópu, og að hann
einn á sök á árekstri þeim, sem
orðinn er. Mikið hefir verið deilt
um það á báðar hliðar, hver á-
byrgðina bæri á stríðinu og ætla
eg ekki að fara að rifja það upp,
en það sem eg get sagt, — og
allir þeir, scm fylgt hafa innanlands-
málum Frakka síðustu 15 árin,
munu þat vera mér sammála, —
það er, að landið mitt hefir að
minsta kosti ekki viljað stríðið. Sé
nokkur ásökun réltmæt í garð flestra
vorra stjómmálamanna, þá er það
sú, að hafa trúað of einlæglega á
friðarmálin, sem allir höfðu á vör-
um, að hafa talið framkvæmanlega
nú þá hugsjón, sem viröist því
miður eiga svo Iangt í land, og að
hafa freistast til að veikja herbún-
að vom í stað þess að styrkja
hann. Fn þrátt 'fyrir skýjaborgir og
mannúðardrauma, þá hafa til allrar
hamingju þeir vakað þögulir, sem
falið var að vernda land og þjóð.
Og í broddi fylkingar hinn ágæti
foringi, sem með lakari útbúnaði,
en með óviðjafnanlegri visku, hefir
kunnað að halda við glöðu hug-
rekki hermanna vorra, stöðva og
brjóta á bak aftur áhlaup voldug-
asta og best sameinaða herjar, sem
ef til vill hefir nokkru sinni verið
til. Eg nefni hér með þakklátum
og hrærðurn huga Joffre yfirhers-
höfðingja.
En þó að Pússlandi megi kenna
um þau atvik, sem dregið hafa til
þessa mikla öfriðar, þá er það, sem
það kann að hafa gert síðustu fim-
tíu árin, ekki annað en fyrirgefan-
leg og afsakanieg yfirsjón, í sam-
anburði við athafnir þess í ágúst-
mánuði; að ráðast á friðsama, starf-
sama þjóð, sem það hafði sjálft
trygt sjálfstæði og hlutlcysi.
Breytni Prússa við Belgíu er í
mínum augum sá glæpur, sem
aldrei verður af þveginn, glæpur,
sem segja má um með skáldinu:
La mer y passerait sans laver la
souillure
Car l’abíme est immcnse et la tache
est au fond1).
í nýju sögunni er ekkert til þess
að vega á móti þessum voða glæp
nema einmitt hinn frábæri hetjuhug-
ur Alberts konungs og þjóðar hans.
Nöfn þeirra eru héðan í frá rituð
með óafmáanlegu letri í frægðar-
sögu mannkynsins, Hugsið ykkur
litla þjóð, iönaðar þjóð og versl-
unar, ef til vill ríkari og farsælli en
nokkur önnur í Evrópu. Hún cr
vön þægilegum og auðveldum lifn-
aðarháttum. Alt í einu er skorað á
hana að lofa hinum ægilega, þýska
her að fara ferða sinna til þess hann
geti læðst að baki óvini sínum, sem
hann ekki virðist þora að ganga
framan að á landamærum Löth-
ringens.
Það er ofur auðvelt að vetða við
þessari áskorun, þetta er ekki ann-
að en nokkurra stunda eða í mesta
lagi nokkurra daga umferð sem eng-
in spor þarf að skilja eftir. Því öll
hjörðin ætlar að dreifasér um franskt
land, þar sem menn þvkjast örugg-
ir í skjóli samninganna. Fáist sani-
þykki er engin hætta, engar afleið-
ingar nema þá missir siðferðisleg:
sjálfstæðis og meðvitun iin um ao
hafa reynst ódrengur. Sé h:ns veg-
ar neitað, þá er eldur, jarn, dauði,
sár^.rústir — alt landið undir báli
og brandi. Og þó hefir hvorki
Albert konungur né þjóð hans hik-
að eitt augnablik og hafa drukkið í
botn bikar kvala og hörmunga.
Þess vegna gefur enginn Frakki
framar nefnt nafn Belgíu og Alberts
konungs án þess að hjartað berjist
honum í brjósti, vegna þess getur
enginn frakkneskur maður sofið ró-
legum svefni eða notið óblandinnar
1) í lauslegri íslenskri þýöingu:
Svo grómtekið til grunna er ‘alt,
sú grimd og hroki, svik og ran,
það hrykki ekki hafið salt
að hreinsa burtu slíka smán.
gleði, meðan konungurinn og þjóð-
in hafa eigi náð rétti sínum aftur
og verða að búa undir járnhæli
kúgarans.
En þessi kúgari hefir dirfst aö
kvarta yfir illri meðferð af íbúum
þess lands sem hann hefir níðst á,
hann hefir dirfst að verja frammi
fyrir áliti hlutlausra manna pann rétt
sem hann hefði til að refsa því. Er
það ekki öldungis eins og ef
þjófurinn eða morðinginn kvartaði
yfir þeim hermdarverkum sem hann
yrði að þola af bráð sinni, og krefð-
ist réttar til að refsa fyrir þau. En
enn þá ótrúlegra er hitt, að frábær-
ir vísindamenn og ágætir rithöfund-
ar, sem búast mætti við að væru
góðir drengir, hafa í opinberu skjali
fallist á þessar voða-kenningar sem
brjóta í bág við öll viðurkend hug-
tök og minna á svörtustu tímabil
sögunnar. Varla myndi nokkur
heimta af öllum þessum frægu
mönnum, að þeir afneituðu landi
sínu á slíkri stund, en þeir gátu að
minsta kosti þagað. Ef maður gæti
hngsað sér, það sem þó.væri óhugs-
andi, að Frakkfand 20. aldarinnar
hefði brotið hlutleysi Belgíu og far-
ið með hana eins og Þýskaland
hefir gert, mundi þá nokkur ímynda
sér, að menn eins og Boutroúx,
Bergson eða Maurice Barrés hefðu
skrifað nöfn sín undir skjal til þess
að samþykkja slíkar gerðir.
Eg hefi ekki getað stilt mig um,
að orðlengja nokkuð við yður um
þetfa efni, sem hugur nrinn er svo
gagntekitin af. Eg þakka yður fyrir
að hafa gefið mér fækifæri t'l þess.
Reyndar held eg, að enginn yðar sé
í efa um það, hvaða hiutverk vér
höfum í þessu stríði, þér skiljið, að
vér, nú sem áður, berjumst fyrir
meira frelsi og réftlæíi og fyrir rétti
smáþjóðanna til að lifa óháðu lífi
Að endingu bið eg yður með mér
að renna huganum til tveggja fé-
lagsmanna vorra, sem oft hafa stutt
sanikomur vorar, en nú hafa verið
teknir frá friðsömUm störfum og
berjast nú í broddi fylkingar; Cour-
mont og Barraud. — Eg held að
vér getum ekki lokið máli voru
betur en með því, að óska þeim
allra heilla og hamingju og biðja
þess, að þessir gömlu forvígismenn
franskrar tungu megi brátt hverfa
aftur til sinna kæru vísindaiðkanna,
er þeir hafa með hreysti sinni stuðl-
að að því, að þríliti fánínn fái að
blakia sigri hrósandi í blænunr!
ÁVEXTI R
í
DÓSUM
BESTIR
í
L I V E R P O O L.
atVó^uttvat
ágætu,
konmar aftur til
Antonjurgens
margaríne.
verksmiðjur
Oss, Hollanai.
Stærsta margaríneverksmiðja í
Evrópu. Afgreiðir eins og vana-
lega fljótt via Leith eða Kaup-
mannahöfn og gjaldfrestur veitt-
ur eins og undanfarið. Merki
verksmiðjunnar eru H E D C
og verða frá næstu áramótum
og framvegis stimpluð með fullu
nafni verksmiðjunnar til þess að
hægt verði að þekkja þau frá
eftirlíkingum.
Aðeins selt til kaupmanna.
Umboðsmaður fyrir ísland og
Færeyjar:
JL Qfcet&awpL
Tempiarasundi 5, Reykjavík.
‘MtvUvweset* -MD et^
£efve-J&tettvetfv:3t\jetv
byggir sérstaklega botnyörpunga og
breytir vanalegum gufuvélum skipa
í yfirhitunarvélar.
Umboðsmaður okkar, hr. Sigfús
Blöndahl, Reykjavík— Hamburg 11,
gefur allar frekari upplýsingar.
^auðfiáf,.
SeWetv.
SaUælut.
3^a\x5f)edet
o. fl. nýkomið
til
Jes Zimsen.
Bógi Ðryojöl sson
yfirrjettarmálaflutningsmaður.
Skrifstofa
í Aðalstiæti 6 (uppi).
Venjulega heima kl. 12—1
og 4—6 siðd.
Talsími 250.
Eidsvoðaábyrgð
hvergi ódýrari en hjá
>NYE DANSKE
BRANDFORSIKRINGSSELSKAB.‘
Aðalumboðsmaður er:
SIGHV. BJARNASON, bankastjóri.