Vísir - 15.12.1914, Blaðsíða 2

Vísir - 15.12.1914, Blaðsíða 2
V I S I R Annaðhvort -- eða. (Þytt úr »Köbenhavn«). Hið dansk-íslenska fánamál og hið íslenska stjórnarskrármál nálg- j ast nú sín fullnaðarúrslit. Samt sem áður rfkir í dönskum blöðum — i að undanskildu blaði því er ég hefi þann heiður að rita í — dauða- ! þögn um þetta mál. Það er engu líkara, en að ísland væri óviökom- andi, hættulegt stórveldi, sem jafn- litlu ríku og Danmörk riði lífið á að reita ekki til reiði. Þannig er það ekki á íslandi. Þar bera menn auðsjáanlega ekki hina sömu virðingu fyrir hinu danska ríkisvaldi, enda getur maður ekki tekiö fast á íslendingum fyrir það, eftir undanhald hinnar dönsku stjórn- ar í því máli. Þar ræða menn með óþolinmæði um, hvort konungur muni hlýðnast hinum íslenska þjóð- arvilja, eða það, hvort búast skuli til framhaldandi baráttu fyrir sjálf- stæði íslands. Hljóðið í íslenskum blöðum er ýmist ógnandi, eins og t. d. hjá Bjarna Jónssyni frá Vogi, er ritar í »ísafold«, 31. okt. Hann ógnar þar með ráðherraverkfalli — samtökum um að taka ekki við ráðherrastarf- inu, — ef íslendingar fái ekki að öllu vilja sínum framgengt. Aftur á móti er það ekki eins hávært í ritstjórnargrein í »ísafold« sama dag, er segir,, að íslendingar kjósi heldur að stjórnarskrárfrumvarpinu sé algerlega neitað staðfestingar. Það er því heldur ekki óskiftur áhugi fyrir þessu frumvarpi —, en að því sé slegið föstu með kon- ungsúrskurði, að framburður ís- lenskra sérmála í hinu danska rík- isráði skuli ekki lengur vera islenskt sérmál. Um órjúfanlega hollustu við Danmörk undir öllum kring- umstæðum, ef alþingi fái vilja sinn, heyrist nú ekki framar talað um, enda mundu þau orð ekki hljóma eins vel og áður, eftir að besti mað- ur íslensku fánanefndarinnar, hinn konungkjörni alþingismaður Guðm. Björnsson, hefir opinberlega látið í Ijósi, að nýi fáninn íslenski eigi einmitt undir þeim atvikum, að Danmörk lendi í alheimsstyrjöld- inni, að notast til fullnaðarskilnað- ar íslands frá Danmörku. Það ber að viðurkenna að af- staöa »ísafoldar« er mjög skynsam- leg, er hún vill heldur að stjórnar- skrárfrumvarpinu sé algerlega syn- jað staöfestingar, en að það sé stað- j fest meö konungsúrskurði með fyr- ! irvara af hálfu konungs eða hinn- ar dönsku stjórnar. Þetta má einn- | ig frá dönsku sjónarmiði skoða í sem hina bestu afstöðu, enda hefir það verið grundvallarafstaða mín. ! Þeir menn mundu teljandi, bæði | í Danmörk og íslandi, er skilið ; gætu í því, að konungur staðfesti, stjórnarskrárfrumvarpið með þeim fyrirvara, er alþingi fyrirfram hefir ótvírætt látiö í ljósi, að það muni ekki virða. Aftur á móli skjátlast »ísafold« er hún Jeitast við að sýna fram á, að aðeins geti verið hætta með að stjórnarskrárfrumvarpið fái ekki fram- gang, en um fánann sé öðru máli Aiklieðið ’ MARGEFTIRSPURÐA KOMIÐ AFTUR. ENNFREMUR MARGAR TEGUNDIR AF Dömuklæði Jjónsson. SSRammlista korn með s/s Bolnia og eljast með mjög lágu verði til Jóla Verksmiðjan Laufásveg . . 9 Gerlarannsóknarstofa Gísla Guðmundssonar Pálmasmjör besta smjörlíki bæjarins fæst í »Hlíf« (Grettisgötu 26). G-ardínutau margar tegundir kom nú með s/s Botnia Lækjargötu 14 B (uppi á lofti) er Venjulega opin 11 —3 virka daga. Sturla Jónsson Alfatnaðir. Einnig Sérstakir jakkar - buxur °svesti MÖRG HUNDRUÐ ÚR AÐ VELJA. VERÐA SELDIR MEÐ ÓVANALEGA LÁGU VERDI TIL JÓLA. :: :: :: SturJa |ónsson Skrifið þetta bak við eyrað: «Botnía* hefir fært okkur talsvert af vörum, hið helsta skal nefnt: JÓLAHVEITI, HAFRAMJÖL, GRJÓN, HÆNSNABYGG, BANKABYGG, MARGARÍNE, PLÖNTUFEITI, KAFFI o. fl. KEXI og KAFFIBRAUÐ, 10 teg. RtJÓL, RULLA, VINDLAR. CHOCOLADE margar tegundir. ÁTSÚKKULADE, BRJÓSTSYKUR, LUKKUPOKAR, VÍK- ING-MJÓLK í V, og V2 dósum. EPLI, VÍNBER og APPELSÍNUR. Allskonar KRYDD, þar á meðal GERDUFTIÐ fræga. Reynið jólahveitið »VÍKING»’ SKELJAKASSARNIR eru komnir, tryggið ykkur þá fallegustu í tíma. V É R vonumst til að geta gert viðskiftavini vora á n æ g ð a um jólin nú, eins og að undanförnu. JóL Ög'm. Oddsson, Laugaveg 63. Sími 339. að gegna. Blaðinu og íslending- um í heild ætti að skiljast það, að þau tvö mál hljóta að sæta sömu forlögum, og að þeir skoða í raun og veru fánamálið sem mest um vert, bæði frá þjóðernis og póli- tisku sjónarmiði, sérsfaklega þö ut- anríkis-stiórnfrœðislega. Hvað Dön- um og íslendingum ber á milli í stjórnarlögunum munu fæstir skilja. Hvernig þeir herrarnir Zahle og Hafstein hafa getað tvinnað saman spurningum um afskifti ríkisráðsins í hártogunardeilu um það, hvort konungsúrskurði verði breytt með nýjum konungsúrskurði eða ekki, mun flestum menskum mönnum um megn að gera almenningi skilj- anlegt. En hvað það hafi að þýða, að danski fáninn sé dreginn niður á íslandi og á öllum íslenskum skipum, skilur hvert barn bæði í Danmörk — að Fœreyjum með- töldum — og á fslandi. Það munu einkum útlöndin, er láta sig það skifta, alt of vel skilja. Danska stjómin stendur því í raun og veru nú við takmörkin: annaðhvort — eða. Annaðhvort helst danski fáninn framvegis á ís- landi og þá sérstaklega á íslenskum skipum, og þá leiðir það af sjálfu sér, að sérmál íslands, vegna stöðu þess sem hluta hins danska ríkis, verða að berast upp fyrir konungi í danska ríkisráðinu. Eða þá að danski fáninn verður afnuminn á fslandi með sérstökum íslenskum lagaþætti, þvert ofan í lögin frá 2. jan. 1871 um stjórnarfarslega stöðu íslands í ríkinu, sem auðvitað við- urkenna ekki fánann einingarmerki ríkisins út á við, sem íslensk sér- mál. Þá mundi Guðm. Björnsson helsti forvígismaður fánamálsins ís- lenska, að undanskildum hinum ákveöna skilnaðarmanni Bjarna Jóns- syni, hafa rétt að mæla, er hann í hinni miklu ræðu sinni á þing- inu, taldi fánamálið íslenskt utan- ríkismdl, sem ekki kæmi Danmörk við. Þá hafa menn slegið stryki yfir lögin frá 2. jan. 1871 og grund vallarlögin er þau lög byggjast á. Til hvers væri þá að vera að halda dauðahaldi í það frá danskri hliö að islensk sérmál skuli samt sem áður framvegis berast upp í hinu danska ríkisráði, er ísland væri af Danmörk viðurkent sem land, er að engu leiti væri háð grundvallar- lögum hins danska ríkis, og notaði ekki le-igur hinn danska fána? Hver mundi þá skilja framhaldandi til gangslausar flækjur og stríð um vafasamar stjórnmálaskýringai, sem íslendingar mundu þó altaf hafa yfirhöndina í, — eftir að hinn danski fáni væri afnuminn á íslandl. Því fáninn er þó það síðasta, sem ein þjóð fórnar Þegar fáninn er dreginn niöur, verður ekki lengur barist. Vorir íslensku landsmenn — því enn þá eru þeir þó landsmenn vor- ir — hljóta því að skilja það, að fánamálið og stjórnarskrármálið verð- ur ekki á þessum tíma aðskiiið. Það gildir því um hvorntveggja skýrt og ákveðið; Annaðhvort — eða. Knud Berlin.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.