Vísir - 30.05.1915, Blaðsíða 2
V ! S 1 R
BANN.
Hér með er öllum stranglega bannað að gangá túnið, eða
eyðileggja girðingar á Laugalandi.
Brot gegn banni þessi trerður tafarlaust kært fyrír yfirvöldunum.
ÓLAFUR JÓNSSON.
oúfcúr meYvti aloxxxtiu
tvu \>e$av í jWsUxxlawáÁ *
SoU feaup v fcoBvl
Upplýsingar hjá
^exvedvút ^euedv^\ss^tv‘v
Stýrlmannastíg 7, uppi, heima frá 6—71/, e. h.
Til leigu
í húsinu nr. 29 við Ránargötu 5 herbergi ásamt
eldhúsi og góðu geymsluplássi frá 1. júni n. k.
upplýsingar hjá
Jóhannesi Magnússyni og Jóni Ólafssyni
(Duus.)
Miðstræti 8 B.
2 duglega formenn vantar Hermann Porsteinsson, bœjarfulltrúa
á Seyðisfirði. — Uppl. hjá
úvsmÆ,
Bankastræti 12.
VISIR
kcmur fyrst um sinn út kl. 12 á
hádegi,
Afgreiösla blaösins á Hótel
Island er opin frá kl. 8—8 á hverj-
um degi.
Inngangur frá Vallarstræti.
Skrífstofa á sama staö, inng. frá
Aðalstr, — Ritstjórinn til viötals frá
kl. 12-2.
Sími 400,— P. O. Box 367.
Ut af ,Lusitaniu’
Vísir hefir fengið þýsk blöð, til
20. þ. m., og er þar ýmislegt útaf
Lusitaniu-slysinu.
Reiðl Englendinga.
Svo er að sjá, sem æsingarnar
á Bretlandi öllu og ofsóknir gegn
þýskum mönnum þar, hafi verið
öllu 2lvarlegri, en fyrst fréttist. Var
gerð fyrírspurn út af þeim í enska
þinginu, og var stjórnin í þann
veginn að koma öllum slíkum
rrönnum í »gæslu«, önnur ráö
dugðu ekki. Auðvitað eiga þeir
að vera vel haldnir, en margir
þeirra missa með öllu lífsuppeldi
sitt af þessu.
Af þessum ástæðum hafa svo
aftur spunnist æsingar miklar f
Þýskalandi, ug ta'a blöðin þar um
að gjalda Iíku líkt. Er auðséð að
styrjöldin er með hverjum degi að
verða dýislegri og tryldaii.
Undlrtektir Bandarikjanna.
Sagt er að Bandaríki Ameríku
hafi sent Þjóðverjum orðsendingu
út af skiptapanum þ. 13. þ. m.
Eigi höfum vér séð hana sjálfa enn
þá, en mikið er um hana talað,
bæði í amerískuin blöðum og þýsk-
um. Er sagt að hún hafi verið
mjög skorinorð og gefið Þjóðverj-
um sök á drápi ameríkanskra borg-
ara og lítilsvirðingu á amerískum
réttindum. Heimtað er að kafbáta-
árásir á kaupför verði stöðvaður,
og sagt að Bandaríkin muni taka
til allra ráða, er í þeirra valdi standi,
ef Þýskaland virði eigi .þessa orð-
sendingu. Sagt er að Þjóðverjum
sé opnuð þar leið til þess, að af-
saka sig með því, að kafbátsfor-
inginn hafi misskiliö skipanir þær,
er hann átti að hlýða.
Benda ensk blöð í þessu sam-
bandi á það, sem vér höfum þegar
spáð, að Bandaríkin hafi ágætt
vopn á Þjóðverja, jafnvel án þess
að fara í stríð við þá, þar sem eru
skipin þýsku, sem þeir hafa á sínu
valdi.
Svar hafði þýska stjórnin verið
aö bræða gegn þessu, og átti það
að verða kurteis undanfærsla undan
því, að verða við tilmælunum.
Alls voru 218 Bandaríkjamenn
farþegar á Lúsitaníu, og fórust af
þeim 139. — Meðal líka þeirra,
er fundist hafa, er lík Vanderbilts
miljónamærings.
Floti Bandaríkjanna.
Bandaríkjamenn vilja vera við
öllu búnir, ef til ófriðar kæmi með
þeim og Þjóðverjnm út af Lusi-
taniu. Þess vegna var allur Atlants-
flotinn kvaddur til New York 17.
þ. m. og kom þá Wilson forseti
þangað til þess að gera liðskönnun.
Var honum fagnað forkunnar vel
og stórmikið um dýrðir meðan
hann dvaldist í borginni.
Bandaríkjamenn standa sem einn
maður með Wilson forseta og viija
fá kröfum sínum framgengt um
það, að Þýskaland hætti að gera
árásir á farþega-skip, nema því að
eins, að fólki sé áður borgið.
Til dæmis um skoðanir manna
keisaranum, lil minningar um Lusi-
taniu-morðin«.
Frá þýsku sjónarmiði.
Kafbáturinn, sem skaut á Lusi-
taniu, er nú heim kominn, og hef-
ir foringi hans gefið skýrslu sína.
Hann þvertekur fyrir það, aö hann
hafí sent skipinu nema eití skeyti,
og segja Þjóðverjar að það sé
besta sönnun fyrir því, að sprengi-
efni hefði verið í farmi skipsins,
að sprengingarnar urðu tvær. Það
hafi sem sé kviknað í skotfæra-
birgðunum. — Annars hafi skip-
stjórinn Lusitaniu hegðað sér sem
vitlaus maður, að biðja ekki her-
skip um fylgd.
Eins og vita mátti, vísa Þjóðv.
allri ábyrgð frá sér til Englendinga,
sem hafi þagað yfir vopnaflutn-
inginum. Það hafi verið lögmætt
T I L M I N N I S:
Baðhúsið opið v. d. 8-8, Id.kv. ti) 11
Borgarst skrifst. í brunastöð opín v. d
11-3 og 5-7
Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2
og 4-7
Bæjargjaldk. Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d.
íslandsbanki opinn 10-21/, og 5l/2-7
K. F. U. M. Alm. sarnlc, sunnd. 81/,, síðd
Landakotsspít. Sjúkravitj.tími kl. 11-1.
Landsbankinn lt-21/, og ð^/j-ó1/,. Banka-
stjórn 12-2
Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Útlán 1-3
Landssíminn opinn v. d* daglangt (8-9)
Helga daga 10-12 og 4-7
Náttúrugripasafnið opið Þ/,,-21/, siðd.
Pósthúsið opið v. d. 9-7, sunnd. 9-1
Samábyrgðin 10-12 og 4-6
Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d
Vífilsstaðahælið. Hcimsóknart'mi 12-1
Þjóðmenjasafnið opið sd. þd. fmd. 12-2
t
ira. Bjarni Jónsson
snikkari
andaðist hér í bænum í fyrrinótt,
j skömmu eftir miðnætti, eftir lang-
| varandi veikindi. Hann var fædd-
i ur 25. ágúst 1859 á Laxnesi í
| Mosfellssveit. Þau systkinin vóru
13, en foreldrar þeirra efnalitlir,
I og ólst hann þess vegna upp
við mikla fátækt. En Bjarni sýndi
snemma óvenjulegan dugnað og
var ekki nema 8 ára þegar hann
var látinn hirða skepnnr og
gegndi hann þeim starfa uns hann
var ellefu vetra, en þá fór hann
í hjáverkum að hjálpa föður sín-
um við gullsmíði. Var hann á
mörgum bæjum í Mosfellssveit
og gekk að hverskonar vinnu.
Stundaði m. a. sjómensku nokk-
ur ár.
Hingað kom hann árið 1882.
Nam trésmíði af Jakobi Sveins-
syni 4 árum síðar. Árið 1887
kvæntist hann Guðnýju Guðna-
dóttur, og eiga þau einn son
i uppkominn, sem Jón heitir.
Bjarni gerðist hér trjáviðarkaup-
maður 1902 ög hefir reist um
300 hús, hér í bæ og annars-
staðar- Stærst þeirra mun Bjarna-
borg hér í bæ, sem við hann er
kend. Konungur sæmdi hann
dannebrogsmanna-orðunni 1907.
! Tvö ár var hann vestan hafs, en
hvarf heim aftur fyrir tveim árum.
i Bjarni var gleðimaður mikill,
vinsœll og vel látinn.
’Mtatv aj Ut\d\.
Ftá fréttaritara Vísis austan fjalls.
Flestir munu víst finna til þess,
hver munur er á vorinu núna, eða
óheilla vorinu í fyrra, sem var eitt-
hvert hið ömurlegasta vor, er menn
muna eftir; veðuráttan afar stirð,
fénaður venju fremur óhraustur, og
svo almennur heyskortur og fjár-
missir. Nú er fénaður allur í besta
sfandi og hvergi heyrist talað um
heyskort. Veðurátta hefir verið hin
besta síðan mánuður þessi byrjaði
(maí), oftast sólskin á hverjum degi,
og er það óvanalest hér á landi,
að fá marga sólskins daga í röð.
þar vestra mi geta þess, að á þýska
Ijónið, sem stendur frammi fyrir j vcrk, að sökkva skipinu, enda varði
Harward háskóla, hafa verið rist þá ekkert um hvað Ameríka segi.
þessi orð; »1147 lík, ný gjöf frá Hún geti ekkert gert sér.