Vísir - 05.07.1915, Síða 1
GAMLA RiO
Tveir bræður.
(Pathé-Film).
Áhrifamikill sjónl. í 3 þáttum. jj
Snildarlega vel leikinn.
Mjög spennandi og efnisríkur.
Fjölmennið!
því myndin er afbragðs góð.
Simskeyti
frá
fréttaritara Vísis.
Kliöfn 3 júií.
Sjóorrusfa sióð við Gotlandsstrendur í gær.
Rússar eltu Þjóðverja inn í sænska Sandhelgi, og
rak á grunn sprengiduflaskútu þýska
Þjóðverjar sækja á með afli í Suður>Póliandi.
WYJA SiO
Loksins einsömul
Mjög skemtilegur gamanleikur,
sem ómögulegt er annað
en að hlœgja að.
Aðalhlutv. leika:
Rasmus Christensen
og
fröken Luzzi Werrei .
P ó I i t í k.
Þaö er að vísu svo, að Vísir ætl-
ar sér að vera hlutlaus í stjörnmál-
um, en það er ekki ætlun hans, að
Játa landsmál að öllu Ieyti afskifta-
laus Hann lítur svo á, sem það
hljóti að vera aðal-ætlunarverk hvers
blaðs, og þá ekki síst dagblaða, að
fjalla um stjórnmál. — En hlutlaus
verður hann eigi að síður í stjórn-
málum þeim, sem nú skifta flokk-
um í Jandinu, og hlutlaus í öllum
landsmálum að því leyti, að hann
vill flytja greinar um landsmál frá
öllum hliðum — ekki síður frá \
þeim mönnum, sem kunna að vera
ritstjóra ósammála, en hinum.
'/ísir vill sérstaklega benda mönn- |
urn á það, að eigi að ræða Iands-
mál málanna vegna, þá er einmitt j
heppilegast að þau séu rökrædd frá
báðum híiðum í sama blaðinu, því
að annars vill gjarnast fara svo, að
fæstir landsmenn kynnast nema einni
skoðun, og menn skipast í flokka
um niálin eftir því, hvert blaðið
þeir Iesa, en tninna eftir mála-
vöxtum. \
Nú eru að líkindum tímamót í
stjórnmálasögu vorri. — Þræfan um
ríkisráðssetu ráðherra vors er vænl-
anlega senn á enda kljáð og sam-
bandsmálið lagt á hilluna að sinni,
og því ailar líkur til þess, að flokk-
ar þeir, sem nú eru uppi í landinu,
ryðlist meira eða minna fyrr eða
síðar. — Enda er mál til þess komið, j
að landsmenn fari að snúa sér að
öðrum efnum.
Framvegis verða menn af alvöru
að fara að fást við innanlandsmál.
— Það má svo að orði kveða, aö
ekkert nýtiiegt hafi verið gert nú
um langan túna, annað en stofnun
Eimskipafélags Islands.
En það er vonandi, að stofnun
Heilbrigðisfulltrúinn.
t
I fjarveru minni veitir hr. verkstjóri
Magnús Yigfússon,
Kirkjubóli,
heíibrigðísfulitrúasíörfum
mínum forstöðu,
og bið eg menn því að snúa sér tii hans.
Reykjavíkf 5. júlí 1915.
Árni Elnarsson.
Eimskipafélagsins sé fyrirboði rnargra
og mikilvægra framfara í landinu.
Vér erum lítil þjóð, og auðmenn
fáir meðal vor. Vér getum ekki
vænst þess, að einstaklingarnir af
eigin rammleik geti komið í fram-
kvæmd öllu því, sem brýn nauð-
syn er á að gert verði sem fyrst.
Þjóðfélagið f heild sinni verður
að lyfta Grettistökunum.
Stofnun Eimskipafélagsins bendir
tii þess, að mönnum sé farið að
skiljast þetta. — Það er ekki Iangt
síðan það var af mörgum talin fjar-
stæða, að landið legði í fyrirtæki
eins og skipaútgerð. — En þó er
nú svo komið, að það mun vera
einróma skoðun landsmanna, að
þátttaka landsins í stofnun þessa
fyrirtækis hafi verið sjálfsögð.
En það er ekki nóg, að þjóðfél-
agið leggi lítinn skerf til stóríyrir-
tækjanna, þegar einstaklingarnir eru
búnir að hrytida þeim í framkvæmd.
Stjórn þjóðfélagsins verður að
beita sér fyrir framkvæmdunum.
Okkar pólitík heíir alt of núkið
verið fólgin í því, að búa til fánýt
lög, að rífast um breytingar á þeim
fram og aftur, byggja upp og rífa
niður það, sem einu mætti gilda,
þótt aldrei lieíði verið vikið orði að.
Og það höfutn við komist lengst
í nytsamri pólitík, að við höfurn
reynt að »vaka yfir vellinuitR og
»siga úr túninu«.
Þegar landið vantai peninga, þá
eru lagðir á landsmenn nýir íollar
og þegar landið vantar meiri pen-
inga, þá eru tollarnir hækkaðir. —
En aldrei getur löggjöfunum hug-
kvæmst, ai) Iandið geti aflað sér fjár
á neinn hátt annan, en að taka það
úr vasa einstakiingsins. — Þeii eru
Góðan mótorista
og fjórar duglegar s t ú I k u r til
fiskvinnu, vantar R. Johansen
kaupmann á Reyðarfirði.
Hátt kaup!
Semjið við
Björn Guðmundsson
Aðalstræti 18.
Bogi Brynjólfs^on
yfirrjettarmálaflutningsinaður.
Skrifstofa Aðalstræti 6 (uppi.)
Skrifstofutími frá kl. 5—6lj2 e. m.
Talsími 250!
því svo fráhverfir, að heldur kjósa
þeir að útlend félög raki hér sam-
an fé, beint úr vösum landsmanna,
en að láta landið taka að sér rekst-
ur fyrirtækja, sem ekki eru með-
færi einstaklinganna hér á landi, þótt
áreiðanleg gróðafyrirtæki séu.
Það kveður svo ramt aö þessu,
að nærri liggur, að mann furði á
því, að ekki skuli hafa verið fengið
eitthvert útlent félag til þess að
annast að öllu leyti póstmál vor.
Vísir hefir nú í hyggju að taka
til íhugunar ýms mál, sem hann
telur sjálfsagt, að landstjórnin —
þ i n g og stjórn — taki að sér —
ýms fyrirtæki, sem landið á að reka
vegna þess, að þau eru nauðsynleg
landinu, en þeini þannig varið, að
þau hljóta um ófyrirsjáanlegan tínia
að verða í höndum útiendinga að
öðruin kosti, og sum þeirra þá
einnig ugglaus gróðafyrirtæki, sem
gætu leitt þaö af sér, að unt væri
að létta af tollinum á nauðsynleg-
ustu matvörunni.
Ennfremur mun Vísir við tæki-
færi * reyna að taka til rækilegrar
íhugunar toll - og skattamál lands-
ins og sýna fram á hversu fráleit
stefna sú er, í þeim málum, sem
hér hefir verið fylgt og réttnefnd
væri — blóðsugustefnan.