Vísir - 06.07.1915, Blaðsíða 1

Vísir - 06.07.1915, Blaðsíða 1
Utgef aadi: HLUTAFELAG. Ritstj. JAKOB MÖLLER SÍMI 400. Skrifstola og afgreiðsla í Hótel Island. SIMI 400. 5. á r g. Þriðjudaginn 6. júlí IS15. 206. tbl. GAMLA BIO Svartklædda hefndarkonan. { Fádæma áhrifamikill og falU egur sjónleikur í 6 þáttum og 120 atriðum. Aðalhlutv. leikur hin heims- i fræga leikkona ítala Mde Maria Carmi. Þessi dýra mynd, er útbúin hjá Cines félaginu í Róm, hinu sama, sem bjó til hina heims- frægu mynd: »Quo Vadis*. í Aðgöngumiðar að þessari i mynd kosta 60 og 35 aura. Til vinnuveitenda. Konur þessa bæjar hafa í hyggju, að minnast þeirra endurbóta, er á kjörum þeirra eru orðnar við stað- | festingu stjdrnarskrárinnar. Hafa ; þær valið til þess hátíðahalds 7. i júlí, þann dag, er þing kemur sam- an. Kvenfélög bæjarins gangast fyrir hátíðahaldinu, en aðalforgöng- una hafa stjórnir »Hins ísl. kven- félagst og »Kvenréttindafélags ís- lands«. Vinna nefndir úr eitthvað um 10 kvenfélögum að undirbún- ingi hátíðahaldsins. Samúð sú og eindrægni, er lýst hefir sér í störf- um þeirra, er trygging fyrir því, að ekkert muni á vanta frá þeirra hendi, að dagurinn verði sem ánægjuleg- astur. Dagskrá sú, er samin hefir verið, er fjölbreytt og myndarleg, en hér skal hún eigi rakin, þar eð hún mun rækilega auglýst síðar. En eitt vantar enn. Dagurinn er rúmhelgur dagur, þann dag er fjöldi fólks bundinn við vinnu sína. Allur sá fjöldi kvenna, er vinnur í húsum einstakra manna, í búðum, á skrifstofum, saumastofum, vinnu- stofum, á fiskreitunum og að ann- ari útivinnú, á það undir góðvild vinnuveitenda sinna, hvort hann get- ur tekið þátt í hátíðahaldinu eða ekki. Forgöngunefnd hátíðahaldsins snýr sér þess vegna til a 11 r a vinnuveit- enda þessa bæjar, með vinsamlegri beiðni þess, að þeir gefi verkafólki sínu frí síðari hluta dags á mið- vikudaginn. Vér treystum ykkur öllum — kaupmanninum og verk- stjóianum jafnt og húsmóðurinni. SUdatmxvxva hjá h.f. Kveldúlfur iHRp Allir, sem ráðnir eru hjá okkur við síldarvinnu á Hjaiteyri í sumar, eru beðnir að mæta WYJA BIO Eftir almennri áskor- un verða ófriðarmyndirn- ar, sem sýndar voru fyrir helgina, endursýndar í kveld. Menn noti nú síðasta tœki- færið til að sjá þessar afbragðsmyndir. á skrifstofu félagsins í dag milli 3-6 e. hád. Goðafoss var á Sauðárkróki í gær. Kemst væntanlega á allar hafnir kringum land. Gefið starfsfólki yðar frí þennan hálfa dag og það mun borga yður með því að ganga með margfaldri ánægju að starfi sínu næsta dag. Fotstöðunefndin. Eftirhreyta. Hvað sem menn, konur og karl- ar, annars kunna að finna stjórnar- skránni og staðfestingu hennar til foráttu, þá dylst væntanlega engum það, aö mikil tíðindi hafa gerst í landinu — mikil gleðitíðindi fyrir alt kvenfólk á landinu, þar sem allar konur fá nú kosningarrétt. Það er því fyllilega eðlilegt, að konur þessa bæjar finni hvöt hjá sér til þess, að láta í ljósi gleði sína og flytja þakkir því þingi, sem veitti því þessa réttarbót — þótt sjálfsögð væri. — Það er eðlilegt, að kon- urnar viiji þakka þeim mönnum, sem þær verða aö viðurkenna að hafi orðið til þess, að rísa á móti hleypidómunum og heimskunni, sem ríkt hafa í kvenréttindamálinu. Vísi er það ánægja, að mæla með tilmælum kvenfélaganna til vinnu- veitenda í bænum um að öllu starfs- fólki verði veitt frí þenna hálfa dag og finst það varla mega minna vera. — Og blaðið vill á eigin ábyrgð breyta tilmælum þessum í áskorun, ef það væri líklegt til að hrífa bet- ur, og minnir um leið á það, að hér eftir hef'r kvenfólkið vald, sem það hafði ekki áður! En Vísir vill gera meira. — Hann skorar líka á konur bæjarins — allar, ungar sem gamlar, að taka sem best saman höndum um það, að gera þennan dag sem hátíðleg- astan. Hvað skiftar sem skoðanir þeirra kunna að vera á »pólitíkinni«, þá mega þær ekki láta það spilla gleð- inni yfir þeim sigri, sem kvenfólkið á nú að hrósa. Þingið, sem saman kemur á moig- un, veitti konunum kosningarrétt — fyrir það eiga þær að þakka og yfir því eiga þær að gleðjast allar, án tillits til nokkurs annars. Afmæli á morgun. Katrín Thoroddsen frk. Kristján Pelersen, trésm. Sveinn Árnason, hreppstj. Felli. Hjörtur Þorleifsson, sjómaöur. L. H. Möller, verslunarstj. Amelía Sigurðsson. Guðm. Guðmundsson fv. pr. ísaf. Lilja Matthíasdóttir. Guðr. Pétursd., ekkja. Ari Antonsson, verslunarm. Hallgr. Benediksson. Snjólaug Sigurjónsdóltir, húsfr. Jakob O. Lárusson, prestur. j Afmæliskort I fást hjá Helga Árnasyni, Safna- ! húsinu. Susanne, leiguskip Natans Olsen, kom á sunnudaginn frá útlöndum. Haföi komið við í Vík og Eyrarbakka. Skipið fer héðan aftur í kvöld til Bergen. Gullfoss fór frá Patreksfirði í gær. Á að koma við í Stykkishólmi. Kemst j að líkindum ekki af stað héðan til í útlanda fyrr en í fyrsta lagi á mið- i vikudagskveld. Gluggarnir á Alþingishúsinu hafa nýlega verið málaðir hvítir. Laglegra hefði oss þótt, að þeir hefðu verið hafð- ir annaðhvort dekkri en húsið eða þá jafnlitir því. Fiskþurkun fer nú daglega fram á húsþök- um í hjarta höfuðstaðarins, Mið- bænum. Það er ekki um að villast, hver er aðalatvinnuvegur vor Reyk- víkinga. Hestur fældist í gær með vagn í eftirdragi. Var frá Kleppi. Þetta gerðist á Bankastræti og var mildi aö ekki varð stórslys. Vagninn brotnaði í spón. Gestir í bænum: Björgvin Vigfússon sýslumaður, séra Ólafur Finnsson, Kálfholti. Hjúskapur. Kristján Linnet, settur sýslum. í Dalasýslu og Jóhanna Júlíusdóttir. Gift 3. þ. m. Veðrið í dag. Vm. loftv. 759 logn (( 8,6 Rv. a 760 logn (* 10,0 íf. u 760 logn (( 9,0 Ak. u 759 n. kul (( 6,5 Gr. u 725 logn (( 13,0 Sf. u 758 logn U 8,1 Þh. ii 757 logn (( 11,1 aj Und\. Húsavík í gær. Hafísinn er nú enginn á Skjálf- anda og sannfrétt að Skagafjörður er íslaus og lítill ís á Húnaflóa. Þykir Norðlendingum skemtilegt, ef »skipið þeirra«, Goðafoss, verð- ur fyrsta skipiö í vor, sem kemst óhindrað á allar hafnir kringum land.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.