Vísir - 08.07.1915, Side 4
V i b i fi
Bæjarf réttir.
Framh. frá 1. síðu.
Hjúskapur:
Jón Sumarliðason bóndi, Breiða-
bóisstað í Sökkólfsdal og ungfrú
Guðrún Magnúsdóttir frá Gunnars-
stöðum í Hörðudal. Gefin saman
3. júlí.
Guðmundur Gíslason frá Reykja-
koli í Ölfnsi og ungfrú Guðrún
Sigurðardóttir frá Króki í Ölfusi.
Gefin saman 3. júlí.
Sterling
kom í nótt, meðal farþega var
Karl Einarsson sýslumaður og al-
þingismaður Vestmannaeyinga.
Þá eru að eins tveir þingmenn
ókomnir til bæjarins, þeir Pétur
Jónsson og Magnús Kristjánsson.
27 móti 13.
Sagt er, að fylgismenn ráðherra
Einars Arnórssonar séu 27, en mót-
flokkurinn 13. 13 er óhappatala
á austurhelmingi jarðar, en happa-
tala á vesturhelmingi.
•Söngfél. 17. júní«
syngur fyrir bæjarbúa á Iaugardag
og sunnudag.
Guöm, Oddgeirsson
skrifar Jóni Pálssyni bankagjald-
kera 23. f. m. frá Eicenach á Þýska-
Iandi og segist hafa fengið góða
stöðu í Thúringerbanka.
fíiisprentast
hefír í síðasfa tbl. í auglýsingu
í. S. í. um knattspyrnumötið. Þar
stendur, að mótið hefjist m á n u d.
2 4 ., en á að vera mánud, 26.
Þetta eru menn vinsamlegast beðnir
að athuga.
Símfréttir.
Akureyri í gær.
ísinn er kominn aftur inn á
Eyjafjörð, svo þéttur, að tœpiega
er hægt að koma við vélbátum.
Vöruflutningur í mesta ólagi.
Ólafsfirði í gær.
Bátar geta ekki róið vegna íss,
eem kominn er upp í landstein-
ana. Hefir að eins orðið síldar-
vart, Fréttin um að »Súlan« hafi
fengið 100 tunnur, mun vera
röng. Skip þetta fæst eingöngu
við vöruflutninga.
Eyrarbakka í gær.
Ekkert að frétta af Eyrarbakka,
nema að kvenfólkið er farið að
ganga í buxum.
Stykkishólmi í gær.
Öndvegistíð. Grasspretta all-
góð. Afli lítill á opna báta, en
þiskipin fiska ágætlega. Heilsu-
far gott.
Þjórsártúni í gær.
Slys.
í gærdag (6. þ. m.) vildi það
slys til, að stúlka á tvítugsaldri,
Til Þingvalla
hefir Bifreiðastöðin í Vonarstræti ákveðið fastar ferðir
á laugardögum, sunuudögum og fimtudögum.
6Pantið far í síma 405.
dóttir Guðmundar bónda í Háa-
múla í Fljótshlíð, druknaði í Pverá.
Hafði hún ætlað að Múlakoti,
sem er bær skamt þaðan. Veg-
urinn liggur með fram Pverá og
á einum stað hafði' hún verið
að fara yfir hvísl úr ánni, en sú
kvís! hafði breytt sér, orðið ó-
fær, þar sem vant var að fara.
Stúlkan hefir að líkindum hleypt
á sund, og þá losnað við hest-
inn. —
Frá Bolungavík.
Fríkirkjusöfnuð er í ráði að
stofna í Bolungavík. Prestur safn-
aðarins á að verða síra Páll Sig-
urðsson, sem verið hefir aðstoð-
arprestur síra Porvaldar Jónsson-
ar og þjónað söfnuðinum í Bol-
ungavík nú í nokkur ár.
Dánarfregn.
Sagnaskáldið Jón Stefánsson,
bóndi á Litlugrund við Mývatn,
(Porgils gjallandi) lést þ. 23. f. m.
Hann varð 63 ára.
Kvenírelsisdaguriim
var í gær. Söfnuðust konur bæj-
arins saman uppi í Barnaskólaporti
kl, 4 og gengu þaðan í skrúðgöngu
niður á AusturvöII. Fremst gengu
litlar stúlkur og báru flestar íslenska
fána. Þá komu forstöðukonur kven-
félaganna hér, þær frúrnar : Þórunn
Jónassen, Kristín Jakobsson, Bríet
Bjarnhéðinsdóttir, Elín Stephensen
og ungfrú Ingibjörg Bjarnason o.
fl., en þar á eftir allur almenning-
ur. Fáar voru í hátíðabúniugi, ein-
ar 3—4 sáum vér og var það illa
farið. Austurvöllur hafði verið
skreyttur marglitum fánum, íslensk-
um fánum, dönskum, frönskum,
belgiskum og ótal fleiri þjóða, sem
vér kunnum ekki að nefna. Ræðu-
stóll var þar andspænis alþingis-
húsinu fagurlega skreyttur blómum
og böndum. Lúðrasveit fór fyrir
flokknum og lék ýms lög. Inni á
Austurvelli staðnæmdist flokkurinn.
Gekk þá nefnd kvenna í þinghúsið
og færði þinginu þakkir fyrir kven-
réttindin. Hafði ungfrú Ingibjörg
Bjarnason orð fyrir þeim. Á með-
an var það helst til tíðinda úti, að
Magnús Ólafsson Ijósrnyndari birt-
ist á þinghússvölunUT! og tók
myndir af fólksfjöldanum. Er nefnd-
in kom út aftur hófst söngur, en
að honum loknum steig í stólinn
ungfrú Ingibjörg Bjarnason og
flutti ávarp til þingsins og þá Bríet
Bjarnhéðinsdóttir og hélt langa
ræðu. Rakti hún sögu kvenréttind-
anna hér frá upphafi til þessa dags.
Bað hún að lokum kvenfjöldann að
hrópa húrra fyrir alþingi óg var
því tekið sæmilega. Nú var sung-
i inn annar sálmur. Þá hélt Ingi-
: björg Bjarnason aðia ræðu, mæltist
vel. Samkomunni vav lokið með
því, að ailur fjöldi kvenna söng
»Eldgamla ísafoId«. Fór þessi sam-
koma að öllu Ieyti vel fram og var
kvenþjóðinni til sóma.
^ 2 -m
duglegir drengir eða
unglingsmenn
verða teknir í vinnu
við hesiapössunina.
Afgr. v. á.
Duglegur
i n n h e i m t u-
m a ð u r
óskast. Afgr. v. á.
Klossar.
Nú eru norsku kioss-
arnir komnir aftur í
á börn og fullorðna.
Jöklara-
harðfiskur
í versl.
VON
Laugavegi 55.
TILKYNNINGAR.
B i f r e i ð fer frá Ægisíðu til
Reykjavíkur 16. júlí kl. 1. Far má
panta hjá Jóni Guðmundssyni,
Ægisíðu.
TAPAÐ — FUNDIÐ S
Þverbakstaska úr leðri er
í óskilum hjá lögreglunni í Rvík.
H USNÆÐI
'ttö
H e r b e r g i með húsgögnum
þl leigu. A. v. á.
1 —2 h e r b. fbúð fæst strax með
hálfvirði til 1. okt., á besta stað.
Afgr. v. á.
1 herbergi með eða án hús-
gagna til leigu frá 1. júlí til l.okt.
Afgr. v. á.
1 herbergi til leigu í Tjarn-
argötu 26.
Fjögur herbergi og eld-
hús óskast til leigu frá 1. október.
Afgr. v. á.
L í t i ð, en snoturt herbergi án
húsgagna og með forstofuinngangi
óskast til leigu nú þegar til 1. okt.
eða lengur. Uppl. á Bergstaðastíg
30 (uppi).
KAUPSKAPUR
D ú n n er mjúkur í svæíla, hlýr
og iéttur í sængur. Nú er tækifær-
ið. — Afgr. v. á. ágætlega hreins-
aðan dún.
S ö ð u 11 til sölu í Bergstaöa-
stræti 21B.
1 reiðhestur, leirljós, 9
vetra gamall, er til sölu á Hverfis-
götu 94.
M o r g u n k j ó 1 a r fást altaf
ódýrastir í Grjótagötu 14, niðri.
H æ s t verð á ull og prjónatusk-
um er í »Hlíf«. Hringið upp síma
503.
Bókabúðin á Laugavegi 22
verslar með brúkaðar bækur inn-
lendar og útlendar.
Þ r i f i n og vönduð stúlka get-
ur fengið vist 1. ágúst hjá frú OI-
sen, Austurstræti 17.
S t ú 1 k a eða eldri kvenmaður
óskast fyrri part dags. Afgr. v. á.
2 s t ú I k u r, vanar línubeitingu
geta strax fengið atviunu í Sand-
gerði. Gott kaup. Semjið fljótt við
Gísla Hjálmarsson, Laugav. 17.
Kaupakona óskast. Uppl.
hjá Gunnari Gunnarssyni kaupm.
Austurstræti.
j|l Váfryggingar.
Vátryggið tafalaust gegn eldi,
vörur og húsmuni hjá The Britx
hish Dominion General Insur-
ance Co. Ltd.
Aðalumboðsm. G. Gíslason.
FÆÐI
Fæði og gisting fæst í
Lækjargötu 12 B.
F æ ð i fæst í Bankastræti 14.
Helga Jónsdóttir.
SetxdÆ auc^s\t\$at*
tituatilega.