Vísir - 08.07.1915, Síða 4

Vísir - 08.07.1915, Síða 4
V i b i fi Bæjarf réttir. Framh. frá 1. síðu. Hjúskapur: Jón Sumarliðason bóndi, Breiða- bóisstað í Sökkólfsdal og ungfrú Guðrún Magnúsdóttir frá Gunnars- stöðum í Hörðudal. Gefin saman 3. júlí. Guðmundur Gíslason frá Reykja- koli í Ölfnsi og ungfrú Guðrún Sigurðardóttir frá Króki í Ölfusi. Gefin saman 3. júlí. Sterling kom í nótt, meðal farþega var Karl Einarsson sýslumaður og al- þingismaður Vestmannaeyinga. Þá eru að eins tveir þingmenn ókomnir til bæjarins, þeir Pétur Jónsson og Magnús Kristjánsson. 27 móti 13. Sagt er, að fylgismenn ráðherra Einars Arnórssonar séu 27, en mót- flokkurinn 13. 13 er óhappatala á austurhelmingi jarðar, en happa- tala á vesturhelmingi. •Söngfél. 17. júní« syngur fyrir bæjarbúa á Iaugardag og sunnudag. Guöm, Oddgeirsson skrifar Jóni Pálssyni bankagjald- kera 23. f. m. frá Eicenach á Þýska- Iandi og segist hafa fengið góða stöðu í Thúringerbanka. fíiisprentast hefír í síðasfa tbl. í auglýsingu í. S. í. um knattspyrnumötið. Þar stendur, að mótið hefjist m á n u d. 2 4 ., en á að vera mánud, 26. Þetta eru menn vinsamlegast beðnir að athuga. Símfréttir. Akureyri í gær. ísinn er kominn aftur inn á Eyjafjörð, svo þéttur, að tœpiega er hægt að koma við vélbátum. Vöruflutningur í mesta ólagi. Ólafsfirði í gær. Bátar geta ekki róið vegna íss, eem kominn er upp í landstein- ana. Hefir að eins orðið síldar- vart, Fréttin um að »Súlan« hafi fengið 100 tunnur, mun vera röng. Skip þetta fæst eingöngu við vöruflutninga. Eyrarbakka í gær. Ekkert að frétta af Eyrarbakka, nema að kvenfólkið er farið að ganga í buxum. Stykkishólmi í gær. Öndvegistíð. Grasspretta all- góð. Afli lítill á opna báta, en þiskipin fiska ágætlega. Heilsu- far gott. Þjórsártúni í gær. Slys. í gærdag (6. þ. m.) vildi það slys til, að stúlka á tvítugsaldri, Til Þingvalla hefir Bifreiðastöðin í Vonarstræti ákveðið fastar ferðir á laugardögum, sunuudögum og fimtudögum. 6Pantið far í síma 405. dóttir Guðmundar bónda í Háa- múla í Fljótshlíð, druknaði í Pverá. Hafði hún ætlað að Múlakoti, sem er bær skamt þaðan. Veg- urinn liggur með fram Pverá og á einum stað hafði' hún verið að fara yfir hvísl úr ánni, en sú kvís! hafði breytt sér, orðið ó- fær, þar sem vant var að fara. Stúlkan hefir að líkindum hleypt á sund, og þá losnað við hest- inn. — Frá Bolungavík. Fríkirkjusöfnuð er í ráði að stofna í Bolungavík. Prestur safn- aðarins á að verða síra Páll Sig- urðsson, sem verið hefir aðstoð- arprestur síra Porvaldar Jónsson- ar og þjónað söfnuðinum í Bol- ungavík nú í nokkur ár. Dánarfregn. Sagnaskáldið Jón Stefánsson, bóndi á Litlugrund við Mývatn, (Porgils gjallandi) lést þ. 23. f. m. Hann varð 63 ára. Kvenírelsisdaguriim var í gær. Söfnuðust konur bæj- arins saman uppi í Barnaskólaporti kl, 4 og gengu þaðan í skrúðgöngu niður á AusturvöII. Fremst gengu litlar stúlkur og báru flestar íslenska fána. Þá komu forstöðukonur kven- félaganna hér, þær frúrnar : Þórunn Jónassen, Kristín Jakobsson, Bríet Bjarnhéðinsdóttir, Elín Stephensen og ungfrú Ingibjörg Bjarnason o. fl., en þar á eftir allur almenning- ur. Fáar voru í hátíðabúniugi, ein- ar 3—4 sáum vér og var það illa farið. Austurvöllur hafði verið skreyttur marglitum fánum, íslensk- um fánum, dönskum, frönskum, belgiskum og ótal fleiri þjóða, sem vér kunnum ekki að nefna. Ræðu- stóll var þar andspænis alþingis- húsinu fagurlega skreyttur blómum og böndum. Lúðrasveit fór fyrir flokknum og lék ýms lög. Inni á Austurvelli staðnæmdist flokkurinn. Gekk þá nefnd kvenna í þinghúsið og færði þinginu þakkir fyrir kven- réttindin. Hafði ungfrú Ingibjörg Bjarnason orð fyrir þeim. Á með- an var það helst til tíðinda úti, að Magnús Ólafsson Ijósrnyndari birt- ist á þinghússvölunUT! og tók myndir af fólksfjöldanum. Er nefnd- in kom út aftur hófst söngur, en að honum loknum steig í stólinn ungfrú Ingibjörg Bjarnason og flutti ávarp til þingsins og þá Bríet Bjarnhéðinsdóttir og hélt langa ræðu. Rakti hún sögu kvenréttind- anna hér frá upphafi til þessa dags. Bað hún að lokum kvenfjöldann að hrópa húrra fyrir alþingi óg var því tekið sæmilega. Nú var sung- i inn annar sálmur. Þá hélt Ingi- : björg Bjarnason aðia ræðu, mæltist vel. Samkomunni vav lokið með því, að ailur fjöldi kvenna söng »Eldgamla ísafoId«. Fór þessi sam- koma að öllu Ieyti vel fram og var kvenþjóðinni til sóma. ^ 2 -m duglegir drengir eða unglingsmenn verða teknir í vinnu við hesiapössunina. Afgr. v. á. Duglegur i n n h e i m t u- m a ð u r óskast. Afgr. v. á. Klossar. Nú eru norsku kioss- arnir komnir aftur í á börn og fullorðna. Jöklara- harðfiskur í versl. VON Laugavegi 55. TILKYNNINGAR. B i f r e i ð fer frá Ægisíðu til Reykjavíkur 16. júlí kl. 1. Far má panta hjá Jóni Guðmundssyni, Ægisíðu. TAPAÐ — FUNDIÐ S Þverbakstaska úr leðri er í óskilum hjá lögreglunni í Rvík. H USNÆÐI 'ttö H e r b e r g i með húsgögnum þl leigu. A. v. á. 1 —2 h e r b. fbúð fæst strax með hálfvirði til 1. okt., á besta stað. Afgr. v. á. 1 herbergi með eða án hús- gagna til leigu frá 1. júlí til l.okt. Afgr. v. á. 1 herbergi til leigu í Tjarn- argötu 26. Fjögur herbergi og eld- hús óskast til leigu frá 1. október. Afgr. v. á. L í t i ð, en snoturt herbergi án húsgagna og með forstofuinngangi óskast til leigu nú þegar til 1. okt. eða lengur. Uppl. á Bergstaðastíg 30 (uppi). KAUPSKAPUR D ú n n er mjúkur í svæíla, hlýr og iéttur í sængur. Nú er tækifær- ið. — Afgr. v. á. ágætlega hreins- aðan dún. S ö ð u 11 til sölu í Bergstaöa- stræti 21B. 1 reiðhestur, leirljós, 9 vetra gamall, er til sölu á Hverfis- götu 94. M o r g u n k j ó 1 a r fást altaf ódýrastir í Grjótagötu 14, niðri. H æ s t verð á ull og prjónatusk- um er í »Hlíf«. Hringið upp síma 503. Bókabúðin á Laugavegi 22 verslar með brúkaðar bækur inn- lendar og útlendar. Þ r i f i n og vönduð stúlka get- ur fengið vist 1. ágúst hjá frú OI- sen, Austurstræti 17. S t ú 1 k a eða eldri kvenmaður óskast fyrri part dags. Afgr. v. á. 2 s t ú I k u r, vanar línubeitingu geta strax fengið atviunu í Sand- gerði. Gott kaup. Semjið fljótt við Gísla Hjálmarsson, Laugav. 17. Kaupakona óskast. Uppl. hjá Gunnari Gunnarssyni kaupm. Austurstræti. j|l Váfryggingar. Vátryggið tafalaust gegn eldi, vörur og húsmuni hjá The Britx hish Dominion General Insur- ance Co. Ltd. Aðalumboðsm. G. Gíslason. FÆÐI Fæði og gisting fæst í Lækjargötu 12 B. F æ ð i fæst í Bankastræti 14. Helga Jónsdóttir. SetxdÆ auc^s\t\$at* tituatilega.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.