Vísir - 10.07.1915, Qupperneq 4
V I S I R
BÆJAKFRETTIR
Afmæli í dag.
Sigurður Hjálmarsson.
AFrnœli á morgun.
Steinunn Bjarnad. ungfrú.
Þorl. Þorleifsson Ijósm.
Metta Olsen húsfrú.
Ouðleif Erlendsd. ekkja.
Torfi Ólafsson Hverfisgötu 85.
Jakob Möller ritstj.
Anna S. Guðjónsd.
Einar Markússon spítalaráðsm.
Veðrið í dag.
Vm. loftv. 751 v.andv. U 8,6
Rv. U 756 sv. gola (t 10,2
íf. U 756 a. kaldi U 10,0
Ak. íl 756 nnv.andv. “ 7,0
Or. ii 720 n. kul. U 10,0
Sf. u 755 logn Íí 7,5
Þh. u 755 v. kaldi u 11,5
Messur.
Á morgun í Fríkirkjunni í Hafn-
arfirði kl. 12 á hád. sr. ÓI. Ó. og
í Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 5. síðd.
sr. ÓI. Ól.
Á morgun í Dómkirkjunni kl. 12
á hád. sr. Jóhann Þorkelsson. Eng-
in síðdegismessa.
Afþingishúsgarðurinn
er opinn sunnudag 11. frá kl.
1-2V2
Hjúskapur.
Ungfrú Emilía Lárusdóttir (Lúð-
vígssonar) og Magnús Kjærnested
II. skipherra á »Ýmir«, voru gefin
saman í gær af bæjarfógeta. Veisla
í »Iðnó« og á heimili brúðurinnar.
Prentvílla
hefir slæðst inn í neðanmáissög-
una á fimtudaginn: — Hinar beinu
augnabrúnir hennar, Denbybrýnnar,
— átti að vera: Hinar beinu augna-
brýn bennar, Denbybrýnnar.
Síra Eiríkur Gíslason
prófastur hefir legið hér rúmfast-
ur um hríð. Nú er hann orðinn
heill heilsu aftur.
Síra Magnús Andrésson
prófastur hefir lengi legið hér
veikur í kvefsótt og afleiðingum
hennar. Hann er nú mikið í aftur-
bata og farin að hafa fóíavist.
Síra Magnús Bjarnarson
prófastur á prestsbakka hefir ver-
iö hér í bænum nokkra daga
Heldur hann heimleiðis á morgun.
Gerir ráð fyrir að verða 5 daga á
eiðinni.
1
Póstvagnarnir
að austan komu í gær. Fáir
komu með þeim að austan, en
austur komust færri með þeim, en
vildu. Voru t. d. 13 í einum vagn-
inum — og gekk þó slysalaust.
Laxveiði í Elliðaánum
er heldur treg. Svo er og í
Borgarfjarðaránum. Þó mur. lax-
inn nú síðustu daga heldur að auk-
ast.
»St. Helenss
kolaskip, fer til Glasgow á morg-
un. Tekur póst.
Bifreiðarfélag Rvíkur 1915
H U SNÆÐI
Yonarsiræti, = ■ --
i
hefir biiieiðai í gangi alla daga til Hafnarfjarðar og upp um sveítir |
Skrifstofan er opin frá kl. 9 árd. til kl. 10 síðdegis
Sími 405. — — Sími 405.
Þvegna Vorull,
hvíta og mislitg, kaupa
G. Gíslason & Hay Ltd.
Reykjavík.
1 —2 h e r b. íbúð fæst strax með
hálfvirði til 1. okt., á besta stað.
Afgr. v. á.
1 h e r b e r g i með eða án hús-
gagna til leigu frá 1. júlí til l.okt.
Afgr. v. á.
Herbergi, bjart og rúmgott,
til leigu í steinhúsi í miðbænum;
er »Altan« út frá því og ágæt út-
sýn yfir höfnina. Afgr. v. á.
Rúmgóð stofa, með aðgangi
að eldhúsi og geymslu, óskast til
leigu frá 1. okt.
KAUPSKAPU R
Minni háttar járnbraut-
arslys. Þar sem verið er að
fylla upp við hafnargerðina fram
undan Thomsens-húsunum var æði
mikill halli á járnbrautinni. í fyrra-
dag, er eimreiðin var þar á ferð
með lest í eftirdragi, varð lestin
henni of þung, er í hallann kom.
Varð við ekkert ráðið oj rann lest-
in á slá, er lá yfir þvera brautina
og braut hana; tveir vagnar fóru
út af sporinu og einn brotnaði.
Enginn maður meiddist. Hefir
siðan verið fylt upp undir teinana,
svo hallin er nú hverfandi.
»Maí«,
botnvörpungur, fer til ísafjarðar
og Siglufjarðar í fyrramálið.
Sjálfstæðisflokkurinn
er sagður að hafa klofnað í gær.
Sagt er að beinir andstæðingar
ráðherra muni aðeins 7, þeir
Benedikt Sveinsson, Bjarni Jónsson,
Björn Kristjánsson, síra Kristinn
Daníelsson, Sigurður Eggerz og
Skúli Thoroddsen og auk þeirra
Guðm. Eggerz, sem ekki hefir ver-
ið í Sjálfstæðisflokknum.
aj tattdv.
Sfmfrétt.
Borðeyri í gær.
Goðafoss kom hingað í
gær og fer héðan kl. 6 í kveld.
Flutti hingað 150 smál. af vör-
um og tafðist nokkuð vegna of-
veðurs sem hér var í gær. —
Tíðarfar er hið besfa og hér er
enginn ís sjáanlegur.
Húsavík í gær.
ísinn er enn þá einu sinni
kominn hingað. Er landfastur og
mikill ís á Skjálfanda.
fsafirði í gær.
Hér hefir enginn heyrt talað
um stofnun fríkirkjusafnaðar á
ísafirði.
Goðafoss.
Nú er von á Goðafossi um
helgina, líklega á sunnudag. Ekki
hefi eg heyrt að neinn viðbún-
aður væri til að taka á móti hon-
um hér. Allir muna að talsvert
var utn að vera hér, er Gullfoss
kom og að myndarlega var tek-
ið á móti skipinu. Mér finst al-
veg eins ástæða til að fagna
komu hins skipsins,Goðafoss, og
vænti þess fastlega, að stjórn
Eimskipafélagsins, gangist fyrir
því, að svo verði gert. Goðafoss
hefir þegar sýnt, að hann er
happafleyta, er hann slapp kring
um land, einmitt þá dagana sem
íslaust var.
Við verðum að fagna honum
eins og við fögnuðum bróður
lians, Gullfossi.
5. T.
Högl
eru komin tii
Jes Zimsen.
Reykti
Laxinn
afbragðs góði
frá Hvanneyri
er nýkominn í
Matardeild Sláturfél.
Hafnarstræti. Simi 211.
M j ó 1 k fæst allan daginn á
Laugaveg 79.
Barnavagn tit sölu í Þing-
holtsstræti 3.
Morgun kjólar fást altaf
ódýrastir í Grjótagötu 14, niðri.
H æ s t verð á ull og prjónatusk-
um er í »HlíD. Hringið upp síma
503.
Bókabúðin á Laugavegi 22
verslar meö brúkaðar bækur inti-
lendar og útlendar.
H v e r g i betri né ódýrari brauð
en á Vesturgötu 54. Nymjólk
kvöld og morgna.
R e i ð f ö t til sölu á Grettisgötu
20 A (uppi).
Grammófón óskast. A. v. á.
Stórir ánamaðkar til sölu
á Laugaveg 63 uppi. (Kl. 8—9 síðd.)
2 s t ú I k u r, vanar línubeitingu
geta strax fengið atvinnu í Sand-
gerði. Gott kaup. Semjiö fijótt við
Gísla Hjálmarsson, Laugav. 17.
Kaupamann vantar á gott
heimili nálægt Borgarnesi, nú þeg-
ar. Menn snúi sér til Sig. Péfurs-
sonar Skólavörðustíg 9.
Kaupakonu vantar, Uppl.
á Laugaveg 27 B, uppi.
Kaupakonu vantar á gott
heimili í sveit, hátt kaup í boði.
Upplýsingar á Laugaveg 70.
Kaupakona óskast á heimili
nálægt Reykjavík. Uppl. í Kirkju-
stræti 4, (annaö loft).
| E fnileg uuglingsstúlka, barngóð
óskast. A. v. á.
-----------------i
TAPAÐ — FUNDIÐ 2
T a p a s t hefir hvitur barnanátt-
kjóll, sniðinn. Skilist á Kárastíg 13.
Bróderuð barnataska, merkt:
I. I. tapaðist 7. júlí. Skilist á afgr.
Þ v o 11 u r og bretti hirt í laug-
unum. Vitjist á Laugaveg 49 B.
(uppi).
M i 11 i s k y r t a, se n hirt var í
laugunum á fimtuduginn. Skilist
strax á Kárastíg 2.
Fæði og gisting fæst í
Lækjargötu 12 B.
Fæði fæst í Bankastræti 14.
Helga Jónsdóttir.
Váiryggingar,
Vátryggið tafalaust gegn eldi,
vörur og húsmuni hjá The BriU
hish Dominion General Insur-
ance Co. Ltd.
Aðalumboðsm. G. Gíslason.