Vísir - 21.07.1915, Qupperneq 1
Utgefaadi:
H L|U T A F E L A G.
Bitstj. JAKOB MÖLLEB
SÍMI 400.
Skrifstofa og
afgreiösla í
Hótel Isiaid.
SIMI 400.
5. árg
^iðvikudaginn 21. júlí BS15.
121. tbl.
Versl
Hafnarstræti 14.
Nýkomið:
Prjónagarn, margir litir,
Silki, margar tegundir,
Brysselteppi
Linolenm
» QAMLA bio
Bjargað
frá
glötunarvegi.
Kvikmyndasjónleikur
í 3 þáttum.
Frá alþingi.
Ncðri deild í gœr.
B. Kr. talaði fyrsiur eftir mið-
dagsverð, þá B. J. aftur, en ráðh.
og Sveinn Bj. svöruðu. Svo mikið
teygðist úr þessum ræöum, að þá
varð að gefa stutt matarhlé til kl.
9, með því meira blóð varí kúnni.
— Eftir hléð talaði S. E.j fyrst.
Kvaðst margspurður um, hverja af-
stöðu hann tæki til birtingarinnar í
Ingólfi. Hann hefði nú fyrst lýst
yfir því í ísafold, að hann ætti ekki
þátt í henni, en eftir það hefði sama
blað fyrst sakað sig um birtinguna,
svo tekið það aftur og loks borið
það á sig aftur, svo að gaman væri
að geta skygnst inn í sálir stj.manna,
er þeir væru að bregða öðrum um
heitrof. — Annars hefði hann gefið
þessa yfirlýsingu til þess, að síður
mætti ausa sig auri fytir þnð og
draga þannig athygli frá aðalmál-
inu. — Þá (alaði Sig. Gunn. út af
því, að einhverjir þm. höfðu vítt
mjög dagskrá hans. Tók hann það
mjög óstint npp og þótti ráðist á
sig persónuiega. Veittist hann fyrst
að Sk. Th. fyrir þetta, en Skúli
kvað hann dreyma, því hann hefði
ekki niinst á hann einu orði. Þá
talaði G. H. nokkur orð. — B. J.
var dauður, en þóttist verða að
mótmæla áburði frá ráðh. um það,
að hann hefði komið of nærri hans
hátign konunginum. Kvaðst hanu
ekki vanur að haga orðum
sínum svo, að víta þyrfii, og skyldi
ráðherra gæta sinnar eigin tungu,
en ekki hans. — J. M. tók nú og
að gera upp reikninga, einkum við
S. E., en lítt kom mönnum
saman um, hvað S. E. hafði sagt
um Heiinastj.flokkinn, og féll það
mál niður. — Ráðherra svaraði S.
E. — Sk. Th. talaði þá stutt. —
Flutnm. og ráðh., en seinast rak
P. J. lestina með nokkrum oröum
um Heimastjórnarflokkinn. Svo kom
logn.
Var þá komið það hátíðlega
augnablik, að greiða skyldi atkvæði
eftir þenna tveggja daga slag. Dag-
skrá Sig. Gunnarssonar var borin
Ennfremur
upp með nafnakalli, og mun þykja
vert að geyma nöfnin.
Já sögðu:
Benedikt Sveinsson, Bjarni Jónsson,
Björn Kristjánsson, Guðm. Eggerz,
Hjörtur Snorrason, Jón Jónsson,
Sígurður Eggerz, Skúli Thoroddsen,
Þorleifur Jónsson, Þór. Benediktss.
Nei sögðu:
Björn Hallsson, Eggert Pálsson,
Einar Jónsson, Guðm. Hannesson,
Hannes Hafstein, Jóh. Eyjólfsson,
Jón Magnússon, Magnús Kristjánss.,
Matthías Ólafsson, Pétur Jónsson,
Sig. Gunnarsson, Síg. Sigurðssoti,
Steíán Stefánsson, Sveinn Björnsson.
Ráðherra greiddi eigi atkv., með
þvf að hann taldi málið sér svo
skylt. — Dagskráin var samþykt
með 14 : 10 atkv. og þingsálykt-
unartillagan þar með fallin.
Kl. var um 11 þegar þelta gerð-
ist, og var öðrum málum, sem á
dagskrá voru, kipt út, og flýttu
menn sér heim.
Efrí deild í dag.
1 . m á 1: Frv. um mat á ióð-
um og löndum í Rvík. 3. umr.
Frv. sarnþ. og afgr. til N.d.
2 . m á 1 : Ullarmat, 3. umr.
Framsm. Jósef, var ekki við, en
Hákon hafði komið með br.till. og
vildi því helst taka málið út af
dagskrá. Það varð þó ekki. Br,-
till. var samþ. og frv. líka og sent
til N d.
3 . m á 1 : Ógilding viðskifta-
bréfa, 2 umr. Framsm., K. E.,
kvað nefndina ekkert finna að efni
frumvarpsins. Þó ein lítil efnis-
breyting og nokkrar orðabr. —
og margt fleira
Frv. sþ. með br.till. nefndarinnar
og gekk til 3. umr.
4 . m á 1 : Þingsái.tili. um stj.-
skrárm. (traustsyfirlýsingin til ráðh.);
ein umr. — Karl Einarss. bað um
að taka málið út af dagskrá, með
því að einn þm. (Jóset) væri las-
inn og vegna þess að nú væri tími
til að vinna í fjárl.n. með N.d. —
B. Þ. var á móti því. Best að
láta það ekki eyða meiri tíma, en
orðið væri. Forseti kvaðst ekki
sjá ástæðu til að taka málið út, j
Jósef væri ekki framsm. Karl bað |
um atkv.greiðslu, og leyfði fors.
það. Urðu þá 6 með því að kippa
málinu út, en 4 á móti. Vildu
sumir hafa nafnak., en fors. hafði
þá þegar ákveðið að kippa málinu
j út og taka það inn aftur á morg-
| un, ásamt rafveitufrumvarpinu og
I frv. um br. á 1. um bæjarstj. á
ísaf. Sá fundur hefst kl. 12.
Neðri deild í dag.
1 . m á 1: Vörutolisframlenging,
2. umr. — Frmsm. B. Kr. lýsti
yfir því, að nefndin féllist á frv.
óbr., og sama gerði P. J. fyiir sitt
leyti, þótt verðtoilsmaður sé. Hafði
ekki trú á því, að tími ynnist til
að afgreiða verðtollsfrv. frá þinginu
nú. Sama sagði M. ÓI., enda kvað
1 Iiann verst nú að leggja verðtoll
á í dýrtiðinni. Einnig kostnaður
að breyta iii. — B. J. þótti verð-
tollsmennirnir bregðast illa. Tím-
inn sé nógur, enginn segi: »FIýttu
þér«, en ailir: Vandaðu þig«.
Megi framlengja vörutollinn, .en
semja verðtollslögin og láta þau
taka við á eftir. Sv. B. tók enn í
MYJA BSQ
Bróður-
kærleiki.
Sjónleikur í 2 þáttum
eftir Alphonse Daudet
hinn heimsfræga franska rit-
höfund og skáld.
Aðalhutverkin lelka hin fagra
leikkona
frú Róbinne
(frá Comedie Francaise) og
Andre Simon.
Frá Landsímanum.
Landsímastöðin á Ospaks*
eyri er lögð niður frá deginum
í gær að telja.
Reykjavík 21. júlí 1915
O. Forberg.
streng með P. J. — M. Kr. kvaðst
ekki fá það sem hann vildi, verð-
tollinn, en eiíthvað yrði að fá, og
gæti hann þó ekki verið með vöru-
tollinum, og því ekki greiða atkv.
— Frmsm. talaði aftur með vöru-
tollinum og E. P. með óbeinum
sköttum yfirleitt. Kvað leitt að
þurfa að vera með þessar eilífu
framlengingar; betra að koma sér
niður á eitthvað fast, fylgdi M. Kr.
í því, að greiða ekki atkv. Enn
talaði B. H., og var svo frv. samþ.
með 14 gegn 2 og vísað til 3.
umr. með 18 samhlj. atkv.
2 . m á 1 : um dómþinghá í
Öxnadals- og Árskógshreppum,
vísað til 2. umr. í einu hijóði.
3 . m á I. Um landhelgisvarnir.
Frmsm. Sk. Th. áleit landhelgis-
varnir ófuilnægjandi. Danir gætu
iátið »Fálkann« ganga yfir í flot-
ann og smíðað fallbyssubáta 4—5
í staðinn. Áleit reyndar að okkur
sjálfum myndi ekki ofvaxið að kosta
þetta. En efaðist um að Danir
vildu leyfa oss sjálfum að hafa á
hendi landvarnir, en geti ráðherra
ábyrgst að Danir leyfi slikt, þá
tnunum við hæglega geta tekið lán
með tilstyrk iandhelgissjóðs, svo
að við jafnvel gætum fengið bátana
bygða á næsta ári.
Ráðh. kvaðst því miður ekki geta
svarað fyrirsp. um það, hvortDan-
ir myndu leyfa slíkt, en kvaðst fús
á að gera fyrirspurn um það ef
þingm. æsktu. Kvaðst annars ekki
álíta tillögu frms.m. um dönsku
fallbyssubátana heppilega, ekki vel
samrýmanlega við sjálfstæðistal vort
hið mikla.
B. Jónsson. Kvað Dani ekkert
varða um landhelgisvarnir vorar.
! Vildi helst sjá »Fálkann« sendan
Framh. á 4. síðu.
Glervara margskonar.