Vísir - 17.08.1915, Side 1
5. á r g,
G«x)
Þriðjudaginn 16. ágúst 1915. Gíwe
GAIVILA B I O
Stelpu-
s k ö m m i n.
Þyskur gamanl. í 3 þáttum.
Góð og skemtileg mynd,
sem allir hafa gaman af að sjá.
Simskeyti
frá
fréttaritara Vfsis*
Kliöín 16. ágúst 1915.
Þjóðverjar nálgasf Bresfhtowsk.
Bandamenn eru vongóðir uiri að Balkanríkin
gangi í ófriðinn gegn Þýskalandi, Austurríki og
Tyrkjum,
Sýning
Ríkarðs Jónssottar
byrjar fimtudaginu 12. ágúst kl.
12 í Iðnskólanum.
Opin frá kl. 12—7. Sjá götuaugl.
Málverka-
sýning
Kristínar Jónsdóttur og Guðm.
Thorsteinssons var opnuð sunnu-
daginn 15. ágúst í Barnaskólan-
um (gengið inn um norðurdyrnar).
Sýningin er opin frá 11—6.
Inngangseyrir 50 aurar.
j evtv ðtaútiti”
með mynd af
Þorgils gjallanda
er nýkominn út. — Árg. kostar
50 aura. — Gerist kaupendur nú
þegar. — Afgreiðsla á Laugavegi
63 hjá
Jóh. Ögm. Oddssyni.
Frá alþingi.
Neðrí deild í gœr.
Frh.
13. in á 1: Fjárl.; frh. 1. umr.
— Frmsm. P. J. kvað nefndina hafa
haekkað tekjuáætlun um 64,500 kr.,
en lækkað hana um 60,000 kr. —
Lækkað gjöldin um 213,950 kr.,
en hækkað þau nm 198,515 kr.
Áætlaður tekjuhalli væri því lækk-
aöur um 19,935 kr. ogyrði samkv.
Því 109,707 kr.
Peningaforði Idsjóðs. hafi verið í
árslok 1913 kr. 1,362,497. Þar
frá drægist tekjuhalli 1914, kr,
80,954, gjald til Landsbankans, kr.
100,000, hlutir í Eimsk.fél. ísl„ kr.
100,000 og viðl.sj. netto kr. 50,258,
og séu þá eptir kr. 1,032,285. En
•nikið af þessu sé nú óinnheimt og
— frá KrSsfjaníu —
taláv \ J&ávu&úS uastöu wÆvxliudaa,
fei. 9 s\8d,
E FNl:
1. Guðspekin og Guðspekisfélagið.
2. Guðspekin og trúarbrögðin.
3. Guðspekin og heimsófriðurinn.
Aðgangur ókeypis I Allir velkomnirl
því ekki í vasa stjórnarinnar við
áramót, en þó verði ekki sagt að
ástandið sé illt. Þó verði að fara
varlega, því að bæði geti tekjur
brugðist, og eins þurft að grípa
til útgjalda í stórum stýl. B. J.
kvað ástæðu til eldiiúsdags, þar
sem þrjár ágætiskonur hefðu verið
í eldhúsi þjóðarinnar síðan hann
var síðast haldinn. Vildi hann þó
sleppa tveim hinum fyrri, en tala
um fæðingu hinnar síðustu, því að
á henni beri hún sjálf ábyrgð,
þótt önnur dýr gjöri það ekki.
Rakti svo stjórnmálasöguna frá 1913.
Kvað konungsvaldið mundu hafa
látiö undan á þessum hætiutímum,
ef vér hefðum sýnt festu í stjórn-
arskrárdeilunni. Þess vegna megi
það verk núverandi ráðh. eigi óvítt
vera, er hann tók að sér að lúka
þessu máli á þann hátt, sem danskir
ráðherrar vildu. Minni hl. hefði
aldrei vogað að taka við stjórn. í
öðru lagi hafi ráðh. sýnt óhlýðni
viö vilja Alþingis, þar sem hann
hafi gengið að staðfestingunni með
öðrum skilmálum, en það hafði
sett, og það eins, hvort sem réttur
vor var skertur með því, eða ekki,
ekki síst þegar ekki var kallað saman
aukaþing. Minna hefði ekki mátt
i vera. Þingmeirihl., sem kosinn er
af meiri hl. kjósenda hefir ekki
rétt til að breyta um stefnu og
ganga inn á stefnu mótflokksins,
það er stjórnarbylting. Að vísu
mega menn skipta um skoðum, en
þá eiga þeir aö fara til kjósendanna,
ef um stefnumál er að ræða og
gefa þeim kost á nýjum kosningum.
En í staö þess var allt gert til þess,
að enðinn vissi neitt um þessa
nýju skilmála. Þetta kalla eg að
níðast á kjósendum. Afleiðingar af
þessu geti orðið alveg drepandi
fyrir virðingu þingsins. Danir geti
gengið á þetta lagið og skapað
sér hér sí og æ nýjan meiri hl.
Og kjósendar geti ekki trúað því
lengur til þess, að fara með lífs-
spursmál sín. Fordæmið sé og sið
spillandi fyrir stjórnir framvegis. —
En fremur vítti ræðum undirtektir
stj. undir »eptirvarann«, en áleit því
máli þó borgið, en stj. að þakkar-
lausu, heldur af því að Danir hefi
verið »mala fide«, þ. e. vitað heim-
ildarleysi ráðh. til að ganga út fyrir
umboð sitt.
Ráðh. svaraði. Kvað margt hafa
verið spádóma eina hjá honum.
Spurðí hvort menn hefðu verið
undir skilnað búnir, ef til þess
248. tbl.
NYJA BIO
Svikið eða ósvikiðP
Gamanleikur í 2 þáttum,
leikinn af ágætum leikurum.
Pessi Ieikur er svo skemti-
legur að hann á engan sinn
líka. Það er alveg sama hvern
smekk menn hafa á kvikmynd-
um yfirleitt — allir hljóta að
hafa gaman af þessari mynd.
HINN 12. þ. m. dó á Vífils-
staðahæli Einar Ó. Hólm. Jarðar-
för hans er ákveöinföstud.20.þ.m.og
fer fram frá Dómkirkjunni kl. 11—12
Reykjavík 15. ágúst 1915.
Gíslína Magnúsdóttir.
JARÐAEFÖR Margrétar Ás-
mundsdóttur frá Ánanaustum fer
fram á morgun kl. 12 frá Dóm-
kirkjur.ni.
Aðstandendur hinnar látnu.
hefði komið. Kvað óþarft að fara
út í það nú, hvort vilja þingsins
1914 hafi verið fullnægt, því að
báðar deildir hafi nú skorið úr
því játandi, enda hafi B. J. ekki
reynt að sanna að skilyrðin hafi
verið önnur, en heimtuð voru.
Hann haldi fram meiri hlutavaldinu,
og þá verði hann að beygja sig
undir hann. — Aukaþing |hafi
verið meiningarlaust, þegar fyrir-
varanumhafiverið fulluægt. Þetta um
kjósendurna byggist, eins og allt
hitt, á þessari sömu forsendu, sem
þingið nú hafi dæmt ógilda. —
Kjósendur viti að þingmenn séu
ekki bundnir við annað en sam-
færingu sína, og þótt það sé fallegt,
að gefa kjósendum kost á kosn-
ingum, ef breytt sé um skoðun, þá
eigi það ekki við hér, þar sem
þorri þingmanna þykist eigi hafa
skipt skoðum. — Þó að það væri
rétt, að gefið hefði verið eptir af
rétti íslands í vor, þá sé tvísýnt að
»eptirvarinn« hefði getað borgið
þvf. Danir þykist og eigi hafa
unnið neinn sigur þá, heldur haldi
bara B. J. og nokkrir fleiri fsl. því
fram. — Kynlegt sé það, ef það
sé vítavert, að vera ekki á sama
máli og B. J. um »eptirvarann«
heldir fylgja sannfæringingu sinni.
Óþarfi að eyöa fleiri orðum um
þetta, en orðið sé. Frh.