Vísir - 02.09.1915, Side 2
V 1 S 1 R
VISIR
Afgreiðsla blaðsins á Hótel
Island er opin frá kl. 8—8 á hverj-
um degi,
Inngangur frá Vallarstræti.
Skrifstofa á sama stað, inng frá
Aðaistr. — Ritstjórinn til viðtals frá
kl 5-6.
Sími 400.— P. O. Box 367.
Læknisfræðis-
docentinn.
Um það mál skrifar Matth. Einars-
son Iæknir, í læknablaðið (ágúst-
blaðið) á þessa Ieið:
Dócentsembætti í almennri sjúk-
ddmafræði, líffærameinafræði (ana-
tomia pathologica), blóðvatnsfræði
(serologia) og sóttkveikjufræði (bac-
teriologia), fór Iæknadeild háskólans
fram á við alþingi, að stofnað yrði
í sumar, þó þannig, að émbæítislaun
yrðu ekki greidd fyr en í ársbyrjun
1917.
í bréfi læknadeildar er bent á
hve óhæfilega mörgum kenslugrein
um sé hrúgað á prófessorana í
læknadeildinni1) og sé bráðnauð-
synlegt að kippa því í lag hið allra
fyrsta.
Ennfremur segir í bréfinu:
reglugerð háskólans, 29. gr.,
er mælt svo fyrir, að þegar því
verði við komið, skuli viðhafa verk-
legar æfingar í sóttkveikjufræði, og
eftir föngum fara yfir helstu atriði
í líffærameinafræði. Deildin sér
ekki að það sé gerlegt, að fresta
því lengtir að gera ráðstafanir til
þess að þetta geti komist í fram-
kvæmd. Hvergi í læknisfræðinni
hafa framfarir orðið svo stórkost-
legar á síðustu árum, sem í þessum
greinum og í blóövatnsfræði. Og
sýnilegt, að framhalds má vænta í
sömu átt. Þessari greina gætir því
æ meir, en þær verða um leið svo
yfirgripsmiklar, að ekki er orðið
mögulegt fyrir aðra en sérfræðinga,
að ná svo tökum á þeim, að vel
sé við unandi, fylgjast með í fram-
förunum, og ekki hvað síst hafa á
hendi verklegar framkvæmdir. Nú
hagar svo til, að starfsemi mann8,
sem væri fær í þessum greinum,
mundi homa að mikiu meira liði,
en því einu að veita nemendum
Jæknadeildar fullnægjandi kenslu í
undirstöðuatriðum þessara greina.
Þannig getur líf sjúklings oltið á
smásjárrannsókn á æxlum o. fl., en
x) Annar prófessorinn (G. M.)
hefir t. d. til skamms tíma kent
jafnmargar stundir á viku og allir
kennarar í guðfræöisdeildinni til
samans, auk allrar kliniskrar kenslu
og operations-æfinga.
slík rannsókn er oft og einatt svo
vandasöm, að ekki er annara með-
færi en æfðra lækna, sem sérstaklega
hafa lagt stund á þess konar. En
slíkt Iægi einmitt undir starfssvið
þessa kennara, sem deildin óskar
eftir. Erlendis er á hverjum há-
skóla og víðar völ á slíkum lækni,
sem hinir geta snúið sér til í vafa-
sömuin tilfellum, og ekki þeir einir,
sem næstir eru, heldur má senda
þessa hluti til rannsóknar langar
leiðir. Hér á landi er ekki og
hefir ekki til þessa verið nokkur
Iæknir, sem gæti fengist við þess
konar rannsóknir, þær sem vanda-
samastar eru, og er það einmitt
bagalegt, og mundi slíkur læknir
geta komið öllu landinu að liði.
Þá er ekki síður títt, að sótt-
kveikjurannsóknir séu nauðsynlegar
Að lokum lætur deildin þess
getið í bréfinu, að von sé til að í
embætti þetta fáist maður, sem Iagt
hehr stund á þessar fræðigreinar
verklega í rúmt ár á góðum stöðuni,
og muni hann því með hálfs annars
árs starfa hér eftir í sömu átt, verða
vel fær, þar sem um reglusaman
hæfileikamann sé að ræða. —
í þinginu var kosin 5 manna
nefnd til að íhuga málið: Jón
Magnússon (form.), Guðm. Hannes-
son (ritari), Einar Jónsson, Jón
Jónsson og Hjörtur Snorrason.
Nefndin komst að þeirri niðurstöðu,
að um all-brýna nauðsyn væri að
ræða, bæði fyrir háskólann og landið
í heild sinni. (Hjörtur Snorrason
var samþykkur ástæðum nefndar-
álitsins, en sá sér ekki fært að stofna
embættið að svo stöddu). Umræður
urðu síðan nokkrar um máliö, og
töluðu nokkrir með en enginn á
móti, var síðan gengið til atkvæða
og málið felt með miklum atkvæð-
um! Þessi úrslit málsins komu
öllum á óvart.
Þegar háskólinn var settur á stofn,
átti hann aö verða óskabarn þjóðar
(og þings); alt átti að gera til þess,
að hann yrði þjóðinni til gagns og
sóma. Og mætti þá ætla, að viss-
asti vegurinn til þess, væri, að auka
og bæta kenslu-krafta svo sem
bráðasta nauösyn krefði (sbr. reglu
gerð háskólans, gr. 29) til þess að
kenslan í þeim fræðigreinum, sem
í upphafi var byrjað að kenna við
skólann, yrði ekki á eftir tímanum,
heldur gæti fylgst með, og hagnýtt
sér allar frrmfarir og nýungar.
Með því einu móti getur háskólinn,
þ. e. kennarar og lærisveinar, orðið
landinu til gagns og sóma.
Þegar fyrir tveim árum æskti
læknadeildin eftir aukinni kenslu,
þá var það líka árangurslaust.
En hvernig stóð á því, að þetta
mál náði ekki fram að ganga? Þó
var nefudin með því, allir þing-
menn, sem töluðu í málinu, voru
líka með því. Læknadeildin hafði
glögt sýnt fram á, hver nauðsyu
væii á að stofna embættið.
Þörfin var auðsæ, en það var
ekki nóg. Hefði málið átt fram að
ganga, þá hefði þurft að fá loforð
fyrir atkvæði hvers þingmanns fyrir
sig, svo að þeir gætu offrað at-
kvæði sínu, eins og af »privat«-
greiðvikni eða góðsemi, en ekki
að eins vegna þess, hve þörfin var
mikil.
Féleysi hefir naumast verið fil
að dreyfa, því þá hefði ekki verið
stofnað docenls-embætti í grísku
og latínu í fyrra, og rnundi ekki
verða stofnað professors-embætti í
»hagnýtri sálarfræði« nú, sem liggur
víst mjög nærri að gert verði.
M. E.
Framtíðarpólitík
Þjóðverja.
Brennipunktur óf riðarins.
Sem kunnugt er, hafa Þjóð-
verjar á undanfarandi árum lagt
mikla áherslu á að útvega sér
nýlendur, efla flota sinn og ger-
ast sjóveldi. — En til þess að
verða það,. að nokkru gagni,
þurftu þeir að bjóða Englend-
ingum byrgin og til þess þarf
meira en lítið.
Nú er svo að sjá, af nýjustu
þýskum tímaritum, að Þjóðverjar
séu að vakna af þessum sjó-
veldisdraumum sínum. — Nú
hafa þeir mist allar nýlendur
sínar og beðið talsvert tjón á
flota sínum og virðast nú orðn-
ir afhuga því, að geta hnekt sæ-
veldi Endlendinga og náð aftur
nýlendunum.
Aftur á móti þykjast þeir enn
sem komið er, hvergi smeikir á
landi, enda hafa þeir nú unnið
allmikið á, að vestan og austan,
og náð haldi á allmiklu landi á
báðar hliðar.
Með öðrum orðum : framtfðar-
stefna þeirra er af sjálfu sér
komin inn í nýjan farveg, hún
er að breytast úr sœve/d/s-póli-
tík í meginlands-póUtík.
Þeir finna það nú, að þeir
verða að haga sér eftir því sem
styrkur þeirra getur notið sín
best — og það er með því, að
sækja fram á landi. Þar með eru
Þjóðverjar að komast nær því
sem vakti fyrir Bismark. Hann
hafði aldrei mikla trú á nýlendu-
pólitíkinni.
En þá kemur sú spurning,
hvert Þjóðverjar muni helst leita,
Munu þeir hugsa um að leggja
Frakkland undir sig? Nei, að
vestanverðu er svo að skilja, að
þeir geri sig ánægða með Belgíu
sem þeir nú þegar hafa á valdi
sínu. — Þá munu þeir heldur
T I L M I N N I S:
Baðhúsið opið v. d. 8-8, Id.kv. til 11
Borgarst.skrifjt. í brunastöð opin v. d
11-3
Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2
og 4-7
Bæjargjaldk. Lauf.ásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d
Islandsbanki opinn 10-4.
K. F. U. M. Alm. samk. sunnd 81/, siðd
Landakotsspít. Sjúkravitj.tími kl. 11-1.
Landsbankinn 10-3. Bankastjórn til við-
tals 10-12
Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Útlán 1-3
Landssíminn opinn v. d. daglangt (8-9)
Helga daga 10-12 og 4-7
Náttúrugripasafniö opið F/,,-21/, síðd.
Pósthúsið opið v. d. 9-7, sunnd. 9-1
Samábyrgðin 12-2 og 4-6.
Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d,
Vífilsstaðahælið. Hcimsóknarb'mi 12-1
Þjóðmenjasafnið opið sd. þd. fmd. 12-2
ekki hugsa til þess að taka srteið
af Rússlandi né skerða Ítalíu —
það yrði of kostnaðarsamt og
ótrygt.
Nei, hugur þeirra mun nú
helst stefna í suðurátt, gegn
Balkanríkjunum. Svo er að heyra
sem þeir muni snúa þangað að-
alafli sínu jafnskjótt og þeir fá
ráðrúm til þess.
Að vísu kalla þeir ekki svo
sem þeir muni leggja undir sig
Balkanríkin beinlínis, heldur
þvinga þau »undir þýsk áhrif
og viðskiftt*. Er œtlanin sú, að
láta þessi »þýsku áhrif« ríkja frá
Belgíuströndum og austur að
Indlandshafi.
Nú hafa bandaþjóðirnar gert
sín á milli tollsamband á móti
Þjóðverjum til þess að hnekkja
verslun þeirra og viðskiftum. —
Þessu kveðast Þjóðverjar verða
að svara í sama tón með því
að mynda annan pólitískan við-
skiftahring á móti. — í þessum
hring er auðvitað Austurríki og
Ungverjaland sjálfsagt og svo
ríki Tyrka, en til þess að byggja
brúna á milli liggur leiðin auð-
vitað yfir Balkan.
Viðleitni bandaþjóðanna mun
verða sú, að reyna að hnekkja
þessari fyrirætlun og koma í veg
fyrir að Þjóðverjar nái beinu og
tryggu sambandi við Tyrki.
Allar hortur eru þá á því, nú,
að brennipunktur styrjaldarinn-
ar lendi yfir hið gamla ófriðar-
horn álfunnar — á Balkan.
Þarna er sem sé eini vegur-
inn fyrir Þjóðverja til þess að
brjóta sér varanlega leið út úr
bóndabeygjunni og einmitt þarna
er það sem bandaþjóðirnar verða
að reyna að loka utan um þá
hringnum.
Nú eru ítalir komnir af stað
gegn Tyrkjum og munu líklega
njóta sín þar fult svo vel sem
gegn Austurríki og Þjóðverjum.
— Nú stendur samningaslagur-
inn um Búlgaríu. Þjóðverjar og
bandaþjóðirnar toga þar í sín
hvoru megin. En með því að
Búlgarar munu farnir að skilja
hvert stefnir fyrir Þjóðverjum,
þá munu þeir sennilega lenda
með bandaþjóðunum.
SetvdÆ a\x$^s\t\$at
timat\U$a.