Vísir - 08.09.1915, Qupperneq 4
V 1 S I R
Bæjarf réitir .
Framh. frá 1. síðu. j
Frá alþingi,
Við 3. umr. fjárlagann í efri
deild í gær var samþykt að veita
kr. 2800,oo á ári til kenslu í líf
færafræði, sóttkveikíafrœði o. fl.
við Háskólann; ílutningsm. till.
var Dr. Jón Þorkelsson. Sömu-
leiðis var samþykt till. frá Karli
Einarssyni um 5000 króna fjár-
fjárveitingu til Ragnars Lund-
borgs.
Dr. Jón Þorkelsson vildi binda
1000 króna sfyrkveitinguna til
Templara því skiiyrði, að þeir
hefðu engin afskifti af bannlög-
unum í framtíðinni og að helm-
ingur upphæðarinnar skyldi
greiddur Sigurði regluboða Eir-
íkssynl. Tiilagan var feld; fyrri
klutinn með öllum greiddum at-
kvæðum gegn einu, en með síð-
ari hlutanum voru greidd fimm
atkvæði.
Ægir.
Vísi hefir nýlega borist ágúst-
blað Ægis, mánaðarrits Fiski-
félags íslands. í því er all-ítarleg
grein um síldveiði Norðmanna
við ísland, eftir ritsfjórann, Svb.
Egilsson. Er þar meðal annars
bent á það, hve Norðmenn hafi
lagt undir sig síldveiðina hér við
land, svo að jafnvel sé örðugt
fyrir (slendinga, sem veiðina viija
stunda, að fá verkamenn og stað
til að taka við síldinni á í veiði-
stöðvunum. Vil' hann láta koma
í veg fyrir slíkan átroðning út-
lendinga með ströngum hafnar-
lögum.
Verð á ísl. sjávarafurðum:
S a 11 f i s k u r: Þur fiskur af-
hentur í Khöfn: Hnakkakýldur
stórfiskur 135-140 kr. sk.pd. —
Hnakkakýldur millifiskur 105 kr.
sk.pd Ýsa 95 kr. Labrador 93
—95 kr. Langa 110—120 kr. Ufsi
85 kr. Keila 85 kr. — Óverk-
aður stórfiskur 80 kr. Smá-
fiskur 70—72 kr.— Lýsi: Besta
ljóst þorskalýsi, hver 105 kilo,
alt að 140 kr., brúnt 130 kr.
Selskinn 7—8 kr. hvert.
Sundmagar. Engin eftirspurn,
áœtlað verð kr. 1,25. kílóið.
Ægir.
Höfuðskepnurnar,
Hvergí i nokkurri annari höfuS-
borg í heimi munu höfuöskepnurn-
ar vera látnar leika eins lausum
hala og hér í Reykjavík. Mun þetta
part af hirðuleysi.
S j ó r i n n (vatnið) hefir haft
völdin aö þessu og lítiö veriö gert
til aö hindra þaö ofurefli. Skip
hefir rekiö upp og bátar stööugt
verið í voöa á þessari svonefndu
höfn. Eftir hvert norðanveður hafa
flestir uppskipunardallar og mót-
orbátar veriö sokknir eða marað
í miöju kafi — og ekki verið smá-
ræðis-fyrirhöfn að koma því í lag
og enginn smáræðis-skaði, sem af
]>ví hefir hlotist. Bryggjur hafa
brotnað og möl borist upp á göt-
urnar, sem orðið hefir að mokn
Ódýr Pataefni.
Notið tœkifærið! Sýnishorn af fataefnum,
er seijast með innkaupsverði eru fyrirliggjandi.
Fataefnin þurfa að seljast uú þegar og ættu
menn því að nota tækifærið til þess að kaupa ódýr föt nú í dýriíðinni.
SparnaSwtuvft ev ajarmút.tU.
Reinh, Andersson,
Bankasiræti 9,
burt aftur með ærnum kostnaði.
Alt þetta er nú aö komast í lag
með nýju höfninni, og mátti ekki
seinna vera.
L o f t i ð (storminn) er ekki
gott að ráða við í sjálfu sér, en
afarilla er þessi bær stööugt und-
ir storma búinn. Rykið á götunum
er afskaplegt, svo að óvíöa mun
annað eins. Hvílík banvæn óholl-
usta stafar af því vita allir, og öll-
um mun korna saman um, hversu
sóðalegt þaö er og óviðfeldið. Úr
þessu mætti bæta mikið, ef þyngri
efni væru notuð i ofaniburð í göt-
ur, en gert er. Mér sýnist ekki bet-
ur en aska sé nú borin á Aðal-
stræti, ofan á grjótið. Eg er aö
visu leikmaöur i götulagningum,
en eg þekki til í ýmsum smákaup-
stöðum hérlendis, þar sem götur
eru ágætar, þurrar og ryklausar.
Þar er borinn sandur á göturnar,
en ekki mold eða aska. En hvað
sem ,því veldur, þá eru göturnar
hér hreinasta forsmán og rykið ó-
þolandi siðuöum mönnum, og því
veröur aö koma í lag, þótt það
kosti kanske mikið. Kvef þaö og
ýmsir aörir kvillar, sem stöðugt
ganga hér, mundu eflaust mikið til
hverfa, ef rykinu og óþverranum
væri útrýmt úr bænum.
E 1 d u r i n n hefir löngum feng-
ið að leika hér lausum hala og gaf
mönnum góöa ráðningu og þarf-
iega í vor. Auðvitað var þá margt
í ólagi, en það kom engum á óvart,
t. d. brunahanar stíflaðir, varalið
ekki vakið og engir ákveðnir menn
til að vekja fólk í húsum, sem
voru í hættu, o. s. frv. Lögreglan
var ónýt, sem vonlegt var, hér þarf
að hafa fast lögreglulið, varalið,
þegar bruna ber að höndum, til að
halda ónýtum almenningi frá
brunasvæðinu, þar sem fólk hefir
ekkert annað að gera en tefja fyr-
j ir og stofna sjálfu sér í voða. —
■ Við eigum auðvitað von á fleiri
stórbrunum, meðan bærinn er eins
og nú. Hér í miðbænum er t. d.
eitt hús, sem hræðilegur háski staf-
ar af. Það er Hótel ísland. Þessi
háreisti timburhjallur, sem vofir
yfir örlögum fjölda húsa í kring.
Og í þessu húsi er ekki miðstöðv-
arhitun, heldur ofnar i hverjum
krók, upp á gamla móðinn. Eg
kom þangað einu sinni inn, til
j manns er bjó j>ar, þegar verið var
' að enda við að slökkva eld við
hans herbergi. Hafði kviknað í
milli joils Og veggjar, frá ofnpípu.
Og mér er sagt að kviknað hafi
í húsi þessu oftar en einu sinni í
vetur. Eg held að það borgaði sig
fyrir vátryggingai iélögin aö kaupa
þetta hús eftir hæfilegu mati, rifa
það og byggja upp á ný úr steini.
Eitt vildi eg drepa á enn, sem
ekki kemur beint höfuðskepnunum
við. Það er hávaðinn á göturn bæj-
arins á nóttunni, eftir háttatíma.
Söngur, óp og köll, sem lögregl-
an lætur alveg sem vind um eyrun
])jóta. Menn ganga oft í hópum á
12. og i. tímanum, syngjandi, og
þótt þeir kunni að syngja laglega,
þessir ungu menn, þá vil eg helst
vera laus við þeirra söng, þegar
eg þarf að sofna. Eg hefi sjálfur
horft á lögreglumenn ganga fram
lijá þessum söngvurum um hánótt,
án þess að þagga niður í þeim.
Fólk hefir alveg óhæfilega hátt á
götunni á nóttunni. Þótt það megi
kanske sjálft „sofa ut“, þá verður
það að hafa það hugfast, að trufla
ekki svefn náungans, sem þarf að
vakna snemma. Og það er hrein
og bein skylda lögreglunnar að
þagga niður hávaða á götunum á
nóttunni. Þ. ó.
H ÚSNÆBI
E i n h 1 e y p stúlka óskar eftir
litlu herbergi 1. okt. Afgr. v. á.
S t o f a án hús; agna til leigu í
miðbænum 1. okt. Afgr. v. á.
2 herbergi g eldhús ósk-
i 1. okt. Uppl. á L ugaveg 66.
E i t t stórt heri ergi í miðbæn-
um til leigu fyrri bluta dags. Hent-
ugt til kenslu eða ritstarfa. A. v. á.
1 herbergi með húsgögn-
um og miðstöðvarhita fæst til leigu
nú þegar eöa 1. okt. Uppl. gefur
! Haraldur Sigurðsson, hjá Zimsen.
S t o f a, án húsgagna, í vestur-
bænum óskast til leigu frá 1. okt.
íyrir einhleypan mann. Upplýsing-
ar í íngólfstræti 6.
‘ 8 8
: | T A P AjjjÐ — F U N D I Ð |
Tapast hefirsitfurbrjóslnál merkt
K. á leið milli innri Kirkjusands og
Lindargötu 8 B.
Finnandi er vinsamlega beðinn
að skila henni á skrifstofu þessa
biað.
Hálfur 5 króua seðill fund-
inn. Vitjist í Silk uúðina Banka-
stræti 14.
KAUPSKAPUR
Hæst verð á ull og prjónatusk-
um er í »Hlíf«. Hringið upp síma
503.
Bókabúðin á Laugaveg 22
selur brúkaðar bækur með niður-
settur veröi.
Morgunkjólar, smekkleg-
astir, vænstir og ódýrastir, sömul.
1 a n g s j ö 1 og þ r í h y r n u r eru
ávalt til sölu í Garðastræti 4 uppi.
(Gengið upp frá Mjóstræti).
Húsaleigusamningar fást
í Prentsm. Gunnars Sigurðssonar.
Carl T.: Dansk Tingsret,
Jul. L.: Haandbog i Obliga-
t i o n s r e 11 e n o. fl. lögfræðis-
bækur fást með niðursettu veröi í
Bókabúðinni á Laugaveg 22.
1 0—-1 5 h æ n u r ársgamlar og
eldri til sölu í Ási næstu daga.
Sími 236.
L í t i 11 ofn með tilheyrandí rör-
um, fæst nú þegar með tækifæris-
verði á Rauðarárstíg 1. Auk þess
5—6 ál. af nýjum ofnrörum.
Fálkaegg til sölu. Tilboð
sendist Rangnhildi Finnsdóttur, Stýri-
mannaskólanum.
Hanakjúklingar til sölu á
L ndargötu 9 B.
T i I s ö 1 u eru 3 kýr og 1
vagnhestur. Afgr. v. á.
S t ó r ofn til sölu á Nýlendu-
götu 12.
A n d v a r i 36. árgangar, frá 1.
til 36 árg. innbuudinn, er til sölu
með tækifærisverði í Ingólfsstræti 8
(uppi).
F a 11 e g og ódýr slifsi fást á
Bergstaðastr. 11 A.
K r a n s a r úr pálmum og Blod-
bög, einnig liíandi blómum.
G. Clausen, Tjarnargötu 8.
V I N N A
D u g 1 e g i r menn, vanir jarða-
bóíum, geta fengið atvinnu.
Sig. Þ. Johuson,
Seltjarnarnesskóla.
S t ú 1 k a óskast fyrri hluta dags
um lengri eðaskemri tíma. Afgr. v.áx
1 8 á r a unglingur æskir atvinnu
t.l 1. okt. Afgr. v. á.
S t ú 1 k a óskast til sængurkonu.
Upul. á Laugaveg 75.
S t ú 1 k a óskast í vist til Vesf-
mannaeyja. Upplýsingar gefurKrist-
íu Brynjólfsdóttir Bergstaðastr. 11.
Vátryggingar.
Vátryggið tafalaust gegn eldi,
vörur og húsmuni hjá The Britr
hish Dominion General Insur-
ance Co. Ltd.
Aðalumboðsm. G. Gfslason.
Sæ- og síríðsvátrygging.
Det kgl. oktr. Söassurance Komp.
M ðstræti 6. Tals. 254.
A. V. TULIMIUS.
Aðalumboðsmaöur fyrir ísland.
Prentsrn. Gunnars Sigurðssonar.