Vísir - 25.09.1915, Síða 2
V 1 S \ R
VISIR
A f g r e i ð s 1 a blaðsins á Hótel
Island er opin frá kl. 8—8 á hverj-
um degi.
Inngangur frá Vallarstræti.
Skrífstofa á sama stað, inng frá
Aðalstr. — Ritstjórinn til viðtals frá
ki. 5-6.
Sími 400.— P. O. Box 367.
Hafnarumsjónin.
Svar til Jón Þoriákssonar
landsverkfræðings.
Frá ]. Ó.
---- Nl.
Jóni Þorlákssyni þykir það illa
farið, að bæjarstjórnin skyldi veita
fé til umsjónarstarfsins áður en hún
vissi hvað í umrjónarstarfinu fælist,
virðist honum réttara hefði veriö
að vísa málinu til hafnarnefndar
aftur til frekari undirbúnings. Það
er eins og verkfiæðingurinn hafi
haidið að hér væri um að ræða mála-
myndarsýslan, einskonar bitling.
Fáum mun þó blandast hugur um
að umsjón með höfninni og því
sem henni tilheyrir, muni reynast
nægilegur starfi einum manni, og
ekki hefir J. Þ. altaf verið hræddur
um þetta, sem sjá má af ummæl-
um hans á bæjarstjórnarfundi 19.
ág. Þá getur hann þess í sam-
bandi við eina af sínum alkunnu
fyrirspurnum viðvíkjandi höfninni,
að tilganginum með hafnarumsjón
verði helst náð með þeim hætti
að framkvæmdarstjórnin verði í
höndum eins manns, er vitanlega
stæði undir bæjarstjórn og hafnar-
nefnd.
Um þetta atriði eru víst allir á
einu máli. En hafnarnefndin taldi
heppilegast að veita stöðuna sem
fyrst, til þess meðai annars, að um-
sjónarmaðurinn gæti kynt sér alla
tiihögun og síðan gefið bæjarstjórn
og hafnarnefud ieiðbeiningar i
öllum þeim málum er hér að lúta
og orðið gætu til hagsmuna.
Hitt er satt er J. Þ. segir, að
ræða hefði átt í hafnarnefnd starf-
svið umsjónarmannsins strax er fjár-
veiting var fengin. En ekki er hafn-
arnefndinni í heild sinni gefandi
sök á þesssu, því formaður nefnd-
arinnar sem jafnframt er borgarstj.
lagði eigi það mál fyrir fundinn fyr en
fjórum dögum áður en starfinu
skyldi veittur, eins og J. Þ. hefir
tekið fram.
Ekki skil eg það, og svo mun
fleirum fara, að dráttur sá er varð
á tillögum til erindisbréfs hafnar-
umsjónarmannsins, hafi nokkru vald
ið um hin hrapallegu kosninga úr-
slit á bæiarstjórnarfundinum 2. þ.
m„ því að gera mætti ráð fyrir því
að flestir bæjarfulitrúar vissu þó,
að hér var að ræða um umsjón á
sjó að nokkru leyti, og því síður
starf fyrir snikkara en skipstjóra.
Hér liggja því þær orsakir til úr-
slitanna, er eg drap á í fyrri grein
minni.
Eg get því nærri að sparsemis-
hugmynd bæjarfulltrúans, síðast í
grein hans, muni — eins og hann
Kensla
í kvenlegum hannyrðum.
Undirrituð tekur að sér að kenna stúlkum kjólasaum, peysufata-
saum, léreftasaum, baldéringu, hvítan og mislitan útsaum, knipl o. fl.
Kenslan stendur yfir frá 15. oktober til 14. maí, og verður þeim
tíma skift í tvö námskeið (3V2 mánuð hvort).
Elísabet Valdimarsdóttir
til viðtals í Iðnaðarmannahúsinu kl. 1—2 og 4—5.
Linoleum /
margar teg., nýkomið
í Bankastræti 7.
T I L MINNIS:
Baðhúsið opið v. d. 8-8, ld.kv. til 11
Borgarst.skrifst. í brunastöð opín v. d
• 11-3
Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2
og 4-7
Bæjargjaldk. Laufásv. kl. )2-3og5-7v.d
Islandsbanki opinri 10-4
K. F. U. M. Alm. samk. snnnd. 8'/a siðd
Landakotsspít. Sjúkravitj.tími lcl. 11-1.
Landsbankinn 10-3. Bankastjórn til við-
tals 10-12
Landsbókasafn 12-3 og 5-3. Útlán 1-3
Landssíminn opinn v. d. daglangt (8-9)
Helga daga 10-12 og4-7
Náttúrugripasafnið opið V/^-21^ síðd.
Pósthúsið opið v. d. 9-7. sunnd. 9-1
Samábyrgðin 12-2 og 4-ó.
Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d
Vifilsstaðahælið. Hcimsóknart'mi 12-1
Þjóðmenjasafnið opið sd. þd, fmd. 12-2
^oxvat&ux & *yx\sUxvt\.
Gullfluíningur
til Bandaríkjanna.
Ný matsala.
Undirrituð byrjar matsölu í Ingólfsstræti 4, 1. okt. n. k.
Sérstaklega þœgilegt fyrir námsfólk.
Fyrst um sinn til viðtals á Njálsgötu 6, kl. 2—6 síðd.
Sigríöur Þorsteinsdóttir.
sjálfur komst að orði — láta vel í
eyrum bæjarbúa. Það virðist svo
undur einfalt að fela hafnsögumanni
að raða skipum og bátum fyrir að
eins litla þóknun. En hitt vildi eg
benda á í sambandi við þetta, að
þeim hluta hafnargerðarinnar, sem
að vitni J. Þ. sjálfs mun verða
mest tekjulind hafnarsjóðs (kola-
bryggjan), er svo langt komið að
ekki mun líða á löngu áður en
hún verður tekin til notkunar. Og
ennfremur ætti höfnin sem allra
fyrst að fá i sínar hendur vatnssölu
til skipa. Vatnssalan er nú í hönd-
um eins manns er vitanlega græðir
á henni stórfé árlega, jafnvel tugum
saman þúsundir. Þetta með öðru
fleiru er smám saman bætist við
mætti ef til vill fela hafnsögumanni
fyrir litla þóknun, en afarmikill
sparnaður getur stundum orðið til
ist það of oft eiga sér stað hér, að
laun starfsmanna séu talin eftir, en
minna hugsað um nytsamt starf
fyrir þá.
Samning þessa marg-umrædda
erindisbréfs fyrir hafnarumsjónar-
manninn mun nú bráðlega koma
fyrir hafnarnefnd, en eigi væri það
ólíklegt að meirihluti hafnarnefndar
vísaði því starfi frá sér, og til hins
góðgerðasanria meirihluta í bæjar-
stjórninni, er kaus smiðinn.
Viðsjár
með Austurríki og Banda-
ríkjunum.
Um síðustu mánaðamót var
amerískur blaðamaður á leið til
Þýskaiands á hollensku skipi.
Skipið kom við í Falmouth á
Englandi og kom Dr. Archibaid,
svo hét blaðamaðurinn, þar í
land og fyrir einhverra hluta sak-
ir, var hann handtekinn af lög-
reglunni. Skjöl þau er hann hafði
á sér, voru rannsökuð og kom
þá í Ijós, að hann flutti bréf frá
Dr. Dumba, sendiherra Austur-
: ríkismanna í Washington, til bar-
on Burians í Austurríki. Bréfið
! var opnað og síðar birt almenn-
ingi.
í bréfi þessu útlistaði sendi-
herrann fyrir Burian að hægt
væri að koma verkfalli af stað í
öllum vopnasmiðjum í Bandaríkj-
unum svo að þeim yrði ómögu-
legt að selja Englendingum og
Frökkum vopn. Kvað hann til
þess þurfa allmikið fé, og bað
um samþykki stjórnar sinnar til
að verja fé í þessu skyni. í bréf-
iiiu er þess einnig getið að v.
Papen, hermálaráðunautur þýska
sendiherrans í Washington, sé
honum sammála um að með því
að nota óspart fé, megi stöðva
| vopnaútflutning til bandamanna.
Þegar bréfið var birt í Banda- '
ríkjablöðunum, urðu þau óð og
! uppvœg og kváðu Dr. Dumba
; hafa brotið af sér sendiherrarétt
| sinn, með því að stofna til inn-
| anlandsóeirða með verkföllum.
! Kröfðust þau þess, mörg hver,
að Dr. Duma yrði afhent vega-
bréf og honum sagt að halda
heim og sömuleiðis v. Papen.
Dr. Dumba gat auðvitað ekki
neitað því, að hann hefði skrifað
bréfið, en hann kvaðst hinsveg-
ar hafa rétt til að banna öllum
þegnum Austurríkis og Ungverja- ,
lands að vinna að vopna- og
skotfæra smíði í verksmiðjum er
seldu bandamönnum vopn.En eins
og kunnugt vœri, þá ynni mikill
fjöldi Austurríkis og Ungverja-
lands manna í þessum verksmiðj-
um. —
Blöðunum þótti þetta engin
afsökun vera og hétu á Wilson
að senda Dr. Dumba heim. —
Stóð á því stímabraki, er síðast
fréttist.
Sendið augl. tímanlega
Gullið streymir nú til Bandaríkj-
anna frá Norðurálfunni, eins og við
er að búast, þar sem miklu meira
er flutt út frá Bandaríkjunum en inn
Banki einn í London hefir gefið
út skýrslu um gullinnflutning Banda-
ríkjanna frá því í ófriðarbyrjun og
til ágástmánaðarloka og er hún á
þessa leið:
Frá Daúmörku 300,000 dollarar
— Ástralíu 2,000,000 —
— Hollandi 2,000,000 —
— Kína 3,700,000 —
— Japan 9,625,000 —
— Frakklandi 11,500,000 —
— Englandi 20,590,000 —
— Canada 98,802,000 —
Gullið frá Canada var mest megn-
's eign Englandsbanka.
Bankar i Bandaríkjunum liggja
nú með svo mikinn gullforða, að
þeir vita naumast hvaö þeir eiga
af gullinu að gera. Hafa blöð
þar vestra látið í ljósi, að æskilegt
að ófriðarþjóðirnar, einkum
væri
England, tækju stórt lán þar vestra.
Ræðufjöldi
neðri deild alþingis 1915.
Bjarni Jónsson 123
Ráðherra 115
Guðm. Hannesson 107
Sveinn Björnsson 94
Mallh. Ólafsson 68
Pétur Jónsson 64
Sig. Eggerz 57
Jón Magnússon 52
Guðm. Eggerz 43
Magnús Kristjánsson 39
Forseti (Ól. Br.) 37
Björn Kristjánsson 33
Benedikt Sveinsson 31
Sig. Sigurðsson 31
Eggert Pálsson 29
Jón Jónsson 26
Skúli Thoroddsen 26
Jóh. Eyjólfsson 23
Sig. Gunnarsson 23
Stefán Stefánsson 22
Þorleifur Jónsson 22
Björn Hallsson 19
Einar Jónsson 17
Þór. Benediktsson 12
H. Hafstein 10
Hjörtur Snorrason 1
Alls 1124