Vísir - 07.10.1915, Síða 2
V ISIR
VISIR
Afgreiðsla blaðsins á Hótel
Island er opin frá kl. 8—8 á hverj-
um degi,
Inngangur frá Vallarstræti.
Skrifstofa á sama stað, inng. frá
Aðalstr. — Ritstjórinn til viðtals frá
kl. 5-6.
Sími 400.— P. O. Box 367.
Tombólur
og leiksýningar.
Síra Ólafur Ólafsson skrifar grein
um »Stórhneikslan!egt ástand® í
Morgunbl. á sunnudaginn. — En
hvert þetta stórhneikslanlega ástand
er, veit eg ekki.
Tilefnið til greinarinnar virðist
vera það, að bæjarfógeti hefir tekið
upp þá reglu nú í dýrtíðinni, að
neita um öll tombóluley.fi. Þó virð-
ist síra Ólafur ekki telja það stór-
hneikslanlegt — hann telur það
jaínvel gott og sjálfsagt.
Hann talar mikið um trúða og
loddara í greininni. — Líklega er
það þá Siijison sá, sem sýningarnar
hélt í Iðno á dögunum, sem hefir
komið prestinum af stað. En þá
var það þó óneitaniega óheppilegt,
að greinin skyldi ekki koma út
nokkru fyrri, því að fyrir nokkrum
dögum skýrði Vísir frá því, að
bæjarfógeti hefði neitað manni þess-
um um leyíi til að halda fleiri sýn-
ingar en þær tvær, sem hann þá
hafði haldið. — Greinin virðistþví
koma eftir dúk og disk, ef ekki er
önnur ástæða.
En skyldi ekki önuur ástæða
gægjast upp hjá presti ?
Hann endar greinina með því að
»skora fastlega á bæjarstjórn og
bæjarfógeta, að láta einkis ófreistað
til að hefta allar leiksýningar og
loddarasýningar hér í bænum, með-
an ástandið er svo sakir harðæris
og ýmsra erfiðleika, að synja verður
góðgerða félögum bæjarins um
tombóluleyfi.*
Þetta virðist vera tilgangur grein-
arinnar.
Eg veit nú ekki hvort þarna er
átt við leiksýningar þær, sem Leik-
félag Reykjavíkur heldur uppi og
veittur er styrkur til á fjárlögunum.
Undarlegt væri það, ef síra Ó. Ó.
geröi sér nokkra von um árangur
af þeirri áskorna, þó að ómögulegt
sé að skilja orð hans á annan veg.
Það væri undarlegt að banna fram-
kvæmdir á því, sem veitt er fé til
að framkvæmt sé,
Eg ætla nú ekki að fara að rök-
ræða það við síra Ólaf, að svo
stöddu, hvern rétt leiksýningar Leik-
félagsins eigi á sér. Aðeins vil eg
benda á það, að hvergi í víðri ver-
öld munu slíkar sýningar vera
bannaðar vegna dýrtíðar. Og hvergi
í víðri veröld munu slíkar sýningar
vera taldar með sýningum loddara
og trúða.
En á hitt vil eg benda bæði
honuni og öðrum, að tombólur eru
alveg sérstök tegund skemíana.
Tombólur eru í raun og veru fjár-
hættuspil, þó að í smáum stíl sé.
Og það er einmitt aðallega þess
vegna, að þær eru nú bannaðar.
Það er gert láð fyrir því, að leik-
sýningar sæki ekki aðrir en þeir,
sem hafa efni á því, og það er
óhætt að fullyrða það, að enginn
fer í leikhúsið, ef við borð
liggur að hann svelti. En lom-
bólurnar sækir fjöldi manna í von
utn beinan peningalegan gróða.
Og þaö er auðvitað, að þeir sem
sækja þær í því skyni eru ekki
efnamennirnir, heldur e. t. v. ein-
mitt sama fólkið, sem tombólurnar
eru haldnar til að styrkja.
Með allri virðingu fyrir góð-
gerðafélögum bæjarins, verð eg að
segja það, að aðferðin til að afla
peninga til góðgerðanna er ekkí sú
skemtilegasta. í sjálfu sér eru pen-
ingarnir „narraðir“ út úr mönnum.
Mönnum er á tombólum gefin von
um gróða, sem í langflestum til-
fellum bregst.. Og þegar þess er
gætt, að fé það sem upp úr tom-
bólunum hefsf, að mjög miklu leyti,
kemur frá mönnum sem ekki eru
aflögufærir, þá liggur mér við að
efast um, að tilgangurinn helgi með-
alið. — Miklu viðkunnanlegra væri
að félögin söfnuðu gjöfum, því þá
væri þó áreiðanlegt, að þeir eimr
gæfu sem gætu.
Og að endingu þetta: eg er ekki
sannfærður um, að góðgerða-tom-
bólurnar eigi ekki meira skilt við
trúða og loddara en leiksýningar
Leikfélagsins.
_ J' M
Fjárlagafrumvarp
Breta.
21. f. m. átti að leggja fram í
enska þinginu fjárlagafrumvarpið.
Bjuggust menn við að skattar
og tekjur mundu auknar að mikl-
um mun. Sérstaklega var búist
við að tekjuskatturinn yrði hœkk-
aður. —
Kaupmenn höfðu tekið mikið
af tei, tóbaki, kaffi og áfengum
drykkjum úr tollgeymslu í byri-
un seftembermánaðar, en nokkr-
um dögum áður en fjárlagafrum-
varpið skyldi lagt fram var gef-
inn út konungsúrskurður um það
að enginn mætti framvegis fá
ofangreindar vörur úr tollgœslu
fyrr en ný fjárlög væru gengin í
gildi. Er þessi konungsúrskurð-
ur talinn líós vottur þess að toll-
ur af kaffi, tei og áfengum drykkj-
um verði hækkaður að miklum
m - w m
iwr Regnkápur.
Stórt úrvai!
ensr Sturla Jónsson.
m ♦ m
V. B. K.
er nýbúin að fá aftur
Dömukamgarnið
margeftirspurða.
Ennfremur er
Þaksaumurinn
þjóðarfrægi kominn.
Verslunin Björn Kristjánsson.
Nýmóðins gardínutau,
12 tegundir.
STUMPAR 6 teg., (þar á meðal rósóttir stumpa
BORÐDÚKAR (pluss og damask), SILKI,
SLIFSISBORÐAR, HÁRBORÐAR, HÚFUR (unglinga
drengja), SVUNTUR, MORGUNKJÓLAR, nýkomið til
Kristínar Sigurðardóttur,
Laugavegi 20 A.
.-»111-. •^iM viiri iiira. -^^^i
Frá því í dag seljum vér alla
oliu eftir vigt.
Tunnurnar reiknum vér sérstaklega á 6 krónur.
Allar þær tunnur, er vér afhendum eftirleiðis, kaupum vér aft-
ur á 6 krónur, hingað komnar oss að kostnaðarlausu.
Reykjavík 15. sept. 1915.
\slenstia sto\uaUuMutaS«foa.
Alfatnaður
seldur afar ódýrt.
Sturla fónssoUo
mun.