Vísir


Vísir - 30.11.1915, Qupperneq 2

Vísir - 30.11.1915, Qupperneq 2
v i i i K VISIR Afgreiðsla blaðsins á Hótel Island er opin frá kl. 8—8 á hverj- um degi. Inngangur frá Vallarstræti. Skrifstofa á sama stað, inng frá Aðalstr. — Ritstjórinn til viðtals frá kl. 1—3. Sími 400.— P. O. Box 367. ij' ‘JvSuv o$ i gufuhreinsað, lyktarlaust. Í Tilbúinn Sængurfatnaður. Frá bæjarstjórnarfundii 26. nóvember. Á víð og dreif. Eins og skýrt hefir verið frá snerust umræður aðall. um skóla- málin, en komu annars all-víða við. S i g h v. B j. kvað reka að því, að bæjarstj. yrði fyr en seinna að leita nýrra tekjustoína fyrir bæjar- sjóð. Niðurjöfnun orðin alt of há. Þó að fram úr því ráðist í þetta sinn vegna all-mikils gróða ýmsra manna, væri ekki á því byggjandi í framtíðinni, enda mætti ekki níð- ast á þeim mönnum sem héldu uppi aðalatvinnuvegi bæjarins. Nauð- synlegt að endurreisa nefnd þá, sem skipuð hefði verið til að at- huga ióðargjaldamálið o. fl. Sv. B j. gat þess, út af ummæl- um borgarstj. á síðasta fundi, að hann teldi enn nauðsynlegt, að finna ráð til að losna við sorpið úr bæn- um á annan hátt en að bera það í götur eða nota það til uppfyll- ingar á þeim stöðum, sem byggja ætti á. Þó að slíkt hafi verið gert víða, þá sé það alstaðar álitin óhæfa, frá heilsufræðisl. sjónarmiði. Oft kæmi það fyrir, að drepsóttir kæmu upp þar sem verið væri að grafa í sorphaugum; nefndi hann dæmi til þess frá sveitabæ einum, þar sem flest heimafóik hefði Iagst í taugaveiki og sumir dáið. Þetta ættu bæjarmenn á hættu. f göturn- ar væri altaf verið að grafa, fyrir vatni, ræsum, gasi o. s. frv. og í hvert sinn sem grafið er í götur, sem fyltar hafa verið upp með sorpi ætti bærinn á hættu að fá drepsótt yfir sig. —- Vildi heldur bíða eftir veginum yfir Tjörnina en horfa daglega á það, að börn væru að róta í slíkum óþverra. Ýmsir aðrir bæjarfulltrúar tóku eindregið í sama streng. Jón Þorláksson kvaðst hafa búist við að bæjarstjórn yrði verður haldið \ S. kaupmanns í Hafnarfirði miðvikudaginn næstk, (1. des.) og hefst ki. 11 árdegis á ýmsum verslunarvarningi og fleiru, þar á meðal: Olíufatnaður. Hveiti, Kex. Pyisur. Enn fremur verður reynd sala á fólksflutningavögnum, vöruflutningavagni og aktýgjum. hræddari við hækkunina á aukaút- svörunum en raun varð á En það væri eðlilegt, að gjöld hækkuðu nokkuð frá ári til árs. Hin mikla hækkun niðurjöfnunarinnar stafaði að nokkru leyti af því, að of litlu hefði verið jafnað niður 1914, fekju- halli það ár um 40 þús. kr. Það ár var jafnað niður um 140 þús., en hefði átt að vera 180 þús, og hefði niðurjöfnunin þá ekki orðið meiri nú en 212 þús. og hækkun- in þá að eins 32 þúsund. Út af líkkistufundinum í lóðinni bak við lyfjabúðina, vildi hann láta rannsaka hvort nokkuð hefði verið látið af hendi af gamla kirkjugarð- inum sem byggingarióð, því þá yrði að kippa því í lag og gera ráð- stafanir til þess að ekki yrði bygt á þeirri lóð. Siguröur Jónsson upp- lýsti að þessi baklóð lyfjabúðarinn- ar hefði smátt og smátt verið látin af hendi ti) trjáræktar og vildi j. Þ. þá láta slöðva bygginguna á henni, þar tii lyfsali hefði sótt um leyfi til að byggja á ný, því að leyfið hefði bygst á því, að þetta væri eignar- lóð hans. Borgarstjóri kvaðst ekki vita til að nein skrif væru til um þetta, engin þinglesin höft á lóð- inni og engrar leigu krafist eftir hana. Hún hefði því verið skoð- uð sem eignarlóð og væri bygg-< ingarnefnd eða bæjarstjórn því ekki gefandi sök á þessu. Það hefði verið sér kunriugt, að þarna hefði verið kirkjugarður en líka að um 80 ár væru síðan grafið hefði ver- ið þarna. Og þegar grafið hefði verið í Kirkjustræti hefðu að eins fundist einstök bein. Þorv. Þorvarðsson vildi láta gera alvarlega gangskör að því, að fínna nýjar tekjulindir fyrir bæ- inn og skipa nefnd í því skyni strax eftir nýár. Mintist á lóðar gjöldin en kvað þau ekki mundu nægja til að fullnægja þörfinni. En ýmsar aðrar uppástungur hefðu komið, fram, svo sem botnvörpuút- gerð o. fl. — Ef ekki yrðu fundin ráð til að lækka bæjargjöldin mætti jafnvel gera ráð fyrir því, að menn færu að flýja bæinn; væru dæmi til þess, að sjómenn teldu sér heimili erlendis að eins til að komast hjá því að greiða bæjargjöldin. — Einnig mintist hann á húsnæðis- leysið í bænum, og taldi óhjákvæmí- legt að bæjarstjórnin yrði að ráða fram úr þeim vandræðum, sem yfir bænum vofðu í því efni. Eyrirs, urn gerði hann um það, hvers vegna fjárhagsnefnd legði til að hætt yrði að leggja gasæðar í hús ókeypis, áleit þetta ranglæti.— En ekkert svar fékk hann við því. Samningur mílli Grikkja og Búlgara. ítalskt blað hefir nýlega birt samning, sem Grikkjir og Búlgarar | höiðu átt að gera með sérskömmu eftir að Venizelos fór frá völdum í haust. Hér fara á eftir aðalatriði samn- ingsins: Gríska stjórnin lofar að gæta al- gers hlutleysis gagnvart Búlgaríu, Tyrklandi og miðveldunum. Grikkir ábyrgjast að ekki skul ráðist á Búlgara þeim að óvörum frá Grikklandi. Gríska stjórnin lýsir því, að hún skoði her bandamanna í Saloniki, sem gest, og að henni sé ekkert um þann gest gefið, en geti þó ekki vísað honum á burtu. Hún lofar ennfremur að hún skuli enga hjálp veita þessum her. Stjórn Grikkja lýsir því ennfremur ! yfir, að hún telji bandalagssamn- inginn viö Serba algerlega úr gildi failinn, og að henni sé frjálst að | Tll M I N N I S: Baðhúsið opið «■ d. 8-8, ld.kv. til 11 Borgarst skrifií. í brunastöð opin v. d 11-3 Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2 og 4-7^ Bæjargjaldk, Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d Islandsbanki opinn 10-4. K. F. U. M. Alm. samk. sunnd. 8Vj siðd Landakotsspít. Sjúkravitj.tími ki. 11-1. Landsbankinn 10-3. Bankastjórn til við- tals 10-12 Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Utlán 1-3 Landssíminn opinn v. d. daglangt (8-9) Helga daga 10-12 og 4-7 Náttúrugripasafnið opið l‘/7-2'!„ síðd. Pósthúsið opið v. d. 9-7. sunnd. 9-1 Samábyrgðin 12-2 og 4-6. Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d. Vifilsstaðahælið. Hcimsóknart'mi 12-1 Þjóðmenjasafnið opið sd. þd. fmd. 12-2 Ókeypis lækning háskólans Kirkjustræti 12: Alm. lækningar á þriðjud. og föstud. kl. 12—1. Eyrna-, nef- og hálslækningar á föstud. kl. 2—3. Tannlækningar á þriðjud. kl. 2—3. Augnlækningar í Lækjargötu 2 á mið- vikud. kl. 2—3. taka upp hverja þá stefnu sem hún telji best henb til þess að Grikkir nái því takmarki sem þeir stefna að Búlgaría lofar að f/yfja burtu her sinn frá landamærum Grikklands, og hindra á engan liátt liðssöfnun Grikkja. Búlgaría afsalar sér öllu tilkalli til Kavalla og þeirra héraði í Make- doníu, sem Grikkir eiga nú. Hún lofar ennfremur að sjá um að Grikkir eignist þau Iönd í Albaníu sem þá lystir og kveðst muni styrkja þá til þess með vopnum ef á þurfi að halda. Enn fremur lofar Búlgaría að sjá Grikklandi fyrir vörum, sem þeir geti ekki flutt að sér á sjó. Samning þenna höfðu konungar landanna undirskrifað, Ferdinand og Konstantin, og fo sætisráðherrar þeirra, Radoslavoff og Zaimis. Boo&er WasBington látinn. Booker Washington frægur menta- frömuður af Svertingjaætt er ný lát- inn í Tuskeegee í Bandaríkjunum. Washington vann kappsamlega að þvi alla æfi að menta Svertingja í Bandaríkjunum og bæta kjör þeirra og varð vel ágent í því efni. Hann ferðaðist um Norðurálfuna fyrir 3—4 árum og var hvarvetna vel tekið. Þeir sem þurfa að sótthreinsa eða þvo tau af sjúkum, ættu að kaupa hina ágætu Regnbogasápu í Nýhöfn.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.