Vísir - 06.01.1916, Blaðsíða 2

Vísir - 06.01.1916, Blaðsíða 2
VISI R Afgreíðsla blaðsins á Hótel Island er opin frá kl, 8—8 á hverj- um degi, Inngangur frá Vallarstræti. Skrifstofa á sama stað, inng. frá Aðalstr.— Ritstjórinn til viðtals frá kl. 1—3. Sími 400.— P. O. Box 367. <J\W o$ JÖútvtv, gufuhreinsað, lyktarlaust. Tilbúinn SængurfatnaBur. Ameríka og Austurríki. Wilson forseti virðist vera maður ópennalatur og all-óspar á stóru orðin, þegar hann er að skrifa, en þar við lendir. Allir minnast Lusitaníumálsins. Wilson lét all-ófriðlega við Þjóð- verja í fyrstu, en þeir fóru að engu óðslega og teygðu svo úr bréfaskittunum, að Wilson rann reiðin áður en þeim lauk. Réttu hálfu ári eftir að Lusi- taníu var sökt (7. maí) sökti Austurrískur kafbátur farþega- skipinu Ancona, þ. 7. nóv. s. 1. Meðal farþeganna voru allmargir Bandaríkjaþegnar, og fórust marg- ir þeirra. <£ftir því sem sagt er frá þessum viðburði, hafa aðfar- ir kafbátsmanna verið all-níð- ingslegar; skutu þeir á skipið varnarlaust er það hélt kyrru fyrir, fult af saklausu ferðafólki, körlum, konum og börnum, skutu mörgum skotum áður en far- þegarnir fengu tima til að kom- ast í björgunarbátana. Sem vœnta mátti, þóttist Wil- son ekki geta tekið slíku með þögn og þolinmæði. Hann sett- ist því niður og skrifaði stjórn Austurríkis bréf og var nú jafn- vel þungorðari en nokkru sinni áður. Talaði hann um »níðings- verk, óhæfilegar og iöglausar áthafnir, villimannlega ómensku, sem alla siðaða menn hljóti að bjóða við«. Krefst hann þess að kafbátsformanninum verði hegnt og allir Bandaríkjaþegnar fái fullar bætur lífs og eigna og — svars um hæL Og svarið fékk hann, en í því er sagt, að ákærur Wilsons séu órökstuddar og í lausu lofti, eng- ar sannanir Iiggi fyrir um það, að aðförum kafbátsins sé þar rétt lýst, né að nokkur Banda- ríkjaþegn hafi beðið tjón af þeim. Þykir það undarlegt, að Wilson, í stað þess að færa lögfrœðis- leg rök fyrir kæru sinni skuli vitna til bréfaskifta sem hann hafi átt um alt annað mál við vfs;i alt annað ríki. Austurríska stjórn- in kvaðst engin kynni hafa af því máli, en telur óvíst að nokk- uð væri við það unnið að svo væri. En ekki er stjórnin ófús að ræða málið og henni þykir það leitt ef saklausir menn hafa mist lífið. Þetta svar var sendiherra Bandaríkjanna í Wien afhent þ. 14. desember s. 1. Frétst hefir að Wilson hafi talið svar þetta »ófullnægjandi«, og að hann hafi skrifað stjórninni í Austurríki nýtt bréf og enn harðorðara en það fyrra. Var um tíma talið líklegt, að slitið yrði stjórnmálasam- bandi ríkjanna. — En þar við situr enn. Líklega lognast þetta mál útaf j eins og Lusitaníumálið. En þó svo færi, að stjórnmálasamband- inu yrði slitið, þá er ólíklegt að til beins ófriðar dragi með Bandaríkjunum og Austurríki. Enda gætu Bandaríkin lítið að hafst annað en að hjálpa banda- mönnum um skotfæri og skot- silfur. En það mun miðveldun- um finnast lítið til um og ekki þykjast ver farin en áður. Yfirlýsing Venizelosar. —:o:— Vísir hefir áður'skýrt frá því, að hvorki Venizelos né flokksmenn hans hafi tekið þátt í þingkosning- um þeim, sem fram fóru í Grikk- landi í desembermánuði. En áður en kosningarnar fóru fram, gaf Venizelos út yfirlýsingu, sem hljóð- ar þannig: »Vér eigum nú að baki 50 ára stjórnfrjálsa æfi. Lok þess tímabils hefir þjóðin markað með afreks- verki og komið sinni þjóðlegu stefnuskrá að miklu leyti í fram- kvæmd. En svo verðum vér að horfa á það, að stjórnskipunin sé tætt í sundur eins og pappírsblað. Vér sjáum stöðuga hnignun í stjórn- inni. Það rekur að fyrirkomulagi, sem aðeins getur átt við í Iandi þar sem einveldi er, þar sem ein- valdsherrann er æösti valdhafi rík- isstjórnarinnar. Það er hreinasti skrípaleikur að láta kosningar fara fram, þegar meiri hluti þingmanna og flestir frjálslyndu kjósendurnir hafa verið kvaddir til herþjónustu. Flokkur- inn lætur ekki hafa sig til þess, að taka þátt í slíkum skrípaleik, sem er ósamboðinn frjálsri þjóð og þjóð- inni þvert um geð. Hann vill því hvergi koma nærri kosningunum. Flokkurinn leggur alla ábyrgð á herðar landstjórnarinnar, bæði á því að stjórnmálin eru komin af- vega og á þeim slysum sem slíkar aöfarir í stjórnmálum geta leitt af sér. En einhvern tíma rekur að því, R að þær ytri kringumstæður, sem þessu valda, verða um garð gengn- ar. Ef þjóðin verður þá ekki sokk- in svo djúpt í þessu stjórnmála- kviksyndi, að trú vor á sigur »hellenismans« verði ekki dauð, þá mun frjálslyndi flokkurinn á ný hefja baráttuna fyrir stjórnfrelsi landsins, baráttu, sem vér þá get- um háð óhultari en nú.« Á þennan hátt gerir hann grein fyrir afskiftaleysi sínu og flokks sfns af kosningunum. En hann segir ekkert um það, hvort hann hafi ekki í raun og veru orðið þvf feginn, að kontingurinn tók af hon- um ráðin. — En það mun flestra manna mál, að eins og nú er kom- ið á Balkan, muni það vera Grikkj- um fyrir bestu að láta kónginn ráða, jafn aðgerðarlausir og bandamenn eru þar. Glæfraförin. Saga frá Slesíu. ---- Frh. Það var komið fram á dag, þeg- ar L. kom aftur til sjálfs sín. Næt- urviðburðirnir stóðu honum fyrir hugskotskotssjónum. Höfuðþyngsl- in voru svo mikil, að hann hafði ekki vald á hugsunum sínura og honum fanst eins og hann væri all- ur í dróma. Endurminningin um hinn ægilega árekstur um nóttina og óp þess, sem misti lífið gagn- tóku huga hans. Hann var þá vald- ur að dauða eins manns eða fleiri og þessu verði hafði hann þá keypt líf barns síns. Átti hann nú rétt á því? Mátti hann frelsa það, sem honum var dýrmætt með kostnaði ^ annara? Hann bað til guðs, að hann Iosaði sig við þessa hræði- - legu martröð. Hann bað, ekki af vana eða af nauðung, heldur með því hugarþeli, sem eitt gat fróað honum. Angist hans var nú enn meiri en kvöldið áður; ókyrðin og ásakanirnar ætluðu alveg að gera út af við hann. Og svo var líka eftir að vita, hvort drengurinn lifði þá eftir alt saman. f stofunni, þar sem L. Iá, var fullkomin kyrð. Hann reyndi ár- angurslaust að reisa höfuðið frá koddanum, hann hné jafnharðan niður aftur. En við þessa hrær- ingu heyrði konan til hans og í sömu andránni sá hann andlit henn- ar, rautt af gráti, er hún grúfðist niður að hónum. María! reyndi hann að segja. Elsku vinur, mælti hún, en hvað eg verð fegin að heyra til þín; hamingjunni sé Iof. Þú hefir ver- ið svo lengi meðvitundarlaus og læknirinn hélt fyrst að þetta væri máttleysis aðkast. T I L MINNIS; Baðhúsið opið v, d. 8-8, ld.kv. til 11 Borgarst.skrifit. í brunastöð opín v. d 11-3 Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2 og 4-7 Bæjargjaldk, Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d Islandsbanki opinn 10-4. K, F. U. M. Alm. samk, sunnd. 81/, síðd Landakotsspít. Sjúkravitj.tími kl, 11-1. Landsbankinn 10-3, Bankastjórn til við- tals 10-12 Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Utlán 1-3 Landssíminn opinn v. d. daglangt (8-9) . Helga daga 10-12 og 4-7 Náttúrugripasafnið opið U/,-21/, siðd. Pósthúsið opið v. d. 9-7, sunnd. 9-1 Samábyrgðin 12-2 og 4-6. Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d. Vifilsstaðahælið. Hcimsóknarb'mi 12-1 Þjóðmenjasafnið opið sd. þd. fmd. 12-2 Ókeypis lækning háskólans Kirkjustræti 12: Alm. Iækningar á þriðjud. og föstud. kl. 12—1. Eyrna-, nef- og hálslækningar á föstud. kl. 2—3. Tannlækningar á þriðjud. kl. 2—3. Augnlækningar í Lækjargötu 2 á mið- vikud. kl. 2—3. Hvernig líður Brúnó, er hann lifandi ? Já, fyrir guðs náð, læknirinn gerði skurð á honum og það tókst mjög vel. Hann sagði, að það hefði varla mátt muna einni stundu, en nú væri hann úr allri hættu. Hann kemur bráðum aftur til þess að Iíta á drenginn, áður en hann fer heim, en hann var sóttur héðan til manna, sem höfðu særst-við brautarslys.— Það er sagt, að einn maðurinn sé dauður, en margir særðir. Annars veit eg ekkert nákvæmlega um þetta, því maðurinn sem kom hafði hrað- an á og gat ekki sagt meira. — Reyndu nú að sofa og vera róleg- ur, góði minn; eg kem svo aftur til þín, þegar læknirinn kemur. — Hún kysti svo mjúklega á enni manns síns, en gekk síðan í næstu stofu, þar sem barnið þeirra svaf. Einn maður dauður, aðrir særðir — ef til vill einnig til ólífis! Og alt var þetta honum aö kenna! Að vísu hafði þetta orðið mót vilja hans, því að honum gekk ekki ann- að til en að bjarga lífi barnsins.— En var honum heimilt að fara af stað um hánótt, þegar kyrð var yfir öllu og ekkert merki gat orðið gefið og hættan því enn ægilegri? En hvað stoðuöu nú þessi heila- brot og þessar ásakanir ? Ekki varð hinn dauði aftur vakinn til lífsins og ílysið varð ekki aftur tekið. En hvað lá nú fyrir þeim, sem öllu þessu hafði af stað komið? Væg- asta refsingin hlaut að vera stöðu- missir og fangelsi. En ennþá sár- ari en atvinnutjón var þó rödd samviskunnar, er um alla eilífð ntyndi ásaka hann um dauða þessa manns. Ftamh.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.