Vísir - 10.01.1916, Side 3
VfSI R
ÍSkeMúl S sfoou o§ fc&mpavnxx S^'
ö IMIiar
5)t\jaxv\epp\
xm^ioxxmxi,
Sturla Jónsson.
Allir
sem kaupa fyrir
- f á —
ir 3 kr,
gefins veggalmanak.
Verslun Guðmundar Egilssonar
Sími 152 - Laugavegi 42 - Sími 152
Tvö íbúðar-
hús
lítil, vönduð, óskast til kaups
fyrir mið.jan þennan mánuð.
Þeir sem vilja selja snúi sér tii
Húsnæðisskrifstoíunnar
á Grettisgötu 38.
Prjóna-
tuskur
kaupir hæsta verði gegn
peningum út í hönd
yúsi\átv 3oxvssoxv?
Sími 286. Frakkastíg 7.
Hinir margeftirspurðu
Rakhnífar
eru aftur komnir einnig
Stálvírskambar
Hárvax,
Decinfektor.,
Handsápur o.fi.
Rakarastofan í
Austurstræti 17.
Eyjólfur Jónsson.
Jögmenn
Oddur Gíslason
yfirrétt&rmálaflutningsmaður,
Laufásvegi 22.
Venjulega heima kl. 11-12 og 4-5.
Simi 21
Bogi Brynjólfsson
yfirrjettarmálaflutningsmaður.
Skrifstofa Aöalstræti 6 (uppi.)
Skrifstofutími frá kl. 12-1 og 4-6 e. h.
Talsími 250.
Pétur Magnússon
yflrdómslögmaður,
Grundarstíg 4.[* Sími 533
Heima kl. 5—6.
§exv&v3 au$^s\xigax
Uxxvaxvte^s.
Skúfatvinninn
— ágæti —
er kominn aftur í versl.
Su&m. Gtsen.
Kökur og Kex,
margar tegundir,
f á s t á v a 11 í
Nýhöfn.
Skyr
fæst daglega í bakaríi
Kr. B. Símonarson,
Vallarstræti 4.
JSest aí
au^sa v "Ovsv.
Vátryggið tafalaust gegn eldi
vörur og húsmuni hjá The Brit-
ish Dominion General Insu
ance Co. Ltd.
Aðalumboðsm. G. Gíslason
Sæ- og stríðsvátrygging
Det kgl. oktr. Söassurance Komp.
Miðstræti 6. Tals. 264.
A. V. TULINIUS.
Aðalumboðsmaður fyrir ísland
Trygð og slægð.
Eftir
Guy Boothby.
23 -----
Frh.
•— Alt okkar ferðalag er auð-
vitað rokið út í veöur og vind, og
nú til þcss að kóróna alt annað.
Þá ert þú svo ósvífinn að biðja mig
*ð vera skálkaskjól fyrir þig, og
Þjóða mér miðdagsverð hjá Lalle-
°iand, sem myndi setja í mig maga-
v^iki í vikutíma. Og svo Wagner
® eftir, sem myndi láta mig verða
*°k-öskuvondau í heilan mánuð.
— Hvernig veist þú, að eg ætli
nota þig fyrir skálkaskjó)?
s0urði Browne dálítið gramur. Það
er eins og önnur vitleysan í þér
a® segja annað eins,
Já, hvernig veit eg alla skap-
a®a hluti, sagði Jimmy mjög ró-
eSa« Auðvitað af því, að eg er
^eð heilbrigöri skynsemi, en ef þú
heldur svona áfram þá er eg gróf-
Iega hræddur um, að þú verðir
það ekki lengi. Þú ert auðvitað á
hælunum á þessari stúlku, og eg
ímynda mér að fyrst þær ætla að
verða tvær þá þurfir þú að fá ein-
hvern til að balda hinni í skefjum.
— Þú ert næstum því ókurteis,
sagði Browne, því að honum fanst
nú að virðingu sinni væri mis-
boðið.
— Það er sagt, að menn á okk-
ar aldri séu það oft, sagði Foote.
Heldurðu að eg viti ekki af eigin
reynslu, hvers konar »matrona« hitt
hlýtur að vera?
— Ef þú veist það, þá ertu
vitrari en eg hélt, svaraði Browne.
— Það er nauðsynlegt, að hafa
opin augun nú á tímum, svaraði
Jimmy. En í alvöru talað, gamli
minn, ef þú vilt þá skal eg ekki
láta mig vanta við miðdagsverðinn.
En eg vil enga ábyrgð hafa á því,
hvað fyrir kemur. Eg vil ekki, að
hver kerling í London, sem á dóttir
á giftingaraldri skelli á mig allri
skuldinni.
— Þú þarft ekkert að óttast,
sagði Browne. Eg skal ekki láta
þig hafa ábyrgð á neinu. En þú
lætur það þá ekki bregðast að
koma. Eg má reiða mig á þaö?
— Auðvitað *mátt þú það, bæði
í þessu og öðru, svaraöi Foote.
Svo lagði hann hendina á öxlina á
Browne og bætti við: Kæri gamli
vinur. Þrátt fyrir okkar löngu vin-
áttu, þá held eg ekki að þú þekkir
mig rétt. Eg er hræddur um að eg
tali stundum talsverða vitleysu, en
ef þú ert annars vegar þá er hjart-
að á réttum stað. Mér dettur þetta
í hug nú af því að eg er ekki al-
veg viss um iiema að það væri
það besta sem þú getur gert að
kvongast sem fyrst, svo að ekki
yrðu fleiri leiðindi í heiminum
þess vegna. En auðvitað mál er
það, að manni þykir ekkert gaman
að því að láta rífa vinina svona út
úr höndunum á sér. Alt annað
mál er með þig.
— Kæri félagi minn, sagði
Browne. Það var engin vitleysa,
sem þú sagðir rétt áðan, að þú
talaðir stundum mikla vitleysu.
Hvenær hefi eg minst á að kvong-
ast? Auðvitað dettur mér það ekki
í hug, Mér hefir aldrei þótt mikiö
til slíks koma. Altaf er það svona,
undir eins og karlmaður sýnir stúlku
dálitla aukakurteisi, talar við hana
svo sem fimm mínútum lengur e*
hann var vanur áður eða dansar
tvisvar við hana sömu nóttina, þá
dettur engum annað í hug, en að
þau séu í þaun veginn að giftast,
og mönnum finst ekki vera annað
eftir en að velja brúðargjafirnar,
sem þeim eru ætlaðar.
— Þegar einhver maður ver öll-
um tíma sínum í svona sérstakt,
eins og þú nú hefir gert, þá er
svei mér ekki að furða þótt vinir
hans láti sér koma til hugar að
eitthvað sé á seyði, sagðijimmy,
en auðvitað ert þú sjálfur þínum
hnútum kunnugastur. Hvenær á
eg að koma til miðdagsverðarins?
— Klukkan sjö, sagði Browne.
En mér þætli vænt um ef þú gætir
komið svo sem fimm mínútum
fyrir þann tíma. Mundu, að við
förum á eftir í sönghöllina.
— Eg býst varla við að eg
gleymi því, sagði Jimmy, og það
var auösær þjáningarsvipur á and-
litinu.