Vísir - 06.02.1916, Blaðsíða 4
VfSIR
«
Bréfin aðflutt,
— blærinn — ?
það gleður mig að bænakeðju-
bréfin eru ekki einu sinni sprott-
in af kaþólskri hjátrú samkvæmt
skrifi prestsins í Landakoti í dag,
en því miður mun margur halda
að „vingjarnlegi" blærinn á þessu
skrifi hans sé reglulega kaþólsk-
ur. Hvort það sé rétt, þori eg ekki
að fullyrða neitt um, — hefi ekki
lesið nógu mörg kaþólsk tímarit
til þess.
Annars væri fróðlegt ef ein-
hver gæti og vildi skýra frá hver
hafi komið þessum keðjubréf-
um af stað hér í bæ í vetur.
5/2 1916.
S. Á. Gíslason.
Á Laugavegi 24
er nýkomið:
Káputau, kven- og telpukápur, karlmanns regnkápur,
nærfatnaður, stumpasirs, morgunkjólar,
svuntur, náttkjólar og margskonar
álnavara sem selst með afarlágu verði.
Húsnæðisskrifstofan
— á Grettisgötu 38 —
vill hérmeð minna þá menn, er í vetur ætla að kaupa húseignir hér
í bœnum, á að koma á skrifstofuna og gera þar húsakaup sín
fyrir 14. þ. m. því þann dag verða flest hús leigð nœstk. ár.
Gœtið þess að hús hækka í verði og húsaleiga stígur.
Sýnið hyggindi yðar í því að kaupa hús meðan tækifærið býðst.
Styrkur
handa fátækum veikum stúlkubörnum í Reykjavík verður veittur úr
S\$\\3a\ ?ifvo\ö&dsetv.
Aðstandendur sendi beiðni um styrkinn ásamt lœknisvottorði
til forstöðunefndar Thorvaldsensfélagsins Austurstræti 4, fyrir 20.
febrúar næstkomandi.
Kaffar úr bréfi
frá Atidré Courmont
tll dr. Guðm. Finnbogasonar rit-
uðu á íslensku 17. jan. þ. á.
-------„það er besta hressing
mín að lesa íslensku. Og svo
er nú annað: eins og þúveister
eg nú við Bureau de la Presse
Etrangére í París; starf mitt er
að lesa útlend blöð, sérstaklega
ensk, og þýða það sem mér finst
merkilegt, eða þá bara benda á
það. Aðrir vinna í þýskum,
hollenskum etc. blöðum; við les-
um næstum því hvert einasta
blað sem kemur út í heiminum.
Nú ætla eg að stofna íslenska
grein í þeirri stofu.----Sendu
mér þau blöð sem þér finnast
best til þess fallin, að fræða mann
um hugarfar og skoðanir íslend-
inga um stríðið, hagfræðilegar
framfarir, útlenda pólitík, merki-
lega atburði á sjó og landi o. s.frv.“
-----„Nú líður mér bærilega;
einn fingur er ónýtur á hendinni
og hægra augað fjarska slæmt;
yfír höfuð er eg ekki eins hraust-
ur og eg var: mér er nokkuð ilt
í taugunum; en það lagast með
tímanum------“.
„Eg veit ekki með vissu hvort
eg eigi ekki eftir fáa mánuði að
fara í“;skotgryfjur, en það getur
vel skeð--------“.
hvers þessara þriggja, fengið nán-
ari upplýsingar um félagið og
greitt fyrsta árstillag sitt (5 kr.).
Samkvæmt 2. gr. félagsins er
tilgangur Listvinafélagsins, „að
efla þekkingu og áhuga íslend-
inga á fögrum listum í þrengri
merkingu, þ. e. dráttlist, pentlist,
höggmyndalist og húsagerðarlist;
að vinna að útbreiðslu góðra lista-
verka og eftirmynda þeirra; að
gera íslenskum listvinum hægra
fyrir að kynnast framförum er-
lendra lista, og að auka þekkingu
á íslenskum listum erlendis8.
Samkv. 4. gr. laganna, býst
félagið við að gefa út (listrit og
myndir) sem félagsmenn fá ó-
keypis. Félagið mun ætla sér að
kaupa listarit ýms til afnota fyrir
félagsmenn, halda skemtandi og
fræðandi fundi o. s. frv.
Landsins stærsta úrval
af
rammalistum -
er á Laugavegi 1.
Innrömmun fljótt og vel af hendi
leyst. — Hvergi eins ódýrt.
£U\B \wt\ á£auga\).\
saml\c^\ati&\
til leigu á besta stað í bænum,
mjög hentug fyrir skrifstofur eða
prufu-lager.
Upplýsingar hjá
Andrési Andréssyni klæðskera.
»
Listvinafélag Islands
var stofnað hér á fímtudagakvöld
af SCP’mönnum, konum og körl-
um. Var fyrir jólin haldinn und-
irbúningsfundur undir þennan
stofnfund og þá kosnir nokkrir
menn til að semja frumvarp til
laga félagsins. Eftir að þetta
frumvarp nú hafði verið sam-
þykt sem lög fyrir félagið, var
kosin hin fyrsta stjórn þess: Rík-
harður Jónsson form. (til þriggja
ára), þórarinn þorláksson gjald-
keri og Matthías þórðarson rit-
ari. Geta þeir, sem óska inn-
göngu í félagið, snúið sér til ein-
Hingað til hefir lítið verið unn-
ið hér á landi að útbreiðslu á
fögrum listum og þekkingu manna
á þeim. Listamönnum fer nú
óðum fjölgjandi og áhugi manna
á listum fer sívaxandi. þessi fé-
lagsstofnun er einn þáttur íþess-
ari framfarahreyfingu og vér vilj-
um láta í ljósi þökk vora tilfor-
göngumannanna og heillaósk vora
til félagsins.
• það skal tekið fram, að þetta
félag er vitanlega ekki fyrir íbúa
höfðuðstaðarins eina, heldur alla,
sem vilja styðja að tilgangi þess
innan lands sem utan og hikum
vér oss ekki við, að ráða mönn-
um fastlega til að ganga í þetta
félag.
1—2 herbergi til leigu fyrir ein-
hleypa frá 14. maí. A. v. á.
2 lítil herbergi og eldhús, annað-
hvort á Lindargötu eða Laugavegi,
óskast til leigu 14 maí. A. v. á,
Lítil 3ja herbergja íbúð í austur-
bænum, óskast til leigu 14. maín.k.
A. v. á.
Fyrir einhleypan kvennmann ósk-
ast til leigu 14. maí Iítið herbergi.
A. v. á.
Stór stofa án húsgagna til leigu
á góðum stað í Austurbænum. A. v. á.
Stofa til leigu frá 14. maí (aðeins
fyrir einhleypa). A. v. á.
Þrifin og barngóð stúlka getur
fengið vist á frá 14. maí næstkom-
andi á fámennu heimili. Hátt kaup.
Afgr. v. á.
Karlmannsföt fást saumuð á Hverf-
isgötu 84. Vönduð vinna en ódýr.
10 króna seðill fundinn syðst á
Þingholtsstræti. Vitjist á afgr. Vísis.
Lyklar hafa tapast frá Hótel ísland
upp á Kárastíg. Skilist á afgr,
Lyklar fundnir. Vitjist í Austur-
stræti 18.
Brjóstnál með 3 steinum fundin.
Vitjist gegn borgun þessarar aug-
Iýsingar á afgr. Vísis.
Týnst hefir 4. febr. peningabudda
með um 8 kr. í — vafin í vasa-
klút. Biðst skilað í Tjarnargötu 11
gegn fundarlaunum.
Peningabudda með 15—16 kr.
í tapaðist í miðbænum í gær. Skil-
ist á afgr. Vísis.
-
Kvensvipa merkt »Guðrún« tap-
aðist frá Baldurshaga að Geithálsi.
Skilist á afgr. gegn fundarlaunum.
KAUPSKAPUR
Morgunkjólar smekklegastir,
vænstir og ódýrastir, sömuleiðis
langsjöl og þríhyrnur eru
ávalt til sölu í Garðastræti 4 uppi.
(Gengið upp frá Mjóstræti 4).
Verslunin Bókabuðin á Lauga-
vegi 22 selur brúkaðar bækur með
miklum afslætti.
Fallegir kvenngrímuhún-
ingar til sölu eða leigu á Grett-
isgötu 2 (uppi).
Nýr svartur silkikirtill til sölu með
tækifærisverði. Afgr. vísar á.
Lílið hús til sölu.
Af sérstökum ástæðum er lítið
hús til sölu á góðum stað mót sól,
getur verið laust til íbúðar 14. maí.
Afgr. v. á.
Skemtibátur, nýr, vandaður og sér-
staklega vel bygður, er til sölu.
Agreiðsla vísar á.
okkur þorskanet með góðum
teinum eru til sölu, einnig sexmanna-
far með góðum útbúnaði. Semja
ber viö Ólaf Ingimundarson Bygð-
arenda.
Góður bátur fæst keyptur. Afgr.
vísar á.
Fallegur kvengrímubúningur til
sölu eöa leigu á Laugavegi 25.
Kronus-net og glös fást á Vita-
stíg 14.