Vísir - 09.03.1916, Side 3
VjTs I R
Regnfrakkaefnin
eftirspurðu nýkomin.
G-nðm. Bjarnason.
Sótai’asyslanin
í Reykjvík er laus frá 1. apríl
næstkomandi.
Umsóknir sendist borgarstjóra fyrir 13. mars. i
Chairman og ViceChair
Cigarettur
§É@r eru toestar.,
REYNI Ð Þ Æ R.
Pœr fást í öllum betri verslunum og í heildsölu hjá
T. Bjarnason,
Umboðsverslun Templarasundi 3
Sími 513
Dugleg
inni-stiílka
getur fengið vlst 14. maf.
Gott kaup!
Frú Kaaber,
Hvg. 28.
COGMEN
13
Prentsmiöja Þ. Þ. Clementz.
Oddur Gísiason
yfirréttarmálaflutningsmaður
Laufásvegi 22.
Venjulega heima kl. 11-12 og 4-5
___________Simi 1 2___________
Pétur Magnússon
yflrdómslögmaður,
Grundarstíg 4. Simi 533
Heima kl. 5—6.
Bogl Brynjólfsson
yfirrjettarmálaílutningsmaður.
Skrifstofa Aðalstræti 6 (uppi.)
Skrifstofutírai frá kl. 12-1 og 4-6 e. h.
Talsími 250.
^V^TRYGGIN^^J
Vátryggið tafalaust gegn eldi
vörur og húsmuni hjá The Brit-
ish Dominion General Insu
rance Co. Ltd.
Aðalumboðsm. G. Gíslason
Sæ- og stríðsvátrygging
Det kgl. oktr. Söassurance Komp
Miðstræti 6. Tals. 254.
A. V. TULINIUS.
Aðalumboðsmaður fyrir fsland
Det kgL octr.
Brandassurance Comp.
Vátryggir: Hús, húsgögn, vörur
alskonar.
I Bæjaríréttir
Afmæli í dag:
Guðni Guðnason, bóndi.
Magnús Jónsson.
Sigurjón Pétursson, kaupm.
Þórunn Thorsteinsson.
Afmællskort með íslensk-
um erindum fást hjá Helga
Árnasyni í Safnahúsinu.
Dansleik
halda iðnaðarmenn
laugardaginn.
Iðnó á
Skrifstofutími 8—12 og 2—
Austurstræti 1.
N. B. Nielsen.
8.
Landsjóðskolin.
í blaðinu íslendingi er sagt frá
því, að kolaekla sé á Akureyri, og
hafi bæjarstjórnin þar fengið loforð
um 130 smál. af kolabirgðum land-
sjóðs sem hér liggja.
Mjölnir og gaskolin.
Þess skal getið, að Mjölnir var
á leið til Englands til að sækja kol,
þegar hann kom til Færeyja og
sagt var að reynt hefði verið að fá
hann til að flytja gaskolin hingað.
Það var því ómögulegt fyrir hann
að verða við þeirri beiðni. Um
eigendaskifti að skipinu er sagt að
eklcert sé fullráðið.
Söngfél.'17. júní
efnir til samsöngs í Báruhúsinu
í dag. — Alllangt er nú orðið
síðan fél. hefir látið til sín heyra
S og mun bæjarmönnum þykja tími
tii kominn.
Trúlofun.
Ungfrú Bjarnfr. Óladóttir, Skóla-
vörðust. 12 og Oddur Guðmundj-
son á Geir.
Föstuguðsþjónustur:
í kvöld (fimtudag) í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði kl, 7 sr. Ó'. Ó!.
Menn eru beðnir að hafa Passíu-
sálmana með sér í kirkjuna.
Trygð og slægð.
82
Eftir
Guy Boothby.
Frh.
. ^eð hringinn á fingrinum og
ast’na til hennar í brjósti sér skyldi
an° leysa af hendi það sem hann
ha,»i á«tt sér.
vitum svo lítið hver um
annan- Eg á ekki við orð og gerð-
’ Setn daglega koma fram í dags-
■duna, heldur þau áhrifamestu at-
V|k» sem venjulegast eru hulin öðr-
Utn> en oft og einatt ráöa forlög-
Um manna. Ef nú, til dæmis að
ráðu emt)ætt'smaöur‘nn ur utanríkis-
pa]jjneytinu, sein stóð á járnbrautar-
var í ^ a Waterloo-stöðinni og
sveit'að^h1" Veginn 30 fara UPP ‘
ef hann Z^V]* kunninSÍa sinn>
#Slnborna m' 'aÞ
SVO alúðieaa n’ Sem hann hellSað'
ðlega> voruíþann veginn að
fara úr landi til þess að gera vin-
veitlu ríki óþægilegan grikk,hvern-
ig myndi honum þá hafa verið
innanbrjósts? En hann vissi það
nú ekki og því settist hann í ró
og næði innn í reykingavagninum,
las sunnudagsblaðið sitt og lét fara
vel um sig og vissi ekkert hvað í
vændum var.
Klukkan var nær átta þegar þeir
komu til Southampton. Þeir fóru
þegar niður að höfninni. Þar beiö
eimbáturinn frá listiskútunni þeirra.
Lótusblómið lá úti á höfninni. Og
þegar þeir komu út í skipið, tók
Mason skipstjóri á móti þeim í
stiganum.
— Jæja, Maíon, sagði Brownfe.
Er nú ait svo undirbúið að við
getum lagt af stað á morgun?
— Alt er tilbúið, herra minn,
sagði Mason. Þér þurfið ekki ann-
að en segja til hvenær þér viljið
leggja at stað og þá læt eg draga
upp akkerin.
Browne langaði til að leggja
undir eins af stað, en það var ekki
hægt. Hann gat ekki annað en
látið hugann dvelja við alt, sem
skeð haföi síðan skipið, sem nú
átti að flytja hann austur í heim
síðast var statt á höfninni í Merok.
Hann óskaöi þess með sjálfum sér,
að ekki þyrftu margar vikur að
líða þangað til þau Katrín stæðu
bæði á þessari skipsíjöl. Honum
datt ekki í hug að gera sér nokkuð
í hugarlund um það, hvað þau
ættu að gera af föður hennar ef
þau yrðu svo heppin að ná hon-
um. Því átti Katrín alveg að ráða.
Hann vaknaði af þessum dag-
draumum sínum við það að Foote
spurði hann að því, hvort hann
ætlaðist til að gestir hans ættu að
gista á þilfarinu um nóttina eða
hann ætlaöi að bjóða þeim niður
undir þiljur.
— Fyrirgefið mér, sagði Browne.
Það er ákaflega ókurteist af mér,
að hafa látið ykkur standa hér svo
lengi. Gerið þið svo vel.
Þeir fóru nú niður í salinn.
Þar var alt undirbúið komu þeirra.
og þjónarnir voru einmitt að leggja
á borðið þegar þeir komu inn.
Þegar þeir höfðu matast, fóru þeir
aftur upp á þilfar. Foote og Maas
gengu þar inn í reykingasalinn en
Browne fór upp á stjórnpallinn til
þess að tala við skipstjórann, Þegar
hann kom þaðan ofan að aftur,
þá sagði hann gestum sínum að í
birtingu morguninn eftir yrði snekkj-
an lögð af stað og svo yrði ekki
numið staðar fyr en við Gibraltar,
til þess að taka kol.
— Bravó! hrópaði Foote og
sló í borðið með pípunni sinni.
Guði sé lof. Um hádegi verðum
við komnir út úr sundinu.
Nú datt vindillinn úr hendinni
á Maas og niður á gólfið. Hann
beygði sig niður til þess að ieita
að honum, en gat ekki fundið
hann dálitla stund. Þegar hann leit
upp aftur, þá var breytt orðiö um
umtáisefni. Browne hafði nefnilga
dregið úrið sitt upp úr vasanum,
og rak nú upp undrunaróp og
sagði:
— Hafið þið nokkra hugmynd
um það, hvað klukkan er?
Þeir játuðu að svo væri ekki.