Vísir - 11.03.1916, Page 4
I
VÍSIR
Háskólahátíðin
sem stúdentar háskólans stofnuðu
til í Bárubúð á sprengidagskvöld,
hafði verið fjölmenn og skemtileg.
Þátttakendur um 130. Hófst hátíð-
in með borðhaldi. Formaður Stúd-
entafélags háskóians, Gunnar Sig-
urðssor* frá Selalæk, setti hátíöina
og bauð menn velkomna. Steinþór
Guðmundsson talaði fyrir minni
háskólans og kennaranna, rektor
háskólans, Guðm. próf. Hannesson
fyrir minni stúdentanna og Gunnar
Sigurðsson fyrir minni kvenna.
Síðar. var dansað fram á morgun.
17. júní
hélt samsöng í gær og í fyrra-
dag. Sem vænta mátti, var aðsókn
mikil og skemtun góð. Sungu þeir
einsöngva: Einar Indriðason, Pétur
Halldórsson og Ragnar Hjörleifs-
son. Þótti allur söngurinn fara vel,
en einkum þótti mikið koma til
Sommernat (eftir Myrberg), Olaf
Tryggvason (Reissiger) og Fred-
mans song nr. 33 (Bellmann).
Loftskeytin.}
Mörgum manninum þótti ein-
kennilegt, að svo brá viö, að þeg-
ar blööin tilkyntu að sæsíminn
væri kominn í lag, þá höfðu þau
engin skeyti að birta, En svo er
tr.áI tneð vexti, að efamál et að
leyfilegt sé að birta Ioftskeytin, þeg-
ar síminn er í lagi, nema þá að
íandstjórnin láti gera það.
Botnvörpungar
2 komu til bæjarins í nótt,
báðir nýkeyptir frá Hollandi. Eru
það fiskiveiðafélögin Haukur og
Defensor sem þá eiga. Heita
þeir Porsteinn Ingólfsson og Pór.
Skipafregnir.
G u 11 f o s s fór frá Leiíh á
leið til Kaupmannahafnar 4. marz
I s1 a n d kom í morgun frá
útföndum. Hafði skipið meðferðis
frá Vestmannaeyjum lík Jóhann-
esar Einarssonar stýrimanns af
Valtý.
C e r e s fór frá Leith í gær á
leið hingað (norður um land).
B o t n i a fer að líkindum frá
Leith 4. þ. m., beina leið hingað.
Frá útlöndum
komu á Islandi: Gustaf Grön-
vold, Hanson kaupmaður, Han-
sen bakari, Magnús Magnússon
kennari, Vestskov verslunarstj.
og kona hans o.fl. Frá Ameríku
kom Jón Sigurðsson fyrrum fó-
getafulltrúi.
Verkamannastr aumur
og
v i n n u e k I a .
Eitt af mörgu sem verkamanna-
félag þessa bæjar þyrfti að íhuga
og leita að þeim leiðum, sem
framkvæmanlegastar væru til þess
að geta veitt mótspyrnu, er hinn
mikli verkamannastraumur er
hingað stefnir á hverjum vetri,
og hrifsar að meiru eða minna
leyti atvinnu þá, sem hér er fá-
anleg í bænum síðari hluta vetrar
og vor úr höndum bæjarmanna.
Margt af þessum mönnum er
hingað safnast eru sveitabændur,
er fara hingað til þess að afla sér
peninga, þann tímann sem þeir
hafa minst að gera við heimilið,
eða þá vinnumenn þeirra sem
sendir eru hingað af sömu á-
stæðum. Ennfremur kemurhing-
að fjöldi lausamanna, að vestan,
austan og norðan, alstaðar að, að -
heita má landshornanna á milli.
En það er ekki nóg með þaö,
að þessir menn hrifsi atvinnuna
úr höndum verkamanna bæjar-
ins, heldur íþýngja þeir þeim
persónulega með dvöl sinni hér.
það mun ekki svo sjaldgæft, að
þessir menn, er þeir hafa komið
sér inn hjá kunningja, vini, frænda
eða gömlum sveitunga, — slíku
er þráfalt hampað þegar verið er
að koma sér fyrir — hafi gætt
þess vel að láta ekki ofmikið af
hendi rakna, er þeir hafa farið,.
fyrir aðhlynning og önnur óþæg-
indi er þeir hafa valdið. Frá
þessu eru. auðvitað heiðarlegar
undantekningar.
það mun ekki fjarri sanni, að
allflesta daga, frá byrjun apríl til
júníloka gangi eða hafi gengið
undanfarin ár, einhverjir af bæjar-
búum að meiru eða minna leyti
vinnulausir vegna þessara að-
komumanna, sem margir hverjir
vinna daga og nætur þegar þess
er kostur, meðan þeir eru og því
miður munu hafa fundist hér þeir
vinnuveitendur er hafa fremur
tekið þessa menn en bæjarmenn,
þó gnægð þeirra hafi verið á
boðstólum. Af hverju það hefir
stafað, skal eg láta ósagt, en varla
mun það fjarri að geta þess til,
að það hafi átt sér stað, að þeir
hafi boðið sig fyrir lægra kaup
en bæjarmenn, einkum á helgi-
dögum.
Eg hefi oft unnið hér að eyr-
arvinnu, uppskipun o. s. frv. og
hefir mér ekki fundist að þeir
innu að jafnaði betur en bæjar-
menn, svo varla getur það stafað
af því, að þeir gangi fyrir hjá
vinnuveitendum, auðvitað hefi eg
séð suma þeirra gæta þess vel
að keppast sem best við meðan
yfirmenn sjá til, en slíkir menn
finnast alt af innanum.
Eins og nú standa sakir væri
þess full þörf að geta beturtrygt
verkamönnum bæjariss þá atvinnu
sem vinnuveitendur hér geta veitt
því ekki verður því neitað, að nú
sem stendur kemur dýrtíðin harð-
ast niður á verkalýð kaupstað-
anna. Sveitamenn þar á móti
standa vel að vígi, vegna árgæsku
og hins afarháa verðs er þeir
hafa fengið fyrir afurðir sínar.
Frh.
Víkingarnir frá Canada
Svo heitir hersveit sem verið er
að stofna í miðfylkjunum í Canada.
Eiga eingöngu að vera í henni
menn frá Norðurlöndum eða af
norrænu bergi brotnir. Að líkind-
um veröa einhverjir íslendingar í
þeirri sveit.
Wilson sigrar.
Wilson Bandaríkjaforseti tók
illa í tilkynningu Þjóðverja um
að eftir 1. marz mundu þeir
skoða öll vopnuð kaupför óvina-
þjóða sem herskip. Hafði for-
setinn lýst yfir því, að ef nokk-
ur Bandaríkjaþegn léti lífið við
það að vopnuðu kaupfari vœri
sökt, þá mundi hann hætta öllu
stjórnmálasambandi við Pýzka-
land. Margir þingmenn í Banda-
ríkjunum voru á gagnstæðri
skoðun í þessu máli. Vildu þeir
láta aðvara menn opinberlega við
að taka sér far með vopnuðum
kaupförum. Krafðist Wilson þá
að greitt væri atkvæði á þingi
hvort það skyldi gert eða ekki.
Stóð fyrst rimma um málið í efri
deild, því þar hafði Gore þing-
maður úr flokki Wilsons komið
fram með tillögu um að vara
menn við vopnuðum kaupförum.
Lauk deilunni svo að tillaga Gore
var vísað frá með 68 atkv. gegn
14 atkv.
Eftir því sem skýrt var frá í
loftskeytunum fór fram atkvæða-
greiðsla um málið í neðri mál-
stofunni 8. þ. m. Vann Wilsön
þar einnig sigur með miklum at-
kvæðamun.
Gullbrjóstnál með gulum steini
tapaðist á háskólabailinu í Bárubúð.
Skilist gegn fundarlaunum í Póst-
hússtræti 13. [122
Tapast hefir »tugakvarði á leið
frá Stýrimannaskólanum að Báru-
búð, skilist gegn fundarlaunum á
afgr. Vísis. [123
Tapast hefir Iykill. Skilist í Þing-
holtssiræti 11 gegn góðum fundar-
launum. [124
Morgunkjólar smekklegastir, vænst-
ir og ódýrastir, sömuleiðislangsjöl og
þríhyrnur eruávalt til sölu í Garða-
stræti 4 uppi. (Gengið upp frá
Mjóstræti 4). [1
Morgunkjólar góðir og ódýrir fást
og verða saumaöir á Vesturgölu 38
niðri. [2
Morgunkjólar hvergi betri né ó-
dýrari en í Doktorshúsinu (Vesturg.)
[3
Brúkaðar sögu og fræðibækur fást
altaf með niðursetlu verði í Bóka-
búðinni á Laugavegi 22. [40
Mjólkurhúsið á Grettisgötu 38
hefir nú hina ágætu Garðamjólk
allan daginn. — Mjólk frá degin-
um áður, óskemd, selst með afslætti.
[89
Sófi eða dívan óskast til kaups
eða leigu. Afgr. v. á. [113
Ferðataska stór og góð óskast til
kaups. Afgr. v. á, [114
Brúkuð togarastígvél eru til sölu
á Vesturgötu 30 (hjá Einari Jóns-
syni skósmiður. [115
Gott rúmstæði til sölu með mjög
vægu verði í Grjótagötu 14 B,
kjallaranum. [125
3 herbergi handa einhleypum til
leigu á Laugaveg 42. Semjið við
Guðm. Egilsson. [84
2 herbergi fyrir einhleypa til
leigu frá 14. maj. Afgr. v. á.
[110
íbúð vantar mig 14. maí n. k.
2—3 eða 4 herbergi. Sigurjón
Jónsson, pappírs- og ritfangaverzl.
Laugaveg 19. Sími 504. [112
Kona með son sinn upp-
kominn óskar eftir 2 herbergjum
með eldhúsi eða aðgar.gi að eld-
húsi, hetst í Austurbænum, frá 14.
maí. Afgr. vísar á. [120
1 herbergi með húsgögnum ósk-
ast strax. A. v. á. [121
Tvær duglegar stúlkur óskast í
vist frá 14. maí. L. Bruun Skald-
breiðe. [82
----^-----------------------------
Stúlka, dugleg og þrifin, og vön
matartilbúningi og öllum húsverk-
um óskast í vist 14 maí. Hátt
kaup í boði. Frú Hallgrímsson,
Vesturgötu 19. [102
Rösk og áreiðanlega stúlka vel
að sér í dönsku, skrift og reikningi
óskar eftir atvínnu í búð eða bak-
aríi. Afgr. v. á. [104
Stúlka óskast í vist 14. maí, hátt
kaup. Ffú Jörgensen Nýlendgötu
15 B. [107
2 kaupakonur óskast í Engey í
vor og sumar. Uppl. í Þingholts-
stræti 19 uppi, hjá Helga Thorder-
sen, frá 12—3. [116
Hreinlegan dreng vantar á Rán.
Uppl. í Söluturninum. [117
Barngóð stúlka óskast í vist á
fáment heimili. Gott kaup. Uppl.
Klapparstíg 1 A. [118
Stúlka óskast frá 1. apr. n.k. til
14. maí. Sigr. Oddsd. Vesturg. 24
[119