Vísir - 13.03.1916, Qupperneq 4
VlSIR
Njósnir í Sviss.
Bæjarfréttir.
Framh. frá 1. síðu
Bjarni Jónsson frá Vogi
hélt fyrirlestur í gær um þau
áhrif, sem ófriðurinn hefði á sam*
göngur vorar. Komst hann að
þeirri niðurstööu, að þýzkar vörur
hefðu hækkað um 50 prct. og væru
nú næstum ófáanlegar. Óþægindi
við samgöngurnar væru mikJar og
margar. T. d. hefði Eimskipaféhg
fslands talið sig hafa tapað viö
þær, frá því það byrjaði starf sitt
síðastl. ár, til áramóta, um 175
þús. krónur. Þar af um 48 þús.
krónur fyrir legudaga í Englandi,
sem skipin hafi verið tafin þar við
rannsókn á farmi, pósti o. s. frv.
Likt myndi vera um önnur fél. er
héldu skipaferðum uppi hér á milli.
Mætti álíta það tjón um 1,000,000
kr., og fyrir aðrar afleiðingar sem
ófriðurinn hefði haft á vöruverö og
fl. mætti gera annað eins, eða að
ófriðurinn kostaði íslendinga nú á
ári um 2 milj. króna.
Til þess að bæta fyrir samgöng-
um vorum áleit hann að stjórnin
ætti að fá samning við Englend-
inga um, aö láta verslunarskip vor
óáreitt, líkt og Magnús Stephensen
hefði gert 1810, þegar Engiend-
ingar voru í ófriði við Dani. Eins
ætti að beina verzl. viðskiftunum
meir til Vesturheims og hafa þar
mann fyrir íslendinga hönd,
Slys
vildi til á mótorskipinu »Vindy«
frá Akureyri. Jens Jóhannsson á
Njálsgötu 55 lenti með fót í vélinni
og lærbrotnaði. Fóturinn var tek-
inn af honum í gær.
Kappskákir
þreyttu í gær Taflfélag Reykja-
víkur og Taflflokkur Framtíðarinnar
(Mentaskólinn), og fóru leikar svo,
að bæði félögin unnu jafnmikið.
Töflin fóru svo:
Taflfélagið
1. tafl Br. N. Jónsson (hvítt) 0
2. — Stefán Kristinsson (sv.) x/2
3. — Lúðvík Bjarnason (hv.) 1
4. — Dr. ÓI. Daníelsson (hv.) 0
5. — Þorl. Ófeigsson (hv.) 1
21/,
Taflfl. Framtíðarinnar.
1. tafl Stgr. Guðmundss. (sv.) 1
2. — B. G. Björnss. (hv.) V*
3. — Jónas Sveinsson (sv.) 0
4. — Br. Stefánsson (hvítt) 1
5. — Ingimar Jónsson (svart) 0
~2V^
Þessi niðurstaða er Taflflokknum
til mesta heiðurs og veröa taílfél.-
menn að herða sig ef betur á að
takast, en þess ber þó að geta, að
bestu menn þeirra tóku ekki þátt í
kappskákunum.
Skipafregnir:
í s 1 a n d á að fara vestur annað
kvöld.
Útsvörln.
Niðurjöfnunarnefndin hefir nú
lokiö störfum sínum og útsvara-
skráin er komin út. Hæst útsvör
hafa verið lögö á: hlutafélagið
Kvöldúlf og H. P. Duus kr. 14,000. I
Er það hæsta útsvar sem sögur fara j
af hér á landi.
Frá Balk&n.
Albanfa — Búlgaría.
Sagt er að Búlgarastjórn hafi til-
kynt stjórn Austurríkis, að hún
mundi skoða það sem fjandskap við
Búlgaríu, ef prinsinn af Wíed yrði
aftur Iátinn taka við völdum í Al-
baníu. — Er ekki ósennilegt að
deilur kunni að rísa út af þessu
með Búlgurum og Austurríkis-
mönnum, því að eftir þessu ætla
Búlgarar sér Albaníu, en Austurrík-
ismenn munu varla unna öðruin
hennar eu sjálfum sér.
Rúmenfa.
Á þingi Búlgara komst forsætis-
ráðhertann, Radoslavoff svo að oröi,
í umræðum um dýrtíðina þar í
landi, að þó að Rúmenía væri að
nafninu til hlutlaus, þá væri hún
fjandsamleg Búlgurum í verki og
gerði alt sem unt væri, til að hefta
innfluíning á matvöru til Búlgaríu,
legði jafnvel hald á vörur sem
kæmu frá bandamönnum Búlgara.
,Keisara-bIóðbaðið’
Svo kaila ensk blöð orustuna við
Verdun, og segja að engum manni
öðrum en keisaranum, sé trúandi
til aö fyrirskipa slíkt blóðbað. —
Særður franskur hermaður segir:
Við gengum yfir heilar fylkingar
fallinna Þjóðverja. f þröngu kletta-
gili einu stóðu þeir dauðir hundr-
uðum saman, þar sem þeir höfðu
orðið fyrir skothríð vélbyssa vorra,
og studdi hver annan.
Heill skógur sprengdur
í loft upp.
Þjóðverjar Iögðu mikið kapp á
að ná Caures-skóginum, fyrir norð-
an Beaumont. Frakkar vörðu hann
af miklurn ákafa, en á meðan kom
verkfræðingasveitin sprengjum fyrir
á víð og dreif inn í skóginum.
Að því loknu hélt franska liðið
undan, en þegar það var komið á
óhultán stað og skógurinn var orð-
inn fullur af þýskum hermönnum,
var skógurinn sprengdur í Ioft upp
og fórust Þjóðverjar þar hundruð-
um saman.
Líkkistur.
Miklar birgðir fyrirliggjandi.
Séð um jarðarfarir ef óskað er.
Sími 93. Hverfisg. 40.
Helgi Helgason
Tveir háttsettir svissneskir
herforingjar í herstjórnarráð-
inu hafa nýlega orðið uppvísir
að því að hafa skýrt Þjóðverjum
frá ýmsum leyndarmáium banda-
manna, sem þeim var kunnugt
um, en máttu ekki segja frá,
samkvæmt hlutleysisreglunum.—
Stjórnin ætaði að reyna að þagga
málið miður, svifti herforingjana
raunar stöðu þeirra í herstjórn-
arráðinu, en setti þá í háar stöður
í hernum. 5n út af þessu reis
svo megn gremja í Sviss, að
stjórnin sá sér ekki annað fært en
að svifta þá einnig þeim stöðum,
og stefna þeim fyrir herrétt. —
Sagt er að annar þessara manna
sé nákunnugur eða jafnvel per-
sónulegur vinur Vilhjálms Pýzka-
landskeisara. Og alkunnugt var
um þá báða að þeir væru miklir
vinir Pjóðverja, enda ,höfðu þeir
báðir verið lengi í Þýzkaland
við herœfingar.
Herdómur sá, sem dæma á í
máli þeirra, verður skipaður 5
liðsforingjum úr þeim héruðum
í Sviss sem þýzka er töluð í en
2 úr Ticino, og verða tveir þeirra
undirliðsforingjar. Á það sér víst
óvíða stað, að svo lágt stand-
andi menn í hernum séu settir í
dómarasæti, og er þetta dæmi
þess hve almúginn má sín mik-
ils í Sviss.
Almenningsálitið er að vísu
skift um það, hverri hegningu
herforingjarnir eigi að sæta fyrir
afbrot sín; að þeir eigi að sæta
hegningu kemur öllum saman
um. Þýzklundað blað, sem fylgir
stjórninni, kemst svo að orði:
»Hvernig sem dómurinn verður,
þá getur svissneski herinn ekki
notað þessa menn framar«. Og
blað eitt í franska Sviss segir:
»Með því móti einu, að deyja á
vígvellinum í þjónustu þess lands
sem þeir hafa þjónað á svo ó-
viðfeldinn hátt, geta menn þess-
ir gert sér von um, ekki fyrir-
gefningu, en meðaumkvun«.
Það er þannig enginn efi á
því að mennirnir verði dæmdir,
en óhjákvæmileg afleðing þess er
talin, að hermálaumboðsmaður
Þjóðverja í Sviss, sem er syst-
kinabarn Bismarks gamla, verði
hið bráðasta að hverfa heim.
Framh.
Siór og góð ferðataska
óskasi til kaups.
A. v. á.
Morgunkjólar smekklegastir, vænst-
ir og ódýrastir, sömuleiðislangsjöl og
þríhyrnur eruávalt til sölu í Garöa-
stræti 4 uppi. (Gengið upp frá
Mjóstræti 4). [1
Morgunkjólar góðir og ódýrir fást
og verða saumaðir á Vesturgöíu 38
niöri. [2
Morgunkjólar hvergi betri né ó-
dýrari en í Doktorshúsinu (Vesturg.)
[3
Brúkaðar sögu og fræðibækur fást
altaf með niðursettu verði í Bóka-
búðinni á Laugavegi 22. [40
Vagnhestur óskast keyptur eða
leigður nú þegar. Magnús Blöndahl
Lækjargötu 6. [127
Karlmannshjólhestur til sölu fyr-
ir afarlágt verö. Upplýsingar í
leðurverslun Jóns Brynjólfssonar
Austurstræti 3. 136]
2 kaupakonur óskast í Engey í
vor og sumar. Uppi. í Þingholts-
stræti 19 uppi, hjá Helga Thorder-
sen, frá 12—3. [116
Stúlka óskast í vist nú þegar um
stuttan tíma. A. v. á. .s 134]
3 herbergi handa einhleypum til
leigu á Laugaveg 42. Semjið við
Guðm. Egilsson. [84
íbúð vantar mig 14. maí n. k.
2—3 eða 4 herbergi. Sigurjón
Jótisson, pappírs- og ritfangaverzl.
Laugaveg 19. Sími 504. [112
Einhleypur maður, óskar eftir að
fá 2 herbergi með sérinngangi til
Ieigu 14. maí (í austurbænum)
Tilboð merkt »33« leggist á afgr.
Vísis fyrir 15. þ. m. [131
1 herbergi með húsgögnum ósk-
ast nú þegar, helst í vesturbænum.
Afgr. v. á. [132
Herbergi v»ö eina af aðalgötum
bæjarins og með sérinngangi, verð-
ur til leigu frá 14. maí eða fyr ef
óskað er, fyrir reglusaman einhleyp-
an og áreiðanlegan mann. A. v, á.
1 loftherbergi til leigu. Afgr.
v. á. [135
Budda með peningum hefir tap-
ast, að Iíkindum á Gamla Bíó. —
Skilist gegn fundarlaunum á Hverf-
isgötu 75 (uppi). 137J