Vísir - 30.04.1916, Blaðsíða 1
Utgefandi
HLUTAFÉLAG
Ritstj. JAKOB MÖLLER
SÍMI 400
Skrifstofa og
afgreiðsla í
Hótel ísland
SÍMI 400
6. árg.
Sunnudaginn 30. aprfi I9i6.
117. tbl.
I, 0. 0. F. 984805 J|2 -
II og III
Gamla Bíó
Tilgangurinn
helgar meðalið
ÁhriFamikiIl sjónleikur í 3
þáttum. Leikinn af ágætum,
ítölskum leikurum.
ieikélag Reykjavíkur
í dag
í sfðasta sinn:
Systurnar
frá Kinnarhvoli
Æfintýraleikur
eftir C. Hauch.
. Pantaðra aðgöngumiða sé vitjað
yrir kl. 3 þann dag sem leikið er,
annars verða þeir
þegar seldir öQrum.
Vöruhússins.
Karlm. fatnaðir best saumaðir
— Best efni. —
Fljótust afgreiðsla.
10 stúikur
vantar í síldarvinnu við Eyjafjörð.
Ágœt kj'ór i boðiP
Ritstj. Vísis gefur upplýsingar.
^Mlxví
s\ometvtv 03 st&ttiw
— vanar fiskverkun — geta feng-
ið atvinnu á Austfjörðum í sum-
ar. Hátt kaup. Semjið við Jón
Sveinsson, Amtmannsstfg 4. —
Heima kl. 4—6 e. h.
i \ .
Mtatv aj latvdv.
Símfréttir.
Hnausum (Húnavatnssýsía)
í gær.
Góðir hagar komnir í þinginu
og eru hross rekin þangað aust-
an úr sýslunni. Snapir töluverð-
ar komnar á Ásum og í Svína-
dal. Ágætt veður daglega, sól-
bráð og hiti á daginn en Htið
frost á nóttunni.
Búðardal í gær.
Snjóinn leysir nú óðum af sólar-
hitanum og eru komnir góðir
hagar niðri í sveitum, en litlir til
fjalla. Hiti mikill á daginn en
lítið frost á nóttunni.
Akureyri í gær.
Veður var gott í gær, en nú
er hann orðinn koldimmur og
versta útlit. Snjór er svo miklll
að varla sést á dökkan díl í
Vaðlaheiðinni.
Þjóðverjar
og V
Bandaríkin,
það mun ganga seinna en til
var ætlast fyrir Bandaríkjunum,
að fá svar við kröfum sínum frá
þjóðverjum. — Eins og áður hefir
verið skýrt frá, var það Sussex-
málið, sem deilurnar risu út af
síðast. Sussex var sökt24. marz
og 20. apríl sendu Bandaríkin
þjóðverjum úrslitakröfu sína, um
að þess yrði gætt í kafbátahern-
aðinum framvegis, að skerða ekki
hár á höfði Bandaríkjaþegna, hvar,
sem þeir færu um höfin.
þegar kanzlaranum þýzka barst
þessi krafa, brá hann sértilaðal-
herstöðvanna, vafalaust til þess
að leita álits keisarans og yfirher-
stjórnar, sem vitanlega ræður öltu
í slíkum mátum. Hafði hann beðið
um nokkurra daga frest til þess að
svara, til þess er hann kæmi aftur
heim til Berlínar. En ekki mun
sá frestur hafa verið veittur, enda
hafði verið krafist svars tafarlaust.
þó hafa Bandaríkin látið sér nægja
yfírlýsingu um að svarið yrði gefið
þegar er kanslarinn væri kominn
heim aftur til Berlínar. En sendi-
herra Bandaríkjanna bjóst til brott-
ferðar, svo að hann var ferðbú-
inn með klukkutíma fyrirvara.
Var nú alment búist við skjót-
um úrslitum, því að ekki hefir
verið hægt að sjá annað en að
þjóðverjum lægi það í léttu rúmi,
hvoru megin hryggjar Bandaríkin
lægju, og íhaldsmenn í þýzka
þinginu vildu engar tilslakanir
gera.
það kom mönnum því fremur
á óvart, er sú fregn barst hingað
í gær í símskeyti, að kanzlarinn
og sendiherra Bandaríkjanna væru
báðir farnir til aðalherstöðv-
anna. Kanzlarinn hlýtur að hafa
haft með höndum einhverjar um-
leitanir um samkomulag, þannig
lagaðar að ekki virðist vonlaust
um að samningar takist, og sendi-
herrann því farið til herstöðvanna
til að hafa sjáliur tal af yfirher-
stjórninni. En hvernig þeim samn-
^ingum lýkur, verður ekkert um
sagt að svo stöddu.
Hversvegna Wilson er nú að
safna skýrslum um hergagnaverk-
smiðjur í Bandaríkjunum, verður
heldur ekkert um sagt, nema það
kynni að vera til þess aö „láta
ófriðlega", í því skyni að gera
löndum sínum biðina eftir svarinu
skemtilegri.
Margra manna mál er það að
skörungsskapur Wilsons í máli
þessu muni ekki vera neitt annað
en kosningabeita, því nú líður að
því að kjósa á forseta í Banda-
rikjunum. En ef svo er, viröist
varla geta verið um tilslakanir að
ræða af hans hendi. Væri þá
„ver farið en heima setið“, ef
hann slægi af kröfunum.
H§S Bæiaríréttir
Afmæli á morgun:
Ásta Sighvatsd, ungtrú.
Elín Guðæundsdóttir ungfrú.
Gísli Ó. Pétursson lœknir.
Guði. Skúlason sjóm.
Jónas Jónsson kennari.
Jón Þorleifsson námsm.
ISSýja Bíó
Fréttablað.
Mjögpskemtilegt.
Brúðkaup Florys.
Gamanleikur í 1 þætti, leikinn
af þektum dönskum leikurum.
Nikke
Spreng-hlægilegur sjónleikur
ieikinn af Nordisk Films Co.
Oddur Hermannss. cand. jur.
Sveinbj. Stefánsson trésm.
Teitur Sigurðsson verslm.
Fermingar- og afmælis-
kort með. íslenzkum erindum
fást hjá Heíga Árnasyn! í Safna-
húsinu.
Erl. mynt
Kaupm.höfn 28 apríl.
Sterlingspund kr. 15,73
100 frankar — 5ó,00
100 mörk — 61,55
R e y k j a v í k
Bankar Pósthús
Sterl.pd. 16,30 16,40
100 fr. 58,50 58,00
100 mr. 62,00 64,00
1 florin 1,52 1,50
Doll. 3,60 3,60
Lúðrafél. »Harpa«
leikur á Austurvelli, í kvöld,
kl. 6V*.
Verkfallið
sem um var getið í gær,
nær til fleiri skipa en þá voru
voru talin. Pað nær til allra tog-
aranna sem liggja hér og eins í
Hatnarfirði. Ágreiningsefnið er
það að Hásetafélagið bannar með*
limum sínum að ráða sig á skip
með öðrum hætti en þeim, að
tekið sé fram í ráðningabókurt-
um að þeir séu ráðnir samkvæmt
lögum félagsins. Kjörin má ekki
tilgreina á annan hátt, Útgerðar*
mönnum mun þykja það nokk-
uð viðurhluta mikið að ofurselja
sig þannig geðþótta Hásetatélags-
ins, og því hætt við að ekki
verði auðleyst úr deilunni.
Gullfoss
hafði komið til Kaupmanna-
hafnar á föstudaginn. Á heimleið
leggur hann aftur 7. maí.
Frh. á 4. síöu.