Vísir - 08.05.1916, Síða 4

Vísir - 08.05.1916, Síða 4
VfSIR Dagsbrún og verkfallið á botnvörp- ungunum. —o— í «Dagsbrún« sem kom út í dag úir og grúir af ósanindum um verk- falliö og tildrögin til þess. Yröi of langt mál eð eltast við öll þau ó- sannindi og rangfærslur, en þessar leiöréttingar teljurn vér rétt að gera: 1. »Dagsbrún« segir ósatt um innihald samnings þess er vér gerð- um við Hásetafélag Reykjavíkur 16. febrúar síöastl. og sem prentaður var í »Morgunblaðinu« og >Vísi« l.þ. m. Segir »Dagsbrún« að sam- kvæmt þeim samningi hafi iifrar- þóknunin eftir lok aprílmánaðar verið óákveðin »nema stjórnir beggja nefndra félaga komi sér saman um fast verð til þess tíma er síldveiðin hefst í júlímánuði. En *Dagsbrún« sleppir hér alveg heillri setningu úr samningnum og Iætúr síðan líta svo út sem Hásetafélagið hafi ekki ver- íð bundið neinum samningi við okkur eftir lok aprílmánaðar. En þetta eru tilhœfulaus ósannindi, því Hásetafélagið er samkvæmt samn- ingnumbundið við tiltekið verð á lifrinni þangað til síldveiði hefst í júlí, og verðið er hið »almenna sem borgað er í Reykjavík«, nema samkomulag verði um annaö. — í samningnum stendur berum orðum aö eftir lok apríl »skal lifrarverðið vera hið almenna sem borgaö er í Reykjavik, nema stjórnir beggja nefndra félaga komi sér sainan urti fast verð til þess tíma er síldveiði hefst í júlímánuði«. En »Dagsbrún« hefir þótt þægilegra að sleppa í frásögn sinni fyrri hluta þessarar setningar í samningnum og þar með algerlega rangfæra hann sér f vil. — 2. »Dagsbrún« segir aö »nokkr- ir menn úr stjórn útgerðarmanna- félagsins* hafi gert umgetinn samn- ing. Hér er einnig meira en hálfum sannleikanum slept. — Samningur þessi er undirskrifaður af allri þá- verandi stjórn félags vors, og auk þess þannig: »í stjórn Hásetafélags Reykjavíkur Björn J. Blöndal, Jósep S. Húnfjörð, Jón Bach, Guðm. B. Kristjánsson« og skrifa þessir menn þannig undir samninginn í nafni Háseta- fálagsins og fyrir þess hönd. Er þaö nú meining »Dagsbrúnar« að einskisvirða undirskriftir þessara manna og þannig lítilsvirða þá? »Dagsbrún« segir þaö algerlega ósatt aö nokkur ágreiningur sé meðal félagsmanna vorra. Þeir standa sem einn maður. En stjórn Háseta- félagsins er þessa dagana bæði á fundum Hásetafélagsins og annars- staðar að æsa háseta með því að segja þeim þann uppspuna, að að eins einn eða tveir af félagsmönn- um vorum standi fastir fyrir. Sann- leikurinn er sá að félagsmenn vor- ir hafa harðnað að mun fyrir þær f svívirðingar sem þeir hafa orðið fyrir af stjórn Hásetafélagsins. 4. Dagsbrún segir að flestir út- j gerðarmenn séu búnir að selja síld- arafla sinn í sumar fyrirfram, og þess vegna verði skipin að ganga. Þetta á að syna og sanna hásetum að vér séum neyddir til að láta eftir kröfum geirra og beygja okk- ur fyrir samningasvikum Hásetafél. En hið rétta er að oss vitanlega hefir ekki önnur síld verið seld fyrirfram en einar 2500 tunnur, Fyrst og fremst er óvenjulegt að selja nokkuð að ráði af síld svo snemma, en hér við bætist nú í þetta sinn aö enginn getur vitað ennþá hvernig fer um útflutning síldar héðan vegna ófriðarins, og því hefir ekki orðið úr neinni teij- andi síldarsölu enn sem komið er. Stjórn Háselafélagsins veröur því að finna upp eitthvert annað æs- ingameðal en þetta handa hásetun- um. Vér teljum óþarft að eltast frek- ar að þessu sinni við ósannindi Dagsbrúnarog stjórnar Hásetafélags- ins, sem hefir undanfarna daga látið rigna fregnmiðum, fullum af tilhæfulausum frásögnum um verk- fallið og afstöðu vora til þess. Þar á meðal hvað eftir annað um það, að vér værum búnir að fallast á aliar aðalkröfur Hásetafélagsins um eignarrétt á lifrinni, lögskráning með tilvísun til laga Hásetafélagsins o. s. frv. Þetta hafa alt verið raka- laus ósannindi, auglýst til þess aö halda uppi æsingu meðal háseta. En ætli það fari ekki bráðum að vekja athygli hásetanna að reynsl- an er farin aö sýna þeim að eng- in af þessum fregnmiðafréttum reyn- ist sönn. Hefndin fyrir æsingarnar og margenduitekin ósannindi í þessu máli, bæði á fundum og í riti, hlýtur að koma yfir stjórn Háseta- félagsins og þá sem bakviðstanda áður en varir. Reykjavík 7. maí 1916. f stjórn »Fél. ísl. botnvörpusk.eig. Thor Jensen. Jes Zimsen. Magnús Einarson. Jón Magnússon Aug. Flygenring. SetvdvB au^svtv^et ttmawlega Stór og góð húseign í kaupstað á Vesturlandi, innréttuð til verslunar og íbúðar, ásamt skepnuhúsum, kálgörðum og afairtu slægjulandi, ennfremur bry^gja og ýms þægindi, fœst keypt nú þegar fyrir lágt verð gegn pen- ingaborgun. — Skifti á góðum húseignum í Reykjavík gætu kom- ið til greina. Lysthafendur snúi sér fyrir 14. þ. m. til Gfsla Þorbjarnarsonar. Uppreisnin á frlandi. | FÆCI j Þaö hefir lengi verið grunt á því góða milli fra og Englendinga. Þó hefir samkomulagið fariö batn- andi eftir að írar fengu vissu fyrir því að þeir fengju heimastjórn. Hafa írar gengið sjálfviljugir í herinn að sínum hluta. Þykja þeir hraustir herrnenn. En á írlandi er flokkur manna, Sinn Fein-flokkur- inn, sem hvorki vill heyra Eng- lendinga eða sjá. Vilja þeir að ír- Iand losni algerlega úr öllum tengzl- um við England og Skotland. Þessi flokkur hefir stundum fylgt Natio- nalistum að málum, en síðan ófrið- ur hófst hafa þeir fjandskapast við Redmond fyrir það, hve hann hefir verið vinveittur Englendingum. Mun þeim eitthvað hafa aukist fylgi í vetur. Hafa þeir að sjálf- sögöu haft samband við Þjóð- verja og jafnvel fengið hjá þeim vopn. Sir Roger Casement mun og hafa ætlað til írlands til að gerast foringi þeirra. Mánudaginn 24. f. m. gerðu Sinn Fein-menn uppreisn íDublin. Náðu þeir á sitt vald pósthúsinu í borginni og fJeiri byggingum þar. Slitu þeir símaþræði svo ílt var að fá fregnir frá borginni þann dag o p ræsfa dg. Herlið var síðan kvatt til og settist þaö um borg- ina og þá borgarhluta, sem upp- reisnarmenn voru í. Má geta þess, að sumt af herliöi þessu voru hinir svo nefndu írsku sjálfboðaliðar (Redmonds-menn). Tókst að bæla uppreisn þessa niöur eftir nokkra daga. Fregnin um uppreisnina kom ménnum mjög á óvart í Englandi, og þótti mönnum Birrell, írlands- ráðherra hafa staðið slælega í stöðu sinni. Varð sú óánægja til þess að hann sagði af sér. Hefir verið stungið upp á því, að fá Churchill til að taka við því embaetti. Er talið að hann muni láta af liðs- stjórn og snúa sér aftur að stjórn- málum. Fæöi fæst í Ingólfsstræti 4. [33 KAUPSKAPUR Morgunkjólar fást á Vesturgötu 38. [56 Vandaður möttull fæst með tæki- færisverði. A. v. á. [96 Barnavagn tiP sölu. Uppl. í Þing- holtsstræti 25 uppi. [100 EOEeasBnMaaœnes^i VINPSA — Góð stúika, sem kann til sveiia- vinnu, óskast á goit heimili í Rang- árvallasýslu, frá 14. maí til 1. olct. A. v. á. [80 Roskna konu vantar á gott heim- ili hér í bænum. Hátt kaup íboði. Uppl. á Laugav. 28 (buðinni). (101 Ársmaður óskast á gott heimili í Norður-Múlasýslu, góð kjör í boði. Uppl. á Skólav.st. 4 B. [97 vantar mig 14. maí eða 1. júní Anna Björnsson Hverfisgötu 14. [98 Liðlegur kvenmaður óskast einn mánuð. Uppl. Bergstaðastr. 36. Ungur maður 16—20 ára getur fengið fasta atvinnu við að keyra vör- ur í bæinn. Tilboðmerkt ArsælL þar sem tekin sé fram kaupkrafa. Send- ist skrifstofu blaðsins. [29 Stúlku m I Tapast hefir svört handtaska frá steinbryggjunni að Ingólfshvoli með nokkru af silfurpeningum, Skilist gegn sanngjörnum fundarlaun- um í Þvottahúsið á Vesturgötu 23. [99 HÚSNÆÐi Sólrík herbergi til Ieigu fyrir ein- hleypa á Klapparstíg 1 A. [89

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.