Vísir - 19.08.1916, Side 4
V I S I R
Skepnufóður
til vetrarins,
Eg hefi verið að vonast eftir aö
sjá getið einhverra ráðstafana af
hálfu landsfjórnarinnar, um útveg-
un á síld frá Norðurlandi til fóð-
urs handa skepnum hérsyðra. Það
sem af er, hefir heyskapurinn, eins
og kunnugt er, gengiö svo, að
ekki er annaö fyrirsjáanlegt en að
menn verði neyddir lil að stór-
fækka fénaði sínum.
Það sem varð þess valdandi að
eg rita þessar Iínur, er einkar þörf
hugvekja eftir Oísla lögmann Sveins-
son, er stóö í ísafold síðastl, laug-
árdag. Aftan við hana er sú at-
hugasemd frá ritstjóranum, aö land-
stjórnin hafi þegar gert ráðstafanir
til að útvega fóðurbæti frá útlönd-
um og síldarmjöl aö norðan. í
þessu sama blaði er enn fremur
auglýsing frá stjórnarráðinu þar sem
það óskar eftir tilboöi um sölu á
ýmsum vörutegundum frá Ameríku.
Þar á meðal eru 400 smáiestir af
maísmjöli og eru þær að sjálfsögðu
eingöngu ætlaðar til skepnufóðurs.
Fyrst er þá að athuga ráöstaf-
anir stjórnarráðsins um kaup á
síldarmjöli. Eg hygg að landstjórn-
inni sé óhætt að spara sér ómak
og peninga fyrir mikið af því.
Flestir eöa allir, sem eg hefi átt tal
við, og notað hafa síldarmjöl til
skepnufóöurs vilja ekki við því líta.
Oæti stjórnarráðið að sjálfsögðu
fengið upplýsingar um nothæfi
síldarmjölsins, frá þeim mönnum
er keyptu síldarmjöl þess árið 1914.
Og líklega er sú fóðurtegund ekki
ódýr í ár framar öðru.
Maísmjöl hefir reynzt hér gott
kúafóður. En að það borgi sig að
gefa mikið af því, þegar 63 kg.
sekkur kostar 20 krónur og þar
yfir, tel eg vafasamt. Þá hygg eg
aö bændur — minsta kosti þeir,
er fjarri búa kaupstöðunum — taki
heldur þann kostinn aö farga kúm
sínum, en treysta mikið á maísgjöf.
Svo kemur síldin. Eins og allir
vita hefir hún fengist nyrðra í sum-
ar fyri 4 kr. tunnan. Verksmiöj-
urnar naumast haft viö aö taka á
móti henni fyrir það verð. Setjum
nú svo að landsstjórnin keypti 2000
—2500 tómar steinolíutunnur, en
þær taka kringum tvær tunnur síld-
ar hver, léti hreinsa þær og keypti
svo sild í þær. Gerum ennfremur
ráð fyrir að síldin í hverja tunnu
kostaði 10 krónur, saltið 4 kr.,
söltun 1 kr„ flutningur 5 krónur.
Veröa þaö samtals 20 kr. Mætti
þannig sennilega fá fulla steinolfu-
tunnu af síld komna til Reykjavíkur
fyrir sama verð og 63 kg. af maís -
— tunnuna sjálfa relkna eg ekki,
því hún ætti að vera í sínu fulla
verði, eftir sem áður. — Það hygg
eg svo að flestir muni viðurkenna,
að betra sé að fá eina vel fulla
steinolíutunnu af síld til skepnu-
fóðurs, en 126 kg. eöa 2 sekki af
maís, og munar þó helmingi verðs.
Væri nú þetta gert, sem vel er
kleift, ef undinn er að því bráður
bugur, en slept 300 smáiestum
af maíspöntuninni, frá Ameríku
mundi landið græða alt aö 50
þúsundum króna.
Nú kann því að veröa haldið
fram, aö oröið sé of seint að senda
tunnurnar noröur. En má þá ekki
fá einhverja 2 togarana til þess —
um þaö leyti, sem þeir hætta veið-
unum nyrðra — að fiska síld, salta
hana í sig og koma með hana
hingað suður ? Sölu hennar hér
mætti síðan haga eins og hentast
þætti.
Mér finst nauðsynlegt aö lands-
stjórnin eða einhver framkvæmdar-
samur maður, með hennar aðstoð
geri gangskör að umræddri síldar-
útvegun, því það er víst aö víða
er hægt að fóðra sauöfénað á síld
með útibeit, þar sem óhægt er að
koma við maisgjöf.
Eg vænti þess fastlega að ein-
hver sem er mér æfðari við ritstörf
verði málefni þessu að liöi.
En það þolir enga bið.
Setbergi 17. ágúst 1916.
Jóh. J. Reykdal.
Tii útgerðarmannsins
sem enn á tunnurl
Út af grein yöar í Vísi í gær
»Bjargvætturinn' og tunnuleysiö*,
skora eg hér með á yður, að segja
til nafns yöar í næsta tölublaði
»Vísis«, því það er leiðinlegra að
þurfa aö elta ólar viö þá menn,
sem fela sig í skúmaskotum og eru
svo kjarklausir, aö þeir þurfa ávalt
að skríða á bak við aöra og fela
sig þar. Eg vona, að þér verðiö
við5 þessari áskorun minni, þó yður
máske þyki það leitt að þurfa að
kannast við greinina, sem er full af
ósannindurn og óhróðri í minn
garö.
Eg mun svo tala við yöur seinna,
piltur minn, og athuga nánar þetta
»sveinssfykki« yðar.
Rvík 18. ágúst 1916.
E 1 í a s S t e f á n s s o n.
Fangar Tyrkja.
Þegar Townshend hershöfð-'
ingi Englendinga í Mesopotamiu
varð að gefast upp fyrir Tyrkj-
um í Kut-el-Amara, tóku Tyrkir
þar um 9000 fanga með honum.
— Townshend var fluttur til
Konstantinopel. — Hershöfðingi
Tyrkja, sem tók hann til fanga,
var gamall skólabróðir hans, hafði
gengið í skóla með T. í Eng-
landi.
Fréttir hafa komið af Towns-
hend heim til Englands og læt-
ur hann hið besta yfir sér.— En
Bretar eru yfirleitt hræddir um
að óvinir sínir fari illa með fanga
og þá ekki síst Tyrkir. Þótti það
engin sönnun fyrir vellíðan hinna
fanganna þó að vel væri farið
með Townshend, þess var jafn-
vel getið til, að hann mundi látinn
nióta slíks atlætiseinmitt til þess
að leiða athyglina frá hinum föng-
unum,
Sendiherra Bandaríkjanna í
Konstantinopel hefir verið falið
að grenslast eftir því, hvað orð-
ið hafi af þessum 9000 föngum
frá Kut — en þrátt fyrir ítrek-
aðar fyrirspurnir hjá Tyrkjastjórn (
hefir hann ekkert svar fengið. {
Ræðismaður Bandaríkjanna í
Bagdad hefir ekki fengið að hafa
orð af föngunum, þrátt fyrir mikla
eftirgangsmuni sendiherrans og
því barið við að þeir hefðu ver-
ið sendir norður yfir eyðimörk-
ina.
26. júní voru 1000 fangar í
Bagdad sem voru of veikir til að
ferðast og 40 breskir liðsforingj-
ar voru í Adana veikir af blóð-
kreppusótt. — Hvað hinum líð-
ur veit enginn heima í Bretlandi
og veldur sú óvissa miklum á-
hyggjum, því viðbúið þykir, að
þeir hafi illa þolað flutninginn
yfir eyðimörkina á þessum tíma
árs.
Herbergi' til leigu fyrir ferðafólk
i Lækjargötu 12 B. [305
Herbergi með húsgögnum til
i leigu í Bárunni. [H
íbúð, 1—3 herbergi ásamt eld-
húsi óskast 1. okt. Jón Hafliða-
son, Vallarstr. 4. [94
Til leigu handa kyrlátum karl-
manni eða kvenmanni eru tvö
samstæð herbergi í góðu húsi
með fagurri útsýn. A.v.á. 95
Þrifin stúlka sem hefir fasta
atvinnu óskar eftir herbergi 1. okt.
Uppl. gefur Stefán Ólafsson, Völ-
undi. [101
Stúlka óskar eftir að komast
að afgreiðslu í bakaríi frá 1. okt.
Uppl. hjá Margréti Guðmundsd.,
Vesturg. 40. [100
Ljós regnfrakki hefir tapast. Skil-
ist á afgreiösluna. [91
Stafur hefir tapast mrk. E. K.
Skilist gegn fundarl. til E. Krist-
jánss., Grettisg. 44. [91
Lítill barnaskór hefir tapast úr
svörtu glansskinni. Skilist áafgr.
_______________________________[92
Lítil hjólhestapumpa töpuð.—
Skilist í Smjörhúsið. [93
Langsjöl og þríhyrnur
fást alt af í Garðarsstræti 4 (gengið
upp frá Mjóstræti 4). [43
Saumaskapur
á morgunkjólum, barnafötum o. fl.
er tekinn á Vesturgötu 15 (vestur-
endanum), [217
Morgunkjólar fást beztir í Garöa-
str. 4. [299
i Bókabúðin á Laugavegi 4 selur
' brúkaðar bækur. Lágt verö. [3
Morgunkjóiar fást og verða saum-
aðjr í Lækjargötu 12 A. [30
Gott piano til sölu. A v. á. [86
Til sölu: hurðir og gluggar.
Uppl. í Tjaruargötu 8. [87
Falleg gluggablóm fást á Laufás-
vegi 27 uppi. [88
Brúkað orgel óskast til kaups.
Sama í hvaða ástandi það er.
Páll Guðmundsson, Bergstaðastr. 1
[9 ö
Lítið hús með óbygöri hornlóð
til sölu. Upplýsingar á Greltisgötu
38. [97
Snemmbær kýr til sölu. Sig.
Halldórsson i Þingholtsstræti 7 [9S
Steinbífsriklingur til sölu á Lauga-
vegi 67 (niðri). [99
Vandað íbúðarMs
við Laugaveg til sölu. Uppl. hjá
STEINGR. GUÐMUNDSSYNI,
Amtmannsstíg 4.
Leverpostej
nýkomin
í verzlun
i £\na*s jlvtvasotvar.