Vísir - 02.09.1916, Side 4
V I S I R
Símskeyti
frá fréttaritara Vísis
Khöfn 1. september.
Búlgarar eru hæti staddir, Rússar eru á leið-
inni suður yfir Rúmenfu.
Rúmenar eru kornnir yfir landamæri Uungverja-
lands á 4 stöðum.
Skeyti þetta hefir verið sent frá Khöfn kl. 5m e. h. í gær, og
virðist svo sem Búlgarar hafi þá ekki verið búnir að segja Rúmen-
um stríð á hendur, því þá mundi þess getið. Enda er auðvitað
að hætta sú, sem hér er talið að vofi yfir Búlgurum stafi frá Rúss-
um en ekki Rúmenum.
opnað í kveld kl 8.
er jafnvel full vissa fyrir því, aö
þeir menn eru í allmiklum meiri
hluta þar í landi, sem vilja ganga
í Iið meö bandamönnum. En kon-
ungurinn hefir af alefli reynt að
sporna við því, aö það yröi gert.
Og það er mál manna, aö hon-
um fylgi að málum allir æöri for-
ingjar hersins. — En það er nær
óhugsandi, að þeir fái við það
ráðið.
Þingkosningar eiga að fara þar
fram í þessum mánuöi, og má telja
það áreiðanlega víst, að flokkur
Venizelosar muni vinna stórkost-
legan sigur. Og ef konungur eftir
það reynir að þverskallast, eru allar
líkur til að hann verði rekinn frá
völdum. En að fylgi herforingj-
anna er honum nú lítill styrkur,
er allur herinn hefir verið afvopn-
aður. Og ef Venizelos kemur af
stað uppreist gegn konungi með
mikinn meiri hluta þingsins að baki
sér, þá er ekki mikill vafi á þvf
hvernig bandamenn muni snúast
við því.
Rúmenar þykjast þess fullvissir,
að bandamenn muni vinna sigur í
ófriðnum. Og sú skoðun mun nú
ríkjandi meðal alls þorra manna
um allan heim. — Og ekki er ó-
Hklegt að Búlgarar séu einnig farn-
ir aö hallast að þeirri skoðun.
Það má því búast við því, að
Búlgarar fari þá og þegar að leita
fyrir sér um friðarskilmála hjá
bandamönnum. Þeir hafa altafvilj-
að fá umráð yfir hafnarborginni
Kavalla og landinu þar umhverfis.
Nú hafa þeir vaðið þar inn með
her og að sögn tekið Kavalla. Er
ekki ósennilegt að þeir vildu semja
friö, ef þeir fengju að halda henni
og þeim héruðum Grikklands, sem
nú eru í þeirra höndum.
En þá getur það orðrð Grikkj-
um hættulegt, aö fresta því mikið
lengur að ganga í lið við banda-
menn — að láta Búlgara verða
fyrri til. Enda virðist svo sem Ve-
nizelos vilji láta Grikki skerast í
Ieikinn nú þegar og ekki bíöa
kosninganna. Aðra ástæðu er ekki
hægt að finna fyrir lausnarbeiðni
Zaimis, þar sem harin þó hafði
lofaö því að vera forsætisráðherra
þangað til kosningar væru afstaðn-
ar. — En neitun konungs við beiðni
hans, bendir til þess að honum
þyki »frestur á illu beztur*.
Og líklegt er að bandamenn gefi
vini sínum Venizelos frest fram yfir
kosningar, þó að Búlgarar væru
tilleiðanlegir að semja friö.
Hreinlegur og þrifinn
DRENGUR
getur fengið atvinnu á Rakarastof- C
unni í Austurstræti 17.
Eriend mynt.
Kaupmhöfn 30. ágúst.
Sterlingspund kr. 17,37
100 frankar — 62,00
Dollar — 3,68
R ey k j a v í k
Bankar Pósthús
Sterl.pd. 17,55 • 17,55
100 fr. 63,00 63,00
100 mr. 64.75 64,75
I florin 1,53 1,53
DolJar 3,75 3,75
Afmæliskori rneð íslenzk-
um erlndum og margar nýjar
tegundir korta, fást hjá Helga
Árnasyni í Safnahúslnu.
Síldveiðarnar.
Veður er að hægja nyrðra og
síld sögð nóg, en veiðar voru þó
ekki byrjaðar aftur í gær.
Nýja Land
verður opnað aftur í kveld kl.
8, og fá þá bæjarbúar aftur tæki-
færi til að hlusta á hljóðfæraleik
bræðranna Eggerts og Þórarins.
Breytingar hafa verið gerðar all-
miklar »á bak við tjöldin« til þess
að öll afgreiðsla geti orðið greið-
ari. Kökugerðin flutt úr húsinu
o. s. frv. Þeir reka nú veiting-
arnar í félagi Bjarni Magnússon
og Magnús Þorsteinsson og hafa
kökugerð á Hverfisg. 35 og þar
er einnig úlsala.
Aumingja Elías
hefir engan getaö fengiö til þess
að skrifa síðustu gretnina fyrir sig
- og er sjálf greinin langt, ábyggi-
legt vottorð þess, langtum ábyggi-
legri vottorð en hin, sem Elías hefir
verið að tína til.
Þaö er dálítið hart fyrir mig,
þegar Elías býður mér í ritdeilu,
að greinin skuli vera þannig úr
garði gerö, aö engu er hægt að
svara, nema aö tyggja upp aftur
þaö sem eg er búinn að segja, en
líklega eru skriftir Elíasar svo erf-
iðar, að hann kemst ekki til aö
skilja það sem um hann er ritað.
En, Elías, af því yöur virðist svo
ant um aldurinn, ráðlegg eg yður
að láta prenta alt skírnarvottorð yð-
ar undir næsta þunnmetið sem frá
yður kann að koma.
Að sinni er ekki hægt aö tala
meira við yöur. Eg vona að yður
hafi nú lærst að fara ekki útaf eins
geist, þótt einhver spyrji yður frétta
næsta daginn, og af því að fyrir-
sögnin á síðustu grein yöar er svo
skáldleg og falleg, þá vildi eg að
hægt væri að heimfæra hana á yð-
ur, og að næsti þáttur í yðar merki-
Iegu sögu gæti heitið »kattarins
nýja líf«, og aö þessi endurfæddi
köttur fái að vera kyrr i H/f »Egg-
ert Ólafssonar* framkvæmdarstjóra-
tunnu.
En afleiðingin er það, Elías, aö
enn er öllu ósvaraö, sem eg hefi
sagt um yður.
Útgerðarm. sem enn á tunnur.
Aths.
Vísir óskar að deilunni sé lokið.
K. F. U M
Skemtiför Knattsp.fél. Vals
verður á morgun (sunnudag).
Meðlimir beðnir að mœtast inn
við Norðurpól kl. 9 f. h.
(Menn eru beðnir að hafa
með sér nesti).
Tveir kaupamenn
Og
tvær kaupakonur
óskast. — Hátt kaup.
A. v. á.
# 1 \
Ágætt
niðursoðiö
Heilagfiski
fæst í
Kaupangi
Stúlkur vantár að Vífilsstaða-
hæli. Uppl. hjá yfirhjúkrunarkon-
unni. [8
Karlmannsgullhringur fundinn.
Uppl. á Laufásvegi 27, uppi [13
Ábyrjaður »Löber« með garni
hefir tapast. Finnandi beðinn að
skila honum á Lindargötu 1.
1
KAUPSKAPUR
Barnavagga til sölu á Ránarg
29 A uppi. [4
Stór og fallegur hestur til sölu
á Klapparst. 1 A. [5
Kommóöa, stórt borð, lampar,
grammofón, oiíuvél o. fl. til sölu á
Laugavegi 22, steinh. [11
Eallegur upphlutur til sölu á
Laufásvegi 27, uppi. [12
S M Æ €)!
2—3 herbergi og eldhús ósk-
ast, Uppl. gefur. Ól. Grímsson,
Lindarg. 23. [2
2 herbergi, annað lítið, óskast
handa einhleypum, þurfa ekkí að
vera í sama húsi. Uppl. á Grettis-
götu 19 C. [9
íbúð . anda batnlausti fjölskyldu
óskast 1. okt, n.k. Uppl. á Lauga-
vegi 19 hjá Birni Árnasyni. [10