Vísir - 11.09.1916, Side 4
VlSIR
Mjólkur-,verkfall‘
í Stafangri.
íðnfélögin í Stafangri hafa sam-
þykt að hætta öllum skiftum við
mjólkurframleiðendur, vegna þess
hve mjólkin er dýr. En svo segja
norsk blöð, að erfitt gangi að
framkvæma þessi samtök. Pví
hefir enn ekki verið komið við,
að hafa varðmenn við allar mjólk-
búðir, til að banna mönnum að
kaupa, og mjólkursaiarnir segja
að salan hafi Iítið minkað. —
Mjólkurverð er ekki hærra í Staf-
angri en í öðrum jafnstórum bæj-
um í Noregi.
Svfar og Bretar
Svíar samþyktu í vor lög sem
banna öilum sænskum þegnum
að undirskrifa skuldbindingar þær
sem Bretar hafa krafist af kaup-
mönnum. — Svíar voru um þær
mundir »hvergi hræddir hjörs í
þrá«. — En af þessu leiddi að
Bretar bönnuðu allan útflutning
til Svíþjóðar. Nú hafa Svíar um
hríð verið að ná samningum við
Breta um innflutning á síld frá
íslandi, sem þeir hafa sjáifir veitt
og sœnska stjórnin lofað að
kaupa fyrir ÓO aura kg. Sagt er
að það leyfi sé fengið, en auð-
vitað verður þá sænska stjórnin
sjálf að undirskrifa skuldbinding-
arnar, sem búið var að banna
með lögum. — Pað er sitt hvað:
vorhugur og hausthugur.
Vesturheimseyja-
salan*
Sú frétt hefir vesið símuð til
Kaupmannahafnar frá St. Croix,
einni af Vesturheimseyjum Dana,
að Hamilton Jackson, svertingja-
foringi, hafi gengist fyrir funda-
höldum þar á eynni út af eyja-
sölunni. Á tveim fundum greiddu
4720 menn og konur atkvæði
með sölunni og einir 7 — sjö
— á móti. í öðru skeyti er sagt
að allir flokkar séu því samþykk-
ir að eyjarnar verði afhentar
Bandaríkjunum.
K. F. U M
Valurl
Æfing f dag ki. 8.
Símskeyti
frá fréttarstara Vísss
Khöfn 9. september.
Austurrfkismenn hafa hörfaö úr borginni Rove-
reto í Triol. Þjóðverjar eru að hefja sókn hjá Meuse.
Uliarpeysur — Skyrtur
Buxur — Sokkar
karla, kvenna og barna, o. fl. af ýmiskonar prjónuðum varningi
nýkomið.
^evstun S- Hioe^a.
Odýr fataefni!
Stórt úrval.
Afar-heppileg í drengja og unglingafatnað.
Verð frá 3—6,75 pr. mtr.
Nýkomin í YöruMsið.
ITO.MTNfiATi.FOT
og ágætt efni í þau
fæst nú í
Austurstræti 1.
Asg. G. Gunnlaugsson & Co.
Gullfoss
Iagður af stað vestur um haf,
—o—
Það var mannmargt á bryggjunni,
þegar Gullfoss var að leggja af ;
stað í gærvöldi. — Frændur og '
kunningjar þeirra, sem með skipinu s
ætluðu vestur, fjölmentu, og auk ;
þeirra voru þar margir saman !
komnir, til að óska Gullfossi góðrar
feröar. Um leið og skipið lagði
frá bryggjunni kl. 8 lét skipstjóri
veifa fánanum og kvað þá við úr •
Iandi: «Góða ferð Gullfoss* — og
fjórfalt húrra. Og húfum, höttum
og klútum var veifað lengi á eftir.
En alt í einu var hrópað: «Einn
farþeginn hefir orðið eftir! Lítill
bátur var á siglingu skamt frá
bryggjunni og var heitið á bátverja
að koma til hjálpar. Þeir brugðu
við og lögðu að bryggjunni og
farþeginn, sem orðinn var slranda-
glópur, Árni Benediktsson umboös-
sali, stökk niður í bátinn. Nokkrir
; vafningar urðu við aö losa bátinn
| frá bryggjunni aftur, byr var and-
; stæður, en ræði engin á bátnum,
og urðu bátverjar að róa við stag-
ina. En er hann var kominn
skamt undan, var en hrópað að
annar farþegi væri eftir í landi.
Brátt kom þó í Ijós að svo var
eigi, en maður hafði fylgt Árna til
skips og borið fyrir hann skjala-
böggul, hafði hann hlaupið lengra
fram á bryggjuna, en Ámi, er hann
sá að skipið var að fara frá henni,
til þess að kalla til skipverja. En
á meðan fór Árni í bátinn og
skildi skjölin eftir. Var nú tekið
til þess ráðs, aö fá annan bát til
að fara með skjölin, og urðu bát-
arnir nær jafn fjlótir út að skipinu.
Árni komst heilu og höldnu á skips-
fjöl og skjalaböggullinn Ifka —
sást það greinilega úr landi, er
hann (böggullinn) var dreginn upp
með svartri skipshliðinni úr bátn-
um.
Eimflauta Gullfoss gall nú viö í
kveðju skyni, og hann sigldi út á
milli eyja, með íslenzka fánann í
afturstafni, en Bandaríkjafánann við
hún á framsiglu, áleiö til Ameríku
í annaö sinn.
Seglgarn
í hnotum,
fínt og gróft,
fæst I
£\vevpoot,
| Tapast hefir silfurmanchettu-
■ hnappur, hálfkúlumyndaður með
| keðju og slá. Einnandi vinsaml.
beðinn að skila honum á afgr.
þessa blaðs, [88
— V I N N A —
Stúlka óskast í vist á fáment
heimili frá 1. okt. til 11. maí.'Gott
kaup í boði. A. v. á. [83
Stúlka óskast strax. A.v.á. [91
SNÆÐI
Eitt herbergi með sérinngangi án
húsgagna óskast á leigu 1. október.
R. v. á. [73
KAUPSKAPUR
I
Brúkaðar námsbækur, sögu og
fræðibækur, fást með miklum af-
slætti í Bókabúðinni á Laugav. 4.
[31
Morgunkjóiar fást beztir í Garða-
stræti 4. [76
i-angsjöl og þríhyrnur
fast alt af í Garðarsstræti 4 (gengið upp frá Mjóstræti 4). [77
Stofuofn til söln á Skólavörðu-
stíg 24. [79
Borðstofuborð, nokkrir stólar og dívan, óskast til kaups. Uppl. á
Laugavegi 39. [80
Barnarúm úr tré óskast til kaups.
A. v. á. [82
Gulrófur til sölu á Suðurg. 6.
[89
Mjög góð, ung, bráðsnemm-
bær kýr tii sölu. Uppi. á Suð-
urgötu 6. [90