Vísir - 14.01.1918, Side 4
VlSlL.
Hross íalla.
Þau tíöindi eru sögö austan úr
jLandeyjum, að þar hafi tvö hross
írosið í hel, standandi i haganum
eina nóttina. — Hefir frostgrimd-
in veriö þar miklu hærri þessa
dagana en menn muna dæmi til,
eins og annarstaöar á landinu, og
hross þar óvanari miklum kuldum
en t. d. nyrðra.
Hér í Reykjavík gengur fjöldi
hrossa úti dag og nótt, en þau
geta leitað sér skjóls milli húsanna
og má vera að það bjargi þeim
sumum, sem ekki þyldu kuldann
úti á víðavangi.
Félagsprentsmiðjan
færir út kviarnar.
Núna um áramótin keyptu
eigendur Félagsprentsmíðjunnar
prentsmiðjuna „Rún“, og hafa
nú sameinað þrjár prentsmiðjur
sem áður voru sjálfstæðar eignir,
því að í fyrrasumar keyptu þeir
prentsmiðju Skúla sál. Thorodd-
sens og sameinuðu hana - Félags-
prentsmiðjunni. Verða prent-
smiðjurnar framvegis reknar af
sama félagi og undir sömu stjórn,
en fyrst um sinn í tveim stöðum:
é Laugaveg 4, þar sem Félags-
prentsmiðjan hefir verið frá upp-
hafi, og í húsi þvi, sem bygt var
yfir prentsriiiðjuna Rún við Ing-
ólfsstræti og með fylgdi í kaup-
unum, en munu verða sameinað-
ar í Ingólfsstræti í vor.
Þessar sameinuðu prentsmiðj-
ur eiga tvær setjavavélar, því
auk þeirrar sem „Rún“ átti,
keyptu eigendur Félagsprent-
smiðjunnar aðra setjaravél í Am-
eríku í sumar, og er hún hing-
að komin. — Aðrar eða fleiri
setjaravélar en þessar tvær, eru
ekki til hér á landi. Vél „Rún-
ar“ var sú fyrsta sem hingað
jfluttist. En auk þess mun Félags-
prentsmiðjan löngum hafa verið
leturbirgasta prentsmiðja Jands-
ins, og verður hún því framveg-
is vafalaust afkastamesta prent-
smiðjan á öllu landinu ef á reyn-
ir, og mun geta fullnægt flestum
kröfum, hvað leturgerð, letur-
breytingu og tíjóta afgreiðslu
snertir. — Hver setjaravél mun
vinna 4—6 manna verk aðjafn-
aði.
Forstjóri fj rirtækis þessa er
hr. Steindór Gunnarsson, sem
áður hefir stýrt Félagsprentsmiðj-
unni. Hann hefir skrifstofu á
Laugaveg 4.
Visir er, eins og kunnugt er,
prentaður í Félagsprentsmiðj-
unni.
Lampaglös
8, 10, 14, 15 og 20 lína.
Haskínnkveikir
og fleira kom með „Geysir“ til
Jóh. Ögm. Oddssonar
Laugaveg 63.
ErJríif} niyitt.
Kl. »ft Baak. Póetb
SterLpð. 15 50 15,70 16,00
Fre. 57,50 59,00 60.00
Doll. 3,28 3,50 3,60
2-4 skpd. af kolam
óskast til kaups.
Tilboð eendist afgreiðelu Visis
hið fyrsta.
jE1-\2s.320.
ei.'w o? tvegKi*
Fiöur, Dúun, Sængur-
dúkur, Madressur.
Vöirxi.la.'CLsiö
Norðlenskt saltkjöt
í l*rum, egta gott, miög ódýrt,
fæst í verslun
Simonar Jónssonar
Laugaveg 13.
Edik
fæst hjá
Jódí Hjartars. & Co.
Nýtt kálmeti:
Hvítká),
Rauðkól,
Selíerj,
Rauðrófur,
Gulrótur
Jóq Hjartarson & Co.
Talsími 40 Hafnarstr. 4
&*;.,.**&* ^ ^
f i > t ,
» iws í'ifit i! r. :: ,
Jólis. Þorkelss., Syðra-Fjalli, Þ.
Guðrún G. Jónsdóttir, ungfrú.
Valgerður Pétursd., saumakona.
Sigurjón Hildibrandss., verkam.
Óskar Lárusson, verslunarm.
Guðj. S. Magnússon, skósmiður.
Elín Stephensen, húsfrú.
„Lagarfoss"
kom inn á Fáskrúðsfjörð í gær
um hádegið. Hann fór héðan á
mánudaginn var, og sást fara fram
hjá Djúpvogi á miðvilcudag, en
síðan fréttist ekkrt til hans fyi
en í gær. Hann átti að koma við á
Seyðisfirði á noröurleið, en hefir
líklega ekki fundið. hann fyrir
dimmviðri og verið að velkjast
fyrir Austurlandinu þessa daga.—
Þegar hann kom til Fáskrúðsfjarð-
ar, var hann að sjá eins og hafís-
jaki.
Það fréttist af honum í morg-
un, að hann hefði verið orðinn
svo íeaður, er hann kóm til Fá-
skrúðsfjarðar í gær, að skipverj-
ar hafi óttast að hann mundi
sökkva. Voru fengnir menn úr
laudi til að höggva ísinn af skip-
inu áður en lengra yrði haldið.
„Sterling“
losnaði loks úr ísnum við bólvirkið
um kl. 5 í gærkveldi. Var unnið
að því að brjóta ísinn frá skipinu
frá því snemma um morguninn, og
vanst lítt á, en að lokum gliðnaði
ísinn svo i sundur, að skipiö gat
sjálft rutt sér braut út úr honuin.
Hélt skipið síðan rakleitt leiðar
sinnar héðan.
Hafnarstjórastaðau
Umsóknarfresturinn um hana er
nú útrunninn, og hafa þessir menn
sótt um stöðuna: Skipstjórarnir
Svbj. Egilsson, Þorst. Þorsteins-
son, Hjalti Jónsson og Þorst. Júl.
Sveinsson, og Þórarinn Kristjáns-
son hafnarverkfræðingur.
Brunatryggingar,
sæ- og stríðsvátryggingar.
A. V. T u 1 i n i u s,
Miðstræti. — Talsími 254.
Skrifstofutími kl. 10—11 og 12—2.
Leikhúsið.
Þar var Konungsgliman enn
sýnd við allgóða aðsókn í gær-
kveldi. En ekki mátti tæpara
standa að gasið entist, því að um
leið og tjaldið féll eftir síðasta
þátt, sloknaði á ölltim lömpum og
urðu talsveröir öröugleikar á því
fyrir leikhúsgestina að ná í föt
sín og fyrir þá, sem börn lröföu
með sér að finna þau. Eftir nolvkra
stund var þó hægt að bregða upp
lampaljósum, svo að hver gat séð
til að finna sitt og komast út.
E.s. Geysir
hefir verið að brjótast út úr ísn-
um við bólvirkið í rnorgun, og
mun eiga að fara héðan í dag á
leið til útlanda.
„John Storm“
var sýndur allur í Nýja Bíó í
gærkveldi fyrir fullu húsi, og stóð
sýningin til miðnættis frá kl. 9.
Myndin verður sýnd öll aftur í
kvöld og munu nær allir aðgöngu-
miðar vera upppantaðir.
Frostið
var um 20 stig hér í gærmorgun
en undir kvöldið tók loftið aL
þykna og dró úr írostinu og um
kl. 10 í gærkveldi var það að eins
14 stig á landsímamælirinn. — í
morgun var frostið 15 stig hér, en
um 20 víðasthvar annarstaðar á
landinu.
Biírestingar og Hlínverjar
eru beðnir að koma ofan í Good-
templarahús að drebka kaffi kl.
8‘/j í kvöJd.
Nokkrir Hlínverjar.
I SaWPSKAFÖB
Keðjur, akkerisspil, vírar o. m.
fl. til skipa selur Hjörtur A. Fjeld-
sted. Sími 674. Bakka viö Bakka-
stíg. (5
2 hesta mótor til sölu. Sveina
Hjartarson. (128
Erfðafestuland til sölu í Reykja-
vílc. Landið er rúmar 27 dagslátt-
ur að stærð, því fylgir íbúðarhús,
stórt fjós og heyhlaða. Frekari
upplýsingar gefur Sveinn Hjartar-
son, Bræðraborgarstíg x. (127;
Til leigu herbergi með rúmum
fyrir ferðafólk á Hverfisgötu 32.
[20
Ágæt forstofu-stofa með hús—
gögnum til leigu nú þegar A.v.á.
(142:
Úr tapaðist í morgun í Banka-
stræti. Finnandi skili til Árna
og Bjarna klæðskera gegn háum
fundarlaunum. (153
—------------------í—------
Svört silkisvunta hefir tapast
frá Tjarnargötu að Yesturgötu 27.
Skilist í Tjarnargötu 8 gegn
fundarlaunum. (154
Félagsprentsmiðjan.