Vísir - 02.05.1918, Blaðsíða 2
IZL?
Vantraust.
Það hefir nú verið ákveðið á
þingi, að láta fara fram sérstaka
rannsókn á verslunarframkvæmd-
um landsstjórnarinnar og sömu-
leiðis hefir verið fyrirskipuð rann-
sókn á fiármálastjórn hennar.
Það má í sjálfu sér alveg einu
gilda, hvort slik rannsókn er
falin sérstakri, þar til kosinni
ouefnd, eða nefnd, sem áður hefir
verið kosin. Aðalatriðið er, að
þingið telur ekki stjórnina þann-
ig skipaða, að henni eða skýrsl-
um hennar sé trúandi, án ná-
kvæmrar rannsóknar af þings-
ins hálfu. í ákvörðun um, að
rannsókn skuli fara fram, liggur
því megnasta vantraustyfir-
lýsing, sem engin stjórn, sæmi-
lega vönd að virðingu sinni,
mundi láta bjóða sér, og leggja
ekki níður völd.
Og þrátt fyrir allar yfirlýsing-
arnar, um að þessa nefndarskip-
un beri ekki að skoða sem van-
traustsyfirlýsingu, þá hlýtur þing-
inu að vera það ljóst, að öðru
vísi verður hún ekki skoðuð.
Ef þingið bæri traust til stjórn-
arinnar, þá mundi það einnig
treysta henni til að „varast vít-
in“ sem henni kynnu að hafa
orðið á. Og hinn tryggasti og
dyggasti fylgismaður stjómarinn-
ar, háttv. þingm. Dalamanna,
undirstrikaði einmitt þetta í um-
ræðunum um rannsóknarnefnd-
artillöguna. Hann hélt því fram,
að slik rannsókn lægi undirbjarg-
ráðanefnd, því að henni bæri að
athuga, hvort heppilegar 1 e i ð-
i r hefðu verið farnar, eða hvort
aðrar mundu tiltækilegri. En
framsögumaður málsins tók það
ekýrt fram, hvert hlutverk rann-
sóknarnefndinni væri ætlað, og
það var ekki að rannsaka hvaða
bjargráða 1 e i ð i r ætti að fara,
heldur hvaða útúrdúra stjómin
hefði farið frá þeim leiðum, sem
henni var ætlað að halda og
hver afglöp hún hefði drýgt. —
Hann sagði það ekki með þess-
um orðum, en meiningin var sú
sama. Menn deilir ekki á um
það, hvort stjórnin hafi orðið að
leigja skip og kaupa og vá-
tryggja þau, að ráða menn í sína
þjónustu o. s. frv. Og þegar
þingið ákveður að láta rannsaka
hvernig þetta hafi verið gert,
(sbr. orð framsögumanns), þá er
það ekki vegna þess, að það haldi
að ef til vill sé réttara að hætta
öllu slíku, heldur af því, að
jafnvel ekki hinn dyggasti og
tryggasti * fylgismaður stjórnar-
innar á þingi, né heldur félagi
hans úr fossanefndinni, hefir kjark
til þess að segja að slík rann-
sókn sé óþörf, af því að stjórnin
hafi gert alt vel. Afglöp stjórn-
arinnar eru svo alkunn, að jafn-
vel þessir menn þora ekki að
bera þau af henni með því
að mótmæla slíkri rannsóknar-
nefndarskipun, sem hér er um að
ræða og taka þannig á sig ábyrgð-
ina með henni frammi fyrir þjóð-
inni.
En svo mikil nauðsyn som nú
er talin á því, að verslunarráð-
stafanir stjórnarinnar verði rann-
sakaðar, þá liggur í augum uppi,
að tilefnið til þeirrar rannsóknar
getur alls ekki verið gefið að
neinu leyti af fyrv. stjórn (Ein-
ars Amórssonar), þó að stjórnar-
blöðin reyni að láta líta svo út,
sem rannsóknin eigi einnig að
ná til hennar. Síðan Einar Arn-
órsson lét af stjórn, hafa tvö
þing verið haldin, og hefðu þau
væntanlega rannsakað verslunar-
framkvæmdirnar frá hans stjórn-
artið (eða hafa gert það), of
ástæða hefói þótt til, með því
líka að kunnugt er, að hann var
þá ekki í meiri hluta. Og það
er vitanlegt, að það er einmitt
E. A. og hans flokksmenn og
nokkrir aðrir af þingsins bestu
mönnum, sem knúð hafa fram
þessa rannsókn á vandræðaráð-
stöfunum núverandi stjórnar, en
stjórnin og hennar sauðspökustu
fylgismenn reyndu af fremsta
megni að koma í veg fyrir hana.
En þegar vonlaust var orðið um
að komið yrði í veg fyrir að
rannsóknarnefnd yrði skipuð, þá
var alt kapp lagt á það af stjóm-
inni, að nefndin yrði þannig
mönnuð, að sem minst yrði úr
rannsókninni. Og þess vegna
ætluðu stjórnardilkarnir líka al-
veg að tryllast, þegar Einar
Arnórsson var kosinn í nefnd-
ina. En með því sýna þeir ein-
mitt, hve lítið traust þeir bera
til stjómarinnar sjálfir og að þeir
treysta henni ekki til að stand-
ast fyrir nákvæmri rannsókn.
Ella mátti þá einu gilda, hverjir
skipaðir yrðu í nefndina.
Frá Alþingi.
örstuttir fundir voru í báðum
deildum í gær.
í Ed. var að eins eitt frv., um
mjólkursölu á Isafirði, á dagskrá
og var því vísað til 3. um-
ræðu.
í Nd. var frv. um sektar-
ákvæði fyrir brot á reglugerðum
um lokun sölubúða til 2. um-
ræðu og vísað orðalaust til 3.
Auk þess var frv. um stsekkim
verslunarlóðar i Ólafsfirði, sem
þm. Eyfirðinga flytja, á dagskrá,
og varð heldur enginn til þesa
að leggja stein í götu þess.
Ekkert nýtt framkomið í þing-
skjölum og alt „aðgerðalaust14
bak við tjöldin, að því er virðist.
Stærstu
j ár n vörubirgðir
landsins
ern nú i
Járnvðrndeild Jes Zimsens,
sem með síðnstu skipum liefir frá Ameríku og
Norðurlöndum fengið afarmikið af ailskonar
járnvörum, t, d.:
Potta Pönnur Katla Könnur Bala Bittur
Bollabakka Ausur Fiskspaða Skolpíötur
Þvottagrindur Vatnsfötur Bala, ýmsar
stærðir. Mjólkurbrusa, stóra og smáa.
Kolaausur Rykausur Trektir Potthlemma
Flautukatla Olíuvélar Peningakassa, marg-
ar stærðir. Matskeiðar Teskeiðar Hnífapör
Hamra Axir Sagir Skrúfþvingur Járnsagir
Járnsagarblöð Laufskurðarsagir Hjólsveifar
Tengur Hefla, stutta og langa.
Þjalir, allar stærðir. Skrúflykla Lamir
Lása Lokur Skrár Smekklása Skrúfur,
aliar stærðir. Trélím Vírnet Hóffjaðrir
Þaksaum Borðvigtir Decimalvigtir
og Lóð, allar stærðir.
Par eö dagblöö bæjarins ekki heföu
rúm fyrir öll nöfn á vörum þeim, sem
verslunin hefir, veröur hér staöar
aö nema.
Virðingarfylst
Járnvörudeild