Vísir - 24.05.1918, Blaðsíða 2
VIS í R
VISIR.
ÁlgreiíB'a blftifiaa I Áðai*tr»(
14, opin frá kl. 8—8 á hverjum dagi,
Skrifetofa £ sama stsð.
Simi 400. P. 0. Box 867.
Bitatjðriua til viðtali frá kl. 2—3.
Prentsmiðjan á Lang«V8g i
simi 133.
Anglýifegan vaitt mðttska i Land:
stjöninKöi effir kl. 8 á kvtldin.
Anglfsin^avetð: 50 anr. hver eas
dálks 1 ateiri angi, 5 anra orð* i
s*á»nglýfliBsnM msð ðbrayttn letii.
Frá Alþingi.
Tjörneshueykslið útrætt.
í gær urðu enn langar umræður
um Tjörnesnámuna í Nd.
Fyrstur tók til máls Þorleifur
Jónsson og taldi hann dagskrár-
tillögu Péturs Jónssonar ótæka,
vegna þess að með henni væru
stjórninni engin takmörk sett
fyrir því með hve miklum halla
námuna mætti reka. Tillögu
fjárhagsnefndar gat hann heldur
ekki felt sig við, af því að hún
væri líka of óákveðin í þessu
efni og bar hann því fram nýja
tillögu til rökstuddrar dagskrár
á þá leið að námurekstrinum
skyldi haldið áfram undir stjórn
vegamálastjóra í sumar, en ef
það kæmi í ljós að náman yrði
ekki rekin landssjóði alveg að
skaðlausu, þá treysti deiidin stjórn-
inni til að taka það ráð að hætta
rekstrinum í haust.
Enn tóku margir þingmenn
til máls. Bíra Sigurður Stefáns-
son flutti gagnorða hugvekju um
frammistöðu stjórnarinnar í þessu
máli og endaði ræðu sína með
þeirri spurningu til búand-manna
i deildinni, hvernig þeir myndu
taka siíkri ráðsmensku af hálfu
þeirra manna, sem þeir hefðu
falið bústjóru fyrir sig, og taldi
lítinn vafa á því, að slíkir ráðs-
menn myndu tafarlaust reknir
úr vistinni.
Magnús Pétursson tók ræðu
forsætisráðharra og útreikninga,
sem sagt var frá í blaðinu i gær,
til athugunar og hrakti.Iíð fyrir
lið, og var það að vísu létt verk.
Endurtók hann svo þá staðhæf-
ingu sina frá því daginn áður,
að stjórnin hefði drýgt þessar
þrjár höfuðsyndir í sambandi við
rekstur xiámunnar: Stofnað land-
inu í þá hættu, að innlent elds-
neyti yrði af skornum skamti,
vegna þess að menn yrðu tregari
og hræddari viö að lejgga í inn
lent kolanám vegna reynslunnar
á þessum námurekstri landssjóðs,
aukið dýrtíðina með því að borga
óhæfilega hátt kaup og sprengja
þannig upp kaupgjald hjá öðr-
um 'atvinnurekendum í landinu
og iarið gálauslega með fé lands-
ins með hirðuleysi, ráðleysi og
eftirlitsleysi. Breytingartillögu
fiutti hann við dagskrártillögu Þ.
J. og vildi fella úr henni orðið
trey stir.
Enn töluðu Einar Arnórsson,
Bened. Sveinsson, atvinnumála-
Lestrarsalur Landsbókasafnsins
• /
verður opinn til afnota fyrir almenning á vaialegum tíma, frá 22.
þ. m. og mun verða svo framvegis, meðan vært er þar fyrir kulda.
Landsbókasafninu 21. maídag 1918.
Jón Jaootoson.
Nýr mótorbátur
mjög vandaður, fæst keyptur með öllu tilheyrandi, þar sem hann
er í Frederiksund í Danmörku.
Stærð 43 smálestir, lengd um 60 fet, breidd um 15 fet.
Mótor 48 hk. Alpha-vél. — Frekari upplýsingar hjá
Ö. Beujammssyni.
Sími 166.
Duglegur háseti
sem einnig getur verið mótormaður,
getur fengið stöðu á mótorskonnortunni „Mevenklint“ nú þegar.
Finnið í dag
0. Ellingsen.
8 tonna mótorbátur
í góðu standi,
bygður úr eik, með nýrri 14 hesta Alfavél, er tl 1 SÖlU.
nú þegar. — Bátnum fylgja öll nauðsynleg áhöld til sjóferða.
Ennfremur eru til sölu legufæri, ef óskað er. Allar nauðsyn-
legar upplýsingar, sölunni viðvíkjandi, gefur
Olafur V. Ofeigsson
Keflavík.
Piltur frá 14-18 ára
getur fengið atvinnu við búðarstörf hór í bænum. A. v. á.
70 tonn af góóum mó,
heimflutt að Ingólfshvoli (Hafnarstræti 14), verða keypt. Tilboð
með tilgreindu verði og hvaðan mórinn sé, óskast send Einari
kaupmanni Árnasyni, Aðalstræti 8, fynr 30. þ. m.
Góður véiameistari
og matsveinn
geta fengið góða atvinnu á m.k. „Faxa“. Upplýsingar gefur.
Sigurjóu Péturssoa
Hafnarstræti 18.
Góðlr
„ Kven-
I IióDmllarsolLkar
svartir, 0.98.
|EgiilJacobsen
SRSfSRS!
Atvinna.
Nokkra duglega fiskimenn ræð
eg yfir lengri tíma.
Góð kjör.
Eirikur Eiriksson,
skipstjóri, Framnesveg 3.
ráðh,, forsætisráðherra og G. Sv
og |varð fundarhlé um miðjan
daginn. Um kl. 6 kom fram til-
laga um að slíta umræðum og
var hún samþykt og síðan geng-
ið til atkvæða.
Allir stuðningsmenn stjórnar-
innar höfðu verið sammála um
það, að ekki mætti samþykkja
þingsál.till. fjárhagsnefndarinnar
vegna þess að þá væri girt iyrir
það, að námurekstrinum yrði
haldið áfram og lögðu eumir
áherslu á það að námurekstrin-
um yrði að halda áfram nærri
því hvað sem það kostaði. En þeg-
ar búið var að fella dagskrá
Péturs Jónssonar, sem gaf stjórn-
inni algerlega frjálsar hendur,
og því hefði mátt skoða sem
traustsyfirlýsingu, þá tóku þeir
það ráð, að samþykkja dagskrá
Þorleifs Jónssonar, þrátt fyrir
það. að í henni er kraíist, að
námurekstrinum verði hætt, ef
nokkur halli verði á honum. í>að
vildu þeir vinna fyrir það að fá
einbert orðatraust á etjórninni
samþykt. Málið, sem þeir þótt-
ust vera að berjast fyrir, varð
að lúta í lægra haldi.
Tillaga P. J. var feld með
12 : 11 atkv. Breyt.till. M. P.
við dagskrá í>. J. með 15 : 8 og
dagskráin samþ. með 14 : 9, alt
að viðhöfðu nafnakalli. For-
ssetisráðb.. og B. Kr. greiddu ekki
atkv., eu B. R. St. var fjarverandi.
UtaB aí Iandi.
Símfregn.
Bíldudal í fyrradag.
Fiskafii er hér góður. Fiski-
skipin hafa afiað 8—12 þús. á
hálfsmánaðartíma, en fiskurinn
er smár. Saltbirgðir endast 4—5
vikur.
Sterling kom hingað í gær-
kveldi og fór aftur um miðnætti.