Vísir - 16.06.1918, Side 2

Vísir - 16.06.1918, Side 2
VÍSIR Skóvörudeiíd versl. VON. veröur opin til kl. 12 á morgun (17. júní), Prjónagarnið er á förum og ekki útlit fyrir að það táist í bráð, því er vissara fyrir þá sem þarfnast þess aib koma sem íyrst. Verslnn 0 Asgeir 6. Gannlangsson & Co. Síldarsöltun. Til síldarvinnu nú í sumar hjá Hf. „Kveldúlfi“ á Hjalteyri, verða enn nokkrar stúlkur ráðnar. Upplýsingar daglega frá kl. 3—6 á skrifstofu vorri. Blutafélagið „Rveldúlíur“. v i s 1 r. Aígrsiðiila bisisio i Aðalettsii 14, opín ftft kí. 8—8 4 hvErjum degi, Skrifsíofa á sama stað. Sírni 400. P. 0. Box 887. Ritatjóíáw til viðtals frá kl. 2—8. Preaismiðjan á Langstveg 4 simi 133, Anglýtisgiua veitt móttaka 1 Lanói stjörnnBRÍ eftir kl. 8 4 kvöldin. Angífsingaverð: 50 anr. hve* eis d&lk« t ctærri >ngl, 5 anra otS. i sat&nnglýsingsn aaeð óbn/ttn letri. Frá Alþingi. í gær voru stuttir fuudir báðum deildum. í efri deild var innflutnings- bannsfrumvarp Maguúsar Torfa- sonar til 3. umr. Var á það bent, að frumvarpið mundi vera óþarft, en samþykt var það þó og afgreitt til neðri deildar. Greiddu ráðherrarnir þvi báðir atkvæði og verður ekki annað ráðið af því, en að þeir álíti, að reglugerðin, sem stjórnin gaf út á dögunum, hafi verið ólögleg. Samþykt var tillagan um eftir- gjöf á skuld riskifélagsins. í neðri deild urðu talsverðar umræður um frumvarpið um af- nám verðlagsnefndarinnar og í sambandi við það um kostnaðinn við Ameríkuför og veru Jóns Si- vertsens. Hóf Pótur Ottesen þær umræður og kvað eftirlits- leysi stjórnarinnar með slíkum fjárgreiðslum og reikningum úr hófi keyrandi. T. d. hefði J. S. gert kröfu fyrir 54 krónum á dag fyrir mat og þjórfó meðan hann dvaldi í Ameriku og væri „enginn dýrtíðarbragur á því borðhaldi“. Og 500 krónurhefði hann fengið fyrir sumarfatnað. Allur væri kostnaðarreikningur hans fyrir 10 mánaða dvöl þar helmingi hærri en allur kostnað- ur norska rikisins af eins og hálfs árs dvöl Friðþjófs Nansens þar vestra. Mun það þó ekki hafa verið meiningin, að þeir reikn- ingar hefðu átt að koma undir úrskuið verðlagsnefndarinnar. Komust þeir Pétur Ottesen og forsætisráðherrann í hár saman út af þessu, og sagði ráðherrann að Jón Sivertsen kæmi þessu máli ekkert við, en taldi það óviðeigandi að gera slíka árás á stjórnina óviðbúna! Frumvarpinu var vísað til 2. umræðu. Háskólahátið 17. júní. 17. júní verður haldinn hátíð- legur í háskólanum, sérstaklega til að kveðja prófessor dr. phil. Björn M. Olsen. Athöfnin hefst kl. 1 á morgnn í efri deildar sal Al'þingis og er öllum háskóla- borgurum heimill aðgangur með- an húsrúm leyfir. Tii athugunar. Þegar eg hafði dálitla frístund frá störfum mínum i dag, gekk eg yfir i hús K. F. U M. til að skoða myndirnar hans Eyjólfs Jónssonar, sem sýndar eru þar þessa, dagana. Þar var reglu- lega ánægjulegt að vera, og var eg að hugsa á meðan eg var að skoða ýmsa þessa ljómandi staði, sem myndirnar eru frá, hvað það hlyti að vera gaman fyrir þá bæjarmenn sem eiga börn, sem komin eru til vits og ára, að fara þangað með þau og lofa þeim að sjá náttúrufegurðina sem myndirnar sýna (en auðvit- að þarf að skýra þær fyrir þeim), t. d. eyjar, merkur, fjöll, dali, heiðar, læki, fossa, skóga, tún, engjar, hlíðar, flóa og brim. Einnig fólkið á grasafjallinu, Og þá er ,h u g m y n d i n‘ hans Eyj- ólfs ekki síst. Þar geta börnin séð hvað fallega hann hugsar. Mór datt í hug að svona mundi hann ekki hafa hugsað, hefði hann sem barn oft verið á „Bio“, eða á viðlíka óhollum stöðum. Hann hefir inndrukkið fegurð náttúrunnar í þess stað, og með myndúm sínum hjálpar hann unglingunum til að gjöra hið sama; þeim sem fá að sjá þær. Rvík 10.—,6.—’16. Þ. Á. B. Kosningarnar í Danmörku Við hlutfallskosningarnar í Kaupmannahöfn til þjóðþingsins danska, fékk listi jafnaðarmanna um 96 þús. atkvæði, listi ihalds- manna um 46 þús, listi stjórnar- flokksins tæp 40 þús., en listi vinstri mauna (I. C. C.) tæp 2700 atkvæði aðeins. Hlutfallið var líkt á öllum eyjunum, en á Jótlandi fengu vinstrimenn yfir- gnæfandi meiri hluta atkvæða, nema í stærri bæjunum, en þar eru jafnaðarmenn í meiri hluta viðast. Als voru kjósendur um 1200 þús. og þar af kusu full915þús. og er það mesta kosniugahlut- taka sem sögur fara af þar, (75,30/0) í Vejle kusu flestir, eða 84,7 af hundraði. St/jórnarflokk- arnir áttu meiri hluta allra greiddra atkvæða, nákvæmlega talið 81 atkvæði meira en helming. Þessi afarmikla þátttaka í kosn- ingunum, má heita alveg undra- verð, þegar þess er gætt, að kjósendum hefir fjölgað um meira en 100%. Hefði mátt bú- ast við þvi, að hluttaka hinna nýju kjósenda yrði miklu minni en hinna eldri, og að tiltölulega miklu færri kjósendur myndu nota kosningaróttinn fyrst í stað eftir breytinguna en áður, og sú varð t.d. reynslan hér á landi. En svo mikið kapp var líka i þessum kosningum í Danmörku, að slíks eru ekki dæmi áður og var kappið jafnt í öllum flokk- um og stéttum og konurnar hömuðust á ræðupöllunum eDgu síður en karlmennirnir. Dlvftnar fást í Mjóitræti 10. Yimiukoim-fargaiiið. ÞaS sýnist vera kominn tími til að fara aS hreyfa opinberlega þessu máli, sem flestum eSa öll- um kemur svo mikiS viS, nefní- lega vinnukonumálinu. ÞaS er far- iS aS ganga svo úr hófi hve dýrt verSur aS kaupa hjálpina sem heimilin þurfa. Ekki er þaS orSið sjaldgæft aS þær setji upp 30— 40 kr. og jafnvel 50—60 kr. á mánuSi hefir heyrst. AuSvitaS er þetta aSeins 4 mánuSi, sumarið, en töluvert víða fá þær 20—30 kr. hvern mánuð árið i kring. Gera menn sér grein fyrir, hvað það kostar yfir árið að halda stúlku með þessu lagi, nú í dýrtíðinni? Eg vildi gera stuttlega grein fyrir því með einföldum tölum: Kaup á mánuði . . kr. 25,00 Fæði - — . . — 50,00 "Herbergi með rúmi, ljósi og áhöldum . — 10,00 Alls kr. 85,00 Um árið kr. 1020,00 Auk þess er þvottur og margt smávegis, sem verður að skoða sem hlunnindi, en kostar þó alt mikið. Hve miklar tekjur má það heimili hafa, sem getur haldið svo dýra hjálp? Er ekki þetta að vaxa upp yfir höfuð á okkur kaupstaðarbúum ? Eg lit svo á, sem þetta sé að verða eitt stærsta vandræðamál okkar, og ‘að nú þurfi konur og menn að hjálpast að því, að kom- ast undan oki þessu, en það verð- ur aðeins á einn hátt, eftir því sem eg fæ séð. Tökum höudum saman að vinna húsverkin sjálfi látum drengi jafnt sem stúlkur venjast heimilisvinnu, og jafnvel húsbændur taki hönd í með, allu' sem einn, þá verður verkið létt- Þið húsbændur, embættismenn og aðrir, sækið mjólkina og fiskin11 um leið og þið gangið út á morgO' ana, drengir skúri gólf, beri inl1 mó og út ösku, að eg tali okki um stúlkubörnin, því margar hend- ur vinna létt verk; þetta l]efir lengi viðgengist í Ameríku og f*r' ist óðfluga hingaö í álfu, og nn' grannaþjóöirnar eru að koma með ýmsar tillögur sem stefna í þa átt að koma á nýju skipulagi. Eg læt mér nægja að þessn sinni aðeins að hreyfa málinu, eU vona að margar konur verði ti þess að leggja orð í belg, ef ske mælti að þeim hugsaðist eilthvert snjallræði annað, en hér er ne^n á undan. Stúlkurnar múndui au þess græða það, að verða frjálsar verur sem ekki þyrftu að veta lengur ambáttir eða undirty* ur> sem þær að vonum eru Iöngu orðnar þreyttar á. Madama.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.