Vísir - 04.07.1918, Síða 2
V í S i R
Forsætisráðherra
svarar.
Þar sprakk kýlið loksins — á
föstudaginn. Og Ijótt kafði það
yerið sem út kom, að sögn þeirra
sem heyrðu.
Um munnsöfnuð forsætisráð-
herrans ætla eg okki að tala.
Hann hafði verið með lakasta
móti og ennþá tuddalegri heldur
en þegar hann var að skamma
þingmanninn fyrir það á dög-
unum, að gera kostnaðarreikning
herra Jóns Sivertsens að um-
talsefni í þinginu.
En forsætisráðberrann svaraði
alls ekki því sem hann var
spurður um. Hann sagði þing-
inu af létta um viðskifti H. N.
Andersens og sín á öllum öðrum
sviðum en því sem fossana snerti.
Þeir væru gistivinir að lang-
feðgatali, konur þeirra væru
skyldar, þeir væru kunningjar og
umgengjust sem slíkir o. s. frv.
!>etta er þinginu og almehningi
gersamlega óviðkomandi. Þetta
er privatlíf ráðherrans og það er
svo langt frá mér að vilja draga
það út úr þeirri friðhelgi sem
það á jafnt á sér og prívatlíf
allra annara manna. Prívatlífið
er hafið upp yfir blaðadeilur og
eg hefði alls ekki drepið á það,
ef forsætisráðherrann hefði ekki
sjálfur í ræðu sinni gefið tilefni
til þess.
En það var verið að spyrja
hvað hefði farið honum og And-
ersen á milli um fossamálið
i smæstum sem stæstum atrið-
um, og þar til átti ráðherrann
ekki önnur svör en þau, að And-
ersen hefði sagt við sig að hann
áliti að íslendingar ættu sjálfir
að eiga upptökin að fyrirtækjum
á íslandi; nákvæmlega eins og
Andersen segir í Ritzau-skeytinu,
sem prentað er í Vísi 5. júní
þ. á.
Það er nú svo sem auðskilið,
'að þetta hafi hljómað vel i eyr-
um ráðherrans; það gerir það í
eyrum allra. En hvað sagði
hann? Hvaða tilefni gaf hann
til þessara ummæla? Hann er
kannske ekki ennþá búinn að
taka eftir því, að það var þ a ð
sem var verið að spyrja hann
um.
Og hvað sagði hann, þegar
Andersen (sbr. ofannefnt skeyti)
tjáði „sig fúsan til að styðja að
slíkum þjóðþrifaframkvæmdum
af fremsta megni“? Og hvað
sagði hann, þegar hann (sbr.
skeytið) var með Andersen á
fundi fulltrúa danska stóriðnað-
arins, þegar Andersen lofaði
honum „að hann og þeir vildu
fúslega styðja að framþróun ís-
lands með ráðum og dáð, verk-
legri þekkingu og fjárframlög-
V í S1R.
Atlas
Diesel-landmótorar.
Nokkra mótora héíi eg til sölu.
2 stykki 2S— 30 hestöfl.
2 — 42— 60 —
2 — 46— 80 —
2 — 90—107 —
Verðið er lágt og vélarnar ern ágætar og ábyggilegar.
1 samskonar vél er hér til sýnis hjá Sláturfélagi Suðurlands,
og hefir hún verið notuð hvern dag i 5 ár, og aldrei orðið inis-
dægart.
Allar nánari upplýsingar gef eg
Garl F. Bartels,
einkasali fyrir ísland, hittist Hverfisgötu 44, niðri, hvern dag frá
d. 5—7 e. m. „ *Sirni lí >r».
10 síldarverkamenn
geta iengið atvinnu á Siglnfirði i snmar
Th. Thorsteinsson.
étl SlilalUDrelö fæst með öllum áhöldum til
leigu frá 1. okt. þ. á. Frekari upplýsingar fást á Hótel ísland nr.
20, kl. 2—4 í dag.
Eldsneytisskrifstofa
Bæjarstjórnar Heykjavíkur hefir nokkrar smálestir
af vel þnrrnm mö
frá fyrra ári til sölu.
Pantanir eru afgreiddar og borgun veitt móttaka á Eldsneytis-
skrifstofunni í Hegningarhúsinu.
Utflutningsneftidina
vantar bókhaldara og vélritara strax.
Umsóknir, með tiltekinni kaupkröfu, leggist inn á
afgreiðslu blaðsins, fyrir föstudagskvöld, í lokuðu um-
slagi merkt: Útflatningsnefnd.
A f r a i d e I a bi&ðsiot i Áð&lstmi
14, opiu frá ki. 8—8 á hverjaai dags.
Skrifaioía á aama stié.
Sími 400 P. 0. Box 8S7,
Ritatjörina til viíísl# írá ki. 2—3.
Prentamiðjan i Langnveg 4.
sími 183.
Anglýsingnei vaitt möttaka í Lrkö*
stjörnasni *ftir kl, 8 & kvöldin.
AnglfBingftverJ: 50 nor. hver cm.
dáik« í rtærri (angh 5 »ura or*t i
eH&nnglýeingnai uei öbreyttn letrí.
um“? Og hvað eða hver gaf
tilefni til þess fundar? Og hvað
sagði hann, þegar Andersen, í
samræmi við þetta (sbr. skeytið)
„hét þeim hjálp sinni til að koma
þeim fyrirtækjum í framkvæmd,
sem alþingi íslendinga hafa bor-
ist erindi um?“ Og að hverju
leyti var sú yfirlýsing gefin að
gefnu tilefni frá forsætisráðherr-
anum ?
Það var þetta, sem hann var
spurður um, og það var þessu,
sem hann átti að svara, en svar-
aði ekki. Og hann er þó væntan-
lega ekki svo bíræfinn, að ætla
að telja manni trú um, að hann
'iafi ekki heyrt, þegar öll þessi
stórmenni voru að ávarpa hann,
eða að hann hafi staðið eins og
:>vara og ekki komið upp nokkru
orði. Og hann ætlar væntanlega
ekki heldur að fara að telja
manni trú um, að „málin, sem
alþingi hafa borist erindi um“,
séu önnur en fossamálið.
Forsætisráðh. ætlar væptan-
lega að hreykja sér af því, að
hugsanlegt væri að undirritaðan
kynni að bresta sannanir fyrir
því, að annaðhvort alt það 6l/4
milj. kr. ián, sem hann tók í
Danmörku í fyrrahaust, eða
partur af því, hafi verið tekinn
hjá „Stóra Norræna". Setjum að
svo væri. Hverju haggaði það?
Engu! Lánin eru jafn mikil og
tekin með jafn óhagkvæmum
kjörum fyrir þvi. Brall forsætis-
ráðherrans bak við tjöldin engu
ógrunsamlegra þar fyrir. Og
stærstu líkurnar fyrir bralli hans
og baktjaldamakki eru fólguar
í framkomu hans, þegar hann í
fyrra beitti þeirri aðferð í fána-
málinu, sem þingið mun sjálft
best kunna að meta.
En eg ætla ekki að fara að
rekja stjórnmálaferil forsætisráð-
herrans. Það bíður betri tíma.
En mörgum finst sá ferill vera
orðinn nógu langur þegar. Og
hvað sem viðskiftum hans við
„stórveldið“ H. N. A. líður, þá
hélt maður að hann væri búinn
að fá svo smjörþefinn af við-
skiftum sinum við stórveldin, að
hann vildi sem minst um þau
tala. Maður hélt yfir höfuð, að
bresku samningamir, sem for-
sætisráðherrann hefir komið i
kring, væri það besta frímerki á
haun út úr stjórn landsins, sem
hugsast gæti. X