Vísir - 19.07.1918, Blaðsíða 4
taka peniuga, ef togararnir til
dsexnis hefðu orðið fjrir miklum
halla og kaupendur báta-flotans
faríð á höfuðið. í*tí hefði efri
deild auðvitað svarað.
Hvað snertir 3. lið tillögunn-
ar, þá hefir víst verkamannafé-
lagið látið halda hér þrjá fyrir-
lestra ókeypis fyrir verkamenn,
og voru þeir allir mjög fróðleg-
ir, skemtilegir og mentandi.
Þeir þurfamenn sem húsnæðis-
lausir urðu og leituðu aðstoðar
þess opinbera, áttu að fá bíl til
þess að flytja sig til viðkomandi
sveitarstjórna, og þótti það virðu-
legt boð, þar sem finustu em-
bsettismenn landsins ferðast venju-
lega í bílum, ef þeir þurfa eitt-
hvað að ferðast í þarfir þjóðfó-
lagsins.
Ey verð' nú að biðja lesarann
fyrirgefningar á því, að eg er
kominn íangt fram á sumar. En
alt á sínar orsakir og auðvitað
afiefeingar um leið. Hér varð
svo mikil þurð á pappír, bleki
■og pennum um það leyti sem
„græna tillagan" var rituð, neii
eg ætlaði að segja þegar tillagan
var rituð á græna blaðið, að höf-
undurinn var ekki fyr búinn en
þetta. En afleiðingin verður líka
sú, að eg get bætt við þeim
íréttum héðan, að nú er komin
hér lyfjabúð, sem hefir á boð-
stólum allan mögulegan nauð-
synjavarning, og hann með þessu
óheyrilega tækifærisverði. Þar
má tilnefna hinn heimsfræga hár-
spíritus, sem er svo þúsundfalt
betri heldur en baðlyfið sem
Garðar Gíelason auglýsir, enda
er hann óspart notaður og ólíkt
að sjá hárafar Fjarðarbúa fyr og
nú. Nú munu menn hrósa happi
yfir því að hafa ekfei sint tillögu
þeirri, að bærinn tæki að sér
lyfjabúðina í samráði við héraðs-
læknir, sem líka var á móti til-
lögunni, enda myndi þá hvorki
eins mikið af meðulum né hin-
um heimsfræga hárspíritus. Fyr-
nefnda tillögu, um að bærinn
starfrækti lyfjabúð upp á sinn
reikning, bar fram Davíð Krist-
jánsson.
4-11.
»1» tíá , u«
Bœjarfréttip.
Afmæli í dag.
Gerda S. Hanson, húsfrú.
Guðleif Stefánsdóttir, ekkjufrú.
Hannes Hafliðason, skipstjóri.
Jón Jóhannesson, trésmiður.
Jón Jónsson kaupmaður.
Ölafur Hróbjartsson, sjómaður.
Trúlofun.
Ungfrú Krfritas Ólafsdóttir frá
Stóra Hrauni og HeJgi Guðmunds-
son frá Reykholti.
íVÍSIR
Kvcðjusamsæti
hélt Reykjavífeurdeild Norræna
stúdentasambandsins Sigfúsi Blönd-
al bófeaverði í gærkveldi. Hann
ætlar utan með Botníu i næstu
viku.
Þingmenn
eru nú margir farnir úr bæn-
um. Með „Skildi“ fóru norðan-
þingmenn llestir upp í Borgarnes
i gærmorgun. Hákon Kristófers-
son fór með Varanger í gær og
Karl Einarsson með Fálkanum.
Austanþingmenn munu fara með
Borg eftir helgina.
Gísli Sveinsson
sýslumaður og þingmaður Skaft-
fellinga fer héðan i dag, alfarinn
ti! embættis síns. Kona hans var
farin austur á undan honum.
Jóhannes A. Johannessen
læknir, sem verið hefir læknir
í Serbíu frá því snemma í ófriðn-
um, er ný kominn til Kaupmanna-
hafnar. Hafði ekkert frjetst af
honum um langan tíma, og ekk-
ert svar knmið við fyrirspurnum,
sem gerðar höfðu verið um hann
héðan, þangað til að símskeyti
barst frá honum núna i vikunni
frá Khöfn til Matthíasar læknis
Einarssonar, mágs hans. Er hans
von heim hingað bráðlega.
1000 króna gjöí'
barst landsspitalasjóðnum i gær
frá sendinefndinni dönsku.
Fálkinn
fór héðan í gærkveldi kl. ÍO1/^,
en bæjarbúar voru sem óðast að
þyrpast niður á hafnarbakkann
þangað til kl. 11, þar á meðal
voru söngmenn úr „17 júní“.
„Botníau
fór frá Þórshöfn í Færeyjum í
gærkveldi og er væntanleg hing-
að annað kvöld.
Örum & Wnltfs
verslun á Þórshöfn á Langanesi
hefir nú verið seld þeim Jóni
Björnssyni Ólafssonar gullsmiðs)
verslnnarstjóraogJóhanniTryggva-
syni verslunarmanni, sem báðir
hafa verið í þjónustu verslunar-
innar i mörg ár.
Mb. „ÚIíar“
fer til Breiðafjarðar næstu daga
og kemur við á ýmsum höfnum.
Nýtt ættarnafn.
Berthold Magnússon bifreiðar-
stjóri i Hafnarfirði hefir tekið sér
ættarnafnið Sæberg og fengið stað-
festingu stjórnarráðsins á því.
Skemtiferð
fer vélbáturinn „Skallagrímur"
vestur á Mýrar á morgun og kem-
ur við á Straumfirði, i Knarar-
nesi og Vogi.
2 kvenregakápnr
og
peysuföt ný
til sölu
GrettisQötu 46 niðri.
Pólerað
stofuborð
úr mahogni
er til sölu hjá
Nýkomið:
Regnhiífar
og
göngustafir.
Vörnhúsið.
r
fÁTRYGGIN6AR
A. V. T u 1 i n i u s.
Brunatryggingar,
sæ- og stríðsvátryggingar.
Sætjónserindrek8tur.
Bókhlöðustíg 8. — Talsími 254.
Skrifstofutími kt. 10-n og 12-2.
1
í
TAPAÐ-FUNDIÐ
Peningabudda með peningum
í tapaðist á leiðinni niður Spít-
alastíg og ofan í Ingólfsstræti.
Skilist á Spítalastíg 9 gegn
fundarlaunum. Zoph. Baldvins-
son. [270
Svipa fundin á Grettisgötu,
merkt. Uppl. Grg. 85. [294
Grár hestur hefir tapast frá
Hverfisg. 72. Merktur D. á sið-
unni. Finnandi er vinsamlega
beðinn að gera aðvart á Hvg.
72. Sími 380. [284
Tapast hefir peningabudda með
10 kr. 75 aur. Skilist í Tjarn-
argötu 20. [296
Sportkeðja úr silfri hefir tap-
ast (líkl. í miðbænum) síðastl.
þriðjudag. Skili3t gegn fundar-
launum á afgr. Visis. [295
5 króna seðill fundinn. Geymd-
ur hjá Ólafi B. Magnússyni lög-
regluþjón. [297
FálagspreníaœítSjan.
KACPSKAPUB
Lóð undir iítið híis
helst í vesturbænum óskast keypt
nú þegar. Tilboð með upplýs-
ingum um stærð og stað sendist
afgreiðslu þessa blaðs merkt
„Húsgrunnur“. [260
Nú er nógur lundi til sölu við
íshúsið í Hafnarstræti. Jafnframt
er óskað eftir að fá stúlkur til
að reitalundann. Gottkaup. [233
Möttull til sölu með tækifærís-
verði. Til sýnis fyrri hluta daga
á Kárastig 2. [282
Til sölu nýlegt karlmanns-
reiðbjól og nokkur hundruð pd.
af vel verkuðu trosi, það ódýr-
asta í bænum. Helgi Guðmunds-
son, Ingólfsstr. 6. [292
Kaupi nokkuð af nýjum stein-
oliufötum. Björn Guðmundsson.
Simi 384. * [290
Lítið sporöskjulagað borð og
4 vandaðir stólar (helst með
leðursætum) óskast. A.v.á. [286
Stúlka óskast í vist. Uppl. hjá
frú Sigurðsson, Þingholtsstr. 12
[229
Kaup&kona óskast í sumar
norður í Húnavatnssýslu. Verður
að leggja af stað á sunnudaginn.
Uppl. Hótel ísland nr. 14, kl.
6—7 e. h. [273
Stúlka óskast í vist 1. okt.
til A. Borkenhagen, Gasstöðinni.
[291
Prímusviðgerðir bestar á Lauf-
ásveg 4. [62
Prímusviðgerðir eru á Lauga-
veg 24 B. (Bilskúrnum). [263
Barngóð stúlka óskast til að-
stoðar húsmóðurinni á sumarbú-
stað uppi í Mosfellssveit. Nánari
upplýsingar hjá Ólöfu Sveins-
dóttur, Laugav. 2 uppi. [283
--------------V-------------------
Kaupakona óskast strax. Uppl.
á Bókhlöðust. 6B. |28T
Telpa, 12—14 ára, óskast helst
strax. A.v.á. [289-
Kaupakonur óskast í sveit.
Uppl. á Spítalast. 7. [293
Stofa með húsgögnum til leigu
á Spítalastíg 9. [222
Til ieigu herbergi með rúmum
fyrir ferðafólk á Hverfisgötu 32.
Stofa með húsgögnum til leigu
fyrir einhleypan reglusaman karl-
mann. A.v.á. [285
1 herbergi með forstofuinn-
gangi óskast til leigu strax.
A. v. á. [28S