Vísir - 17.08.1918, Page 4
’V.ISiK
i>jóðverjar nú sent nýtt hjálpar-
lið þangað.
Það er þannig orðin sú breyt-
ing á, að í stað þess að banda-
menn áttu í vök að verjast í
Frakklandi fyrir 1—2 mánuðum
og höfðu enga fótfestu í Rúss-
landi, þá hafa þeir sem stendur
yfirhöndina bæði í Rússlandi og
Frakklandi. Líkur eru engar til
þess að taílið snúist á þá aftur
í Frakklandi, því að nú er sýnt,
að þeir hafa þar nóg lið. í Rúss-
landi er alt meira á hverfanda
hveli, en þar eiga þeir þó líka
nægan liðsafla nærri því rett við
hendina, þar sem Japanar eru,
ef þeir að eins vilja hleypa þeim
svo langt vestur á bóginn. Og
þarf víst ekki að efast um, að
þeir geri það, ef á þarf að halda.
Rafmagnsstöð
á HúsavíL
Húsvíkingar hafa nú komið
upp rafmagsstöð hjá sér, og var
hún „opnuð til ljósa1' laust fyrir
síðustu mánaðamót, segir „ís-
lendingur", „og hepnast eftir
vonum. Leiðslan í nokkrum
húsum var þó i ólagi".
Erlead my&t.
Kh. % Bank. Pósth.
Sterl.pd. 15,03 15,40 15,70
•Doll. 3,16 3,30 3,60
Sv. kr. 113,40 116,00 116,00
N. kr. 103,00 103,00
V- . :*J* rlr .Jiíc ¥
Bæjarfréttir.
Afmæli í dag’.
Hjörleifur Jónsson.
Guðm. porsteinsson, trésm.
Ástráðnr Hannesson, afgrm.
Guðrún H. Eyvindsdóttir, hfr.
Júlíus IJalldórsson, læknir.
Árni p. Zakaríassön, verkstj.
Sigrún Gestsdóttir, hfr.
Jón Finnsson, prestur, Hofi.
Einar Zoega, velslunamiaður.
Sæm. Vilhjálmsson, hifr.stj.
Skemliferð
til Ajkraness fara m.b. Sigurð-
ur I. og Bifröst á morgun kl. 9,
ef veður Ieyfir, samanber aug-
lýsing á öðrum stað íblaðinu.
Messað
verður í dómkirkjunni á morg-
un kl. 11 árd.; séra Bjarni Jóns-
son prédikar.
Kolaskip
citt mikið kom hingað í gær
frá Englandi með farm íil lands-
stjórnarinnar. Skipið cr þrí-
möstruð skonnorta, heitir „Ama-
sis“, hefir meðferðis 2846 smál.
af kolum og var 17 daga á leið-
inni frá Englandi. Sagt er að
skipið risti svo djúpt, að það
komist ekki inn á höfnina og
enn þá liggur það fyrir akkerum
út af hafnarmynninu.
Veðrið
er nú aftur að skána og er
hlýrra í dag en í gær um alt land
og logn var fyrir nórðan í morg-
un. Er þá ekki vonlaust um að
rætist úr sildveiðunum. Telja
má vist, að skipin hafi farið út
í morgun.
2 kolaskip
höfðu lagt af stað frá Eng-
landi til íslands um líkt leyti og
Amasis, seglskipið stóra, sem
hingað kom í gær. Ættu þau
skip að geta komið hingað næstu
daga, ef ekkert slys hefir hent
þau.
Elsta manneskja,
er dó hér á landi siðasta ár,
mun hafa verið Ragnheiður
Jónsdóttir ekkja í Flatey. Hún
var fædd 9. febrúar 1818 á
Kinnarstöðum íReykhólasveit en
dó 13. jam’iar 1917 og var því
nærri 99 ára að aldri.
E.s. „Geysir“
kom hingað í gærkveldi frá
Englandi.
„Víðir“,
Hafnarf jarðarbotnvörpungur-
inn, kom úr fjórðu Englandsför
sinni í fyrradag. Afla sinn seldi
hann í þessari ferð fyrir 4900
sterl.pd. og kom heim með full-
fermi af kolum.
„Botnía“
hefir farið frá Kaupmanna-
höfn í gær, eins og sjá má á
símskeyti hér í blaðinu.
Magnús Guðmundsson /
skrifstofustjóri skrapp suður
á Garðskaga í vikunni, til að at-
huga kartöl'luakur landsstjórn-
arinnar, og lætur allvel yfir
uppskeruhorf unum.
Kristján Jónsson
háyfirdómari átti 40 ára em-
bættismannsafmæli í gær. Hann
var skipaður sýslumaður í Gull-
hringu- og KjósarsýslU 16. ágiist
1878 og gegndi því embætti í 8
ár, en var þá skipaður meðdóm-
andi í yfirréllinum.
Skemtiför
ætla Goodtemplarar að fara
inn að Laugamesi á morgun og
verður lagt af stað frá Templ-
arahúsinu kl. 9y2 um morgun-
inn.
Sambandsmálið.
Álit Gjelsviks prófessors.
Nitolaus Gjelsvik prófessor,
norski ríkisr éttarfræðÍD gurinn, sera
íslendingum er að góðu kunnnr,
hefir látið uppi skoðun sína um
sambandslagafrumvarpið nýja,
og er það "(orðrétt) eftir honum
haft á þessa leið:
„Áiit mitt er, að full ástæða
sé til þess að samgleðjast Íslandí
yfir þessu frumvarpi. „Sá, vinn-
ur sem bíður, en sá tapar sem
of bráður er á sér.“ Eftir frum-
varpinu 1908 unnu íslendingar
ekkert, en töpuðu að eins. Nú
er því snúið við: Nú er engu
tapað en mikið unnið. og mik-
ið táknar hér hið þýðingarmesta
eða hér um bil alt sem nú var
æskilegt að fá“.
Stórir heyjabændur.
Mestan heyskap í fyrrasumar
munu hafa haft þessir bændur
og búhöldar:
1. Eggert Briem frá Viðey, þar
með talinn heyskapur hans
allur, á Esjubergi, í Viðey
og Reykjavík um 4000
hestar.
2. Halldór skólastjóri Vilhjálms-
son á Hvanneyri 3700 hesta.
3. Jón bóndi Pálmason á Þing-
eyrum 3200 hesta.
4. Davíð bóndi Þorsteinsson á
Arnbjargarlæk (hefir 4 jarð-
ir undir) 2700 hesta.
5. Sigurður sýslumaður Óiafs-
son í Kallaðarnesi 2600 h.
En næstir þessum mönnum að
heyöflun munu þeir vera — með
um og yfir 2000 hesta — Sig.
skólastjóri Sigurðsson á Hólum,
bræðurnir Óskar og Skúli Thor-
arensen á Móeiðarhvoli, Andrés
bóndi Andrésson á Hemlu, Einar
bóndi Guðmundsson á Bjólu,
Magnús kaupm, Sigurðsson á
Grund, Magnús hreppstj. Gisla-
son á Frostastöðum, Gestur bóndi
Einarsson á Hæli o. fl.
„Ereyr“.
A. V. T u I i n i u s.
Brunatryggingar,
sse- og stríðsvátryggingar.
Sæljónserindi'ekstur.
Bókhlööustíg 8. — Talsími 254.
Skrifstofutími kl. 10-11 og 12-2,
Úrfesti fundin. Afgr. vísar á.
[164
Merkispjöld fást best og ódýr-
ust í Félagsbókbandinu, *[13
Ágætt reiðhjól lítið brúkað
til sölu. Ennfremur bókaskápur
og cikarborð. A.v.á. [149
Hús óskast til kaups að ein-
bverju leyti iaust til íbúðar 1.
okt. næstkomandi. Tilboð með
upplýsingum, merkt 99, leggist
á afgreiðslu Vísis innan 5 daga.
[156
Kvenn-reiðhjól til sölu. A.
v. á. y [155
Barnavagn í góðu standi ósk-
ast til kaups. A. v. á. [170
K. V. R. . _í" ..
bollapor
[230
Prímushausar bestir á Laufás-
veg 4. [38
Ágætt reiðhjól til sölu af sér-
stökum ástæðum. A. v. á. [174
Rokkur til sölu. Til sýnis á
afgr. Vísis. [176.
Filrnur fást fljótt framkallaðar
hjá Þorl, Þorleifssyni ljósmynd-
ara, Pósthússtræti 14. [25
Stúlka óskast nú þegar til 1.
okt. við innanhússtörf. Hátt
kaup í boði. A. v. á. [473
Stúlka óskar eftir morgun-
verkum. Upplýsingar á Grettis-
götu 51. [172
Stúlka óskast í vist, helst
strax. A. v. á. [171
Af sérstökum ástæðum óskast
stulka nú þegar á Ránarg. 24.
[175
1—2 herbergi og eldhús ósk-
ast nú þegar eða 1. okt. A.v.á.
[148
Prestskona sem kennir múeik,
óskar eftir stórri stofu sem næst
miðbænum, frá 1. okt. Uppl. í
síma 674. [158
Herbergi óskast til leigu fyrir
2 þingmenn, helst sem næst
Þinghúsinu. A. v. á. [167
Sölubúð til leigu
frá 1. okt. A. v. á. [168
Gisting fyrir ferðamenn á
Laugaveg 70. [160
Herbergi óskast til leigu fyrir
einhleypan mann helst í austur-
bænum. A. v. á. [162
FákpprentMBÍíSjau,